Alþýðublaðið - 08.03.1977, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 08.03.1977, Blaðsíða 2
2 STJÖRNMÁL Þriðjudagur 8. marz 1977 ^aöuT alþýðu- blaöið Útgefaadi: Alþýöuflokkurinn. j Rekstur: Reykjaprent hf. Ritstjóri og óbyrgöarmaöur: Arni Gunnarsson. Fréttastjóri: Bjarni Sigtryggsson. Aösetur ritstjórnar er i Síðumúla 11, simi 81866. Auglýsingadeild, Alþýðuhúsinu Hverfisgötu 10 — sími 14906. Askriftarsimi 14900. Prentun: Blaöaprent h.f. Askriftarverð: 1100 krónur á mánuði og 60 krónur i lausasölu. 1200 milljón króna taprekstur á Kröflu Það er kannski að bera í bakkafullan lækinn að tala meira um Kröflu- virkjun. Nú hefur Al- þýðublaðið hins vegar birt upplýsingar um reksturskostnað virkjun- arinnar, ef hún fer þá einhverntímann í gang. Þar kemur fram, að mið- að við almennt verðlag á raforkuverði að minnsta kosti 1200 milljón króna taprekstur á Kröfluvirkj- un á næsta ári. Þar fer eitt söluskattsstig fyrir litið. Þingmenn Alþýðu- flokksins hafa á Alþingi spurzt fyrir um reksturs- áætlun virkjunarinnar, en í Ijós hefur komið að hún hefur aldrei verið gerð. Slík áætlun hefur þó frá upphafi verið eitt af verkefnum Kröflunefnd- ar samkvæmt skipunar- bréfi. Fulltrúar i Kröflu- nefnd og iðnaðarráðherra hafa aldrei viljað svara hreint út um reksturs- kostnað Kröflu; aðeins svarað með samanburði á rekstri annarra virkjana. Til samanburðar við rekstrarhal la Kröflu- virkjunar má minna á, að tjónið af völdum gossins á Heimaey var talið nema 2,2 milljörðum króna. Til að greiða það tjón var lagt á þjóðina viðlaga- gjald 2% ofan á sölu- skattinn. Tapreksturinn á Kröflu mun þannig nema um 1 söluskattsstigi. Þetta er eingöngu rekstrarlegur halli og af- borganir af lánum ekki teknar með í dæmið. Talið er, að vaxta- greiðslur virkjunarinnar verði 800 milljónir króna á næsta ári, laun, viðhald og viðhaldsefni er áætlað ar-svæðisins eingöngu, en hins vegar að hún þjóni Norðurlandi öllu. Laxár- virkjunarsvæðið mun skorta 25 gígavattstundir á þessu ári, og má gera ráð fvrir að þeim hafi fjölgað i 30 á næsta ári. Ef virkjunin á að þjóna öllu Norðurlandi bætist við 20 gígawattstunda sé óumf lýjanlegur í þessu tilviki. Spurningin er því hvað kílówatt- stundin þyrfti að kosta f rá Kröf lu, ef koma ætti í veg f yrir tap. Ef miðað er við Laxárvi rk j una r- svæðið eitt þyrfti kíló- wattsundin að kosta rúm- lega 44 krónur til að standa undir rekstrinum. Þá er miðað við að þörf in hafi aukist upp í 30 gíga- wött. Ef hins vegar Norðurlandið allt er tekið með inn í dæmið verður þörfin 50 gígawatt- stundir, og þá þarf kíló- wattstundin að kosta 26 að kosti um 200 milljónir króna og um það bil 4% afskriftir verða 320 milljónir króna. Rekstrarútgjöld verða því 1320 milljónir króna. Tekjumöguleikar eru bundnir við tvö atriði. Annars vegar að virkjun- in verði notuð til að mæta orkuþörf Laxárvirkjun- þörf Norðurlands vestra, en þá er byggðalínan úr sögunni. Ef miðað er við að virkjunin verði notuð eins og hægt er og að hún þjóni Norðurlandi öllu verða tekjur hennar 150 milljónir króna, miðað við núverandi orkuverð. En nú vill enginn stef na I taprekstur, þótt hann krónur og 40 aura. Til samanburðar má geta þess, að verð á rafmagni til heimilisnota I Reykja- vík er um 13 krónur