Alþýðublaðið - 14.10.1976, Page 7

Alþýðublaðið - 14.10.1976, Page 7
alþýöu- blaöió Fimmtudagur 14. október 1976 STJðRNMÁL 7 Aðalfundur kjör- dæmisráðs Alþýðu- flokksins i Vesturlands- kjördæmi var haldinn á sunnudaginn var. Fjöl- menni var á fundinum og urðu miklar umræður um ástand þjóðmála. Framsöguræður fluttu þeir Benedikt Gröndal, formaður Alþýðuflokks- ins, og Arni Gunnarsson, ritstjóri. — A fundinum voru samþykktar nokkrar ályktanir, sem fara hér á eftir: Skipta verður um stjórnarstefnu Kjördæmisráö Alþýöuflokksins i Vesturlandskjördæmi telur full- ljóst, aö núverandi hægristjórn Sjálfstæöisflokks og framsóknar er andstæö mikilvægustu hags- munum alls launafólks i landinu. Rikisstjórninni hefur gjörsam- lega mistekizt þaö meginmark- miö sitt aö ráöa bug á veröbólg- unni og geigvænleg skuldasöfnun hefur átt sér staö út á viö. Svo til sama óstjórnin á sviði efnahags- mála rikir enn sem á tima vinstri stjórnarinnar. Alvarlegast viö stjórnar- stcfnuna er, aö lifskjör almenn- ings hér á landi standa nú langt aö baki þvi, sem gerist i ná- grannalöndunum og vinnutimi hvergi jafn iangur. I skiptum sinum viö samtök launafólks hefur núverandi hægristjórn sýnt dæmalausa óskammfeilni. Öpinberum starfs- mönnum eru skammtað svo smátt, aö ýmsir hópar þeirra grípa nú til örþrifaráöa. Nýja vinnulöggjöf viröist rikisstjórnin ætla aö knýja i gegn — andstæöa vilja verkalýöshreyfingarinnar. Og meö tilefnislausum bráöa- birgðalögum, sem brjóta gegn stjórnarskránni, er vegið að samningsrétti sjómanna. Kjördæmisráöiö hvetur til öflugs viönáms gegn þessari ihaidsstefnu, sem núverandi stjórn fylgir og telur þaö brýnast allra verkefna I islenzkum stjórn- málum, aö hiö fyrsta takist aö brjóta þessa stjórnarstefnu á bak aftur. Landbúnaður í vanda Óþurrkar i heilum landshlutum og skipulagsleysi af hálfu stjórn- valda veldur landbúnaöinum al- varlegum erfiöleikum um þessar mundir. Af þessum sökum er nú talinn framundan á komandi vetri stórfeldur skortur á mjólkurvörum meöan fram- leiðsla sauöfjárafuröa fram yfir þarfir þjóöarinnar á sér stað. Kjördæmisráö Alþýöuflokksins i Vesturiandskjördæmi álitur, að sameiginlegir hagsmunir bænda og neytenda kref jist þess aö tekin veröi upp breytt vinnubrögð, er felist m.a. i eftirfarandi: 1) Finna veröur leiðir til að heyverkun veröi ekki jafn háö veöurfari, eins og nú erog þarf aö efla stórlega rannsóknir á þessu sviöi og auövelda bændum að taka upp nýjar heyverkunaraö- ferðir. 2) Aöstööu þeirra bænda sem stunda mjólkurframleiöslu þarf aö bæta m.a. meö þvi aö létta hiö bindandi vinnuálag, sem á þeim hvilir. 3) Landinu þarf aö skipta i framleiöslusvæði eftir búgrein- um, er taki mið af markaösaö- stööu i þéttbýlinu og búnaöar- möguleikum héraöanna. 4) Meö aögeröum.sem aö haldi mega koma, verður aö sporna gegn braski meö jaröir, sem leiöir til þess, aö góöar bújarðir eru ekki nýttar til tjóns fyrir viö- komandi sveitarfélög og þjóöar- heildina. Frá fundi kjördæmisráðs Alþýðu- flokksins í Vesturlandskjördæmi Núverandi ríkissljórn er andstæð mikilvægustu hagsmunum launafólks K jör dæ m is ráðiö tekur eindregiö undir þá ályktun siöasta aöalfundar stéttarsam- bands bænda, að nauösyn beri til að marka heildarstefnu I búvöru- framleiöslu, sem höfð sé til viö- miöunar um framleiöslumagn og telur aö aldrei hafi veriö jafn brýn þörf á slikri stefnumörkun og eimnitt nú. Kjör aldraðra hafa stórversnað Kjör aldraöra hafa fariö stór- versnandi á siöustu árum. t óða- veröbólgunni hefur kaupmáttur ellilifeyris minnkað aö mun miðaö viö þróun verölags og sparifé aldraöra brunniö á báli verðbólgubraskaranna. Kjördæmisráö Alþýöuflokksins i Vesturlandskjördæmi telur þessa þróun óverjandi og að þegar veröi aö koma á verð- tryggöu lifeyriskerfi fyrir alla landsmenn. Stuðningur