Alþýðublaðið - 06.07.1976, Síða 3
alþýðu-
blaðiö
Þriðjudagur 6. júlí 1976
FRÉTTIR 3
Mótmæltu
umhverfis-
ráðstefnu
NATO
Alþýðublaðinu barst i gær eftir-
farandi frá miðnefnd herstöðvar-
andstæðinga:
„Orskammt er siðan að herafla
NATOvar beitt.tilþess að vernda
rányrkju á fiskimiðum við
fslandsstrendur, auðlindum sem
eru undirstaða efnahagslifs þjóð-
arinnar. Árum saman hefur
NATO stuðlað að þessari rán-
yrkju, sem hefur leitt til þess að
þorskstofninn er i stórfelldri
hættu. 1 ljósi þessa hljóta Islend-
ingar að tortryggja heilindi
NATO i umhverfisverndamálum
og vill Miðnefnd herstöðvaand-
stæðinga þvi fordæma þann tvi-
skinnung er NATO sýnir með þvi
að efna til ráðstefnu um
umhverfismál.
Tilgangur NATO með þeirri
ráðstefnu um umhverfismál sem
hér er haldin er sá einn að kasta
ryki i augu almennings, hvað
varðar raunverulegt eðli Nato.
Reynt er með slikum ráðstefnum
sem þessari að sýna framá að
NATO sé bandalag um visinda-
lega- og þekkingarlega samhjálp,
til þess að fela hið raunverulega
eðli þessa hernaðarbandalags.
Hlutverk þess er að halda niðri
frelsis- og hagsmunaberáttu al-
þýöu um viða veröld. Sú eina
„umhverfisvernd” sem NATO
stundar, felst i striðsrekstri gegn
alþýðu til verndar áframhaldandi
arðráni auðvaldsins og heims-
valdastefnu. NATO er sett á stofn
til verndar heimskerfi, sem felur
i sér eyðileggingu náttúru-
auðlinda og gereyðingar-
styrjaldir, heimskerfi sem grund-
vallast á gróðasókn sem tekur
ekkert tillit til náttúrulegs
umhverfis mannsins. Hernaðar-
bandalag stuðlar best að um-
hverfisvernd með þvi að hætta
starfsemi sinni.
Herstöðvaandstæðingar lýsa
fyllsta stuðningi við þá visinda-
menn, sem beita vilja þekkingu
sinni til umhverfisverndar, en við
teljum það algjöra þversögn, að
störf þeirra séu tengd hernaðar-
bandalögum.”
I gærmorgun mótmæltu
nokkrir herstöðvarandstæðingar
fundinum framan við Hótel Loft-
leiðir. Skáru þeir niður fána og
voru þá fjarlægðir af lögreglu.
Lífskjör á
Islandi
halda áfram
að versna
Alþýðublaðið hefur
náð tali af nokkrum
erlendum ferða-
mönnum, sem hér eru
staddir og spurt frétta
um launakjör og
atvinnuástand i
heimalandi þeirra. Svi-
i, sem tekinn var tali
sagði að lægstu laun i
Sviþjóð væru nú 20
sænskar krónur á tím-
ann, en það samsvarar
um það bil 800 kr. is-
lenzkum á timann.
Sagðist hann vera bú-
inn að vera i Reykjavik
i rúma viku og sagðist
ekki með nokkru móti
geta skilið hvernig al-
menningur hér gæti
dregið fram lifið.
Tekjur fslenzkra
kennara lægri en
lágmarkslaun
verkamanna í Svíþjóð
Hann sagðist hafa kynnzt
manni sem kennir við gagn-
fræðaskóla hér i borginni og
væru laun hans langt fyrir
neðan lágmarkslaun verka-
manna i Sviþjóð. Með hliðsjón
af ýmsum almennum nauð-
þurftum sagði hann að islenzkur
verkamaður þyrfti greinilega
að vinna tvisvar eða jafnvel
þrisvar sinnum lengri tima til
þess að standa straum af
venjulegum útgjöldum. Þá
benti hann á, að ýmsar vöru-
tegundir væru svo langt fyrir
ofan öll.norm"að sér væri alger-
lega óskiljanlegt hvernig slikt
gæti staðizt. Að visu var hér
aðallega um að ræða, það sem
við nefnum lúxusvarning, en
einnig áfengi, tóbak, bifreiðar,
varahluti og benzin, svo nokkuð
sé nefnt.
