Alþýðublaðið - 16.09.1976, Side 3
SB5S- Fimmtudagur 16. september 1976.
FRÉTTIR 3
Fjöl-
brautar
skóli
Suður-
nesja
-settur í fyrsta
sinn
Laugardaginn 22. september,
kl. 14.00 var setning hins nýja
Fjölbrautarskóla á Suöur-
nesjum i Félagsheimilinu
Stapa, Ytri-Njarðvtk. Við
setninguna fluttu ávörp Gunnar
Sveinsson formaður skóla-
nefndar, Haraldur Gislason
formaður Samstarfsnefndar
sveitarfélaga á Suðurnesjum og
Guðmundur Arnlaugsson rektor
Menntaskólans við Hamrahlið.
Einnig talaði Vilhjálmur
Hjálmarsson menntamála-
ráðherra, en aðalræðumaður
var nýskipaður skólameistari
Fjölbrautarskólans, Jón
Böðvarsson. Við setninguna var
einni flutt tónlist: þau Lára
Rafnsdóttir og Óskar Ingólfsson
léku samleik á pianó og
klarinett.
Forsaga
F jölbrautar skólans.
Arið 1973 tók til
starfa 1. bekkur menntaskóla,
við Gagnfræðaskóla Keflavikur,
i tengslum við Menntaskólann i
Hamrahlið, en árið eftir sótti
fræðsluráð Keflavikur um leyfi
til starfrækslu annars bekkjar
menntaskóla, en varsynjað, þar
sem talið var að rannsaka þyrfti
betur skipulag framhaldsnáms
á Suðurnesjum. Þann 11. okt.
1974 var svo skipuö nefnd til að
athuga skólamál á
Suðurnesjum, með stofnun
fjölbrautarskóla i huga. Þessi
nefnd gerði tillögur um náms-
brautir og húsnæði fyrstu ár
væntanlegs skóla, en siöan var
stofnuð önnur nefnd sem
kallaðist Samstarfsnefnd um
stofnun fjölbrautarskola á
Suðurnesjum. Fyrsti fundur
hennar var haldinn i desember
1975 og form, kjörinn Gunnar
Sveinsson Keflavik. Þegar á
þessum fyrsta fundi var
samþykkt álit þess efnis að
stofnaöur yrði fjölbrautarákóli á
Suðurnesjum sem tæki til starfa
haustið 1976. Undir þetta álit
tóku bæjar- og sveitarstjórnar-
menn á Suðurnesjum. Mennta-
málaráðuneytinu var sent bréf
um málið, og kom i ljós jákvæð
afstaða ráðuneytisins til stofn-
unar Fjölbrautarskóla, en tals-
menn þess voru hins vegar and-
vigir hugmyndum um mennta-
skóla á Suðurnesjum.
Slöan hélt Samstarfsnefndin
sérstakan fund snemma árs
1976. Var þar ákveðið að vinna
meö öllum ráðum aö stofnun
skólans og eftirtaldar
námsbrautir ákveðnar við
hann: menntaskólabr.,
viðskiptabr., uppeldis- og
hjúkrunarbr., iðn- og tæknibr.
Skólinn var formlega stofnaður
með samningi 11. júni 1976 milli
Menntamálaráðuneytis annars
vegar og fulltrúa sveitar-
félaganna sjö, sem að honum
standa, hins vegar.
Ráðningu starfsliðs
lokið.
Jón Böðvarsson hefur verið
settur skólameistari hins nýja
fjölbrautarskóla til eins árs, frá
1. ágúst að telja. Yfirkennari
verður Ingólfur Halldórsson
fyrrv. skólastjóri Iðnskóla
Suðurnesja, en Iðnskólinn hefur
nú verið lagður undir
Fjölbrautarskólann. Ráðningu
annarra kennara er lokið og
hafa flestir kennararnir tekiðtil
starfa við ýmiss konar
skipulagsstörf, enda i mörg
horn að lita.
