Alþýðublaðið - 17.06.1976, Side 16
MflRGSINNIS BEÐIÐ UM
STRANGARI GÆZLU í
SÍÐUMULAFANGELSINU
Nýdæmdurstórþjófur sem sat
um tima i fangelsinu viö Siöu-
múla átti þar bréfaviöskipti viö
Sævar Marino Cicielski. Eftir aö
maöur þessi var látinn laus
falsaöi hann nokkur bréf sem
hann sagöi Sævar hafa skrifaö
og bauö til sölu á eitt hundraö
þúsund krónur samtals. Var
maðurinn handtekinn aö nýju i
gærmorgun.
Orn Höskuldsson sakadómari
sagöi i samtali viö Alþýðublaöiö
i gær aö bréf hefðu veriö i gangi
milii þessara manna i fang-
eisinu við Siðumúla. 1 þessum
bréfum hefði þó ekki staöiö neitt
markvert, aöallega verið um
tóbaksbetl að ræöa og fleira i
þeim dúr. Þegar umræddur
maöur var iátinn laus var leitaö
á honum og hafði hann enginn
bréf meö sér úr fangelsinu að
sögn Arnars. Greip hann þá til
fölsunar i þeim tilgangi að selja
bréfin háu veröi.
Það er refsivert athæfi að
smygla bréfi til gæzlufanga, en
þegar annar fangi á i hlut
verður varla um refsingu aö
ræða. Hins vegar eru það að
sjálfsögöu fjársvik að ætla sér
aö selja fölsuð bréf og hægt að
ákæra manninn fyrir það.
Þetta dæmi sýnir svo ekki
veröur um villst aöfangelsið við
Siöumúla, sem á aö vera örugg-
asta fangelsi landsins, fullnægir
alls ekki þeim skilyröum, sem
veröur að gera til húsnæðis þar
sem fangar eiga aö vera i al-
gjörri einangrun.
— Við höfum margsinnis
beöiö um strangari gæzlu i fang-
elsinu sagöi örn Höskuldsson er
blaðið bar þetta undir hann.
Hann sagðist aö visu ekki vita
um annaö ákveöið dæmi að
fangar viö Siöumúla heföu
skrifast á, en þetta væri mögu-
legt. Þaö væri langt i frá að
menn væru ánægöir meö fang-
elsiö, enda væri það hljóöbært
og öll vinnuaöstaða slæm. Þetta
væri þó taliö bezta fangelsiö
hérlendis.
I ööru siödegisblaöanna I gær
var þvi haldiö fram, aö Erla
Bolladóttir, sem situr þar I
gæzluvaröhaldi hafi komið bréfi
til Sævars, og þvi verið laumað
undir klefahurö hans þegar eng-
inn átti að vera á ganginum,
allra sizt fangi. örn Höskulds-
son sagöist ekki kannast viö
þessa fullyröingu.
A
Fengelsið',lekur"
— Þetta fangelsi „lekur”,
sagði Jón Oddsson hrl., réttar-
gæzlumaöur Sævars Ciecielski i
gær. Taldi hann einangrun
fanganna alls ekki algjöra eins
og dæmi sýndu. Hægt væri aö
koma skilaboðum milli klefa og
fangaverðir væru einnig
„lekir”. Einnig benti Jón á, aö
fangelsiö viö Siöumúla heyröi
beint undir dómsmálaráöu-
neytiö og það væri ráöuneytinu
að kenna að fangelsiö væri ekki
betur úr garöi gert.