Þegar blaðam. benti hinum
sænska ferðamanni á, að vel-
megun væri sennilega meiri i
Sviþjóð en annars staðar og
þessvegna væri samanburður-
inn e.t.v. ekki réttlátur,þá hristi
hinn sænski bara höfuðið og
sagðist geta fullvissað blaða-
manninn um, að það væri hvergi
jafn slæmt sem á Islandi.
Ófaglærður
iðnverkamaður
í Noregi
hefur þriðjungi
hærri laun en
húsasm íðameistari
hér á landi
Þá ræddi blaðam. einnig við
ungan norskan mann, ófag-
lærðan, sem vinnur við húsa-
smiðar. Hann sagði að atvinna
væri næg í Noregi, en sér
finndist kaupið nokkuð lágt. Þó
kom i ljós, þegar farið var að
lita á tölur, að þessi ófaglærði
byggingamaður hafði u.þ.b.
þriðjungi hærri laun heldur en
húsasmiðameistari i Garðabæ,
sem blaðamaður hafði samband
við.
Að lokum náði blaöam. tali af
bandariskri stúlku, sem vinnur á
skrifstofu, en hún var búin að
vera hér á landi i tæpar þrjár
vikur. Hún sagðist ekki hafa
komið hingað til að ganga i
búðir og vissi þar af leiðandi
litið um verðlag hér. Þó hefði
hún keypt tvær peysur og
nokkra gjafamuni og heföi sér
fundizt verðið ekki neitt sér-
staklega hátt. Hins vegar sagð-
isthún hafa rekið upp stór augu
þegar hún greiddi fyrireinn tvö-
faldan whisky og sóda á
veitngahúsi hér i borginni. ,,Ég
hélt þeir væru að gera at i
mér,”sagði hún og brosti, „en
éghef notið dvalarinnar”, bætti
hún við.
Island
er
láglaunasvæði
í reynd
Að visu þarf ekki að fara út
fyrir landsteinana til þess að
sannfærast um að, að Island er i
reynd láglaunasvæði. Jafnvel
fólk, sem lengi hefur talið að
það hefði það nokkuð gott, er
farið að gera sér grein fyrir þvi,
að það hefur bágborin launakjör
og lélega lifsafkomu i
samanburði við fólk i nágranna-
löndunum.
Þrátt fyrir kauphækkanir hér
á landi, rauð strik og hvers-
konar tilfærslur halda kiör al-
mennings áfram að versna. A
sðiustu tveim árum hefur kaup-
máttarskerðingin aukiztum20
til 25%.
Ofan á þetta bæcist fjöl-
margt annað, s.s. stórauknir
bankavextir og hert skattheimta
hjá hinu opinbera. Afleiðingin
verður sú, að hinn almenni
borgari gefst upp við að standa i
skilum meðafborganir á vixlum
sinum og hverskonar óreiða
þrósat i skjóli þessa ástands.
Þeir einu sem hagnast á þessu
ofboðslega verðbólguástandi
eru þeir, sem hafa aðgang að
peningastofnunum, og geta
annaðhvort fjárfest i fast-
eignum eða braski.
Það mun einnig flestum vera
ljóst, að það ófremdarástand,
sem nú rikir i landinu er ekki
eðlilegt og það er heldur ekki
eðlilegt hversu a'lgerlega rikis-
stjórninni hefur mistekizt að
koma þessum málum i sæmilegt
horf. Þó má gera ráð fyrir að
rikisstjórnin gripi tilvéinhverrar
sviðsetningar þegar liða fer aö
kosningum til þess að blekkja
þjóðina og fá hana til að veita
sér áframhaldandi umboð.
Spurningin er bara sú, hvort það
dugar.
—BJ
UMFERÐARFRÆÐSLA
í KÓPAVOGI
Umferðarfræðsla verður i þremur barna-
skólum i Kópavogi dagana 7. til 9. júli.
Fræðslan fer fram með viðtölum við börn-
in, beinni kennslu, brúðuleikhúsi og kvik-
myndasýningu.
Einnig fá börnin verkefni við sitt hæfi til
úrlausnar.
Hvert barn þarf að koma tvisvar.
Niðurröðun eftir aldri, stað og tima:
Miðvikudagur 7/7
Kópavogsskóli
Kársnesskóli
Fimmtudag 8/7
Kópavogsskóli
Kársnesskóli
Föstudag 9/7
Digranesskóli
Digranesskóli aftur
Umferðarráð
5árakl. 9.30
6árakl. 11.00
5 ára kl. 14.00
6 ára kl. 16.00
5árakl. 9.30
6 ára kl. 11.00
5 ára kl. 14.00
6árakl. 16.00
5árakl. 9.30
6árakl. 11.00
5ára kl. 14.00
6ára kl. 16.00
Lögreglan i Kópavogi.
