Alþýðublaðið - 10.11.1976, Blaðsíða 9
FRÉTTIR
Miövikudagur 10. nóvember 1976 ;biaöiö
Miðvikudagur 10. nóvember 1976
FRÉTTIR 9
Ráðstefna um mengun fersks vatns:
Mengunfersks vatns
fyrir hendi hér á landi
Ráðstefna um mengun
fersks vatns, verður haldin
að Hótel Sögu nk. föstudag.
Það er Landssamband
stangarveiðifélaga sem hef-
ur forgöngu um að tii ráð-
stefnunnar er boðað.
Á ráðstefnunni flytja er-
indi tiu sérfræðingar um hin
ýmsu viðfangsefni, en það
eru 10 aðilar, sem að ráð-
stefnu þessari standa,
landssamtök, ráðuneyti og
stofnanir ýmsar.
Mengun hefur aukizt um allan heim
sl. 30 ár og fer sífellt vaxandi. Má
segja að hún sé oröin alþjóðlegt
vandamál, og gefur fólk mengun mun
meiri gaum nú en verið hefur.
Vfða erlendis tiðkaðist þaö, og tiö-
kastraunarenn sums staðar, aö veita
úrgangi frá iðjuverum svo og skólpi
frá bæjum og borgum i nærliggjandi
vötn og ár. Afleiðingarnar má til dæm-
is sjá á Thamesánni. Almenningur tók
ekki viö sér fyrr en daunninn úr ánni
fór að veröa svo mikill aö varla var líft
i nálægðhennar, en þá kom lika kippur
i fólk og árangur af hreinsunum lét
ekki á sér standa.
Island hefur aö mestu leyti verið
laust viö alla mengun.
Þó er mengun fersks vatns aö
nokkru leyti fyrir hendi hér. Skólp frá
byggð, landbúnaði og nú siðustu ár frá
iðnaði og verkstæðum eru helztu
mengunarvandamál okkar islendinga.
Nokkuð algengt er að frárennsli frá
sveitarbýlum sé veitt út i skurði og
læki. Oft kemur það ekki svo ýkja mik-
iðað sök meðan byggð er mjög litil, en
vandamáliðeykst meö vaxandi byggö.
Dýr hreinsitæki eða breyttar skólp-
lagnir koma þar eingöngu til hjálpar.
Tilgangur ráðstefnu um mengun
fersks vatns er aö upplýsa menn um
þessi mál, skýra frá stööunni eins og
hún er i dag, benda á helztu hættustaöi
og kynna leiöir til úrbóta.
Stangarveiðimenn gera sér trúlega
almennt ljósari grein fyrir þeirri hættu
sem ám og vötnum stafar af of mikilli
mengun, en menn almennt. Þeir læra
aö hafa augun opin og einn eiginleiki
góðs veiðimanns er aö skynja um-
hverfi sitt. Er þaö ástæöan fyrir því að
Landssamband stangaveiöifélaga hef-
ur haft forgöngu um ráðstefnuhaldið.
Ráðstefnan er öllum opin meðan
húsrúm leyfir. Aögangur er ókeypis.
Hún hefst kl. 9.30, i hliðarsal Súlnasal-
ar Hótel Sögu og lýkur um kl. 17.30.
A ráðstefnunni flytja erindi meöal
annars, Guttormur Sigurbjarnarson
jarðfræðingur, vatnið og vatna-
búskapur, Þór Guðjónsson veiðimála-
stjóri, lif I fersku vatni, Baldur Jóhn-
sen forstjóri, umhverfisvernd um
veiðivötn og ár. Einnig verða flutt er-
indi um gerlarannsóknir i ferskvatni,
mögulega mengun hér á landi og áhrif
hennar, mengun ferskvatns frá land-
búnaöi, mengunarvarnir, mengunar-
lög og reglugerðir. Að lokum verða
leyfðar stuttar fyrirspurnir.
Ráöstefnuna setur Hákon Jóhanns-
son formaöur Landssambands
stangaveiðifélaga.
