Alþýðublaðið - 14.10.1976, Qupperneq 6

Alþýðublaðið - 14.10.1976, Qupperneq 6
Fimmtudagur 14. október 1976 3BX? 6 Athugasemd Einars Más Jónssonar vegna greinar Jóns Vals Jenssonar Vegna fullyrðinga um rítstuld Hr. ritstjóri, t grein eftir Jón Val Jensson, sem birtist i blaöi þlnu föstu- daginn 8. október, er litillega vikið að greinaflokki, sem ég skrifaði I Þjóðviljann fyrir tveimur árum, og fer höf. um hann þessum oröum: „....greinaflokki, sem Einar Már Jónsson birti I Þjóðviljan- um en var upphaflega kominn úr danska blaðinu Infor- mation.” Þar sem hér er verið að drótta þvi að mér að ég hafi birt undir eigin nafni greinar úr öörum blöðum, en það er athæfi sem kallað er ritstuldur I venju- legu máli, get ég ekki látið hjá liða aðgera nokkra athugasemd við þessi orð. Eins og flestum er kunnugt eru ekki gerðar til blaðamanna kröfur um neinn sérstakan frumleika, heldur er það hlut- verk þeirra að koma á framfæri þeim upplýsingum, sem þeir vita réttastar. Oft eru þessar upplýsingar af skornum skammti og verður þá að byggja á fáum aðalheimildum. Við samningu greinanna um Chile reyndi ég þó að leita sem víðast til fanga og sótti m.a. all- miklar upplýsingar i bókina „The Triumph of Allende” eftir Richard E. Feinberg, svo langt sem hún náði. Svo var mjög mikill stuðningur að greinum sem birst höfðu smám saman um atburði líðandi stundar i franska mánaðarritinu „Le Monde diplomatique”. Loks gluggaði ég mikið I ýmis alþýð- leg rit um Chile og Rómönsku Ameriku og einnig fjölmörg blöð og timarit, einkum til að fá sem beztar fréttir um þær upp- ljóstránir, sem þá voru nýjast- ar og sönnuðu hlut Bandarlkja- manna I valdaráninu I Chile — og vörpuðu jafnframt nýju ljósi á atburði fyrri ára. Ég man ekki lengur hvort ég leit I „Infor- mation” en hafi svo verið er óliklegt að það blað hafi haft nokkru við að bæta þær upplýs- ingar sem fáanlegar voru ann- ars staðar. Starf mitt var siðan I þvi fólgið að setja þessar upp- lýsingar i sem skýrast sam- hengi i ljósi þess sem þá var best vitað. Fullyrðing Jóns Vals Jensson- ar um að ég hafi ekki gert annað en birta greinaflokk „sem upp- haflega var kominn úr Infor- mation”, er þvi algerlega til- hæfulaus og gerð i þeim tilgangi einum að ófrægja þá sem eru á öðru máli en hann, og gefa I skyn að þeir geti ekki kynnt sér málin á sjálfstæðan hátt. Jón Valur Jensson hefur sjálf- ur unnið sér óbrotlega frægð með grein sinni „Sigur lýð- ræðisins”, sem enginn efast um að hafi verið frá hjarta hans komin. Við verðum þó að vona unnað öðrum sannmælis. að þessi frægð stigi honum ekki Virðingarfyllst svo til höfuðs að hann geti ekki Einar Már Jónsson. Skýringar ráðherra á sex embættaveitingum Alþýöublaðinu hefur borizt eftirfarandi frá Vilhjálmi Hjálmarssyni, menntamálaráð- herra: Vegna blaðaskrifa um veitingu embættis aðstoðarskólastjóra við Fjölbrautaskólann i Breiðhoiti, hef ég þegar gert opinbera grein fyrir viðhorfi minu tilþessa