Alþýðublaðið - 10.11.1976, Blaðsíða 15

Alþýðublaðið - 10.11.1976, Blaðsíða 15
g AAiðvikudagur 10. nóvember 1976 SJÓNABKMP15 Bíórin / Lerihhúsrin hofnnrbíó 3*16-444 HUGSYKI Robert Altman's Images, Susannah York Spennandi og afar sérstæð ensk Panavision-litnynd, sem hlotið hefur nikið lof, um unga konu og afar mikið hugarflug og hræðileg- ar afleiðingar Leikstjóri: Kobert Altmanæ ISLENZKUR TEXTI. Bönnuð innan 16 ára Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11. 3*2-21-40 Bláu augun ( Blue) Svipmikill „vestri” i litum og panavision. Aðalhlutverk: Terence Stamp. Sýnd kl. 5 7 og 9. Bönnuð innan 12 ára. íIiMÓÐLEIKHÚSIfi ÍMYNDUNARVEIKIN i kvöld kl. 20. VOJSEK 4. sýning fimmtudag kl. 20. 4. sýning sunnudag kl. 20. SÓLAREERÐ föstudag kl. 20. laugardag kl. 20. LITLI PRINSINN sunnudag kl. 15. Aðeins tvær sýningar eftir. Litla sviðið NÓTT ASTMEYJANNA i kvöld kl. 20.30. fimmtudag kl. 20.30. Miðasala 13,15-20. Simi 1-1200. LEIKFÉIAG REYKJAVlKUR “ SAUMASTOFAN i kvöld. — Uppselt. STÓRLAXAR fimmtudag. — Uppselt. Sunnudag kl. 20,30. SKJALDHAMRAR föstudag kl. 20,30. ÆSKUVINIR 4. sýn. laugardag. — Uppselt. -Blá kort gildaæ Miðasalan i Iðnó kl. 14-20,30. Simi 1-66-20. Auglýsingasími Alþýðu blaðsins í 4906 GAMLA BIO ^ ifcfTsni Simi 11475 Arnarborgin eftir Alistair MacLean. 1-15-44 ISLENZKUR TEXTI. Ein hlægilegasta og tryllingsleg- asta mynd ársins gerð af háð- fuglinum Mel Brooks. Bönnuð börnum innan 12 ára. Hækkað verð. Sýnd kl. 5, 7,15 og 9,30. Tðnabíó 3*3-11-82 Tinni og hákarlavatnið Tin Tin and the Lake of Sharks Ný skemmtileg og spennandi frönsk teiknimynd, með ensku tali og ISLENZKUM TEXTA. Textarnir eru i þýðingu Lofts Guðmundssonar, sem hefur þýtt Tinna-bækurnar á islenzku. Aðalhlutverk Tinni, Kolbeinn kafteinn. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Hin fræga og afar vinsæla mynd komin aftur meö fslenzkum texta. Bönnuð innan 14 ára. Sýnd kl. 5 og 9. 3*3-20-75 Að fjallabaki H|'l0 ItJSI KYi nb.iKt. Ný bandarisk kvikmynd um eina efnilegustu skiðakonu bandarikj- anna skömmu eftir 1950. Aðalhlutverk: Marilyn Hassett, Beau Bridges o.fl. Stjórnandi skiðaatriða: Dennis ■ Agee. ISLENZKUR TEXTI Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Simi50249 Will Penny Technicolor-my nd frá Para- mount um lifsbaráttuna á sléttum vesturrikja Bandarikjanna. Aðalhlutverk: Charlton Heston, Joan Hackett. Sýnd kl. 9 SERPIC0 ISLENZKUR TEXTI. Heimsfræg sannsöguleg ný amerisk stórmynd um lögreglu- manninn Serpico. Kvikmynda- handrit gert eftir metsölubók Peter Mass. Leikstjóri Sidney Lumet. Aðalhlutverk: A1 Pacino, John Randolph. Mynd þessihefuralls staðar fengið frábæra biaöadóma. Bönnuð innan 12 ára. Hækkað verð. Sýnd kl. 6 og 9. Ath. B»-eyttan sýningartima. Au-^ýsendur I AUGLYSINGASlMI BLADSINS E R 14906 HEILBRIGÐ ÞJÓÐ I ÖLL- UM EFNUM Höldum okkar vöku. Varla ernokkrum blöðum um það að fletta, að standi Islend- ingar i fremstu röð i einhverju atriðimeðalþjóða heims,erþað i heilbrigðismálum. Jafnframt má ekki gleyma þvi, hverjum við eigum að þakka þann heið- UFSS6SS. Ef litið er til baka til siðustu aldamóta, blasir við fremur óhugnanleg mynd af héil- brigðisástandi þjóðarinnar á þeim tima. Holdsveiki hafði verið land- læg um langan aldur, þó ef til vill væru einstaklingar ekki ákaflega margir, sem þjáðust af þeim hryllilega sjúkdómi. Sullaveikin var einnig mjög út- breidd og fyrir henni féllu ótaldir einstaklingar fyrir aldur fram. Barátta islenzkra lækna gegn þessum vágestum, er kapituli, sem hvorki má né á að falla i fyrnsku. Þar voru hendur sannarlega látnar fram úr erm- um standa og það er með ólik- indum hversu greiðlega gekk að hreinsa landið af sullaveikisfar- aldrinum svo dæmi sé nefnt. Báðir þessir sjúkdómar heyra nú sögunni til ■ En þvi er ekki að neita, að á fyrsta fimmtungi aldarinnar var kominn nýr vágestur, sem herjaði á blóma landsins — æskufólkið einkum, þó