Alþýðublaðið - 01.12.1976, Síða 16
Oþarfa bráðlæti að gera EBE
tilboð á þessu stigi nálsins
- sagði Geir Hallgrímsson á Alþingi í gær
Lúövik Jósepsson tók til máls
utan dagskrár á Alþingi i gær,
og gerði samningaviðræður is-
lenzkra ráðamanna við fulltrúa
Efnahagsbandalagsins að und-
anförnu, að umræðuefni. Sagði
hann einkennilega að þessum
viðræðum staðið, það.væri þrá-
stagast á þvi að hér væri áðeins
um að ræða ^könnunarviðræð-
ur” og aftur „könnunarviöræð-
ur”, en þó væri teflt fram i við-
ræðunum forsætisráðherra og
tveimur ráðherrum öðrum,
tveimur alþingismönnum og 8
embættismönnum! Kvað Lúð-
vik það vera ijóst, að gengið
hefði verið fram hjá Alþingi i
viðræðum þessumog krafði for-
sætisráðherra um upplýsingar
varðandi þær. Sagði hann það
vera eftirtektarvert, að erlend-
ar fréttastofur væru farnar að
hafa það eftir fulltrúum Efna-
hagsbandalagsins og einnig
Bretum sjálfum, að þessir aðil-
ar vonuöust til þess að samið
yrði við Islendinga um fisk-
veiðiréttindi hér við land fyrir
jól. Meira aö segja væri farið að
nefna ákveðna tölu á brezku
togurunum i erlendum fregn-
um. Hér heima væri hins vegar
alltaf talað umt,könnun” á af-
stöðu EBE. Lúðvik kvað tslend-
inga ekkert hafa til að semja
um, hvað varðaði fiskveiðar i is-
lenzkri landhelgi og að tilboð
um veiðar i Norðursjó og við
Grænland breyttu siður en svo
þeirri afstöðu.
I svari Geirs Hallgrimssonar
forsætisráðherra kom fram, að
engir samningar hafi verið
gerðir viö EBE, en málin kynnt
og sjónarmið beggja lögð fram.
Hann lýsti miklum áhyggjum
islenzkra ráðamanna vegna
svokallaöa „flökkufiskistofna”
á Grænlandsmiðum og taldi það
i verkahring Islendinga að
fylgjast náið með stefnu land-
anna í kring um okkur i málum
er vörðuðu fiskvernd og
„stjórnun fiskveiða”. Hann
kvað tildæmis vera áhyggjuefni
islenzkra fiskifræðinga, að svo-
nefnd ryksuguskip og önnur
fiskiskip, kynnu að eyða karfa-
stofninum við Grænland.
Siðan sagði Geir Hallgrims-
son:
„Við vitum að Bretar og
Efnahagsbandalagið hafa á-
huga á þvi að fá að veiða innan
islenzkrar fiskveiðilögsögu. Það
hefur lengi verið vitað og er
ekkert leyndarmál. Hins vegar
tel ég óþarfa bráðlæti af okkar
hálfu að svara einu eða neinu
fyrr en Efnahagsbandalagið
hefur m6tað stefnu i fiskveiði-
málum. Það hefur það enn ekki
gert. Hugsanlegar viðræður
eiga að fara fram á grundvelli
gagnkvæmra fiskveiðirétt-
inda”. —ARH
Iðnaðarráðherra í umræðum um Kröflu:
SUMT REYNDIST A AÐRA LUND
EN ÆTLAÐ VAR í FYRSTU
Eyjólfur Sigurðsson
varaþingmaður Alþýðu-
flokksins gerði fram-
kvæmdirnar við Kröflu
að umtalsefni utan dag-
skrár i sameinuðu þingi
i gær. Eyjólfur sagði
ástandið á Kröflu-
svæðinu oft hafa verið
talið iskyggilegt, en nú
um þessar mundir sé
ástandið og horfur þó
verri en áður. Vitnaði
þingmaðurinn til frétta i
dagblöðum þar að lút-
andi og einnig vitnaði
hann til greinar, eftir
ísleif Jónsson, i nýút-
komnu fréttabréfi Verk-
fræðingafélagsins, máli
sinu til stuðnings.
Eyjólfur benti á, að i viðtali
sinu viö skrifstofustjóra Orku-
stofnunar i gærmorgun hafi
komið fram, að kostnaður við
borun á Kröflusvæðinu nemi nú
um 1300 milljónum króna, en þaö
sé nákvæmlega það sem áætlað
hafi verið að verja til borana á
siðasta ári og yfirstandandi ári.