við smíði dvalarheimila fyrir aldraða verði tekinn upp á ný Kjördæmisráö Alþýöuflokksins i Vesturlandskjördæmi telur, aö þaö hafi verið skref aftur á viö, þegar Alþingi ákvað á s.l. vetri aö hætta þátttöku rikisins i bygg- ingarkostnaði dvalarheimila fyrir aldraða. Bitnar þetta haröast á byggðum dreifbýlisins, þar sem mest þörf er mikils átaks á þessu sviöi til aö bæta aöbúnaö aldraöra. Kjördæmisráöið beinir þvi til þingmanna Alþýöuflokksins aö beita sér fyrir þvi þegar á næsta þingi, að þessi mistök veröi leið- réttog fyrri ákvæöi um þessi efni verði lögleidd á ný. Viö væntanlegan stuöning rikis- valdsins viö byggingu dvalar- heimila aldraðra veröi lögð áherzla á smiöi slikra heimila sem viðast um landiö. Hitaveitur verði ekki skattlagðar til ríkissjóðs Mörg byggöarlög m.a. á Vesturlandi standa nú frammi fyrir þvi aö hefja framkvæmdir við hitaveitur, sem munu spara þjóðinni erlend oliukaup. Kjör- dæmisráö Alþýöuflokksins i Vesturlandskjördæmi vill i þvi sambandi benda á, aö meö öllu er óviöunandi, aö rikisvaldiö leggi stórfelldar álögur á hagnýtingu innlendrar orku i formi tolla og söluskattsá efni til hitaveitna. En gjöld þessi eru yfirleitt ekki lögö á efni i raforkuver eða orku- flutningslinur frá þeim. A sinum tima fengu þingmenn Alþýöuflokksins samþykktar lagaheimildir til að fella þessi gjöld niður. Ef rikisvaldið ætlar ekki að notaþessarheimildirer sú hætta fyrir hendi, aö fjölmenn byggðarlög sjái sér engan hag af þvi að gera hitaveitur, sem þó væru þjóöhagslega mjög hag- kvæmar. Skorar kjördæmisráöið á þing- menn Alþýöuflokksins aö fylgja þessu máli fast eftir. Úrbætur í dóms- og skattamálum þola ekki bið Kjördæmisráö Alþýðuflokksins i Vesturlandskjördæmi telur, aö Alþingi veröi að gera gagngerar úrbætur á dóms- og skattamálum þjóðarinnar. Sú alda fjárglæfra oggrófra afbrota, sem riðið hefur yfir að undanförnu kallar á tafarlausar endurbætur á fyrir - komulagi réttarfars og óöms- mála sem hefur reynzt van- megnug á margan hátt, aö fást við þessi iskyggilegu vandamál. Ástand skattamálanna felur i sér einn alvarlegasta brest i is- lenzku þjóðlifi. Hiö grófa misrétti sem á sér staö á þessu sviöi veröur aö leiðrétta. Styrkja þarf stöðu Snæfellsness Kjördæmisráö Alþýðuflokksins í Vesturlandskjördæmi átelur hvaö gerö Vesturlandsáætlunar hefur dregizt óhóflega á langinn. Þar sem nokkur hreyfing viröist nú komin á þetta mál vill kjör- dæmisráðið minna á, aö eins og nú er ástatt er sérstaklega árföandi aö styrkja stööu byggö- anna á Snæfelisnesi og þar ber m.a. aö hafa eftirfarandi I huga: 1. Raforkumálum verði komið í fullnægjandi ástand og ernauösynlegt aö þvi marki veröi náð hið fyrsta- 2. Hinn hái kostnaöur viö upp- hitun húsnæöis krefst þess, aö jarðhitaleit verði hraöaö svo úr þvi fáist skoriö, hvort nýtanlegur jarðhiti er tiltækur fyrir hitaveit- ur. 3. Astand vega stendur langt aö baki þvi, sem gerist viöast annars staðar. Þarf að byggja upp allt vegakerfiö á Snæfellsnesi og leggja áherzlu á aö tengja þétt- býlisstaöina saman meö full- komnum varanlegum vegi. 4. Efla veröur verulega ýmsa félagslega- og opinbera þjónustu. Bæta þarf simakerfið og auka möguleika til framhaldsnáms heima fyrir. 5. Grundvöll atvinnuvegana, sem fyrir eru veröur að treysta. Útgerö á Snæfellsnesi viröist nú standa á tímamótum og er nú einkum brýnt aö tryggja hrá- efnisöflun til fiskvinnslu- stöövanna t.d. meö útgerö togara. Einnig er mikil þörf á aö finna leiöir til að auka fjölbreytni i at- vinnulifi á Snæfellsnesi. Kjördæmisráðiö vill sérstak- lega undirstrika, aö samhliða gerö Vesturlandsáætlunar veröi aö fylgja ákvaröanir um útvegun fjármagns og raunhæfar fram- kvæmdir aö öörum kosti er slfk áætlun harla litils viröi.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.