Alþýðublaðið - 11.06.1976, Síða 12

Alþýðublaðið - 11.06.1976, Síða 12
HAGKAUPSVERÐ Á ÖLLUM VÖRUM ■ Matvörur-fatnaður-búsáhöld ■ ferðabúnaður-álnavara-ofl-ofl OPIÐ TIL 10 í KVÖLD OG HADEGIS A MORGUN 1 ÚTBOÐ Tilboö óskast i holræsihreinsibúnaö fyrir Vélamiöstöö Reykjavikurborgar. Otboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3. Tilboðin veröa opnuð á sama stað, þriöjudaginn 13. júli, kl. 11.00 f.h. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGA<R Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800 1 Ritstjórn Alþýðublaðsins er í | I Síðumula 11 - Sími 81866 j Lausar stöður hjúkrunarfræðinga Eftirtaldar stöður hjúkrunarfræðinga eru lausar til umsóknar: Heilsugæzlustöð Hafnar i Homafirði, nú þegar. Heilsugæzlustöð Laugaráss i Biskups- tungum, nú þegar. Heilsugæzlustöð Kópaskers frá 1. ágúst 1976. Heilsugæzlustöð Húsavikur frá 1. des. 1976. Laun samkvæmt launakerfi opinberra starfsmanna. Uppl. eru veittar i heil- brigðis- og tryggingamálaráðuneytinu og i viðkomandi heilsugæzlustöðvum. Um- sóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist ráðuneytinú Heilbrigöis og tryggingamálaráöuneytið SiÓNARMID Föstudagur 11. júní 1976. Iþýöu- blaöíA Ur dagbók blaðamanns AÐ L0KNU LAND- HELGISSTRlÐI Striösátökum á íslandsmiöum ernúlokiö. Þvi geta allir fagnaö án tillits til þess hvort þeir eru ánægðir með samningana viö helginnar gleymdist. Gæzlan að bera hita og þunga gæzlunn- ar. Tvö fyrstnefndu skipin eru Bretum. Albrty og Árvakur hafa aö mestu legið i Reykjavikurhöfn i vetur,.enda ekki til stórátaka vegna smæðar. 1 hálft ár áttum við i hörðum átökum við brezkar freigátur, dráttarbáta og togara. öll varð- skip okkar, sem nothæf þóttu i striðinu, urðu fyrir skemmdum þegar árekstrar urðu. Oft var það fyrir óskiljanlega mildi að ekki urðu slys á mönnum og oft voru varðskipsmenn i beinni lifshættu. Óhætt er að fullyrða, að án vasklegrar framgöngu varðskipsmanna hefði þetta strið ekki verið til lykta leitt. Nú þegar vopnahlé hefur verið samið er ekki úr vegi að velta framkvæmd þessá striðs svolitið fyrir sér. Sumt var vel gert og annað miður eins og genguroggeristþegar átök sem þessi eiga sér staö. Það er staðreynd að Landhelgisgæzlan var ekki undir það búin að verja 200 milna landhelgi miðað við eðlilegar aðstæður. Hvað þá þegar um beina innrás var aö ræða. Akafi stjórnmálaforingja i að stækka landhelgina var svo mikill, aö undirbúningur á framkvæmd vörzlu land- helginnar gleymdist. Gæzlan hafði yfir sex skipum og einni flugvél að ráða. Aðeinsþrjú skip voru þó búin til að verja þessa viðáttu. Týr, Ægir og Þór áttu að bera hita og þunga gszlunnar. Tvö fyrstnefndu skipin eru stærst og ná 19 milna gang- hraða. Þór gengur hins vegar vart meira en 12 milur. öðinn var til „gagngerrar viðgerðar og endurbdta” út i Danmörku og kom ekki heim fyrr en I desember. Þessar viðgeröir og endurbætur tókust ekki betur en svo að mánuðum saman var skipið að hökta á annarri vélinni og ekki hægt að beita þvi gegn Bretum.Albert ogArvakur hafa að mestu legið i Reykjavikur- hö&i I vetur, enda ekki til stór- átaka vegna smæðar. Hafa ber ihuga, að varðskipin hafa fjölmörgum öðrum skyldum að gegna en áreita er- lenda landhelgisbrjóta. Það þarf einnig og ekki siður að hafa auga með islenzkum fiski- skipum, annast vitaþjónustu, koma fólki milli staða og lands- hluta þegar samgöngur teppast i lofti og á landi. Varðskipin þurfa ávailt að vera reiöubúin að koma nauðstöddum skipum til h jálpar og þannig mætti lengi telja. Að ábendingu viturra manna var skuttogarinn Baldur tekinn til gæzlustarfa og reyndist hann mjög vel. Ekki stóð á fögrum fyrir- heitum og hástemmdum lof- orðum I sölum Alþingis um eflingu Landshelgisgæzlunnar. Aðrir sófasérfræöingar i landi létu heldur ekki sitt eftir liggja og ótal tillögur, misjafnar að gæðum, komu fram um hvernig ætti aö svinbeygja Bretann. Við umræður á Alþingi voru skip- verjar varðskipanna lofaöir hástöfum og þeim heitið mar- vislegum úrbótum hvað viðkom aðbúnaði og öðru. Ekki vantaði orðin, en frekar hefðu þessir á- gætu sjómenn viljað fá ein- hverjar áþreifanlegar aðgerðir eins og siðar verður vikiö að. Fljótlega bar á góma, að fá skip að láni eða á leigu erlendis frá til aðstoðar okkar fáu varö- skipum. Rikisstjórnin þreifaði fyrir sér i Noregi, en fékk af- svar. Þá var leitað til stóra bróður I vestri, en eftir langa umhugsun og kannanir komust Bandarikjamenn að raun um að þeir hefðu ekki á lausu nein skip sem hentuðu Islendingum. Auð- vitað voru