móls. Blöðum hefir einnig orðið tið- rætt um meðferð fyrri umsókna dr. Braga Jósefssonar um stöður á vegum menntamálaráðuneytis- ins. Eitt blaðið segir þær um- sóknir orðnar tólf og mörg fara hörðum orðum um afgreiðslu þeirra, þó án teljandi skil- greiningar. Að athuguöu máli þykir mér rétt að greina frá staðreyndum, ekki slzt vegna þess að Alþýöu- blaöið, sem B.J. starfar við, hefir nýverið kvartað undan þvi, að menntamálaráðherra gefi „enga skýringu á þvi hvers vegna dr. Bragi hefir ekki komiö til greina i þær tólf stöður, sem hann hefir áður sótt um.” Þá er þess fyrst að geta, aö fyrri umsóknir B.J. um stöður á vegum menntamálaráöuneytis- ins á umræddu timabili munu „aðeins” vera sex og skal ég greina hverja fyrir sig. 1) Deildarstjóri fræðsludeildar. umsókn dags. 28.4. 1975. Sama staða og B.J. gegndi áður i menntamálaráðuneytinu. 2) Lektor i uppeldisfræði við Há- skóla Islands. Dómnefnd innan deildar taldi Guðnýju Guðbjörns- dóttir hæfasta. Við atkvæða- greiðslu i deild fékk hún 16 at- kvæði og B.J. 2 atkvæði. G.G. var sett til eins árs. 3) Fræðslustjóri i Reykjanesum- dæmi. Við atkvæðagreiðslu i fræðsluráði fékk Helgi Jónasson 3 og Kristin Tryggvadóttir 2 at- kvæði. Tveir fræðsluráðsmenn skiluðu bókunum, annar þeirra mælti með B.J. 4) Fræðslustjóri i Vesturlands- umdæmi. Afgreiðsla fræðsluráðs var sú, að samstaða varð um að mæla með Snorra Þorsteinssyni. 5) Fræðslustjóri i Suðurlandsum- dæmi. I fræðsluráði hlaut Jón Hjálmarsson 3 og Sigurður K.G. Sigurðsson 2 atkvæði. 5) Fræðslustjóri i Norðurlands- umdæmi vestra. Sveinn Kjartansson hlaut 3 atkvæði i fræðsluráði og Valgarður Runólfsson 2. Þessi f jögur embætti og raunar allar fræðslustjórastöður hafa nú verið veittar i samræmi við til- lögur fræðsluráöa, þár sem ráð- herra sá ekki ástæðu til frávika neins staðar. Vert er að vekja at- hygli á þvi, að fræðsluráðin mæla oftast með heimamönnum og I fjórum tilvikum með þeim, sem gegnt hafa likum störfum áður. Af marggefnu tilefni þótti mér rétt að rifja þetta upp. En eins og áður segir veit ég ekki til að dr. Bragi Jósefsson hafisóttum fleiri störf hjá menntamálaráöuneyt- inu. Vilhjálmur Hjálmarsson Nýtt úrskák- heiminum David Levy hefur það eftir kunningja sinum aðSovétmenn muni ekki taka þátt i Olympiu- mótinu i Haifa i Israel og — ekki heldur mótinu, sem haldið verð- ur i Libýu. Libyumótið er haldið i mótmælaskyni við tsraels- mótið. Levy segir kunningja sinn hafa þetta eftir sovéska stórmeistaranum Kotov, sem nýlega var i London. Bandariski stórmeistarinn Samuel Reshevsky fékk hjarta- áfall i annað skiptiö á skömm- um tima, þegar hann tók þátt í sjö minútna hraðskákmóti i Marshallsklúbbnum nýlega. Hann storkaði örlögunum þarna þvi svo skammt var um liðið frá fyrra áfalli hans.... Fyrrverandi heimsmeistari Spassky mun dvelja eitt ár i Frakklandi. Sagt er að hin nýja franska eiginkona hans hafi ekki fengið vegabréfsáritun aftur til Sovétrikjanna þegar þau komu frá skákmótinu á Filipseyjum. Hroðaleg yfirsjón stórmeistara Hér átti Hubner leikinn og sást yfir mát i fjórum leikjum. Hubner lék hér 37. g3?? Petrosjan Húbner Stöðumynd 1. Furðulegt þar sem hann átti eftir fimm minútur af um- hugsunartimanum og er einn af slyngustu hraðskákmönnum heimsins i þokkabót. Mátið er svona: 37. De8+, Kg7. 