—AB
SINE mótmælir út-
hlutunarreglum LÍN
Telur þær afturhvarf til þeirra tíma
þegar menntun var forréttindi barna
hátekjumanna
Samband Islenzkra námsmanna er-
lendis hefur harðlega fordæmt nýsetta
reglugerð og úthlutunarreglur Lána-
sjóðs Islenzkra námsmanna um náms-
aöstoð, og telja þeir að reglur þessar
séu frekleg skerðing á kjörum náms-
manna. SINE telur aö hér sé gengið
þvert á yfirlýsta stefnu rikisstjórnar-
innar að öllum, sem getu og vilja hafa
til að bera, veröi gert kleyft að stunda
nám sitt án tilliti til efnahags.
SINE telur að menntamálaráðherra
hafi samykkt þær reglur sem hér um
ræöir án þess aö tekið væri nokkurt
mið af athugasemdum námsmanna,
og átelur SINE meirihluta stjórnar
Lánasjóðs islenzkra námsmanna fyrir
þá vanþekkingu á kjörum venjulegs
námsfólks að þeir skuli geta staðið að
tillögum sem þessum.
Sine telur að við gerö reglnanna hafi
verið lagöar tii grundvallar ágizkanir
hálaunamanna, sem aldrei hafi tekizt
á viö þá örðugleika, sem mæta náms-
mönnum, sem i einu og öllu þurfa að
sjá sér farborða sjálfir.
Verstu gallarnir
SINE hefur bent á nokkur atriði,
sem þeir telja veigamestu galla út-
hlutunarreglnanna. Þau eru:
1. Að lánsupphæð skuli ekki miðuð við
framfærsluþunga, en það þýðir bein-
linis, að fjölskyldufólk eigi ekkert er-
indi i sérnám.
2. Að tillit sé aðallega tekið til barna
þegar það horfir til lækkunar lána.
4. Aö hvergi sé tekið tillit til fram-
færslu maka, sem hefur ekki aðstöðu
til tekjuöflunar, s.s. vegna veikinda,
barna o.s.frv.
5. Að ekki skuli tekið tillit til skóla-
gjalda, nema að þau nemi að minnsta
kosti eins mánaðar framfærslu.
6. Að framfærsla barna skuli aðeins
metin 25% af framfærslu fulloröins
fyrir fyrsta barn en síðan 12.5% af
næstu, þ.e. i þeim tilvikum þegar tillit
er tekiö til þeirra.
7. Að framfærslukostnaður skuli ekki
miðaður við framfærslukostnaðar-
könnun er gerð var áriö 1973, heldur
byggt á ágizkunum og handahófs-
kenndu mati einstaklinga, sem virðast
hafa þá trú á námsmönnum, að þeir
geri allt til aðsvikja féútúrLlN.
8. Að ekki sé tryggt, að lán fullnægi
fjárþörf námsmanns umfram eigin
tekjuöflun,þ.e. að 100% lán séu veitt.
Ekki telja þeir SINE menn þessa
upptalningu fullnægjandi, það sé sama
hvar gripið sé niður I lögun um náms-
aðstoð, reglugerð með þeim og út-
hlutunarreglur, alls staðar blasi við að
á tslandi riki ekki jafnrétti til náms, og
að þær reglur er hér frá greinir séu
stórt skref afturábak, — til þeirra tima
þegar menntun var forréttindi barna
hátekjufólks.
Þá mótmælir SINE, þeim drætti
sem orðið hefur á úthlutun haustlána.
Cthlutun á að hefjast fyrir 15. okt. ár-
hvert, en ekkert bólar á lánunum enn.
Þetta hafi oröiö til þess aö margir
námsmenn erlendis hafa orðið að
hverfa frá námi til aö sjá sér farboröa
þar til lánin berast. Og sé nú svo komiö
að fjöldi þeirra hyggst hverfa heim
þar til úr rætist. es.
Söltuð síld í dreifingarumbúðum:
Tilraunum með
útflutning haldið
áfram
I upplýsingabréfi Sildarútvegs-
nefndar til sildarsaltenda er nú
frá þvi greint hvert starf nefndin
hefur unnið við að leita leiða til að
auka útflutningsverömæti sildar
héðan með vinnslu I dreifingar-
umbúðir, eöa neytendapakkning-
ar, eins og kallað hefur verið.
Svo sem kunnugt er, er söltuð
sild að verulegu leyti flutt út sem
fullunnin neyzluvara. T.d. fer öll
sú sild, sem seld er til Austur-
Evrópu, beint I verzlanir i þvi
ástandi, sem hún er afgreidd héð-
an. Sama er að segja um hluta af
slldinni, sem seld er til Sviþjóðar,
Finnlands, o.fl. markaðsianda.
