Alþýðublaðið - 08.07.1976, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 08.07.1976, Blaðsíða 2
2 STJORNMAL FRÉTTIR Útgefandi: Alþýöuflokkurinn. Rekstur: Reykjaprent hf. Ritstjóri og ábyrgöarmaöur: Arni Gunnars- son. Fréttastjóri: Bjarni Sigtryggs- son. Aösetur ritstjórnar er i Siöu- múla 11, simi 81866. Auglýsftkgadeild, Alþýöuhúsinu Hverfis- götu 10 — slmi 14906. Askriftarstmi 14900. Prentun: Blaöa- prent h.f. Askriftarverö: lOOOkrónur á mánuöi og 50 krónur I lausasölu. Skattar og skattsvik Eftir nokkra daga kemur skattskráin út. Að vonum eru menn spenntir að sjá hvað þeim er ætlað að greiða i opinber gjöld að þessu sinni. Gera má ráð fyrir að skattar launafólks hækki verulega frá síðasta ári. Skattalöggjöf er einhver veigamesta löggjöf sam- félagsins — sú löggjöf sem flesta snertir. í gegnum skatta er raunar tekin um það ákvörðum hvort búið er í þjóðfélagi jafnaðar eða ójafnaðar. Það er hins vegar á allra vitorði, að ástand í skatta- málum hérlendis hefur aldrei verið gott, en á undan- förnum árum hefur enn mjög sigið á ógæfuhliðina. Menn muna enn mótmæli skattgreiðenda í þremur byggðalögum á síðasta ári þegar var að mótmæla augljósu ranglæti. En ekkert gerðist. Kjarni vandans er einfaldlega sá, að skattalögum í þessu landi er ekki hlýtt, f remur en öðrum lögum. Það er á allra vitorði að mórall í skattamálum er í lág- marki, það flokkast nánast undir sjálfsbjargarvið- leitni hjá stórum hópum manna að svíkja undan skatti. Það gerir hver sem betur getur — og verð- bóginn og þreytur löggjafinn stendur hjá og getur ekki aðhafzt. Það er þess vegna enginn f urða þótt þeir sem allt sitt gefa upp til skatts reiðist og þótt ástandið í þessum efnum sé nánast óþolandi. Hitt er annar kjarni þessa vanda að skattalögin eru svo flókin, á þeim eru svo mörg göt og alls konar undartekningar eru orðnar svo algengar, að allur þorri manna hefur fyrir löngu hætt að taka mið af sanngirnissjónarmiðum — þvertá móti reynir hver að bjarga sér sem bezt hann má. Allir sem nálægt rekstri hafa komið þekkja á hvern hátt einkaneyzla er skráð sem kostnaður við rekstur fyrirtækisins. Flestir launþegar þekkja hvernig það hef ur færzt í vöxt að einhver hluti launanna heiti ekki laun, heldur eitthvað annað, svo sem bílastyrkur, og þá ersneittfráhjátekjuskatti.AHir þekkja söguna um Klúbbinn og söluskattinn. Uppskurður á skattakerf inu verður eitthvert mikil- vægasta framtfðarverkefni íslenzkra stjónmála. Þingmenn Alþýðuflokksins hafa flutt tillögu um afnám tekjuskatts af launatekjum sem vissulega yrði f yrsta sporið í rétta átt. En við það má kannske bæta, að þó að tekjuskattur sé fræðilega sanngjarn skattur, þá er meginástæða þess að hann hef ur ekki dugað sú, að skattsvik í einni eða annarri mynd hafa gert hann óhæfan. Þegar tekjuskattur af launatekjum hefur verið af numinn þarf hins vegar að innheimta skatta í einhverju formi söluskatts. En umf ram allt þá verður að strika yfir frumskóg íslenzkra skattamála, sem ekki nema sérfræðingar skilja til hlítar, en gera kerf ið þess í stað einfalt og hverjum manni aðgengi- legt. Skattsvik, í einni eða annari mynd, eru snar þáttur samfélagsins. Fram hjá því er ekki hægt að líta. En af hverju er það svo? Það er alltaf að koma skýrar í Ijós hverjar eru hinar verstu afleiðingar verðbólgunnar, hvernig siðskyn í peningamálum villist, hvernig mór- allinn hlýtur að dvína. Allt er þetta samhangandi keðja. óðaverðbólgan gerir samfélagið smaft og smáttað frumskógi þar sem einskis er svif izt. Og þeir sem verða undir í þessu ástandi eru eldri borgarar, elli lífeyrisþegar og kannske f yrst og f remst þeir, sem ekki hafa aðstöðutil þess að braska í lánastofnunum. Þessu ástandi verður að breyta. —VG. Fimmtudagur 8. júlí 1976 Launamál unglinga í Kópavogi Úrskurðinum frest- að um eina viku Síöastliöinn þriöjudag var haldinn fundur i bæjarráöi Kópavogs , þar sem ræddar voru launakröfur þeirra unglinga sem fengiö hafa vinnu á vegum bæjarins þetta sumar. Eins og áöur hafur veriö skýrt frá i blaöinu lögöu unglingar 1 Kópavogi niöur störf slöastliö- inn föstudag og fóru i kröfu- göngu aö skrifstofum bæjarins, þar sem þau afhentu kröfur sfri- ar. Aö sögn Jóns Guölaugs Magnússonar, bæjarritara og Helgu Sigurjónsdóttur, bæjar- fulltrúa, felast kröfur ungling- anna aöallega i beiöni um 50% launahækkun, en einnig koma þar fram ýmsar ábendingar varöandi verkefni þau sem unn- iö