Þessar nýjustu fréttir um
bréfaviöskipti fanga sem eiga
að sitja i einangruðu gæzluvarö-
haldi hljóta aö vekja upp þann
grun, að fram til þessa hafi
fangar er þarna hafa verið átt
möguleika á sambandi sin á
milli. Ef slikt hefur átt sér stað
er um alvarleg mistök við
vörzlu þeirra aö ræöa, sem eng-
in leið er að segja til um hvaö
haft getur i för meö sér. Þótt
þarna hafi ekki veriö smyglað
viniog fleiru til fangaeins og átt
hefur sér staö i Hegningarhús-
inu við Skólavöröustig, er ber-
sýnilegt að eins og nú standa
sakir getur fangelsiö viö Siöu-
múla ekki talist öruggt. Má það
furðulegt teljast i ljósi þeirrar
gagnrýni sem fram hefur komið
frá Sakadómi á ófullnægjandi
gæzlu, að dómsmálaráöuneytiö
skuli ekki hafa beitt sér fvrir úr-
bótum. —SG
Gæzlufangarnir hafa
játað aragrúa afbrota
morðmálanna miðar hægt
- Rannsókn
Þcir þrir karlmenn sem sitja
inni vegna morðsins á Guö-
mundi Einarssyni og aðildar að
hvarfi Geirfinns Einarssonar,
hafa að undanförnu játað á sig
aragrúa afbrota. Er þar einkum
um að ræða þjófnaði og likams-
árásir auk fleiri afbrota.
Meðan beðið er eftir að geð-
rannsókn ijúki hefur verið unniö
aö þvi að kanna afbrotaferil
þeirra Sævars Marinós Cici-
elski, Tryggva Rúnars Leifss-
og Kristjáns Viðars nánar. Hafa
þeir játað á sig fjöldann allan af
óupplýstum afbrotum. Þótt ekki
væri nema fyrir þær sakir einar
væri þvi full ástæða til að halda
þær sakir einar væri þvi full á-
stæða til að halda þeim i varð-
haldi.
Einn fanganna, Sævar
Marinó, er bandarlskur rfkis-
borgari en á brátt einhliða rétt
til að velja hvort hann kýs að
halda honum eöa öðlast fslenzk-
an rikisborgararétt.
Gagnrýni á rannsóknina
Gagnrýni á rannsókn Geir-
finnsmálsins hefur oröið æ há-
værari að undanförnu. Al-
menningur er óánægður með að
hvorki gengur né rekur að upp-
lýsa þetta mál og margir farnir
að gera aö þvi skóna að það
verði aldrei upplýst. Margir
hafa spurthvort ekki þyrfti auk-
iö fé og menn meö sérþekkingu
til að komast til botns f þessu ó-
hugnanlega máli. Alþýðublaöið
bar þetta undir Örn Höskulds-
son sakadómara f gær, en sem
kunnugt er stjórnar hann rann-
sókninni.
örn sagðist ekki draga dul á,
að illa væri búið að rannsóknar-
lögreglunni á margan hátt. Þeir
sem ynnu viö rannsóknina hefðu
ekki sérþekkingu á svona mál-
um nema rannsóknarlögreglu-
menn er hefðu sina tækniþekk-
ingu. En örn kvaðst ekki vera
þeirrar skoðunar að við sæktum
aöstoð til annarra landa.
— Fólk ætti að kynna sér
ástandið i nágrannalöndunum,
sagöi örn. Það þarf ekki að fara
lengra en til Danmerkur til að
geta bent á óupplýst manns-
hvörf þar I landi. Hver sem er
getur lesið dönsku dagblöðin til
að sannfærast um slikt. Þrátt
fyrir sérþekkingu, mikið fjár-
magn og nægan mannafla eiga
aðrar þjóðir við sama vanda að
etja og við núna, sagði örn að
Iokum.
—SG
Arfur
frá
fyrri
þjóö-
hátíð
Ríkissjóður dæmdur til
að greiða skaðabætur
Nýlega hefur verið kveöinn
upp dómur i máli þeirra sem
handteknir voru á þjóðhátfð á
Þingvöllum 1974 fyrir meintar
óspektirá almannafæri. 1 þrem-
ur af málunum var Rfkissjóður
dæmdur til aö greiða skaöa-
bætur og málskostnaö, en I hinu
fjórða vár hann sýknaður. Var
þar um að ræða unga konu sem
handtekin var á Þingvöllum, en
sleppt aftur á staðnum þar sem
hún var með ungabarn f sinni
umsjá. Þótti þvi ekki fært að
flytja hana til yfirheyrslu I
Reykjavik.
I fyrsta málinu af þremur
ofangreindum, var um að ræöa
hóp manna sem staddir voru á
efri brún Almannagjár, meðan
fundur Alþingis stóð yfir. Voru
þeir með tvo borða þar sem á
stóö: „tsland úr Nató” og „Her-
inn burt.” A sama tima og þetta
gerðist, barst lögreglunni vit-
neskja um aö veriö væri að
dreifa áróðursplöggum og
merkjum á meðal hátiðargesta.
