Alþýðublaðið - 30.09.1977, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 30.09.1977, Blaðsíða 8
8 um sjálfan sig sem einn af stór- um hópi, ^ þjóöfélaginu, og þar varö jafnt yfir alla aö ganga. Hér skal ekki fariö mörgum oröum um æviferil Gunnars, þar sem ég veit aö því veröa gerö skil af öörum. Gunnar Vagnsson fæddur 13. júli 1918 aö Horni i Arnarfirði og var þvi liðlega 59 ára er hann féll frá. Hann varö stúdent frá Menntaskólanum i Reykjavik 1940 og lauk prófi i viöskipta- fræðum frá Háskóla Islands 1945. Næsta áratuginn eöa lið- lega það, gegndi hann ýmsum störfum, var m.a. fram- kvæmdastjóri Landssambands iðnaðarmanna 1945-46, bæjar- stjóri á Siglufirði 1946-1953 og var fulltrúi i aðalskrifstofu Sambands isl. samvinnufélaga 1953-1958. Hinn 1. júli 1958 geröist Gunn- ar fulltrúi isamgöngu- og iðnað- armálaráöuneytinu, deildar- stjóri 1. júni 1962 þar til haustið 1966er hann varð framkvæmda- stjóri fjármáladeildar Rikisút- varps og gegndi þvi starfi til dauöadags. Hinn 4. ágúst 1945 kvæntist Gunnar eftirlifandi konu sinni, Sigriöi Bjarnadóttur og eignuð- ust þau fjögur börn. Þau hjónin voru mjög samhent og sambúð þeirra öll hin ástúðlegasta, svo þar bar aldrei skugga á. Sem samstarfsmaður Gunn- ars i erilsömu starfi kynntist ég mjög vel hinum fjölbreyttu hæfileikum hans. Hann var mikill afkastamaöur til vinnu, afburöa stæröfræöingur, ritfær i bezta lagi og smekkmaður á is- lenzkt mál og siðast en ekki sizt frábær samningamaöur. Þá var starfsfólk fátt, i ráðuneytinu, eins ogenner,og þvi var ofterf- itt aö fá tóm til aö ljúka verki ótruflaöur. Þó var Gunnar alltaf i góöu skapi, þannig aö bjart- sýni hans og manngæska geröi honum oft kleift að anna ótrú- lega miklu starfi á skömmum tima. Störf hans i ráðuneytinu voru mörg og mikilvæg svo of langt yrði upp aö telja. Nafn hans og verk lifa i skjölum ráðu- neytisins og verður ekki fram- hjá þeim gengið, er saga mál- anna veröur rakin, sem ein- hvemtima veröur. Starfsfólk samgönguráöu- neytisins vottar eiginkonu Gunnars og börnum dýpstu samúð. Á stundum sem þessum verða þau orð allajafna vandfundin, er verða megi þeim til hugarléttis, sem um sárast eiga aö binda. Torráðin er sú spurning, er á hugann leitar, þegar f svo skjótri svipan er bundinn endir á lif manns sem enn virtist mega mikils af að vænta. Römm viröast þau rök, er kalla eiginmann og föður brott héðan úr heimi frá þeim, sem heitast unnu honum og þyngstan bera harminn. Skilningi okkar mannanna eru takmörk sett. Við rýnum i sortann, en sjáum eigi. Þó er okkur í vanmætti okkar rétt sú hönd, er liknar þeim, sem harö- ast er leikinn, reisir þann við, er örmagnast hefur, leysir vanda þess, er efasemdir þjá. Við er- um ekki ein á ferð, ekki ein á skammvinnri göngu frá vöggu til grafar. 