Alþýðublaðið - 11.06.1976, Qupperneq 3

Alþýðublaðið - 11.06.1976, Qupperneq 3
alþýó blaðM Ur Ið Föstudagur 11. júní 1976. FRÉTTIR 3 Norrænir músíkdagar í Reykjavík PROFSTEINN A GETU ÍSLENZKRA TÓNLISTARMANNA Dagana 18,—24. júni verða haldnir i Reykjavik Norrænir músikdagar, og mun þetta verða ein umfangsmesta tón- listarhátið, sem haldin hefur verið á Islandi. Hátt á fimmta hundrað tónlistarmanna, bæði áhuga og atvinnufólk mun koma fram á hátiðinni. Það heftir verið stefna þeirra sem að undirbúningi hafa staðið, að fá islenzka flytjendur til liðs við sig að sem allra mestu leiti. Er hátiðin þvi mikill prófsteinn á getu islenzkra tónlistarmanna. . Það er Norræna tónskálda- ráðiö sem stendur fyrir þessari hátíð og er hún haldin annað hvert ár, til skiptis i höfuð- borgum Norðurlandanna. Fyrsta Norræna tónlistar- hátiðin var haldin i Kaup- mannahöfn árið 1888, si'ðan hafa verið haldnar 22 shkar hátiðar. Þessi hátið sem nú stendur fyrir dyrum er hin 24. i röðinni, og hin þriðja sem haldin er I Reykjavík. Sú venja hefur skapast, að það land sem heldur músikdagana hverju sinni hefúr forsæti i Norræna tónlistar- ráðinu, og er Atli Heimir Sveinsson formaður Tónskálda- félags Islands, nú formaöur ráðsins. Á Norrænu músikdögunum, verða haldnir ellefu tónleikar, á sex stöðum i Reykjavik, auk tónleika að Bifröst í Borgarfirði. Alls verða flutt 59 tónverk, og eru höfundar á ýmsum aldri, kornung tónskáld auk eldri og þekktari höfunda. Eins og árið 1974, pantaði Norræni Menningarsjóðurinn nú eitt tón- verk frá hverju Norður- landanna til frumflutnings á hátiðinni, og er þemað að þessu sinni „músik fyrir áhugafólk”. Frá Islandi var valinn tónlist sem Gunnar Reynir Sveinsson hefur samið fyrir Nemendaleik- húsið, við leikritið Undir Suð- vesturhimni. Munu nemendur Leiklistarskólans flytja verkiö ásamt Gunnari, svo i rauninni eru þar á ferðinni bæöi tónleikar og leiksýning, enda hefur verkið hlotið undirtitilinn tónleikur. Verður tónleikurinn Undir Suð- vesturhimni fluttur i Lindarbæ tvivegis þann 20. júni. Það nýmæli var tekið upp á Norrænu músikdögunum i Kaupmannahöfn árið 1974, að bjóða einu landi utan Norður- landa að taka þátt i hátiðinni. Var þá Póverjum boðið, og þötti það takast mjög vei. Að þessu sinni munu Kanadamenn veröa Kanadamenn, taka þátt i Norrænum músikdögum sem sérstakir gestir Senda þeir hingað um tuttugu manna hóp, undir forystu fiðlusnillingsins Roberts Aitkin. gestir á hátiðinni. Kemur frá Tórontó, sem kallar sig að Kjarvalsstöðum dagana 20. New Music Ensamble undir forystu flautuleikarans Roberts Aitkins. Aitkins er okkur is- lendingum að góðu kunnur, enda hefur hann haldið hér marga tónleika áður. Mun hópurinn halda tvenna tónleika að Kjarvalsstöðum dagana 20. og 21. júni. — gek. KÓPASKER: FA BÆTUR Nú þessa daganna eru staddir menn frá Viðlagátryggingu Is- lands norður á Kópaskeri til að meta skemmdir þær, sem þar urðu i jarðskjálftunum i vetur. Er vonazt til að hægt verði að hefja bótagreiðslur um mánaðarmótin júni-júli. Þetta kom fram i viðtali sem við áttum við oddvitan á Kópaskeri Friðrik J. Jónsson. Hann sagði að öll húsin i þorp- inu hefðu skemmst eitthvað, mismunandi mikið, sumar skemmdir væru ekki umtals veröar en aðrar öllu meiri t.d. UM MÁNAÐAMÓTIN væri vafamál hvort borgaði sig að gera við eitt húsanna. 