Kryddsildin er aftur á móti að
mestu leyti tekin til frekari
vinnslu, svo sem framleiðslu á
gaffalbitum og öðrum svipuöum
vörum i venjulegum smáum
neytendaumbúðum. 1 Sviþjóð er
hin venjulega saltsild, og I Finn-
landi sykursildin, ýmist send i
verzlanir i hinum upprunalegu
umbúðum (þ.e. sildartunnunum)
eöa pökkuð i mismunandi stórar
dreifingarumbúðir i þvi ástandi,
sem hún kemur úr tunnunum,
sem hún verkast i. Nokkur hluti
saltsildarinnar i Sviþjóð og
sykursildarinnar i Finnlandi er
þó flakaður áöur en pakkað er i
dreifingarum búðirnar.
Sé sildin flökuð, reyna sildar-
kaupendur, eftir þvi sem mögu-
legt er, aö flaka hana jafnóðum
ogpantanir berast frá verzlunun-
um eða öðrum þeim aðilum, sem
kaupa sildina I svo stórum um-
búðum, þar sem gæði flakanna
rýrna, ef of langur timi liður frá
þvi sildin er flökuð og þar til flök-
in komast i hendur neytenda.
Eftir að sildveiðibanninu meö
hringnót lauk var haldið áfram
þar sem frá var horfiö og er nú i
undirbúningi að senda aukið
magn i tilraunaskyni til Finn-
lands, Bandarikjanna, o.fl. landa
oghafa þegar verið gerðar ýmsar
undirbúningsráðstafanir I þessu
skyni. Gert er ráð fyrir að fyrstu
sendingarnar veröi settar á
markaöinn i 3-10 kg. dreifingar-
umbúöum. Samningaumleitanir
standa nú yfir milli Sildarútvegs-
nefndar og finnskra sildarinn-
flytjenda um sölu á verulegu
magni af sykursaltaðri sild I 10
kg. umbúðum og er ekki óliklegt
aö samningar takist um sölu á
sykursaltaðri sild i slikum um-
búðum fyrir allt að 50 milljónir
islenzkra króna til afgreiöslu á
fyrrihluta komandi árs.
Aframhald á tilraunapökkun
þessari veröur fyrst um sinn á
vegum Sildarútvegsnefndar, en
ef markaður eykst fyrir saltaða
sild i þessum umbúðum á viðun-
andi verði, er ráðgert að pökkun-
in verði framkvæmd á þeim
sildarsöltunarstöðvum, sem góða
aðstöðu hafa til slikrar vinnslu.
Annars hefir það komið á óvart,
að samkvæmt nýlegri könnun
Slldarútvegsnefndar virðist sem
kaupendur islenzkrar saltsildar i
Sviþjóðsendi nú sildina aftur i
auknum mæli i upprunalegu
tunnunum i verzlanirnar, en svo
sem kunnugt er finnst mörgum
saltsildin bezt til matreiðslu beint
upp úr tunnunum.
Rannsókn fíkniefnamálsins langt á veg komin:
S0LUHAGNAÐUR
GERÐUR UPPTÆKUR
Undanfarið hefur staöið yfir á
vegum Fikniefnadómstólsins i
Reykjavik rannsókn á einu um-
fangsmesta fikniefnamáli sem
komið hefur upp hér á landi.
Litur rannsóknin aö innflutningi
og sölu á tugum kálóa á cannabis-
efnum.
I stuttu viðtali, sem Alþýöu-
blaðið átti við Arnar Guðmund-
son, fulltrúa við Fikniefnadóm -
sblinn, kom fram að rannsókn
þessa máls er nú langt komin.
Hefur lögreglan nýlega lagt hald
á nokkrar milljónir króna, sem
eru hluti þess söluhagnaðar sem
orðið hefur af innflutningi og
dreifingu efnanna hérlendis og
hafði hluta þessara peninga verið
komið fyrir i bankahólfi hér i
borg.