38. He7 + , Kh6. 39. Df8 + , Kh5. 40. Robert Hubner. Hxh7 Mát. Petrosjan slapp fyrir horn! Hubner tapaði skákinni skömmu siðar. Ef hann hefði unnið þá hefði hann verið jafn Larsen i efsta sæti og haldið áfram i Kandidatakeppnina. Petrosjan er þekktur fyrir að vera harður i horn að taka við skákborðið og einnig fyrir skap- stillingu sina. T.d. hefur hann aðeins tapað einni skák af 120 I niu siðustu Olympiumótum. Þetta gerði sigur Castrós frá Kolumbiu enn eftirminnilegri og sætari, þegar hann sigraði Petrosjan i Biel. Castró var yngsti keppandi mótsins.23 ára gamall. Skák þeirra var skringileg að mörgu leyti. Petrosjan fékk fljótlega vinningsstöðu. Fremst meðal áhorfenda sat Baturinkij fararstjóri sovétmanna og virtist ánægður með frammi- stöðu Petrósjans, Castró hafði nefnilega unniö það óhæfuverk að vinna Geller fyrr i mótinu, svo nú átti að taka piltinn til bæna. Skyndilega tóku duiarfuiiir atburðir að ske. Petrosjan, sem alltaf er öruggur i vinningsstöðu tók að slaka á klónni. Gagnsókn Castrós valt eins og hraun- straumur i sivaxandi eldgosi. Petrosjan sá sér hag i að bjóða jafntefli, en gerði það á rangan hátt. Hann þurfti auðvitað að leika sinn leik á borðinu, en gerði það ekki. Castró benti honum á þessi glöp. Nú skeði hið ótrúlega, „Steinklumpurinn” Tigran Petrosjan brá skapi: Þarna sat andspænis honum óreyndur ungiingur og leiðrétti hann.einn keppnisvanasta stórmeistara heimsins. Þvilik andskotans ósvifni!!! Petrosjan lék leik sinum með miklum tilþrifum og svo vel heyrðist um skáksalinn. Castró spurði nú varlega, hvort jafn- teflistilboðið stæði enn? Akveðin handahreyfing skýrði svo frá að það væri ekki. I biðstöðunni nokkrum leikj- um siðar var Kolumbiumað- urinn með unna skák. Kortsnoj sendi 100 dollara Úr þessari stöðu vann Castró á eftirfarandi hátt: 41. He7, Bxf6. 42Rxf6, Kg7.43. Dc7, Ha8. 44. De5, KÍ8.45. Dd6, Db4. 46. He8+ + Kg7. 47. Hxa8, Petrosj an ÉÉÉ E w 'W'i wá n Hlf W\ A . WM i i k i A ■ ÉH w* E iíé 1 íéí € & Castro Stöðumynd 2. Dxd6. 48. Re8 + , Kh7.49. Rxd6, a4. 50. Re4, b4. Rc5, a3. 52. Rb3, gefið. Táningastelpurnar , sem fylgdust með Castró æptu upp af hrifningu, en Baturinskij dapr- aðist sýn. Daginn eftir fékk krafta- verkamaðurinn Castró frá Kolumbiu óvænta sendingu frá Amsterdam, KORTSNOJ SENDI HONUM 100 DALA AVÍSUN. Oscar Castró. Úrslitin i Biel: 1. B. Larsen 12,5 v. 2-4. Petrosjan 12v. 2-4 Portisch 12 v. 2-4 Tal 12 v. Þri'r siðast töldu tefla um sætið i-Kandídatakeppninni þar sem aðeins þrir halda áfram Svavar Guðni Svavarsson

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.