1 myrkri getuleysis okkar skín ljós þess, er gaf okk- ur lifið og þennan heim, sem okkur er svo óræð gáta. 1 þögn óvissunnar og umkomuleysisins hljómar rödd meistarans: Sjá, ég er meö yður alla daga. Og andspænis dauðanum nemur hugur okkar það fyrirheit, sem ávallt er uppspretta hins dýpsta fagnaðar: Ég erupprisan og lif- ið: sá, sem trúir á mig, mun lifa, þótt hann deyi. 1 bjarma þessa boðskapar öðlast lif okkar hér á jörð og handan grafar eitt og sama innihald. Hinn örðugi skilnaöur varir aðeins skamma hrið. Og hvert, sem okkur ber, erum við falin i' hendi skaparans, einnig sá sem við kveðjum i dag með svo sárum trega. Megi þetta lausnarorð verða ástvinum huggun i þungum harmi og veita þeim styrk til að horfa við ókomnum dögum. Brynjólfur Ingolfsson. Föstudagur 30. september 1977 biaðiö Neyðarsímar Slökkvilið Slökkvilið og sjúkrabilar i Reykjavik — simi 11100 i Kópavogi — Simi 11100 1 Hafnarfirði — Slökkviliðið simi 51100 — Sjúkrabill simi 51100 Lögreglan Lögreglan i Rvik — slmi 11166 Lögreglan i Kópavogi — simi 41200 Lögreglan i Hafnarfirði — simi 51166 Hitaveitubilanir simi 25520 (utan vinnutima simi 27311) Vatnsveitubilanir simi 85477 Simabilanir simi 05 Rafmagn. I Reykjavík og Kópa- vogi i sima 18230. í Hafnarfirði i sima 51336. Heilsugæsla Slysavarðstofan: simi 81200 Sjúkrabifreið: Reykjavik og Kópavogur, simi 11100, Hafnar- fjöröur simi 51100. Reykjavik — Kópavogur Dagvakt: Kl. 08.00-17.00. Mánud. föstud. ef ekki næst I heimilis- ladcni, simi 11510. Læknar Tannlæknavakt I Heilsuverndar- stöðinni. Slysadeild Borgarspitalans. Simi 81200. Siminn er opinn allan sólarhringinn. Kvöld-, nætur- og helgidaga- varsla, slmi 21230. Kvöld- og næturvakt: kl. 17.00- 08.00 mánudag-fimmtud. Simi 21230. A laugardögum og helgi- dögum eru læknastofur lokaðar en læknir er til viðtals á göngu- deild Landspitalans, simi 21230. Upplýsingar um lækna- og lyfja- búðaþjónustu eru gefnar i sim- svara 18888. Hafnarfjörður Upplýsingar um afgreiðslu i apó- tekinu er i sima 51600. Hafnarfjörður — Garðahreppur Nætur- og helgidagagæsla: Upplýsingar á Slökkvistöðinni simi 51100. Kópavogs Apótekopiööll kvöld til kl. 7, nema laugardaga kl. 9-12 og sunnudaga lokað. i Hafnarfirði — Slökkviliö simi 51100 — Sjúkrabill simi 51100 51166, slökkviliðið simi 51100. Sjúkrabifreið simi 51100. Tekiö við tilkynningum um bilanir á veitukerfum borgar- innar og i öðrum tilfellum sem borgarbúar telja sig þurfa að fá aðstoð borgarstofnana. Ýmislegt Mæðrafélagið. Basar og flóamarkaður, verður laugardaginn 1. okt. kl. 2.00— 6.00 að Hallveigarstöðum. Góðfúslega komið gjöfum föstu- dag 30. sept. eftir kl. 8 að Hall- veigarstöðum eða hafið samband við þessar konur: Rakel sini 82803. Karitas simi 10976. Gallerí Stofan Kirkjustræti 10 opin frá kl. 9-6 e.h. Kvenfélag Óháða safnaðarins. Kirkjudagur safnaðarins er næst- komandi sunnudag og hefst með guðþjónustu kl. 2. Félagskonur eru góðfúslega beönar að koma kökum laugardag 1-4 og sunnu- dag 10-12 i