1 þvi eru tvær ibúðir. Ef gera ætti við húsið yrði að skipta um útveggi og eitthvað af innveggjum. — Það er mikið starf að meta það tjón er hlaust af jarð- skjálftunum, sagði Friðrik. Fyrst þarf að mæla og siðan reikna út þær bætur sem greiða á til viðkomandi tjónþola. Viðlagatryggingar munu koma til með að bæta allt tjón sem hér hlaustaf jarðskjálftunum, þar á meðal á vatnsveitu þorpsins og bryggjunni, en á þessum tveim mannvirkjum urðu mestar skemmdir. Aðspurður um atvinnu- ástandið i þorpinu sagði Friðrik það gott. Nýiokið væri grá- sleppuvertíð, sem gengið hefði nokkuð vel. Þá væri einnig ný- lokið rækjuvertíð, en á Kópa- skeri var starfrækt rækju- vinnsla nú i vor. 1 þá tvo mánuði sem þessi vinnsla stóð veitti hún um fimmtán manns atvinnu. — Bátarnir eru nú að búast til handfæraveiða og I landi verður næg atvinna fyrir handlægna menn við uppbyggingarstarfið sagði Friðrik að lokum. Sólnes lætur af störfum Bankaráð Landsbankans hefur fallizt á beiðni Jóns G. Sólnes um að veita honum lausn frá störfum sem útibússtjóra Landsbanka íslands á Akureyri £rá og með 1. júli næst komandi. Jón G. Sólnes hefur verið starfsmaður Landsbankans i 50 ár og útibússtjóri siðan 1961. Hann hefur haft leyfi frá störfum frá 1. febrúar 1975 vegna setu sinnar á Alþingi. Magnús Gislason, skrifstofu- stjóri, mun gegna störfum úti- bússtjóra á Akureyri eins og að undanförnu, þar til útibússtjóri hefur verið ráðinn. Ný skoðanakönnun fer af stað: ATTUM VIÐ AÐ SEMJA? I dag hefst í blaðinu 6. skoðanaskönnunin. Þátt- takendur eru hvattir til þessaðganga frá svörum sínum, sem allra fyrst og vekja athygli annarra á henni. Því meiri sem þátttakan er því mark- tækari verða niður- stöðurnar. Það hefur komið i ljós að mjög mikill áhugi virðist vera á skoðanakönnun blaðsins. Bréf og umsagnir sem okkur berast syna berlega að áhuginn nær langt út fyrir raðir fastra lesenda Alþýðublaðsins. Það hefur einnig verið til- gangur þessara skoðana- könnunar frá upphafi, að kanna almenningsálitið og afstööu fólks til hinna ýmsu mála, sem eru ofarlega á baugi hverju sinni. Við gerum okkur grein fyrir þeim takmörkunum sem skoðanakannanir, sem þessar eru háðar. Eigi að siður er okk- ur ljóst, að niðurstöðurnar gefa ávallt nokkra mynd af al- menningsálitinu. Af þeim sökum teljum við mikilvægt að standa heiðarlega að þessu verki og fylgja til hins ýtrasta settum og viðurkenndum regl- um. Munið að senda aöeins eitt spurningablað i umslaginu. Ef fleiri en eitt berast i sama um- slagi teljast þau ógild. Þessi könnun mun standa i tvær vikur eins og að undanförnu og verða könnunarseðlar birtir tvisvar, þ.e.a.s. i þessu blaði og svo aftur á morgun. Sá sem svarar þessari spurningu er-------------ára Karl-------Kona----------(Setjið x þar sem yið á) Áttum við að semja við Breta?.............. Setjið x við þau svör, sem við eiga. Sendið í lokuðu umslagi: aðeins eitt svar. Skoðanakönnun Alþýðublaðsins Pósthólf 320 Reykjavík Já-----Nei-------- I

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.