Eyjólfur sagði það vera
kyndugt aö heyra ráðamenn
þjóðarinnar tala um það , að
almenningur i landinu verði að
herða sultarólina á sama tima og
menn horfa upp á það, að miklum
fjárhæðum er varið til verks.sem
gefur svo lltið af sér.sem raun
hefur á orðið. Sagði þing-
maðurinn, að þegar væri ljóst að
borunin hafi ekki borið þann
árangur, sem til var ætlast og
gert hafi verið ráð fyrir. Kvað
hann ljóst að rannsóknir á
svæðinu, áður en að ráðist var i
fjárfrekar framkvæmdir á þvi,
hefðu verið allsendis ófull-
nægjandi. Stæöu menn nú frammi
fyrir þvi, að eiga fullbúið orkuver
við Kröflu, en hins vegar væri
ekki fyrirsjáanlegt að næg orka
fengist til þess að knýja það!
Eyjólfur Sigurðsson kvað það
núhafa komið i ljós, svo ekki væri
um að villast, að staðsetning
virkjunarinnar hefði verið mjög
vafasöm, sérsíaklega frá jarð-
fræðilegu sjónarmiði, enda hafi
visindamenn fyrir löngu bent á þá
áhættu, sem tekin var með þvi að
reisa orkuverið þarna. Hann
beindi þeirri fyrirspurn til Gunn-
ars Thoroddsen iðnaðarráðherra,
hvort einhverjar breytingar væru
áformaðar á áætlun varðandi
Kröfluvirkjun, i ljósi frétta
siðustu daga.
,,Sumt reyndist
á aðra lund...”
Iðnaðarráðherra rakti i ræðu
sinni aðdraganda að fram-
kvæmdum við Kröflu og sagði
meðal annars, að hann teidi
undirbúning að þeim siðuren svo
hafa verið litinn. Sagði hann að
kannanir á Kröflusvæðinu,
boranir á tilraunaholum og fleiri
rannsóknir, hafi leitt það i ljós, að
svæðið stæði undir orkuveri af
þeirristærð sem gert er ráð fyrir,,
og jafnvel hafi verið talið að
svæðið stæði undir verulegri
stækkuná orkuverinu siðar meir.
Hann vitnaði siöan til skýrslu, em
sérfræðingar Orkustofnunar létu
frá sér fara árið 1975, þar sem
þeir meta likur á þvi að hraun frá
hugsanlegu eldgosi á Kröflusvæði
geti skaðað mannvirkin i Hliðar-
dal. Segir i skýrslu þessari, að
Hliðardalur sé i vari fyrir hrauni,
nema þvi aðeins að gos hefjist
innst i dalnum sjálfum.
Iðnaðarráðherra sagði, að það
hefði i rauninni verið sjálft
Alþingi, sem tekiö hefði ákvörðun
um virkjun við Kröflu á sinum
tima og hefði það verið helsta
áhyggjuefni þingmanna þá, að
ekki myndi takast nægilega fljótt
að afla véla og tækja til orku-
versins, til þess að fá það sem
fyrst i gagnið.
„Sumt hefur þó reynst á aðra
lund en gert var ráð fyrir i
upphafi”, sagði iðnaðarráðherra
siðan. Nefndi hann til nokkur
atriði, meðal annars það, að
gasinnihald gufu sé meira en
getrt hafi verið ráð fyrir i
áætlunum, aö tæring hafi komið
fram i fóðringúm á nokkrum
borholum, og að hlutfall gufu og
vatns hafi reynst annað en haldið
var i fyrstu.
Ráðherrann vék að grein þeirri
eftir Isleif Jónsson yfirmann
Jarðboranadeildar rikisins, sem
fyrirspyrjandi hafði gert að
umtalsefni i ræðu sinni. Sagði
ráðherrann að sérfræðingar
Orkustofnunar væru i veiga-
mikium atriðum ósammála Is-
leifi Jónssyni varðandi mat hans -
á ástandinu vi Kröflu.
Ráðherrann „gleymdi” hins
vegar að taka fram, hverjir af
sérfræðingum stofnunarinnar
væru á þessari skoðun og um
hvaða „meginatriði” ágrein-
ingurinn stæði.
Gunnar Thoroddsen sagði að
lokum i svari sinu við fyrirspurn
frá Eyjólfi Sigurðssyni, að hann
vildi gera orð forsvarsmanna
Orkustofnunar að sinum, er þeir
sögðu við ráðherra i gærmorgun
að ,,á þessu stigi væri ástandið
þannig að varast bæri ótimabæra
bjartsýni og einnig ótimabæra
svartsýni”.
—ARH
Félag stofnað til að standa fyrir ferðum milli fslands og Kanada
Ahugi A AUKNUM SAMSKIPTUM „LANDANNA”
Siðastliðin tvö ár hefur komið
'ram aukinn áhugi fyrir þvi að
/iðhalda kynnum á milli Islend-
nga hérheima og landa þeirra i
Vesturheimi. Ahugi þessi jókst
til muna eftir hátiðahöldin i
Gimli Manitoba 1974, en þá sótti
fjöldi islendinga landa sina
neim til Manitoba.