Ungmenni þau sem þar áttu
hlut að máli voru á og við
göngubrú yfir öxará, sem sér-
staklega hafði verið gerð i til-
efni hátiðarhaldanna. Voru þau
handtekin og hald lagt á bréf og
merkisem þau höfðu meöferðis.
Sfðari hluta sama dags veitti
lögreglan þvi svo athygli, að
gulur borði, þar sem á stóð „ts-
land úr Nató” hafði verið
strengdur á milli fólks á syðra
barmi Peningagjár. Þegar
þctta gerðist var veriö að leika
þjóðsöng Bandarikjanna, en aö
honum loknum átti fulltrúi
Bandarikjanna að flytja ávarp
sitt.
Voru allir þessir hópar hand-
teknir og fluttir til Reykjavikur
til yfirheyrslu. Meölimir fyrsta
hópsins voru settir i fangaklefa
og læstir þar inni. Hinir tveir
hóparnir voru látnir biða i bið-
sal, en sfðan sleppt cftir að þeir
höfðu gefið örstutta skýrslu.
Dómsniðurstöður I máli
fyrsta hópsins voru á þá lund, aö
rikissjóði var gert að greiða kr.
24.000 i skaðabætur, auk máls-
kostnaðar. Hóp nr. tvö var
dæmd sama upphæð I skaöabæt-
ur, auk málskostnaðar. en
Rikissjóði var gert að greiða
þriðja hópnum kr. 15.000 i
skaðabætur, að viðbættum
málskostnaði.
JSS
FIMMTUDAGUR
17. JÚNI 1976
alþýdu
blaöið
Tekið eftir: Að af lesenda-
dálkum blaða má augljós-
lega ráða að enn er fólk
slegið miklum óhug vegna
sleifarlags og seinagangs i
framvindu þeirra miklu
sakamála sem til umræðu
voru allan seinni hluta
vetrar. I fyrradag birtust
meira að segja nafnlaus
lesendabréf i Velvakanda
Morgunblaðsins, þar sem
itrekuð er sú krafa almenn-
ings að ekkert verði til
sparað til þess aö mál þessi
upplýsist.
Frétt: Að mjög viröist
svifa i lausu lofti hvernig
tékkarannsókn i tengslum
við Geirfinnsmálið miðar. 1
einu blaðanna hefur komið
fram að þessi rannsókn
virðist unnin I eftirvinnu af
starfsmönnum Seðlabank-
ans — og þykirýmsum það
full mikill hægagangur.
Lesið:í Frjálsri verzlunað
vegna mikilla uppsagna
hjá sjónvarpinu muni losna
nokkur störf þar á frétta-
stofu. Meðal umsækjenda
sé Einar Karl Haraldsson,
fréttastjóri Þjóðviljans, og
segir Frjáls verzlun að
hann hafi sótt um starfið
fyrir tilstilli fréttastjórans
Emils Björnssonar, og
muni hann þvi liklega fá
starfið. Hins vegar mun
það vera útvarpsráð sem
ræður i slik störf, svo ekki
getur það verið einsýnt
samkvæmt islenzkri hefð,
þó svo Einar Karl sé fær
fréttamaður.
Heyrt: Að mikill áhugi sé
fyrir félaginu Réttarvernd
sem nýlega var stofnað.
Félagið reynir að liðsinna
fólki til að rata refilstigu is-
lenzka réttarkerfisins og er
ætlun félagsins að koma
upp skrifstofu i haust. Ann-
að blað félagsins er nú ibi-
gerð. Félagsmenn eru þeg-
ar orðnir á fimmta
hundrað.
ÆSKAN
MoJ-jtml 9 tW 1979
a§
'
i
N
Lesið:Barnablaðið Æskan,
5-6. tbl. er nýkomiö út. Þó
að Æskan láti ekki mikið
yfir sér er hér um óvenju
myndarlegt blað að ræða,
52 blaðsiður að stærð og
með fjölbreyttu efni og
menningarlegufyrir börná
öllum aldri. Ritstjóri Æsk-
unnar er Grimur Engil-
berts.