er aö. Alls eru nú um 170 krakkar I unglingavinnunni og skiptast þeir I tvo aldurshópa. Þau yngri fá nú 130 krónur á timann og vinna 4 stundir á dag, en þau eldri fá kr. 143 á timann og vinna 8 stundir á dag. Unglingavinnan stendur aðeins yfir i 2 mánuði — þ.e. júni og júli. Miklar umræöur uröu um þessi má á fundinum og var samþykkt aö veita bæjarráös- mönnum einnar viku frest til aö kynna sér málin betur og einnig til aö ræöa viö yfirvöld i Reykja- vlk og Hafnarfiröi, en þar eru laun unglinga I sömu vinnu jafn- há og í Kópavogi. Endanlegs úr- skuröar er þvl aö vænta næst- komandi þriöjudag. — AV UM HVAÐ ER DEILT Á ÚTVARPINU? Aðalkrafan varðar röðun í launaflokka Enn viröist ekki séö fyrir endann á yfirvinnubanni starfs- manna útvarpsins og eru sjálf- sagt margir Islendingar orönir langeygir eftir fréttaaukum og lestri úr forystugreinum dag- blaöanna, en þeir föstu liöir út- varpsdagskrárinnar hafa ekki heyrzt slöan yfirvinnubanniö hófst. Litiö hefur á hinn bóginn heyrzt um sérkröfur- starfs- mannafélags útvarpsins til BSRB. Alþýöublaöiö hafið þvl samband viö Dóru Ingvadóttur tormann starfsmannafélagsins, og innti hana eftir nánari upp- lýsingum um þessar kröfur. Sagöi Dóra aö kröfurnar fælust aöallega I breyttri niöur- rööun I launaflokka. Nú dreifast laun starfsmanna útvarps allt frá 12. launaflokki opinberra starfsmanna og upp úr og veröur þvi biliö á milli efsta og neðsta launaflokks sifellt meira meö auknum launahækkunum. Samkvæmt starfsmannaskrá rikisins eru flestir fréttamenn útvarpsins i 24. launaflokki. Aö auki gerir starfsmanna- félagiö körfur um menntunar- námskeiö fyrir starfsfólk ut- varps, ekki slzt tæknimenn. Laun tæknimanna eru mun lægri en gengur og gerist hjá útvarps- virkjum á hinum almenna vinnumarkaöi, aö sögn Dóru. Útvarpsvirkjamenntun er skilyrði fyrir starfi tæknimanna hjá útvarpi og aö auki er þeim séö fyrir viöbótarmenntun. Þrátt fyrir þetta eru laun þeirra lægri en gengur og gerist annars staöar. Starfsmannafélagiö gerir einnig kröfu til þess aö frétta- mönnum útvarps veröi veitt svipuö réttindi til menntunar og félagar i Blaðamannafélagi Islands hafa og aö sett veröi ákveöin skilyröi I samninga um áhættuálag og sérstaka slysa- tryggingu, sem bætist ofan á hinar almennu tryggingar starfsmannanna. Kjaranefnd BSRB er nú aö fjalla um mál útvarpsmanna, en hún hefur sjálfsagt nóg á sinni könnu þvi þar eru til meö- feröar sérkröfur ýmissa ann- arra félaga innan BSRB. Þó kvaöst. Dóra eiga von á þvi aö heyra eitthvaö frá kjaranefnd um miöjan mánuö. —AV. : Uppbyggingarstarfið á Neskaupstað hefur gengið mjög vel Viö höföum samband viö Hermann Lárusson á bæjar- skrifstofunni á Neskaupstað og spuröum um uppbyggingar- starfið eftir snjóskrifuna, sem þar féll i árslok ’74. Hann kvaö allt ganga sam- kvæmt áætlun og allt væri aö komast i eölilegt horf. Allt væri aö veröa eins og það var fyrir skriöuna. Hann vissi ekki um neina fjölskyldu sem heföiflutzt frá Neskaupstað vegna skriö- unnar en vissi um þö nokkuö marga, sem væru aö flytjast þangaö. Um viöskipti þeirra viö viö- lagasjóö sagöi hann, aö þau heföu veriö góö i alla staöi og ekki undan neinu aö kvarta i þvi sambandi. Þeir heföu staöiö viö allar slnar skyldur, entkki vildi hann nefna neinar tölur i þvi sambandi. Þaö væri svo erfitt aö segja nokkuö um þaö, aö- stoöin heföi veriö svo margþætt. Þeir heföu hjálpaö til við hafnaruppfyllingu, sildarverk- smiðjubyggingu og margt fleira. Sem sagt, allt aö komast I eölilegt horf á Neskaupstaö. —ATA. IENGIN NIÐURSTAÐA í frétt frá Samgönguráöu- neytinu segir aö nefnd sú, sem samgönguráðuneytiö skipaöi þann 4. júni s.l. hafi átt viöræöur viö fulltrúa Stóra Norræna rit- simafélagsins dagana 1.-6. júli 1 viöræöunum geröi nefndin nánari grein fyrir þeirri stefnu islenzkra stjórnvalda aö koma á sambandi viö umheiminn um jaröstöö og gervihnött, eins og til- kynnt var meö bréfi ráðuneyt- isins til félagsins 21. júni s.l. Nefndin^-ökstuddi nánar sjónar- mið íslands og leitaöi eftir viö- horfum félagsins til styttingar á samningstimanum Fulltrúar Stóra norræna töldu sér ekki fært á þessu stigi málsins að gefa ákveðin svör viö tilmælun Islands en hétu þvi að taka sjónarmið Islands til rækilegrar athugunar. Akveöiö var, að næsti fundur nefndarinnar og fulltrúa Stóra norræna hæfist i Reykjavik 1. september. n.k

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.