Nú sitja i haldi átta menn vegna
málsins og hefur sá sem lengst
hefur verið i haldi, setið inni i
áttatiu daga. Þá hafa hátt i
hundrað manns verið yfirheyröir
vegna málsins. —GEK
Yfirlýsing vegna blaðaskrifa
Með viðtali viö Sigurð Markús-
son útgerðarmann i blaöinu i gær
átti að birtast ljósrit af yfirlýs-
ingu skipverja á m/s Sögu, en það
féll niður vegna mistaka. Með-
fylgjandi er þessi yfirlýsing, og
undir hana rita allir skipverjar
nöfn sin.
Yfirlýsing
Við undirritaðir áhafnarmeð-
limirm.s. Sögu viljum taka fram
eftirfarandi vegna óvandaðra
blaðaskrifa um dvöl tveggja
Nigeriumanna um borð i m.s.
TIL SKYRINGAR
Vegna greinarinnar „Heim-
sókn á Kleppsspitala” sem birtist .
i blaðinu si. föstudag, hefur
Tómas Helgason beðið um að
eftirfarandi skýringar verði birt-
ar:
,,A spitalanum sjálfum eru 126
rúm sem þyrftu öll að vera fyrir
bráðveika. Af þessum rúmum eru
40-50 teppt af langdvalarsjúkling-
um, sem flestir veröa að vera á
spftalanum.
Þá eru a.m.k. 15 sjúkiingar á
spítaianum sem gætu verið á
hvaða sjúkrahúsi sem er, en ekki
hefur tekizt að fá piáss fyrir
annars staðar.
Tvær deildir eru eingöngu not-
aðar af iangdvalarsjúklingum. A
öðrum deildum eru bæði karlar
og konur og sjúkiingar á mismun-
andi sjúkdómsstigi.
Er þessi blöndun gerð tii þess
að skapa eðlilegra umhverfi og
samfellda meðferð sjúklinganna.
Að lokum skai þess getið, að
verkstjóri sá sem nefndur er
Jóhann Sveinsson i greininni heit-
ir i raun Jóhannes Sigurösson.”
—hm.
Sögu á leiö skipsins frá Port
Hartcourt til Reykjavikur:
1. Umræddir Nigeriumenn
höfðu hvor sinn sérklefa um borö
og var aðbúnaður þeirra og fæði
hið sama og islenzkra áhafnar-
meðlima.
2. Nigeriumennirnir voru aldrei
beittir likamlegu ofbeldi, og er
fullyrðingum þeirra um slikt
mótmælt * sem ósönnum sögu-
buröi.
3. Blaðaskrif um að umræddum
Nigeriumönnum hafi verið ógnað
með skotvopnum eru algerlega
ósönn enda engin byssa um borð I
skipinu og hefur ekki verið.
4. Við lýsum undrun okkar og
vanþóknun á þvi hvernig vissir
fjölmiðlar og hinn nýi forseti
Sjómannasambands tslands hafa
haldið á máli þessu.
5. Okkur er kunnugt um að út-
gerð m.s. Sögu hefur ákveðið að
óska eftir að haldin verði sjópróf
til þess að leiða sannleikann i ljós
i máli þessu.
RANNSÓKNIR A VINNSLU PERLUSTEINS
VEL Á VEG K0MNAR
A blaðamannafundi, sem
Iðnþróunarstofnun íslands boð-
aði til i gær, um nýtingu perlu-
steins, flutti Gunnar Thorodd-
sen ávarp, þar sem hann rakti i
stórum dráttum þróun gosefna-
rannsókna á islandi. Vék ráð-
herrann sérstaklega að
uppbyggingu þessa iðnaöar hér
á landi meö hliðsjón af þróun og
reynslu annarra þjóöa.
Hér á landi var gosefnanefnd
sett á laggirnar á árinu 1975.
1 framhaldi af störfum þeirrar
nefndar var Iðnþróunarstofnun
fengiö máliö til meöferðar og
vinnur nú að þvi i samráði við
iðnaðarráðuneytið og ýmsa
aöra aðila innan lands sem
utan.
Að lokinni ræðu iðnaðarráð-
herra, Gunnars Thoroddsen, tók
til máls Sveinn Björnsson,
framkvæmdastjóri Iðnþróunar-
stofnunar. Ræddi hann um þá
margþættu möguleika, sem
vinnsla perlusteins gæti opnað.
Sagöi Sveinn að ef til vill væri sá
timi kominn að menn ættu að
fara að endurskoða þá fullyrð-
ingu, aö Island væri hráefna-
snautt land.
