Alþýðublaðið - 16.09.1976, Síða 8
8 OB YIWISUIWI ATTUIWI
alþýóu-
Fimmtudagur 16'. september 1976. biaðiö
aaar- ’|Fimmtudagur 16. september 1976.
tf ETTWANGUR 9
„íslenzkar
bókmenntir til 1550”
Bókaútgáfan Iöunn hefúr sent frá
sér bókina „Islenskar bókmenntir til
1550”>saga þeirra i ágripi i samantekt
Baldurs Jónssonar, Indriða Gislason-
ar og Ingólfs P41masonar.
I bókinni eru sögö stutt deili á helztu
bókmenntagreinum timabilsins. Er þá
tekiö miö af þvi aö nemendur leiti
sjálfir til fyllri rita. Viöa hefur verið
leitað efnisfanga i rit þetta. Er vitnaö
til slikra heimiida þar sem við á.
Helztu bakhjarlar samantektarmanna
eru prófessorarnir Sigurður Nordal,
Einar Ölafur Sveinsson og Jón Helga-
son. Indriöi Gislason hefur séð um
samræmingu efnis, rööun og uppsetn-
ingu. Hann hefur og að öllu leyti búiö
handritið undir prentun.
Bókin skiptist i eftirfarandi megin-
kafla: I. Kveöskaparöld — Eddukvæöi
— Dróttkvæöi. II. Sagnritunaröld —
Timabil hinna fróöu manna — Sagna-
bókmenntir — Heilagramannasögur —■
Konungasögur — Biskupasögur — Is-
lendingasögur — Veraldlegar sam-
timasögur — Fornaldarsögur — Ridd-
arasögur — Annálar. III. Miðöld —
Helgikvæði — Dansar — Rimur —•
Heimsádeila — Skáld-Sveinn.
Bdkin er einkum ætluö menntaskól-
um og öðrum framhaldsskólum, jafn-
framtþvisem hún er aögengileg öllum
almenningi. 1 bókinni eru nokkrar
teikningar og myndir úr handritum.
I aöfararorðum segir meðal annars,
að þessi bæklingur sé til orðinn hjá is-
lenzkukennurum viö Kennaraskóla Is-
lands. Samning hans hafi tekið mörg
ár. Megi segja aö hann hafi upphafizt i
minnispunktum sem nemendum var
ætlað aö skrifa niður i kennslustund-
um. Siðan hafi verið fariö að fjölrita
slik drög og smátt og smátt hafi þau
fengiðþaö form sem nú sé orðið. Upp-
hafsmaður þessastarfshafi verið Ósk-
ar Halldórsson, lektor,meðan hann var
islenzkukennari skólans. Sé skylt að
geta þess að arftakar hans hafi I
mörgu byggt á þeim grunni, sem hann
lagði.
Kosningarnar í
Svíþjóð á sunnudag
A sunnudag eru kosningar i Sviþjóð.
Enn er ógjörningur aö segja nokkuð
um likur á kosningaúrslitum, en bar-
áttan snýst um það hvort jafnaðar-
menn muni áfram halda völdum eftir
44 ára stjórn á landsmálum eða hvort
mikill meirihlutisænsku þjóðarinnar á
eftir að lúta stjórn borgaraflokkanna
næstu árin.
Jafnaðarmenn með Olof Palme i
broddi fylkingar takast nú á við Cent-
erpartiet (miðflokkinn) og Thorbjörn
FSlldin, Fqlkpartiet og Par Ahlmark
ogModeraterna (hægri flokkurinn) og
Gösta Bohman. Þessir þrir flokkar
hafa heitið þvi að mynda samsteypu-
stjórn, fái þeir meirihluta i kosningun-
um á sunnudag. Hins vegar er óljóst
hvaða stefnu þessir flokkar muni taka
i þjóðmálum, nái þeir völdum. Þeir
hafa ekki birt sameiginlega stefnu-
skrá. Það hefur þó komið i ljós i' kosn-
ingabaráttunni, aö þessir þrir flokkar
eru ósammála um veigamikil atriöi.
Þarmánefna afstöðuna til kjarnorku-
mála, skattamála og um greiðslur at-
vinnuveganna til almannatrygginga.
Jafnaðarmenn i Sviþjóð segja, að
það eina sem þessir flokkar séu raun-
verulega sammála um, sé,að jafnað-
armenn skuli reknir út úr ráðherra-
skrifstofunum. Það sé það mikilvæg-
asta: um annað verði rætt eftir kosn-
ingar. Samvinna flokkanna þriggja er
ekki komin lengra en svo, aö Falldin
og Ahlmark hafa neitað að láta taka
ljósmynd af sér með „hægri” foringj-
anum Bohman.
Jafnaðarmenn i Sviþjóð hafa á sín-
um langa stjórnarferli lagt grundvöll
aðmerkilegu velferðarþjóðfélagi, sem
fyrir margra hluta sakir er nú skóla-
bókardæmi fyrir margar þjóðir heims.