fleiri yrðu honum að bráð — hviti dauðinn, eða berklaveikin. En nú höfðu landsmenn lært þann sannleika, að sjúkdómar eru ekki neitt óumbreytanlegt náttúrulögmál, sem ekki verður yfirstigið. Landsmenn flykktust þvi undir merki lækna og annarra heilbrigðisyfirvalda, til þess aö vinna bug á þessari nýju hættu. Hér skal þessi viðleitni ekki lengi rakin, þó vert væri, enda erhér um að ræða atburði, sem fullorðnum eru og mega vera i fersku minni. Astæða væri til að nefna fjölda nafna f þessari baráttu, þó hér verði ekki gert. En það myndi trúlega ekki teljast á neinn hall- að, þó sagt sé, að þar hafi átt einn drýgsta hlutinn Sigurður Sigurðsson þáverandi berkla- yfirlæknir, siðar landlæknir. Að tilhlutan hans var sá háttur upp tekinn, að berkla- skoða alla Reykvikinga, og þannig varð Reykjavik fyrsta höfuðborgin á jarðarkringlunni, sem naut slikra aðgerða. En hér var ekki látið við þetta eitt sitja, heldur var landsbyggðin einnig tekin á sama hátt, kerfisbundið. Niðurstöðuna höfum við svo getað séð, að berklahælin, sem á sinum tima voru yfirfull og meira en það, hafa tæmzt að kalla, svo hefur þessi sjúk- dómur hopað á hæli. Urh hrið höfum við glaðzt við þá tilhugsun, að tsland væri að mestu — nær öllu, hreinsað af þessari veiki, sem kvistaði nið- ur unga fólkið jafn óvægilega og raun var á. Vitaskuld er hverskyns barátta þess eðlis, að þó sigur Oddur A. Sigurjónsson vinnist i bili, veltur á miklu, að I glata ekki sigrinum vegna tóm- lætis. Þvi er það aðalatriði að halda vöku sinni og láta óvininn ekki ná neinni fótfestu á nýjan leik. A þetta er skylt að benda ogekki sizt þegar fregnir berast um dauðsföll af völdum berkla nú nýverið. En það er fleira, sem einnig eru efni tilað hafa i huga. Island er nú komið i þjóðbraut, og hafi einangrun einhverntima verið okkur nokkur hlif, heyrir það nú sögunni til. Þá má heldur ekki gleymast, að ferðir tugþúsunda lands- manna til framandi landa, geta auðvitað boðið allskyns vágest- umheim. Við höfum t.d. fengið fregnir af þvi, að ýmsir sjúk- dómar, sem hér hafa hvorki þekkzt né numið hér verulega land, hafi skotið upp kollinum og er helzt talið að það sé i sam- bandi við utanferðir. Hér er nokkur ástæða til að staldra við. Eins og kunnugt er búum við við eitthvert hreinasta neyzluvatn, sem kostur er á i viðri veröld. Við hikum ekki við að fá okkur svaladrykk úr okkar tæra bergvatni og verður gott af. En þvi fer vitanlega fjarri, að allir eigi sliku láni að fagna. Viða um lönd er vatn svo meng- að, að nauðsynlegt er að sjóða það áður en neyzluhæft verður. Hversu athugulir eru islenzkir ferðamenn um þetta? Hér er alls ekki ætlunin að ala á neinni móðursýkishræðslu, en það hefur aldrei þótt saka, að hafa vaðið fyrir neðan sig, og er engum til vanza. Þetta á ef til vill ekki sizt við, þegar sá háttur hefur verið upp tekinn, að menn búi i einbýlis- húsum og þá ekki i beinu sam- bandi við ferðamiðstöðvar, þar sem ætla verður að sómasam- lega sé gætt hollustuhátta. Varla verður hjá þvi komizt að minna á enn annað, sem þvi miður virðist vera að færast hér i aukana svo geig mætti vekja — fikniefnaneyzluna. Ennþá kann svo að vera, að við séum ekki orðnir henni jafn- háðir og ýmsar aðrar þjóðir. En þessi hætta virðist hafa aukizt og margfaldazt á siðustu timum. Hér verðurað skera upp herör i fullri alvöru og i þvi striði má enginn bila. Af reynslunni vitum við hvað hægt er að gera með samstilltu átaki. Nú er timinn til að gera slikt átak. Vigorðið á að vera: Heilbrigð þjóð i hraustum likömum. ( HREINSKILNI SHCT'IÍlll I’IiisLiis lif Grensásvegi 7 J Slmi 82655. ■ nulúnNtiðNkipU leið iiil lúnM«idNki|»ta !BIINAÐ/\RBANKI ÍSLANDS Austurstrætc 5 5 5mi 21-200 Hafnarijarðar Apótek Afgreiðslutimi: Virka daga kl. 9-18.30 'Laugardaga kl. 10-12.30. Helgidaga kl. 1112 Eftir lokun: Upplýsingfsimi 51600.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.