,,Ég tel að eftir svona 5 til 10
ár verði vinnsla perslusteins og
margskonar framleiðsla úr
perlusteini oröin þekkt
framleiösla hér á landi,” sagði
Sveinn Björnsson.
Hann benti á að perlusteinn
væri nú unnin i um 30 löndum og
væri ársframleiðslan nú um það
bil ein og hálf miljón tonn.
Að lokum tók til máls Óttar
Halldórsson og ræddi harin
nánar um ýmsa þætti perlu-
steinsframleiðslu og hugmyndir
þar að lútandi.
Perlusteinn finnst á nokkrum
stöðum i heiminum og hefur
fundið viðtæka notkun i bygg-
ingariönaði og öörum iðnaði
margra landa. Þaninn perlu- ~
steinn er mjög léttur, vegur
aðeins um 60—80 kg hver
rúmmeter, hann er mjög gott
einangrunarefni, hann er
óbrennanlegur og hefur marga
fleiri kosti. Hér á landi finnst
perlusteinn einkum á tveimur
stöðum, i Prestahnúki á Kalda-
dal og i Loðmundarfirði á Aust-
fjörðum.
Alllangt er siöan mörgum
varð ljóst hér á landi, að allmik-
il verðmæti væru fólgin i perlu-
steinsnámum okkar. Siðustu 2
árin hefur verið unnið af enn
meira kappi en áður að
rannsóknum á perlusteini úr
Prestahnúki, gæðum hans og
magni, og nú á þessu ári hófst
tilraunaframleiðsla á þöndum
perlusteini, sem framkvæmd
hefur verið við Sementsverk-
smiðju rikisins á Akranesi.
Siðastliðin tvö ár hefur tækni-
hjálp Sameinuðu þjóðanna lagt
fram aðstoð við rannsóknir
þessar, m.a. meö þvi að hingað
hafa fengizt erlendir sérfræð-
ingar á þessu sviði, sem unnið
hafa mikið gagn.
Bandarikjamenn eru lengst
komnir i notkun perlusteins.
Arið 1974 var notkun Banda-
rikjamanna um 500 þús. tonn, en
Evrópumanna utan Sovét-
rikjanna um - 350 þús. tonn.
Hráefnisnotkun I öllum heimin-
um á þvi ári erþvi'áætluð um
1.5. millj. tonna. Helztu not
perlusteins eru til léttsteypu-
gerðar og einangrunar, sem
fylliefni til framleiðslu á ýmis
konar plötum, sem hafa marga
ákjósanlega eiginleika m.a.
sökum léttleika sins, til
múrhúöunar, til brunavarna á
stálgrindahúsum, til siunar i
iðnaði m.a. i sykurvinnslu, oliu-
hreinsun og bjórframleiðslu og
til hreinsunar á drykkjarvatni.
Þá er perlusteinn notaöur sem
fylliefni i málningariðnaði og
plastiðnaði, sem járðvegsbætir i
garðyrkju og jarðrækt o.m.fl.
Notkun perlusteins hefur auk-
ist hratt undanfarin ár, og er
áætlað aðnotkun Evrópumanna
muni aukast um 9—10% árlega
næstu árin eöa m.ö.o. að notk-
unin tvöfaldist á næstu 7 árum.
Er þvi ljóst, að mikill markaður
mun verða fyrir perlustein i
nágrannalöndum okkar i V-
Evrópu og væntanlega lika á
austurströnd Bandarikjanna og
I Canada. Okkar markaöur hér
á landi er að sjálfsögðu ekki
stór, en mikinngjaldeyri mætti
spara meö aukinni notkun
perlusteins til þilplötugeröar og
tilhitaeinangrunar, en sá mark-
aður einn er um 6—700 millj.
króna árlega.
Unnið hefur verið að
rannsóknum á hagnýtingu Isl.
perlusteins til iðnaðar nokkur
undanfarin ár. Tilrauna-
framleiðsla hófst á Akranesi i
byrjun þessa árs. Þessari til-
raunaframleiðslu má deila i tvö
aðal þrep eða: flokkunarþrep
sem afkastar um 10.000 tonn á
ári, og þensluþrep, sem afkast-
ar um 1 rúmm. á klst. af þönd-
um perlusteini. Þessi tilrauna-
framleiðsla hefur gert kleift að
kanna efnisgæði, gera ýmiss
konar vöruþróunarprófanir og
vinna að markaösöflun.