1
BEOSYSTEM 901
Maósformannsminnst
á Hafréttarráðstefnu
Á allsherjarfundi
Hafréttarráðstefn-
unnar i New York sl.
mánudag hélt Hans G.
Andersen sendiherra
eftirfarandi ræðu, sem
formaður svæðahóps
V-Evrópu og annarra
rikja, við minningarat-
höfn um Mao Tse-tung:
,,Herra forseti,
Mao Tse-tung formaður var
mikilmenni i sögur Kina og i
mannkynssögu þessarar aldar
— á timum sem margir miklir
menn hafa lifað.
Störf hans fyrir Kina og hug-
sjónir hans um bætt h'fskjör fyr-
ir hina miklu kinversku þjóð eru
merkir minnisvarðar, sem hafa
veriðmörgum hvatning viða um
veröld.
Fráfall hans mótar timamörk
og skilur eftit’ vandfyllt skarð I
röðum þjóðarleiðtoga. Vissu-
lega er þar um að ræða merkan,
sögulegan viðburð
Vér skiljum og höfum samúð
með þeim missi sem kinverska
þjóðin hefur orðið fyrir. Það er
mjög viðeigandi að vér frestum
um stund viöleitni vorri til að
koma á skipulagi á eitt þýð-
ingarmesta svið heimsmálanna
i þvi skyni að votta minningu
þessa mikla leiðtoga virðingu
vora.
Ég vil þvi, ásamt öðrum full-
trúum hér, og fyrir hönd svæða-
hóps Vestur-Evrópu og annarra
rikja, votta starfsbræörum
vorum i sendinefnd Alþýðulýð-
veldisins Kina einlæga hluttekn-
ingu vora . Vér biöjum þá um að
flytja rikisstjórn sinni og þjóð
samúðarkveðjur vorar.”
HLJÓAATÆKI ÞESS VIRÐI AÐ HLUSTA Á
jafnvel eftir að þér hafið kynnt yður verðið
lyiEÐ BEOMASTER 901 FÁIÐ ÞÉR
UTVARP/ SEM ER MIKLU BETRA EN
HIFI STAÐALLINN
BEOSYSTEM 901 frá BANG&OLUFSEN
er sjálfstætt sett.
Þegar BEOSYSTEM 901 var hannað var mark-
miðið að einbeita sér að tóngæðum, en prjál látið
sitja á hillunni. Þetta er ástæðan fyrir því að tækin
eru hljómgóð jafnvel á fullum krafti
Ekki mun verðið fæla yður.
Þér borgið einungis fyrir gæði í hæsta flokki.
BEOSYSTEM 901 er í einingum.
BEOMASTER 901 hjarta kerfisins
útvarp og magnari (2X20 sin. wött).
Tæknilegar upplýsingar eru f jölþættar og
veitum vér yður aðstoð til glöggvunar og
samanburðar.
BEOGRAM 1203: Algerlega sjálfvirkur plötu-
spilari hlaðinn gæðum.
öll stjórn í einum takka.
Sjálfvirk mótskautun, uppfinning sem ein-
ungis B&O má nota.
Auk þess er
BEOSYSTEM 901
skynsamlegt HiFi
tæki, vegna þess
að einstaka
einingar eru
tæknilega full-
komnar ásamt
þvf að hönnun
tækisins er lista-
verk, sem finnst í
nútíma listasafni
New York borgar.
BEOVOZ P-30 eða S-30
Þetta eru hátalarar framtíðar-
innar. Þeir kallast ,,Uni-Phase"
þ.e. þeir vinna saman í stað þess að
eyðileggja hvor fyrir öðrum.
B&O hefur einkaleyfi yfir ,,Uni-
Phase „hátalarakerf ið.
KYNNIST TÆKJUNUM OG
HEYRIÐ MUNINN.
Verð 227.267,-
BANG & OLUFSEN
NÓATÚNI, SÍMI 23800
KLAPPARSTÍG 26, SÍMI 19800