Alþýðublaðið - 17.06.1976, Qupperneq 9
I
billjfi Fimmtudagur 17. júní 1976
VETTVANGUR 9
geröur var 26. marz sl. milli Is-
lenzka álfélagsins annarsvegar
og viðkomandi verkalýðsfélaga
hins vegar.
Þrettán mánuðir
i banka
Þegar rætt er um kjör banka-
manna verður aö hafa það i
huga að auk venjulegra launa er
þeim greiddur viöbótarmánuð-
ur i desember.
Þessi greiðsla er jafnan kölluð
„þrettándi mánuðurinn” og er
greiðsla fyrir ótiltekna vinnu.
Til þess að gera sér rétta mynd
af launum þessa starfshóps þarf
þvi að taka þrettánda mánuðinn
og skipta honum i tólf hluta og
leggja einn viö mánaðarkaupið.
Það verður að teljast nokkuð
einkennileg tilhögun aö greiöa
laun fyrir 13 mánuði i stað þess
að viðurkenna 12 mánaöaregl-
una.
Tilgangurinn virðist vera tvi-
þættur. í fyrsta lagi torveldar
þetta að laun bankafólks séu
notuö sem viðmiöun fyrir annað
starfsfólk hjá hinu opinbera. Sé
einungis tekið miö af starfs-
heitaröðun þá er það ljóst að
mánaöarlaun bankafólks við
sömu störf samkvæmt þvi einu
verða alltaf 1/12 hærri i krónu-
tölu en opinberra starfsmanna.
Setjum sem svo að opinber
starfsmaður miði sinar launa-
kröfur við bankamann meö þvi
að deila 13. mánuðinum niður á
hina 12 og krefjist þeirrar
Síðari
grein
krónutölu i laun. Viðsemjandi
hans tekur þá krónutöluna og
ber hana saman við launaflokka
BSRB og þá kemur i ljós að viö-
komandi starfsmaður er að
krefjast launa sem eru greidd
fyrir starf sem krefst meiri
ábyrgðar eða menntunar en það
sem hann er að ræða um. A slikt
er vitanlega ekki hlustað.
1 öðru lagi virðist þetta gert til
þess að slá ryki i augu starfs-
fólks bankanna og bera þannig
klæöi á vopnin i innbyrðis kjara-
baráttu þeirra þegar einn hópur
bankamanna tekur mið af öðr-
um.
Til skýringar þessu skulum
við taka dæmi með tilbúnum
tölum.
Bankastjóri hefur 240 þús.kc.á
mánuði en sendill 48 þús. Báðir
fá greidd laun i 13 mánuði á ári.
Væri nú 13. mánuðnum deilt niö-
ur á hina 12 þá hefði bankastjór-
inn 260 þúsund kr. á mánuði en
sendillinn 52 þús. Það fyrrtalda
litur betur út, og launa-
mismunurinn viröist ekki vera
eins mikilll.
Ekki há laun
A það skal lögð áherzla að hér
er ekki verið að fárast yfir þvi
hve laun bankamanna eru ná,
heldur hinu hve fólk við sömu
störf hjá rikinu er lágt launaö.
Bankafólkið er nær þvi aö
hafa lifvænleg laun en hinir. Hér
gerist ekki þörf að ræða frekar
um samninginn sem rikiö hefur
gert við starfsfólk i rikisverk-
smiöjunum en fram hefur kom-
ið og visast til þess sem að
framan sagði.
Ekki er heldur þörf á að hafa
mörg orö um skrifstofufólk hjá
ISAL. Þegar fjallað var um
iðnaðarmannalaun hjá ISAL
láðist að geta þess að þeir þurfa
i flestum tilfellum að sækja
vinnu sina um langan veg og
hljóta þar af nokkur óþægindi,
það sama gildir auðvitað um
skrifstofufólkið.
Aftur á móti veröa þau atriði
sem nefnd voru til réttlætingar
hærri launa hjá tSAL handa
iðnaðarmönnum, ekki heimfærð
á sannfærandi hátt á skrifstofu-
fólk sem þar vinnur.
Þá skal þess einnig getiö i
sambandi við tSAL aö i hópi
skrifstofufólks, eins og reyndar
gildir með fleiri starfshópa þar
að þegar starfsheitið fer að
nálgast það sem sumir kalla
æðri störf þá er ekki gildandi
sérstakur texti, heldur er samið
sérstaklega við viðkomandi.
Þessir sérsamningar eru einka-
mál milli vinnuveitandans og
launþegans og liggja ekki
frammi.
Um talnasamanburð visast til
þeirra mynda sem hér eru
birtar.
17. júní 1976
Starf samvinnuhreyfingarinnar á íslandi
er órjúfanlega bundið framfara og frelsis-
hugmyndum þjóðarinnar. Innlend verslun
rekin með innlendu fjármagni í hverri
byggð, þar sem heimamenn njóta sjálfir
arðsins af viðskiptum sínum, er hvað
traustastur hornsteinn íslensks sjálf-
stæðis. Frumhugmynd samvinnufélags-
skaparins er, enn sem fyrr, fólgin í ein-
földum lausnarorðum forsetans mikla,
sem dagurinn í dag er helgaður: „að hafa
samtök“ um hvaðeina, sem til framfara
horfir fyrir þjóðina.
Með hlutdeild í samvinnufélagi eflið
þér innlendan atvinnurekstur og hag-
kvæma verslun, sem rekin er með hag
neytandans fyrir augum. Minnist þess, að
í frjálsu þjóðfélagi eru samtök einstak-
linganna það afl, sem mestu fær áorkað.
SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA
Um leið og við óskum viðskiptavinum
okkar og öllum landsmönnum heilla á
þjóðháííðardaginn 1976, viljum við sér-
staklega minna á íslenska íþróttahreyf-
ingu. Allt frá aldarafmæli Jóns Sigurðs-
sonar 1911 til sjálfstæðisársins 1944
heiðruðu íþróttamenn minningu forset-
ans 17. júní ár hvert með íþróttahátíð, og
enn eru íþróttamót snar þáttur hátíðar-
halds þennan dag hvarvetna á landinu.
/ Styójum
/ íslenska
/ Olympíulióið
Merkið, sem hér birtist, fimm hringir
brugðnir saman, er eins og flestir munu
kannast við, tákn Ólympíuleikanna. Ól-
ympíunefnd gerði Sambandi íslenskra
samvinnufélaga kost á að styrkja þátttöku
íslendinga í Ólympíuleikjum þeim sem
fram eiga að fara í Kanada nú í ár og hefj-
ast eftir mánuð. Við óskum íslenskum
íþróttamönnum þess, að þeir megi hljóta
mikinn frama á þessum leikjum. Sam-
vinnumenn telja sér heiður að því að mega
styrkja þá til fararinnar, það hefur lengi
verið einn þáttur menningarstarfsemi
samvinnufélaganna að styðja íþróttastarf-
semi með fjárframlögum, þar sem því
verður við komið.
Auglýsingadeildin