Alþýðublaðið - 01.09.1976, Page 14
14 FRÁ MORGNI
Miðvikudagur 1. september 1976 MsSm*
1. Hver er maðurinn?
2. Hver urðu úrslit i leik
Breiðabliks og Fram sem
leikinn var á sunnudag?
3. A mánudag var afhjúpaður
á Seyöisfirði minnisvarði um
merkt fslenzkt tónskáld, hvaða
tónskáld var það?
4. Hvað eru taldir margir ibú-
ar í Nepal?
5. Hvað heita umsjónarmenn
útvarpsþáttarins Þistlar?
6. Nýlega færði styrktarfélag
Sjúkrahúss Keflavikurlæknis-
héraðs sjúkrahúsinu gjöf, hver
var sú gjöf?
7. Hvernig eiga góðir skaft-
pottar að vera?
8. Hvaða apótek annast kvöld
og næturvörzlu þessa viku?
9. Hvaö heitir sjávarútvegs-
ráðherrra Noregs?
10. Hver hefur hug á að smiða
40-50 tonna fiskibát á Skaga-
strönd ?
FRETTA-
GETRAUN
fiátan
■ 4 % 3 BIM
A
B
C E
D
I s
E
F S
I
Q
Svör
•aeuossnupT
jepunuiQno QojseQ[uisedi>(s '01
aiioe puiAig 6
•5(ajodE
saujeðneq 80 iptpde sjipgui 'g
•>lip[ui uins
nuia inga ‘qia euuajq ijaqqa
ejpi ‘e||aq ’ Qe naAQne bjoa
qb p uiia<l jn ‘neqs Qejgueuia
-eijq ejeq ‘upfu §o jujet eujn|
:qb eSja jeuodjjeqs JiQpO 'L
•QjoqjeQjnqs -9
•uosspimui
-Qno JPW JEU13 ‘uosspunuiQno
J9PIIBH ‘uossjoqx JnjipujQ S
■jiupfiQui zi t
•uossnjpo ‘x iSui •£
•nguo u3að umqjoui
jnUIOJlf Q3UI uuea uiejj ‘z
•jnQjpASQjefiQpfif 3o
jnjsajd uossqjjja 'f jnqjjia 'I
RÖLUR
Eru leikvellirnir hafðir eins
og börn vilja hafa þá? Hópur
visindamanna i Englandi tók að
sér að kanna þetta, og séu ensk
börn ekki öðruvisi en önnur
börn, gæti verið áhugavert að
aðgæta málið.
Fyrst og fremst sýna rann-
sóknirnar, að hætta er á að
börnin sæki ekki leikvellina, ef
leikþörf barna undir tólf ára
aldri er ekki fullnægt. Þá leita
þau frá öryggi leikvallarins út á
hættulegri staöi, svo sem götur
og byggingar, en þar verða slys
oft.
Kannaðar voru aðstæöur I
London, Manchester, Scheffield
og Skelmersdale, og það kom I
ljós að börn eru hrifnust af
rólum og rennibrautum. Sum
börn hafa gaman af klifur-
— EKKI HRINGEKJUR
Sama máli gegnir um ruggu-
hesta, sem allir kannast vist
við.
Vandamáliö i Englandi er
það, að flestslysin verða I rólum
eða rennibrautum. Ensku
visindamennirnir mæla þess
vegna með þvi, að það séu
hafðar rólur og rennibrautir á
leikvöllum, en að þær séu
hafðar þannig, að slysahættan
minnki að mun. Það er t.d. hægt
með þvi að hafa undirstöðuna
mýkri.
Þessi vandamál eru ekki á
starfsvöllunum. Lafði Allen of
Hurtwood, sem kom þessari
snjöllu hugmynd C.Th. Sören-
sens og John Bertelsens á fram-
færi I Englandi og mörgum
öðrum löndum, lést nýlega 78
ára að aldri.
