Alþýðublaðið - 29.03.1977, Qupperneq 6
Þriðjudagur 29. marz 1977 .£15%?*°
6 VETTVANGUR
Mjólkurfélag Reykjavíkur 30 ára
Stjórn MR og forstjóri Jón M. Guðmundsson, Einar Tönsberg, Sigsteinn Pálsson.Leifur Guðmundsson
ólafur Andrésson Siguröur Sigurösson.
Þann 28. mars hefir Mjólkur-
félag Reykjavíkur starfaö i 60
ár Félagið er óháö samvinnu-
félag. Félagssvæðið nær yfir
Reykjavik og nærsveitir, vestan
Hellisheiðar og sunnan Skarðs-
heiðar.
Upphaflegur tilgangur félags-
ins var, að hafa með höndum
sölu og dreifingu mjólkur fyrir
framleiðendur i Reykjavik og
nágrenni.
Arið 1920 kom félagið á fót
fyrstu mjólkurstöð á landinu.
Keypt var höseign við Lindar-
götu og þar settar upp mjög
vandaðar vélar til mjólkur-
vinnslu. Mjólkurlögin sem sett
voru 1934, orsökuðu að félagið
varð að hætta mjólkurstöðvar-
rekstri en hefur siðan starfað i
þágu landbúnaðarins sem
verslunarfélag og innflytjandi á
korni og framleiðandi kjarn-
fóöurs.
Arið 1930 kom félagið á fót
mjög fullkominni mjólkur-
vinnslustöð við Snorrabraut
með þvi að byggja hús þaö sem
Osta og smjörsalan er til húsa i
nú. Sama ár byggði félagiö
húsið Hafnarstræti 5. Þar var
rekin um árabil umfangsmikil
verslunarstarfsemi ásamt
fóöurblöndunarstöð og korn-
myllu.
Arið 1964 hóf félagið byggingu
á nýrri fóðurblöndunarstöð á
samliggjandi lóö við Brautar-
holt. Keyptar voru i þessu
skyni mjög fullkomnar
blöndunarvélar og hófst fóöur-
blöndun þar árið 1965. Ari siðar
byrjaði félagið fyrst allra hér-
lendis að framleiða fóðurköggla
sem þá var algjör nýlunda hér.
1 framhaldi af þessu var
komið upp kornmyllu og hafinn
innflutningur korns i lausu. Sala
á fóöurkögglum jókst mjög Ort
og árið 1969 keypti félagið korn-
dælubil hinn fyrsta hérlendis og
hóf sölu á lausu kjarnfóðri en i
það fyrirkomulag hafði félagið
ávallt stefnt. Arið 1969 hóf
Mjólkurfélagið ásamt Fóður-
blöndunni h/f og SIS undir-
búning aö byggingu Korn-
hlööunnar h/f i Sundahöfn og er
félagið eignaraðili að þvi
fyrirtæki að 1/3.
Kornhlaöan tók siðan til
starfa i ágúst 1971 og bætti það
aöstöðu félagsins til kjarnfóður-
vinnslu mjög verulega.
1 desmber 1971 hóf félagið
byggingaframkvæmdir við enn
nýja fóðurblöndunarstöð við
hlið Kornhlöðunnar i Sunda-
höfn. Þessa nýju blöndunarstöð
tók félagið i notkun seint á árinu
1972. Voru blöndunarsamstæður
og kornmylla fluttar frá verk-
smiðju félagsins við Brautar-
holt og þær settar upp i nýbygg-
ingunni við Sundahöfn. Ýmsar
nýjar vélar voru keyptar og
verksmiðjan endurskipulögð.
Enn er stöðugt unnið að endur-
bótum og fullkomnun i tækja-
búnaöi. 1 fóðurblöndunarstöð
MR við Sundahöfn eru nú
notaðar mjög fullkomnar og
nákvæmar vélar til fóður-
blöndunar. Gott fóöur fæst ein-
göngu með nákvæmri vigtun á
þvi hráefni sem i blöndurnar er
notaö og góðri blöndun svo og
með þvi að nota aðeins úrvals
hráefni.
MR kaupir allt það korn- sem
það notar i fóðrið beint frá korn-
ræktarsvæðum i Evrópu og
Bandarikjunum og flytur það
laust til landsins. Þvi er dælt inn
i Kornhlöðuna við Sundahöfn, en
siðan i vinnsiugeyma verk-
smiðjunnar. Þar er kornið
malað og blandað ýmsum efn-
um og að lokum flutt á eigin bil-
um til viðskiptamanna MR .
1 Sundahöfn er nú öll fóður-
vöruframleiðsla félagsins og
fóðurafgreiðsla.
í húseign félagsins við Lauga-
veg 164, eru skrifstofur og öll
önnur starfsemi. Þar eru MR
búðirnar sem selja girðingar-
efni, fræblöndur og ýmis tæki til
notkunar við landbúnað o.fl. svo
og matvörur allskonar.
Mjólkurfélagið er eins og áður
er getið samvinnufélag en hefur
verulega verslun við utan-
félagsmenn um land allt. Mark-
mið félagsins er að selja
viðskiptamönnum sinum fyrsta
flokks vörur við sem hag-
stæöustu verði og láta i té góða
þjónustu öllum sem viö þaö
skipta hvar á landinu sem þeir
búa.
Fratr.hald á bls. 10.
MR kaupir húseignina nr. 14 við Lindargötu á horni Lindargötu og Vatnsstigs (nú nr. 36). Þar var sett
upp mjólkurstöðog mjólkin gerilsneydd. Einnig átti M.R. um tlma htiseignirnar Vatnsstfg 10 og 14.
1930:
Lokið byggingu hússins Hafnarstræti 5. Fyrsti stjórnarfundur hald-
inn þar 17. júni 1930.
1932:
Mjólkurstöð M.R. við Snorrabraut tekur tii starfa f húsi þvf sem fé-
laeið byggði þar. Þarer núOsta- og Smjörsalan til húsa.
1954-1958:
Húsið Laugavegi 164, fóðurblöndunarstöð og skrifstofur, byggt og
tekið I notkun.
Nýbyggð fóðurblöndunarstöð við Brautarhoit tekin f notkun með ný-
tlsku vélum og hafin framieiðsla á köggluðu fóðri f fyrsta sinn hér-
lendis.
1972:
Tekin í notkun nýbyggð fóðurblöndunarstöð I Sundahöfn I tengslum
við Kornhiöðuna hf.sem M.R. á að 1/3 hluta.