þessir tilburöir um útvegun skipa erlendis frá ekkert annaö en sýndar- mennska af hálfu stjórnvalda og gerðir til þess eins aö slá ryki i augu almennings. A Alþingi og i fjölmiðlum héldu stjórnmálamenn áfram að nota landhelgismálið/sem beitu fyrir kjósendur. Lang- mesti loddarinn i þessu máli er tvimælalaust LúvikJósepsson. Strax i upphafi áttu veður- guðirnir að vinna striðið fyrir okkur. Vikulega voru Bretar að gefast upp og aðeins dagaspurs- mál þangaö til þeir hypjuðu sig heim. Tölur þeirra um afla á Is- landsmiðum voru haugalýgi að dómi Lúðviks. Brezku skipstjór- arnir vildu ekki veiða undir her- skipavernd og þannig vann Lúðvik striðið fyrir okkur i hvert skipti sem hann tók til máls. Nú eftir að búiö er að semja hamrar Lúðvik stöðugt á þvi, að Bretar nái svo og svo miklum afla og byggir þá á afla- tölum Breta sjálfra sem aEt i einu eru heilagur sannleikur. Stórskemmtilegur maöur hann Lúðvik. Ríkisst jórnin sló úr og i þegar rætt var um landhelgismálið. Luns átti að redda málum með simahringingum og ferðalögum en hann reddaði bara ekki nokkru þrátt fyrir traustsyfir- lýsingar Moggans. Geir og Ólafur skiptust á um að liggja i F0RARP0LLUR? Svifasein réttarvitund. Landsmenn hafa undanfarið orðið að heyra ýmisiegt furðu- legt > um allskonar réttar- hneyksli, sem hér viðgangast. Eða eru menn ef til vill hættir, að undrast þótt slikir hlutir komi upp á diskinn? Alger þögn hvilir nú yfir hinu svonefnda Geirfinnsmáli svo ó- hugnanlegt sem það allt er. Það fréttist, að rannsóknardómari i þvi máli væri allt i einu kominn tíl útlanda, en hinsvegar ekki vitað, hvortum hefur veriö að ræða skemmtireisu, eða að ferðalagið standi i sambandi við eitthvað annaö. Máske mega menn skilja það svo, að frétzt hafi um einhvern áður óþekktan „sjáanda”, sem ætlað sé með dulrænum hæfi- leikum að leysa gátuna? En hvaö sem þvi liður, lastar fólk þvi milli sin i kuldalegri gráglettni, að „morðdeildin” sé i frii! Rannsókn þessa máls hefur frá upphafi verið rekin á hinn sérkennilegasta hátt, þó að það hafi frá upphafi blasað við, að það er auðvitað alls ekki sama á hvorum endanum sé byrjað og frá hvorum endanum rakið. Þannig virðist fremur litil ástundun hafa verið á það lögð, að rannsaka rækilega hver gat vérið áistæðan fyrir mannhvarf- ínu. Paö er engu likara en aö rannsóknarmönnum, sem mest hafa um málið fjallað, hafi svo sem ekki þótt það nein saga til næsta bæjar að maður hyrfi þegjandi og hljóðalaust, en beint sér einkum að þvi, að rannsaka hverjir eða hver hafi valdið hvarfinu. Þetta mun þó vera algerlega öfug aðferð við það, sem lög- regla annarra landa telurfyrstu skrefin. Og það getur næstum hvert barn séö, að ef ástæðan fyrir mannshvarfi, hvort sem um er að ræða morð eða annaö, finnst, sé komið meira en hálfa leið að þvi marki, að upplýsa málið I heild. Svo er nú komið, að fólk lætur sér ekki lengur lynda, að hlýða si og æ á þá eymdarlegu við- báru, að „málið sé á svo við- kvæmu stigi,,eftir eins og hálfs árs rannsóknir, að fátt eða ekkert verði uppskátt látið þessvegna! Þessar „skinnveiku” hendur, sem um málið hafa fjailað hing- að til, hafa vist ekki mikla möguleika eftirþennan tima, til aö harðna svo að átökin þeirra veröi marktæk. Hér virðist vera að fara, sem oftar, að máliö sé á öruggri leið með að þaggast niður. Annaðhneykslismál, þó nýrra sé af nálinni, sýnist einnig vera á sömu brautinni. Hlutdeild toll- gæzlumanna i ólöglegum inn- flutningi áfengis og ef til vill fleiri tollskyldra vara, er hreint ekki til þess fallið að fólki geti að þvi geðjazt, nema þá máske lögbrjótum i þessum efnum. Þvi hefur verið fleygt að toii- gæzlumenn beri fyrir sig ein- hverjar alþjóðlegar venjurí!), sem heimili þeim vitalaust, að taka við þóknun fyrir að setja kikinn fyrir blinda augað, þegar lögbrjótar eiga i hlut! tslenzk tunga á vist ekki annað orð hentugra yfir slikt hugarfar en mútuþægni, sem aldrei hefur þótt nein mann- prýði, hvað sem öðru liður. Okkur þykir ætið heldur ó- hugnanlegt, eða er ekki svo?, að verða þess áskynja að farið sé á bakvið lög og rétt, en sannar- lega er það ekki huggulegra, ef það eru laganna verðir, sem að sllku standa Hér skiptir það ekki öllu máli, þótt i smáum stil sé. A mjóum þvengjum læra hundarnir að stela, er gamalt og gott mál- tæki. Og hver er kominn til að full- yrða, að brotin séu ekki viðtæk- ari en þegar hefur orðið upp- skátt? Það virðist vera á almanna vitoröi, að smygl áfengis og í HREINSKILNI SAGT

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.