Kirkjubæ. Föstudagur 30. sept. kl. 20.00 Rauðafossafjöll 1230 m. — Kraka- tindur 1025 m. Laugardagur 1. okt. kl. 08.00 Þórsmörk i haustlitum. Farmiðasala og nánari upplýs- ingar á skrifstofunni. Sunnudagur 2. okt. kl. 13.00 Esja — gengið á Kerhólakamb 852 m. Fjöruganga á Kjalarnesi. Ferðafélag islands. it íjjj UTlVISTARFERÐiP Vestmannaeyjar um næstu helgi, flogið á föstudagskvöld og laug- ardagsmorgun. Svefnpokagist- ing. Gengið um Heimaey. Farar- stj.: Jón I. Bjarnason. Farseðlar á skrifstofunni Lækjargötu 6, simi: 14606. Útivist. Prófkjör Alþýðuflokksins til borgarstjórnarkosninga í Reykjavík a) Kjörstaðir eru sem hér segir: 1. Fyrir Árbæjar- og Breiðholtshverfin: Fáksheimilið. 2. Fyrir allan austurbæ austan Snorrabrautar: Síðu múli 37, 1. hæð. 3. Snorrabraut vestur að Seltjarnarneskaupstað: Iönó uppi, gengið inn frá Vonarstræti. b) Kjörstaðir verða opnir sem hér segir: Laugardag 1. október frá kl. 13 til kl. 19 Sunnudag 2. október frá kl. 10 til kl. 19 c) 1 prófkjörinu á að kjósa um 1. og 2. sæti. Eftirfarandi till. hafa borizt um skipan fyrsta sætis: Björgvin Guðmundsson Hlyngerði 1, Reykjavik. Bragi Jósepsson, Skipasundi 72, Reykjvik. Eyjólfur Sigurðsson, Tungubakka 26, Reykjavik. Eftirfarandi tillögur hafa borizt um skipan annars sætis: Elias Kristjánsson, Alftahólum 6, Reykjavik Sjöfn Sigurbjörnsdóttir, Keilufelli 8, Reykjavik. d) Rétt til að greiða atkvæði I prófkjöri Alþýðuflokksins hefur hver sá sem lögheimili á i kjördæminu, er orðinn fullra 18 ára 2. október 1977 og er ekki flokksbundinn i öörum stjórnmálaflokk. e) Engin utankjörfundaratkvæðagreiðsla fer fram. f) Niðurstöður prófkjörs eru þvi aöeins bindandi um skipan sætis á framboöslista, að frambjóðandi hafi hlotið minnst 1/5 hluta þeirra atkvæða, sem fram- boðslisti Alþýðuflokksins i kjördæminu hlaut i siöustu kosningum, eða hafi aöeins eitt löglegt framboð borist. g) Kjósandi merkir með krossi við nafn þess fram- bjóðanda, sem hann velur I hvert sæti. Eigi má á sama . kjörseðli kjósa mann nema i eitt sæti, þótt hann kunni að vera i framboði til fleiri sæta Eigi má kjósa aðra en þá, sem I framboði eru. Við prófkjör skal hvert það atkvæði talið gilt, þó aðeins sé merkt við einn fram- bjóðanda. Reykjavik 20. sept. 1977 KJÖRSTJÓRN ( Hohhsstarfld , Simi flokks- skrifstof- unnar i Reykjavik er 2-92-44 Alþýðuflokksfélag Reykjavikur Nú hafa verið auglýst prófkjör um frambjóðendur Alþýðuflokksins til Borgarstjórnarkosninga (i október) og Alþingiskosninga (i nóvember) i Reykjavik og er allt flokksbundið fólk þvi hvatt til að mæta og gera skil hiö allra fyrsta. Samkvæmt leiðbeiningum um prófkjör, sem birtar _ voru i Alþýðublaðinu 5. júli s.1., lið 10, segir svo: „Með- mælendur: Einungis löglegir félagar I Alþýðuflokknum 18 ára og eldri, búsettir á viðkomandi svæði, geta mælt með framboði”. Höldum félagsréttindum okkar — greiðum árgjöldin. Félagsgjöldum