FASTA LÆKNAR OFFITU
AÐEINS UM STUNDARSAKIR
Eftir þvi sem prófessor Hans Dit schuneit
frá Ulm sagði á þýska læknaþinginu i Wies-
baden, er fasta enn besta leiöin til að
léttast. •
Prófessor Ditschuneit sagöi frá sex
hundruð sjúklingum, sem föstuðu undir
lækniseftirliti heima eða á sjúkrahúsi.
Þessir sjúklingar, sem þjáðust af offitu,
léttust yfirleitt um tólf kiló á fjórum vikum.
Karlmennirnir léttust meira en konurnar.
Sjúklingar, sem föstuðu heima léttust
meira en þeir, sem voru á sjúkrahúsi.
Yfirleitt léttust sjúklingarnir um 350
grömm á dag. Þeir voru látnir drekka þrjá
litra af vatni á dag og hlaupa allt að tiu kiló-
metrum daglega.
Prófessor Ditschuneit sagði, að algjör
fasta undir lækniseftirliti ,, væri hættulaus
og mjög áhrifarik,” nema ef um alvarleg
veikindi er að ræða.
Sjúklingarnir komu i eftirlit fimmtán
mánuðum siðar. Aöeins 3% höfðu haft
varanlegt gagn af meðferðinni, helmingur
sjúklinganna hafði þyngst aftur og 20%
voru þyngri en áður.
Læknar og starfsfólk sjúkra-
húsanna ætlu ekkí að reykja
Alþjóðaheilbrigðisstofnun
Sameinuðu þjóðanna birti á sið-
asta ári álit sérfræðinganefndar
um skaðsemi tóbaksreykinga.
Þar er visað til margra rann-
sókna, er sýna að reykingar eru
mikilvægur orsakaþáttur lungna-
krabba, langvinnra lungnasjúk-
dóma, kransæðasjúkdóma og
æöaþrengsla, , auk þess sem
tóbaksreykingar hafa ýmis önnur
heilsuspillandi áhrif.
Rétt þykir að benda á ráðlegg-
ingar nefndarinnar til heil-
brigðisstétta, sem „ættu að gera
sérljóst mikilvægi þess að vinna
gegn reykingum meðal annars
með þvi' að reykja ekki”.
A aðalfundi Læknafélags Is-
lands 1975 var samþykkt tillaga
frá Bjarna Bjarnasyni, lækni,
sem nú er látinn, en B jarni var öt-
ull baráttumaður gegn reyking-
um og einn af forystumönnum
Krabbameinsfélagsins frá stofn-
un þess. 1 tillögunni er skorað á
ýmsa aðila, sem geta haft áhrif
meö fordæmi sinu, að ihuga á-
byrgi sina hvað reykingar varö-
ar. Stjórn L.l. vill meö bréfi þessu
koma þessari áskorun á fram-
færi.
Tillagan hljóðar svo:
„Vegna hins geigvænlega
heilsutjóns, sem tóbaksreykingar
valda, skorar aðalfundur lækna-
félags Islands á:
— lækna, að reykja ekki,
— stjórnir og starfsmannaráð
sjúkrahúsa og annarra heil-
brigðisstofnana að reyna að
draga úr reykingum starfsfólks á
vinnustað,
— kennara að reykja ekki f skól-
um eða á umráðasvæði þeirra,
— foreldra að íhuga ábyrgðina
gagnvart börnum sinum og
vernda þau gegn reykingahætt-
unni með þvi að reykja ekki sjálf,
— stjórnendur og starfsfólk sjón-
varpsins, að hlutast til um að
þeir, sem þar koma fram reyki
ekkimeðan á útsendingustendur.
Fréttatilkynning frá
Læknafélagi tslands.
FRAMHALDSSAGA
Komdu
heim,
Ammí
Höfundur:
Barbara Michaels
Þýðandi:
Ingibjörg Jónsdóttir
,,En sætt,” sagði Sara ófyrir-
leitnislega. „En ég er viss um, að
hún var fegin að sleppa. Hver ætli
taki ekki glæsilegan íra fram yfir
leiðinlegan pabba?”
