Alþýðublaðið - 15.12.1976, Side 13
SSSS’ Miðvikudagur 15. desember 1976
,...TIL KVÖLPS13
:::
r' "
JjBorðsfofu- og jjj
^eldhúsborð
Tvær stærðir af borðum. 5 gerðir af
stólum
ARMULA 1A • SIAAI 86-117
átvarj)
7.00 Morgunútvarp Veðurfregnir
kl. 7.00, 8,15 og 10.10 Morgun-
leikfimikl. 7.15 og 9.05. Fréttir
kl. 7.30 ,8.15 (og forustugr.
dagbl.), 9.00 og 10.00.
Morgunbæn kl. 7.50. Morgun-
stund barnanna kl. 8.003 Jón
Bjarman heldur áfram lestri
sögunnar um „Marjun og þau
hin” eftir Maud Heinesen (4).
Tilkynningar kl. 9.30.
Þingfréttir kl. 9.45 Létt lög
milli atriða. Drög að útgáfu-
sögu kirkjulegra og trúarlegra
blaða og timarita á tslandikl.
10.25: Séra Björn Jónsson á
Akranesi flytur áttunda erindi
sitt. Á bókamarkaðinum kl.
11.00: Lesið úr nýjum bókum.
Dóra Ingvadóttir kynnir.
12.00 Dagskráin. Tórdeikar. Til-
kynningar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir. Til-
kynningar. Við vinnuna:
Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Löggan,
sem hló” eftir Maj Sjövail og
Per Wahlööólafur Jónsson les
þýðingu sina (11).
15.00 Miðdegistónleikar
15.45 Frá Sameinuðu þjóðunum
Hjörtur Hjartarson prentari
flytur pistil frá allsherjar-
þinginu.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Popphorn.
17.30 Ótvarpssaga barnanna:
„Vetrarvæintýri Svenna i Asi”
Jón Kr. Isfeld byrjar lestur
sögu sinnar.
17.50 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir, Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki.
Tilkynningar.
19.36 Iðnhönnun Stefán
AflORNID
Skrifið eða hringið
í síma 81866
Snæbjörnsson innanhdss-
arkitekt flytur erindi.
20.00 Otvarp frá Alþingi. Tillaga
til þingsályktunar um land-
helgismál. Hver flokkur hefur
til umráða 30 mín. i tveim um-
ferðum: 1. umferð Alþbl.,
Framsfl., Alþfl., Sjálfstfl.,
SFV. 2. umferð Framfl., Alþfi.,
Sjálfstfl., SFV., Alþbl.
22.45 Fréttir og veðurfregnir.
23.00 Nútimatónlist.
23.25 Fréttir. Dagskrárlok.
Sjonvarp
18.00 Hviti höfrungurinnFransk-
ur teiknimyndaflokkur. Þýð-
andi Ragna Ragnars.
18.15 Skipbrotsmennirnir
Astralskur myndaflokkur. 10.
þáttur. önnur paradis.Þýðandi
Jóhanna Jóhannsdóttir.
18.40 I föðurleitMynd sem Barna-
hjálp Sameinuðu þjóðanna hef-
ur látið gera og lýsir högum 13
ára drengs i Brasiliu. Hann á
heima á landsbyggðinni, en
heldur af stað til höfuðborgar-
innar i leit að föður sinum.
Ýmislegt drifur á daga hans á
leiðinni, og loks kemst hann til
Rió, svangur og þreyttur. Þýð-
andi og þulur Stefán Jökulsson.
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Höfrungarnir heilla Bresk
heimildamynd um þessi
skemmtilegu og skynsömu dýr.
Mynd þessi er að miklu leyti
tekin á sædýrasafni i Harde-
wijki Hollandi. Þar hefur lengi
verið unnið að rannsóknum á
höfrungum, og vissulega er
margt i fari þeirra, sem vekur
furðu: Góð greind og minni,
næm heyrn, frábær fimi og
jafnvægisskyn og ótrúlegur
sundkraftur. Þýðandi og þulur
Jón O. Edwald.