er veitt mottaka á skrifstofu flokksins i Al- þýðuhúsinu, 2. hæð. Stjórn Alþýðuflokksfélags Reykjavlkur. Fundur kjördæmisráðsins í Vesturlandskjördæmi Kjördæmisráð Alþýðuflokksins i Vesturlandskjördæmi er boðað til fundar I Hótel Borgarnesi sunnudaginn 2. október næst komandi klukkan 14. — Fundarefni: 1. Prófkjör um val frambjóðenda við Alþingiskosning- ar. 2. önnur mál. Stjórnin. Prófkjör Alþýðuflokksins í Reykjaneskjör- dæmi. Prófkjör um skipan 2ja efstu sæta á lista Alþýöuflokksins í Reykjaneskjördæmi í næstu alþingiskosningum fer fram laugardaginn 8. okt. og sunnudaginn 9. okt. n.k. Á laugardegin- um verður kjörfundur frá kl. 14 til 20, en á sunnudeginum frá kl. 14 til 22. Frambjóðendur eru þessir, sem gefa kost á sér í neðangreind sæti: Hilmar Jónsson, Hátúni 27, Keflavík, i 1. og 2. sæti. Gunnlaugur Stefánsson, Austurgötu 29, Hafnarfirði, I 2. sæti. Jón Armann Héðinsson, Kópavogsbraut 102, Kópavogi, i 1. sæti. Karl Steinar Guðnason, Heiðarbrún 8, Keflavik, 11 og 2. sæti. Kjartan Jóhannsson, Jófriðarstaðavegi 11, Hafnarfirði, I 1. og 2. sæti. Ólafur Björnsson, Drangavöllum 4, Keflavik, i 1. og 2. sæti. örn Eiðsson, Hörgslundi 8, Garðabæ, i 2. sæti. Kjörstaðir verða eftirgreindir og er formaður undirkjör- stjornar á hverjum stað tilgreindur með kjörstaðnum: Brúarland, Mosfellssveit: Kjörstaður fyrir ibúa Kjósar- sýslu, utan kaupstaða. Form. Kristján Þorgeirsáon. Hamraborg 1, Kópavogi: Form. Steingrimur Steingrimsson. Melabraut 67, Seltjarnarnesi. Form. Guðmundur Illugason. Gamli gagnfræðaskólinn við Lyngás, Garðabæ. Form. Rósa Oddsdóttir. Alþýðuhúsið, Hafnarfirði. Form. Sigþór Jóhannesson. Glaðheimar, Vatnsleysustrandarhreppi. Form. Simon Kristjánsson. Stapi, Njarðvikum. Stapi er jafnframt kjörstaður fyrir ibúa Hafna hrepps. Formaður Guðjón Helgason Tjarnariundur, Keflavik. Formaður Guðleifur Sigur- jónsson. Tjarnarlundur er jafnframt kjörstaður fyrir Ibúa Gerðahrepps. Leikvallahúsið, Sandgerði. Form. ölafur Gunnlaugs- son. Vikurbraut 21, Grindavik. Formaður Svavar Arnason. Atkvæðisrétt hafa allir íbúar Reykjaneskjör- dæmis 18 ára og eldri, sem ekki eru flokks- bundnir i öðrum stjórnmélaf lokkum. Kjósendum ber að kjósa á kjörstað í því sveitarfélagi, sem þeir eru búsettir, sbr. þó undantekningar um ibúa þeirra sveitarfélaga, þar sem ekki er opinn kjörstaður, sbr. hér að ofan. Utankjörstaðaatkvæðagreiðsla er óheimil Hverjum kjósanda ber að kjósa frambjóðend- ur i bæði sætin. Óheimilt er að kjósa sama frambjóðanda í bæði sætin. Ekki má kjósa aðra en þá, sem í framboði eru. Niðurstöður prófkjörsins eru bindandi um skipan 2ja efstu sæta listans, ef frambjóðandi i hvort sæti fær a.m.k. 1/5 hluta þeirra at- kvæða, sem framboðslisti Alþýðuflokksins í kjördæminu, hlaut í siðustu alþingiskosning- um. Reykjaneskjördæmi, 26. sept. 1977, Kjörstjórnin.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.