kíló- wattstundin. — Þetta dæmi í heild rennir enn einni stöðinni undir rétt- mæti þeirrar gagnrýni, sem komið hefur fram á Kröflu. —ág Ungir sjálfstæðismenn VITJA LEGGJA SKIPAIJT- GERÐ RÍKISINS NIÐUR „Báknið burt" nefnist blað sem ungir Sjálf- stæðismenn hafa gefið út og f jallar um hugmyndir þeirra um samdrátt í rikisbúskapnum. I frétt frá aðstandendum blaðs- ins segir m.a., að tildrög útgáfunnar megi rekja til ályktunar um samdrátt f ríkisbúskapnum, sem gerð hafi verið á þingi S.U.S. f Grindavík haustið 1975. I ályktuninni hafi komið fram gagnrýni á útþenslu ríkisbáknsins og hiö aukna miðstjórnar- vald sem hún hefði í för með sér, enda væri það ósamrýmanlegt þeirri frjálshyggju og vald- dreifingu sem Sjálf- stæðisflokkurinn hefði að leiðarljósi. Segir og að ungir Sjálfstæðismenn telji markvissan niður- skurð ríkisútgjalda eitt alvarlegasta og brýnasta viðfangsefni, sem núver- andi rfkisstjórn beri að framkvæma. A fyrrnefndu þingi S.U.S. var kosin nefnd sem gera skyldi út- tekt á rikisumsvifum og leggja fram tillögur um samdrátt i rikisbúskapnum. 1 nefndina voru svo skipaðir þeir Þorsteinn Pálsson ritstjóri, Baldur Guð- laugsson og dr. Þráinn Eggerts- son lektor. S. 1. sumar vann Vil- hjálmur Egilsson viðskipta- fræðinemi með nefndinni og skilaði itarlegri greinargerð um ýmsa þætti málsins. S.U.S. og Heimdallur stefna aö blaðaút- gáfu og fundarhöldum um málið á ýmsum stöðum á landinu og einnig er fyrirhuguð ráöstefna þar sem efni þetta verður rætt. „Burt með tilfærslur — hagkvæma fjárfestingu" í „Bákninu burt” má meðal annars íesa, að i „rikisfyrir- tækjum á tslandi” riki hagnaðarsjónarmiðiö ekki nema stundum og þvi þurfi skattborgarinn að borga brús- ann af þátttöku rikisins. Fjölda fyrirtækja sem nú séu i rikis- eign gætu einstakliugar rekið. Þá myndu ráða hagkvæmis- sjónarmið i stað forsjárstefnu. Nefnd eru nokkur fyrirtæki sem rikið ætti ekki að reka, Lands- smiðjan, Rikisprentsmiðjan Gutenberg, Lyfjaverslun rikis- ins, Sildarverksmiðjur rikisins, Siglósíld og Bifreiöaeftirlitið. Og enn spyrja ungir sjálfstæðis- menn hvers vegna rikið eigi hlutabréf i þessum fyrirtækj- um: Drangi, h.f., Baidri h.f., Eimskipafélagi Islands h.f., Flugleiðum eöa tslenskum Aðalverktökum svo dæmi séu nefnd. Þá er lagt til að Skipaútgerö rikisins veröi hreinlega lögö niður, en aöilar i þeim landshlut- um sem strandferðaskipin eigi að þjóna stofni skipafélög um þau. Þá verði viðkomustööum strandferðaskipanna fækkað, en bilar notaöir til að flytja varning út frá þeim. Samvinna verði á milli skipafélaga og eig- enda flutningsbifreiða um að ná sem mestri hagkvæmni. Far- þegaflutningar með skipunum verði aðeins i undantekningar- tilfellum. Um Rikisprentsmiðjuna Gutenberg er sagt, að hún hafi verið stofnuð meö þvi að skjóta inn lið i fjárlögin viö lokaum- ræðu þeirra og að Sjálfstæðis- flokkurinn „flokkur einstakl- ingsfrelsis og einkaframtaks” hafi ekki frekar en aðrir stjórn- málaflokkar reynt að koma lög- um yfir fyrirtækið eins og þeir hafi þó gert með Skipaútgerð rikisins. „Harmsaga" Sigló-sild er enn einn þáttur- inn i harmsögu siglfirsks at- vinnulifs. Fyrirtækið er einn hluti i hinni miklu rikisforsjá i atvinnulifi Siglfiröinga sem dregið hefur i dróma allan framtaksvilja heimamanna og mótað það viöhorf til atvinnu- Framhald á bls. 10 A Islandi þarf fast- mótaða orkustefnu A miðsvetrarfundi Sambands islenzkra rafveitna flutti Aðal- steinn Guðjohnsen, rafmagns- veitustjóri Reykjavikur, fróðlegt erindi um fjármál raforkuiðnaðar á Islandi. Þar kom meðal annars fram, að á næstu árum mun hvila gifurleg greiðslubyrði á raforku- fyrirtækjum. 