Samfara auknum áhuga á
Vesturferðum og ferðum Vest-
ur-lslendinga til heimalandsins
hefur eftirspurn eftir ferðum
aukizt að sama skapi. Nú hafa
þeir Stefán Stefánsson og Ted
Arnason, báðir kunnir Vestur-
Islendingar, ásamt konum sin-
um, stofnað fyrirtækið Viking-
travelf þvi skyni að auka feröir
á milli landanna. Kom hópur
Vestur Islendinga hingað til
lands á þess vegum á síðast-
liðnu ári.
Umboðsaðili Viking-travel
hér á landi er nýstofnað fyrir-
tæki, Is-Can. Munu þessi fyrir-
tæki í sameiningu standa fyrir
tveimur ferðum milli landanna
á næsta ári, ef næg þátttaka
fæst. Ferðir þessar hafa verið á-
kveðnar 15. júni til 6. júli og
seinni feröin 14. júli til 4. ágúst.
Verði er mjög stillt i hóf og áætl-
að verð er um 57.000 krónur
fram og til baka.
Þjóðræknisfélögin hér i
Reykjavik og á Akureyri munu
greiða götur Vestur-lslendinga
hér á landi eins og undanfarin
ár. Reynt verður að haga þvi
þannig bæði hér heima og I Kan-
ada að þeir sem þaö vilja geti
búið á einkaheimilum. Forráöa-
menn Viking-travel munu
greiða götu islendinga i Canada.
A fundi með forráðamönnum
Þjóðræknisfélagsins i Reykja-
vik i gær kom fram,aö þeir, sem
fóru á tslendingahátiðina i Can-
ada 1974 vilja mjög gjarna fara
aftur og komið hafa fram sér-
stakar óskir frá Vestur-Islend-
ingum úti um að fá að koma
heim á þjóðhátiðardaginn 17.
júni.
Mestur hluti þess fjármagns,
sem úthlutaö er til þessara
mála, fer i rekstur Lögbergs-
Heimskringlu, en blaöið heldur
uppi miklum og góðum tengsl-
um á milli Islendinga bæði hér
heima og i Canada og eins á
milli islendinga um þver
Bandarikin. Bragi Friðriksson
formaður Þjóðræknisfélagsins
sagði það ósk félagsins að auka
samstarf á milli islenzkra
blaðamanna og Lögbergs —
Heimskreinglu. Eins og er, er
ritstjóri blaðsins frá Islandi, en
hún mun láta af störfum bráð-
lega.
Einnigsagði hann þaðósk fé-
lagsins að halda áfram ferðum
sérstakra hópa til Kanada, svo
sem æskufólks. Mætti einnig
gera meira i þvi að senda
söngvara, leikara, ýmsa kóra
og þess háttar út, því islenzkir
listamenn væru alltaf mjög vel-
komnir.
,,Það er lika greinilegt að
Vestur-Islendingar eru aufúsu-
gestir hér á landi, svo vel er tek-
ið á móti þeim, sagði sr. Bragi
Friðriksson. _ab
MIÐVIKUDAGUR
DESEMBER 1976
alþýðu
blaðið
HEYRT,
SÉÐ 0G
HLERAÐ
Heyrt: að einn af þing-
mönnum Framsóknar-
flokksins, Halldór As-
grímsson, hafi undanfarin
ár greitt fimm þúsund
krónur á mánuði i húsa-
leigu, fyrir húseign á Höfn i
Hornafirði. Talið er að
Halldór, sem unnið hefir i
Reykjavik við endurskoðun
hafi talið hagkvæmt að
eiga lögheimili.á Höfn og
þar með orðið aðnjótandi
sérstaks „þéttbýlisstyrks”,
sem þingmenn „utan af
landsbyggðinni” fá ofan á
tekjur sfnar. Þá hefur og
heyrzt að Halldór þessi hafi
fest kaup á umræddru hús-
eign, sem verið hefur i eign
rikisins til skamms tima.
o
Heyrt: að enn séu uppi
menn á tslandi, sem telja
sér það til ágætis að vera
framsóknarmenn. Einn
slikur gaf þessháttar yfir-
lýsingu á þingi ASI i gær.
o
Heyrt-.Tveir menn voru að
karpa um þær aðferðir
Sovétmanna, að flytja and-
stæðinga stjórnarinnar á
geð veikrahæli. öðrum
fannst þessi aðferð fyrir
neðan allar hellur og for-
dæmanleg. Hinn sagði:
„Það hlýtur aö vera geð-
veikur maður, sem lætur
sér detta i hug að mótmæla
stjórnarfarinu i Sovét-
rikjunum, ef hann veit
hvaða afleiðingar það get-
ur haft i för með sér”.
O-
Séð: Birnu Þórðardóttur,
ritstjóra Neista ásamt ööru
fréttafólki á Alþý-öúsam
bandsþingi. Birna hefur
þaö fram yfir aðra frétta-
menn að hún selur einnig
blað sitt og boöar sinn
Trotskyisma.