Þó er það einmitt sú staðreynd, að
jafnaðarmenn hafa verið við völd i 44
ár sem er veikasti þátturinn i þeirri
kosningabaráttu, sem nú er háð i Svi-
þjóð. Fullyrðingar um að það geti ver-
ið heppilegt og raunar nauðsynlegt
fyrir sænskt þjóðfélag að skipta um
stjórn hafa náð eyrum margra. And-
stæðingarnir hafa hamrað á þvi, aö
það sé óeðlilegt að samiflokkurinn fari
með völd i nærfellt hálfa öld. Þessi
áróöur virðist hafa áhrif, þótt almenn-
ingur búi viö góð kjör og öryggi.
Jafnaðarmenn hafa hins vegar bent
á það, að mannaskipti innan fl. hafi
verið ör og þar með endurnýjun i
flokksstarfinu. Þeir segja, að valda-
skipti séu i raun og veru ekki nein
trygging i lýðræðisþjóðfélagi. Hægri
flokkarnir hafi gifurleg áhrif og sterka
aðstöðu, sem komi fram utan þeirra
stofnana, sem kosið er til. Pólitiska
valdið þurfi aö vera I höndum fólksins
og verkalýðshreyfingarinnar. Það sé
bæði eðlilegt og rétt. — Sigri jafnaðar-
menn i Sviþjóð á sunnudag megi lita á
það sem mikinn sigur hreyfingar
þeirra, sem áhrif muni hafa langt út
fyrir landamæri Sviþjóöar.
Hér er nuddaö með hitageisium.
Matsalur Náttúrulækningahælisins.
Mynd úr Syndinni. Hér er syndgaö á fuilum krafti.
Samkomusalur hæiisins.
Fyrsta álma nýja hælisins
Laugardaginn 18.
september, er Náttúru-
lækningadagurinn. Þá
halda náttúrulækninga-
menn annan hátíðisdag
sinn í Hveragerði. Verður
sérstök hátíðadagskrá og
fyrsta álman af nýja hæl-
inu skoðuð, en hún var tek-
in í notkun í júlí í sumar og
Pillur og sprautur
gera ekki sama gagn
Reynt er að bæta skortinn með
þvi að taka inn alls kyns vitamin-
pillur og sprautur, en það kemur
ekki að sama gagni og náttúruleg
vitamin.
Þessar matarvenjur valda of-
fitu, sem orska of háan blóðþrýst-.
ing, æðakölkun og fleira. Það er
sem sagt of mikil .neyzla kol-
Margvísleg meðferð
Meðferð, sem sjúklingar fá, er
mjög margvisleg. Má þar nefna
nudd, bæði með gömlu aðferðinni,
með hitageislum og vatnsnudd.
Ennfremur er geislun með út-
fjólubláu ljósi, leirböð og margt
fleira. Á staðnum er einnig sund-
laug sem vistmenn nota óspart.
Þá er ótalið mataræðið. Vistmenn
eru oftast settir á sérstaka mat-
arkúra, þá oft megrunarkúra.
0F MIKIL SYKUR-
0G HVEITINEYZLÁ
Orsök margra hrörnunarsjúkdóma
rúmar 40 manns. Á boð-
stólum verður veizlumatur
að hætti náttúrulækninga-
manna.
Slíkur dagur var fyrst
haldinn í fyrra, 20. septem-
ber, en sá dagur er af-
mælisdagur Jónasar
Krist jánssonar, læknis,
upphafsmanns náttúru-
lækninga á íslandi, en í
leiðinni var haldið upp á 20
ára starfsafmæli heilsu-
hælisins í Hveragerði.
Rangt mataræði
Við ræddum við yfirlækninn á
heilsuhælinu, Björn L. Jónsson,
en hann er mikill áhugamaður
um náttúrulækningar.
Björn sagði, að öll þau næring-
arefni, sem við þörfnumst væru i
jurtunum. Galdurinn við mat-
reiðslu væri aðallega sá, að mat-
reiða sem allra minnst. Menn
ættu að neyta matarins eins og
hann kæmi fyrir frá náttúrunnar
hendi. Þegar tii dæmis kál er soö-
iö', missir það alls kyns efni, sem
nauðsynieg eru fyrir likamann
með þvi að borða ávexti og græn-
meti hrátt auk mjólkurmatar fá-
um við öll þau efni, sem likaminn
þarfnast.
Fiskur og kjöt eru þess vegna ó-
þörf. En það, sem náttúrulækn-
ingamenn leggja áherzlu á, er aö
ekki sé blandað saman neyzlu
náttúrufæðis og neyzlu kjöts og
fisks.