Búseta varnarliðsmanna
Krefjast Keflvíkingar 60
milljóna?
I Keflavik munu samkvæmt
siðustu tölum milli 190 og 200
ibúðir vera leigðar bandariskum
hermönnum af Keflavikurflug-
velli.
Að sögn Jóhanns Einvarðs-
sonar bæjarstjóra i Keflavik,
mun þetta vera svipaður fjöldi frá
ári til árs, þó sagði hann að á
timum Vestmannaeyjagossins
hefði dregið úr fjöldanum, en nú
væri ástandið komið i svipað horf
og áður. Ekki kvaðst Jóhann vita
til þess að hermennirnir ættu
neinar ibúðir i Keflavik, heldur
taldi hann að i öllum tilfellum
væri um leiguað ræða. Aðspurður
um tekjur bæjarfélagsins af
þessum mönnum, sagði Jóhann
að þær væru engar, — þeir borg-
uðu ekki krónu i opinber gjöld.
Það má telja öryggt, að þó að
einstakir ibúar i Keflavik græði
vel á þvi að leigja hermönnum
ibúðir sinar, þá tapi bæjarfélagið
stórum upphæðum á ári hverju
vegna þjónustu sem þeir láta
þessum hermönnum i té, án þess
aðfá nokkrar greiðslur fyrir. Sem
dæmium slika þjónustu má nefna
sorphreinsun, viðhald vega
o.s.frv.
Við spurðum bæjarstjóra hvort
komið hefði til tals að setja fram
einhverjar kröfurum leiðréttingu
þessara mála. Sagði hann að
þessi mál hefðu verið rædd við
utanrikisráðuneytið, og væri
hann að vonast til að fá viðtal við
ráðherra innan skamms. Ekki
'vildi Jóhann að svo komnu máli
láta uppi hverjar kröfur Kefl-
í vikinga væru, en sagði að þeir
f hefðu gert ákveðnar tillögur sem
hniga i þá átt, að bæta bæjar-
félaginu þann tekjumissi og þau
útgjöld sem af búsetu bandarisku
hermannanna i Keflavik leiðir.
Eftir þeim upplýsingum sem
Alþýðublaðinu hafa borizt, hefúr
verið reiknað út miðað við meðal
útsvör i Keflavik, hvað þeim út-
lendingum sem nú búa þar án
þess að borga svo mikið sem eina
krónu til bæjarfélagsins, hefði
borið að greiða nokkur undan-
farin ár. Mun sú tala hafa hljóðað
upp á 60 milljónir islenzkra
króna. Er þá sjálfsagt ótalið það
fjárhagslega tjón sem islenzkir
leigjendur i Keflavik verða fyrir
vegna uppsprengdrar húsaleigu,
sem fylgt hefur i kjölfar hinnar
miklu eftirspurnar. Samkvæmt
þeim upplýsingum sem Alþýðu-
blaðið hefur aflað sér mun það
vera algengasta leiðin þegar
bandarikjamennirnir fá ibúðir.
að þeir sem búið hafa i tiltekinni
ibúð og eru að flytjast burt, hafa
milligöngu um að félagar þeirra
fái ibúðina er þeir fara. Munu
þannig flestar ibúðirnar sem
leigðar eru varnarliðsmönnum
sjaldan eða aldrei koma á hinn
almenna leigumarkað. Enda mun
mönnum þykja sem nokkur stór-
borgarbragur sé á húsaleigu-
reikningum i Keflavik. og
standistþeir fyllilega samanburð
við það sem gengur og gerist i
Reykjavik. —gek.
Vísindasjóður
veitir um 24
milljónir í styrki
Nýlega var lokið veitingu
styrkja úr Visindasjóði fyrir árið
1976.
Til Raunvisindadeildar bárust
að þessu sinni 80 umsóknir og
voru veittir styrkir til 35 aðila að
heildarfjárhæð 16 milljónir 905
þús. krónur. Er það 2 milljónum
445þúsundum meira en veitt var
siðastliðið ár.
Hugvisindadeild bárust alls 55
umsóknir. en einn umsækjanda
dró umsókn sina til baka. Veittir
voru 24 sty>rk að heiidarupphæð
7 milljónir 850 búsund krónur, en
þaö er 300.030kr. hærri upphæð en
veitt var sl. ár. —JSS