Segja má að flokkunarþáttur-
inn nægi innlendum markaði
næstu árin enda eru afköst hans
um 25 sinnum meiri en þenslu-
þáttarins.
Gert er ráð fyrir að selja megi
flokkaðan perlustein hér innan-
lands á sama verði og hann er
boðinn á erlendum mörkuðum
þrátt fyrir erfiðar og langar
flutningaleiðir miðað við
núverandi aðstæður.
Einsogáðurvar minnstá hef-
ur verið unnið að margháttaðri
vöruþróun og upplýsingaöflun
um eileida framleiðslu úr perlu-
steini. Nokkrir möguleikar eru
sýndir hér. Meðal þeirra mögu-
leika er við viljum sérstaWega
vekja athygli á er einangrun á
steyptum þakplötum, perlu-
steinspussning (tilbúin), asfalt-
húðaður perlusteinn til varma-
einangrunar, m.a. á hitavatns-
lögnum, plötur ýmiss konar úr
perlusteini, pappir, kisildufti og
sementi, perlusteini til garð-
ræktar og siuperlusteini. Við
viljum sérstaklega undirstrika
ýmsa möguleika isl. iðnaðar til
framleiðslu úr innlendum gos-
efnum.
Tilrauna verksmiðjan á
Akranesi, sem hóf framleiðslu á
þöndum perlusteini, tók til
starfa i ársbyrjun 1976.
Um verðlag má segja, að verð
þanins perlusteins frá tilrauna-
verksmiðjunni á Akranesi er
alls ekki raunhæft verð, enda er
kostnaður verið framleiðslu i
svo smáum stil mjög hár miðað
við afköst. Hver rúmmetri þan-
ins perlusteins frá Akranesi hef-
ur verið seldur á 5000 kr., en
með hæfilegri stækkun til aö
anna þörfum innanlandsmark-
aðarins eingöngu mætti ná
verðinu niður i um 2000—2500 kr
rúmm. Miðað við einangrunar-
hæfileika perlusteins, sem er
mjög gott, og reyndar aöeins
lakara en beztu einangrunar-
efni, sem til eru i dag, yrði samt
sem áður um 20% ódýrara en að
einangra jafnvel með perlu-
steini, auk þess sem perlu-
steinninn hefur þann ágæta
kost, að hann er óbrennanlegur.
Engum dettur i hug að halda
fram, að perlusteinn muni á
næstu árum ryðja úr vegi nema
hluta af þeim byggingarefnum,
sem við notum i dag. Hitt er aft-
ur ljóst, að byggingariðnaður
okkar, sem veltir árlega 15—20
milljörðum króna, getur á ýms-
an hátt nýtt perlustein i stað
innfluttra efna.
Loks má nefna möguleika á
útflutningi. Verðlag á flokk-
uðum perlusteini óþöndum er
væntanlega um $ 40 cif. I V-
Evrópu, en þar af er helmingur
flutningskostnaður. Miðað við
það magn, sem fyrir hendi er i
Prestahnúki af 1. flokks perlu-
steini, sem hefur af jarðfræð-
ingum verið áætlaður 17—18
milljón rúmmetrar, og er e.t.v.
allmiklu meiri, er ljóst, að
þarna er um veruleg verðmæti
að ræða.
Allmargirerlendiraðilar hafa
þegar látið i ljós áhuga á að
kaupa óþaninn perlustein frá
íslandi. Erekki enn ljóst hvaöa
ákvarðanir verða teknar i þeim
málum, þvi að margs er hér að
gæta. M.a. verður að benda á,
að vegasamband við
Prestahnúk er slæmt og námu-
vinnsla getur ekki fariö fram
nema yfir sumartimann.
Fjölmennur fundur náms-
manna á Austurvelli
1 gær hélt kjarabar-
áttunefnd námsmanna
útifund á Austurvelli í
Reykjavik. Á fundinum
komu námsmenn á
framfæn kröfum sinum
um breytta stefnu
rikisstjórnarinnar i
lánamálum langskóla-
fólks.