Aðalgallinn við matarvenjur
Islendinga, eru hvaö við neytum
mikils af sykri og hveiti Að með
altali eru 20% af þeim mat, sem
við neytum, sykur og önnur 20%
hveiti. Það skortir svo mikið upp
á, að með slikum matarvenjum
fáist nægilegt magn af vitamin-
um og öðrum nauösynlegum efn-
um, að ekki er hægt að bæta það
upp á nokkurn hátt.
Brjóstmynd af Jónasi
Kristjánssyni, lækni, upphafs-
manni náttúrulækninga á Is-
iandi.
vetnis, sem orsakar ýmsa
hrörnunarsjúkdóma.
Rúmar 160-170 manns
Við gengum um heilsuhælið og
skoðuðum starfsemina. Með okk-
ur gengu forstöðumaöur hælisins,
Árni Asbjarnarson og formaður
undirbúningsnefndar Náttúru-
lækningadagsins, Egill Ferdi-
nandsson. Þeir fræddu okkur um
starfsemi hælisins.
Það eru 20 ár siðan hælið tók til
starfa. Náttúruiækningafélagið
rekur heilsuhæiið, með örlitlum
rikisstyrk. Einnig tekur sjúkra-
samlagið þátt i greiðslu dag-
gjalda vistmanna.
Alls rúmar hæliö 160-170
manns. Er þar meötalin ein álma
nýja hælisins, sem tekur 40
manns. Hún var tekin i ntokun 1.
júli en alls verða álmurnar i nýja
hælinu fjórar.
Yfirleitt er vistfólk fjórar til
fimm vikur á hælinu, en annars
ræður læknirinn þvi. Þaö er þó
sjaldgæft, að fólk, sé skemmri
tima en þrjár vikur.
Hver vistmaður fer i meðferð
tvisvar á dag. Það skal tekið
fram, að enginn sjúklingur fer i
neina meðferð, án þess að læknir
hafi gefið fyrirmæli um hana.
Smá setustofur fyrir vistmenn-
ina eru á mörgum stöðum á göng-
unum þar sem fólk getur komið
og rabbað saman, slegið i
spil.Stór samkomusalur er einnig
i hælinu. Þar kemur fólk saman
og heldur skemmtikvöld ' einu
sinni í viku, þar eru fluttir fyrir-
lestrar og vikulega er þar messa.
Einnig er litið herbergi þar sem
fólk getur farið, vilji það vera út
af fyrir sig, herbergi ihugunar og
sáluhjálpar.
Syndin
Svo er það Syndin. A Syndina
kemur fólk, þegar það vill
reykja. Reykingar eru nefnilega
bannaðar á herbergjum. Við lit-
um inn á Syndina og röbbuðum
við nokkraar konur, sem voru að
syndga i grið og erg.
Þær létu vel yfir vistinni og
kváðu alla meöferð afskaplega
góöa. Ein sagöi: „Hér er dásam-
legt að vera”, og bætti svo við
lágróma ,,en mætti vera örlitið
fjölbreyttari matur”.
Um Syndina sögðu stöllurnar:
Syndin þarf nauðsynlega að vera
til, annars myndi fólk ekki kynn-
ast eins vel. Hér hittist fólk meira
og það skapar betra jafnvægi á
staðnum.
Þær segjast reykja mun sjaldn-
ar, þvi þær nenna ekki að fara
alla leið i Syndina þegar þær vilja
„smók”, en gallinn á gjöf Njarðar
er sá, að þegar þær eru komnar
þangað, reykja þær stundum tvo
til þrjá vindlinga i einu”. Annars
er löngunin i vindlinga minni,
þegar grænmeti er borðað. Við
það yfirgáfum við Syndina.
Annaö hæli
í undirbúningi
Stöðugt er verið að ýta áfram
byggingu hins nýja hælis, sem
Leirbað
Og hér er vatnsnudd,
veröur við hlið þess gamla. Sem
fyrr segir er fyrsta álman þegar
komin i notkun, en fjárhagurinn
er þröngur nú sem fyrr, samt
standa vonir til, aö fleiri álmur
verði teknar i notkun sem allra
fyrst.
Eftirspurnin efir plássi er svo
mikil, að nokkur hundruö manns
eru stöðugt á biðlista. Þess má
geta að náttúrulækningamenn
fyrir noröan eru að vinna að þvi,
að koma á fót heilsuhæli i Eyja-
firöi.
Hátið náttúrulækningamanna á
laugardaginn hefst með matar-
veizlu á heilsuhælinu klukkan 13 á
hádegi, og er það von manna þar
austur frá, að náttúrulækninga-
menn og áhugamenn um þessi
málefni fjölmenni i Hverageröi.
Myndir og texti ATA
Björn L.Jónsson, yfirlæknir, Arni Asbjarnarson, forstöðumaður og
Egill Ferdinandsson, formaður undirbúningsnefndar fyrir utan
heilsuhælið.
Hér er nuddað á venjulegan hátt, þ.e. meö handafli.