1 framhaldi af upp- lýsingum Aðalsteins hafa spunn- izt talsverðar umræður um, stefnuna I orkumálum, en sjálfur sagði Aðalsteinn i erindi sinu: „Orðum þessum lýk ég með að leggja áherzlu á brýna nauðsyn þess að stjórnvöld beiti sér fyrir þvi, að sameinazt verði um ákveðna fastmótaða ORKU- STEFNU A ISLANDI!....” Vafa- laust eru þetta orð i tima töluð, og Aðalsteinn veit hvað hann talar um. Hann gat þess meðal annars i erindi sinu, að varðandi fjárfest- ingu raforkufyrirtækja i framtið- inni yrði sérstaklega að taka mið af breyttri stefnu i húshitunar- málum, m.a. með tilkomu æ fleiri jarðvarmaveitna, svo og hug- mynda um fjarvarmaveitur, sem svo hafa verið nefndar. — Aðal- steinn nefndi einu nafni þesar veitur hitayejtur, hvort sem orku- gjafinn væri jarðvarmi eingöngu eða eitthvert sambland jarð- varma, oliu og rafmagns. Hann sagði, að á allra siðustu árum hefði komið i ljós, að jarð- varmi væri nýtanlegur á mun fleiri stöðum á landinu en áður hefði verið talið. Það sætti tals- verðri furðu, að boranir eftir heitu vatni skyldu ekki hafa verið stórefldar mun fyrr en raun heföi orðið á, svo mjög sem jarð- varmaveitur lækkuöu hitunar- kostnað. Þess I stað hefði verið lagt ofurkapp á beina rafhitun i húsum, sem seld væri of lágu verði, og kallaði á umfangsmikl- ar og dýrar framkvæmdir i dreifikerfi, ekki sizt hjá Rafmangsveitum rikisins. Bein rafhitun krefðist auk þess mikils varaafls i diselvélum. Aöalsteinn sagði ennfremur, að notkun varmadæla hefði hvergi nærri verið gefinn sá gaumur, er skyldi, en þar væri um að ræða leið, sem leitt gæti til umtalsverðs sparnaðar i húshitun. Allmikil reynsla myndi komin á varma- dælur erlendis, t.d. i Þýzkalandi Gg BándaríkjUnum. Aðalsteinn sagði, að húshitun væri veigamikill þáttur i orkubú- skap Islendinga, og þvi bæri að leggja höfuðáherzlu á farsæla lausn þeirra mála, bæði með réttu vali á hitunarksrfi, svo oe með ýmsum sparnaðaraðgerð- um, t.d. notkun varmadæla þar sem það hentaði og aukinni áherzlu á góða einangrun húsa. Hann sagði, að finna þyrfti leiðir til að hvetja fólk til að bæta einangrun, bæði með áróðri og jafnvel fyrirgreiðslu i einhverri mynd. Aðalsteinn benti á, að lifskjör Islendinga i dag Dyggðust i rikum mæli á mikilli notkun orku, bæði innfluttrar og orku, sem fram- leidd væri með innlendum orku- gjöfum. Innflutningur eldsneytis kostaði þjóðina yfir 10 milljarða króna og orkuvinnsla úr vatns- föllum og jarðvarma, ásamt dreifingu orkunnar kostaði einnig miklar fjárhæðir i erlendum gjaldeyri. Aðalsteinn taldi, að full ástæða virtist til að hefja samræmdar aðgerðir til að draga úr aukningu á raforkuþörf og auka hverskonar hagkvæmni i raforkunotkun. Með þvi móti væri unnt að dreifa fyrir- hugaðrifjárfestingu I orkumálum á lengra timabii, en gert hefði verið ráð fyrir, án þess að Hfskjör yrðu skert.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.