Að kjarabaráttunefnd náms-
manna standa nemendasamtök
stúdenta hér heima og erlendis,
skólafélög eftirtaldra skóla:
Tækniskólans, Vélskólans,
Stýrimannaskólans, Fóstru-
skólans, Fiskvinnsluskólans,
Myndlista- og Handiðaskólans,
Iðnskólans, Tónlistarskólans og
Leiklistarskóla rikisins.
Ræður á fundinum héldu Ein-
ar Haröarson, sem talaði fyrir
hönd námsmanna, er standa ut-
an Háskólans, Guðmundur
Sæmundsson talaði af hálfu
SINE (Samtök islenzkra náms-
manna erlendis), og formaður
stúdentaráös, össur Skarp-
héðinsson, talaði fyrir hönd
stúdentaráðs. Fundurinn var
fjölmennur, milli þrjú og fjögur
þúsund manns.
Eftirfarandi tillögur voru
sambvkktar á útifundinum:
Askorun til ráðherra.
Almennur fundur náms-
manna, haldinn á Austurvelli 9.
nóvember 1976, skorar á
menntamálaráðherra aö:
1. Draga til baka hinar nýju
úthlutunarreglur og láta hinar
fyrri gilda, meðan unnið er að
nýjum og bættum reglum.
2. Við úthlutun ’76-’77 verði
miðað við kostnaðarkönnun frá
LIN frá 1973, og aö veitt veröi
fullnægjandi lán til framfærslu,
þ.e. 100% af þvi, sem á vantar
að tekjur brúi.
3. Úthlutun haustlána dragist
ekki fram yfir 15. nóvember.
4. Námsmönnum i lista- og
verkmenntunarskólum verði
veitt sambærileg aðstoð og öðr-
um, og hún nái til allra deilda
þeirra og árganga.
Áskorun til Alþingis.
Almennur fundur náms-
manna samþykkir að skora á
Alþingi, að hækka nú þegar þá
upphæö, sem fellur i hlut Lána-
sjóðs islenzkra námsmanna,
samkvæmt frumvarpi að fjár-
lögum fyrir 1977, til samræmis
við fjárbeiðni sjóðsins frá þvi i
vor.
Samþykktir þessar verða
sendar réttum aðilum. —ATA
Verzlun
með gler-
dýrá Eyrar-
bakka
Fyrir nokkru var opnuð á
Eyrarbakka ný verzlun með
gjafavörur, lampa, skerma, loft-
ljós og kristal. Þarna má einnig
kaupa hunda og ketti úr gleri,
listmuni og annað skraut til
heimilisprýði.
Verzlunin er til húsa i Túnbergi,
en þar hefur verið rekin verzlun
allt frá þvi 1914. Þarna eru gaml-
ar verzlunarinnréttingar, sem
ósjalfrátt hljóta að vekja athygli
þeirra sem inn lita.
Það er fyrrvcrandi kaupmaður
úr Reykjavik, sem þarna hefur
numið nýtt land. „Ég nenni ekki
að vera lengur I Reykjavik,”
sagði kaupmaðurinn, „Og mér
liður mjög vel hérna á Eyrar-
bakka.” —BJ
Eyjólfur Sigurðsson:
Formaður Fram-
kvæmdastjórnar
Alþýðuflokksins
Eyjólfur Sigurðsson hefur veriö
kjörinn formaður framkvæmda-
stjórnar Alþýðuflokksins. t fram-
kvæmdastjórninni eiga sæti
Kenedikt Gröndal, Kjartan Jó-
hannsson, Björn Jónsson, Kristin
Guðmundsdóttir, Karl Steinar
Guðnason, Gylfi Þ. Gislason, Sig-
urður Guðmundsson og Sigþór
Jóhannesson, auk Eyjólfs.
. -4>
€ f
R37550
Gestur Þorgrimsson, kennari og listamaður,
dvelur nú i Danmörku. Gestur sagði við
brottför:
,,Trabantinn fylgir mér
hvert sem ég fer, því að
hann er ávallt til taks
og svíkur ekki"
Gestur keypti sinn fyrsta Trabant 1964 og
hefir siðan ekið á Trabant.
Vorum að fá sendingu
af Trabant-bifreiðum
TRABANT UMBOÐIÐ
INGVAR HELGASÖN
Vonarlandi v/Sogaveg — Simar 84510 og 8451 1