21.30 Monica Dominique Orgel-
leikarinn Monica Dominique
leikur jass ásamt félögum sin-
um, en meðal þeirra er Pétur
östlund. Þýðandi Jón O. Ed-
wald. (Nordvision — Sænska
sjónvarpið)
22.05 Undir PólstjörnunniFinnsk-
ur framhaldsmyndaflokkur
byggður á sögu eftir Vainö
Linna. 4. þáttur. Efni þriöja
þáttar: Finnska þjóðin skiptist
I tvær fylkingar hvitliða og
rauðliða. Akseli á i innri bar-
áttu, en heldur af stað i striðið
ásamt vinum sinum. Reynslu-
leysið veröur þeim að falli.
Þýðandi Kristin Mantyla.
22.55 Dagskrárlok
Þeir
lifa
engu
hunda
lífi
Hundar um viða veröld njóta
mikils ástrikis og umhyggju
eigenda sinna. Mörgum þykir
þó allt umstangið oft á tiöum
ganga úr hófi fram, sérstaklega
þegar i næstu götu við búðir,
sem verzla með hundaföt,
hundasteikur, hunda-þetta og
hunda-hitt, eru börn, sem þurfa
að betla fyrir mat og öðrum lifs-
nauðsynjum.
Myndirnar sem þessu fylgja
eru teknar f Ameriku alsnægt-
anna, þar sem umhyggjusamir
hundaeigendur eru farnir að
hugsa til jólanna. Hundateppi
eins og það sem krflið á efri
myndinni er vafið inn i, þykir
einkar falleg og skemmtileg
jólagjöf. Það er úr ullarfrotté,
sérsaumað og á að hæfa stærð
hundsins mjög vel. A hinni
myndinni er veluppalinn hundur
einhvers borgarbúans að máta
jólafötin sin. Og nú er bara að
vona að greyin kunni að meta
það sem fyrir þá er gert, og það
gera þeir ábyggilega, svo fram-
arlega sem þeir lenda ekki I
slagtogi við einhverja flækings-
„hunda” úr fátækrahverfunum.
KING K0NG ER
K0MINN ÚR FRUMSK0GINUM
Á næsta föstudag hefja 2500
kvikmyndahús um viða veröld
sýningar á myndinni um King
Kong apann. Frumskógar-
trommurnr kveöja sér hljóös i
kvikmyndaheiminum á ný. En i
viðskiptaheiminum eru einnig
barðar bumbur. Kvikmynd
þessi reyndist afar dýr i fram-
leiðslu svo að nú verður að aug-
lýsa vel og selja enn betur.
Kvikmyndafélagið verður að fá
inn að minnsta kosti 24 milljónir
bandarikjadala til þess aö hafa
upp i kostnað. Þegar hefur um
1 milljón dollara verið eitt I
sjónvarpsauglýsingar I Banda-
rikjunum, og eins og allir vita
eru kanarnir séðir viðskipta-
menn. Nú þegar hefur klæða-
verksmiðja ein tryggt sér, fyrir
álitlega, upphæð auðvitað, rétt-
inn til að framleiða og selja
King Kong gallabuxur. Með
buxum þessum fylgir lokkur úr
ekta King Kong hári (i rauninni
eru þetta lokkar úr töglum þús-
unda argentlskra hesta, enda er
hætt við að apagreyið hefði orð-
ið hálfber ef reyta hann heföi
þurft að leggja til lokk með öll-
um þeim buxnafjölda sem
framleiðandinn hyggst setja á
markað).
Þá er i ráði að hefja fram-
leiðslu á King Kong bolum, King
Kong glösum, póstkortum,
myndaspilum. Sem sagt for-
eldrar mega búast við
King-Kong-æði.