„Kannski ungi maðurinn hafi
reynt að biðla til hennar á réttan
og hefðbundin hátt,” sagði Ruth
og reyndi að lita raunsæjum aug-
um á málið, orð Söru um for-
dómanahöfðu stungiö hana dálit-
ið. „OgDouglasshefurálitiðhann
óhæfan sem eiginmann.”
„Auðvitað,” sagði Pat. „Hann
var kaþólskur.”
.Jfvernig veistu —ó, þetta meö
að tæla hana frá trú sinni. Og
þetta er irskt nafn, auðvitað...”
„Kaþólskur og sjálfstæðismað-
ur,” sagði Pat. „Campbell var
afturhaldssamur mótmælandi og
konungssinni. Hún heföi ekki get-
að valið sér óheppilegra manns-
efni.”
„Þú fullyrðir útibláinn,” sagði
Bruce hæðnislega.
„Mér finnst þetta góð rök-
semdafærsla,” sagði Ruth, sem
varað reyna að halda friöinn. Pat
hafði roðnað aftur.
„Allt I lagi, allt I lagi,” muldraði
Bruce. „Er ykkur sama, þó að...”
„Hvað var Doyle að gera i
Georgetown?” sagði Sara. „Voru
einhver átök hérna?”
„Hér hlýtur að hafa veriö her-
deild til að gætu bresku
fanganna,”sagði Pat. „Hann hef-
ur kannski verið yfir henni.”
„Við skulum fletta honum upp i
herskjölum,” sagði Ruth. „Svo
vitum viö ekkert, hvaðan hann
var. Kannski hann hafi farlö með
Ammi heim til sin.”
„ICamden, New Jersey,” sagði
Pat viðutan. Hann hrukkaði ennið
eins og eitthvað nýtt og óþægilegt
angraði hann.
„Stóð það lika I blöðunum?”
spurði Bruce. Hann var grafkyrr
og augu hans virtust elta augu
Pats að læstum dyrunum.
Pat svaraði engu. Bruce gekk
varlega til hans.
„Pat, ég veit ekki, hvað timan-
um liður, en heldurðu að við gæt-
um farið að leggja af staö núna?
Það er orðið framorðið.”
„Jú, jú,” sagði Pat. „Það er
leiðindaveður. Það byrjaði að
rigna.þegar ég fór frá Wisconsin,
og vindhraðinn eykst.”
Orðin voru hversdagsleg og þvi
ástæöulaustað ótti vaknaði I huga
Ruthar. Þegar hún kom upp stig-
ann, stundi hún. Það var ekki
orðið dimmt, en rökkvað. Hún
hljóð að skápnum á ganginum, en
þar geymdu þær kápurnar sinar,
og kallaði á Söru.
Bruce var þriðji upp stigapn og
jafnákafur að komast burtu og
Ruth. Pat, sem hélt á frakkanum
sinum, elti þau. Ruth fannst hann
óvenju hljóður og áleit að það
væri vegna þess, hve dauflega
þau tóku fréttunum. Hún ákvað
að bæta honum það upp, þegar
þau kæmu heim til hans. A örugg-
an stað.
öruggan... Ekki voru þau
það hér. Hún heyrði húsið næstum
suða eins og rafmagnstæki sem
stungið hefur verið i samband og
er að hlaða sig...
„Biddu,” sagði Pat, þegar
Bruce tók frakkann sinn. „Hvar
er hundurinn?”
KOSTABOÐ
á kjarapöllum
KJÖT & FISKUR
Breiðholti
Slini 74200 — 74201
&
%%
(D
P0STSENDUM
TROLOFUNflRHRINGA
leifeson
WjB InnsnUrgi
j&inil 19 209
Dúnn Síðumúla 23 /íffll 94200
Heimiliseldavélar,
6 litir - 5 gerðir
Yfir 40 ára reynsla
Rafha við Óðinstorg
Símar 25322 og 10322
Birgir Thorberg
málarameistari
sími 11463
önnumst alla
málningarvinnu
úti og inni —
gerum upp gömul húsgögn >