Alþýðublaðið - 17.11.1977, Blaðsíða 6
6
Fimmtudagur 17. nóvembec-
Svart eða önd-
verðan við hvrtt
//Hlýtur ekki stofnun
Málfrelsissjóðs að gefa
til kynna að málfrelsið sé
í hættu hjá þjóðinni?"
spurði einn kunningi
minn í gærmorgun, þegar
hann hafði lesið um það í
blööum, að stofnaöur
hefði verið Málfrelsis-
sjóður. Það er sannarlega
ekki að furða þótt menn
velti fyrir sér slíkum
spurningum. Tryggir
ekki stjórnarskráin rétt
manna til að segja skoðun
sina á mönnum og mál-
efnum, án þess að eiga
það á hættu að verða sótt-
ur til saka? Eru það ef til
vill ekki mannréttindi að
mega segja skoðun sína
umbúðalaust, sé tilefni til
þess gefið?
Það skyldi maöur
halda.
„betta er kommadót, sem
timir ekki að borga fyrir kjaft-
inn á sér og vill nú fá aðra til
þess,” sagði annar kunningi og
hafði þá bersýnilega i huga VL-
málin alræmdu. Munu það efa-
laust nokkur tiðindi þeim Ágústi
Þorvaldssyni á Brúnastöðum,
séra Jakobi Jónssyni, Herði
Zophaniassyni skólastjóra og
séra Jóni Bjarman, auk fleiri
stofnenda, að vera kommúnist-
ar. Hins vegar eru þessi um-
mæli nokkuð dæmigerð fyrir þá
sem vilja afgreiða málin á
snaggaralegan hátt, án þess að
velta þvi fyrir sér sém að baki
liggur. En það ætti að gefa auga
leið, að þegar svo breiður hópur
stofnar Málfrelsissjóð, hlýtur
það að vera af einhverjum öðr-
um hvötum en þeim, að þeir séu
kommadót sem timir ekki að
borga fyrir kjaftinn á sér.
Eðlilegar umræður
Það er staðreynd, að Mál-
frelsissjóður er stofnaður vegna
VL-málaferlanna, enda segir i
stotnávarpi þeirra 78 einstakl-
inga sem sjóðinn stofna, aö svo
sé. Það hafi mörgum einstakl-
ingum verið gert að greiða háar
fjárhæðir i málsbætur og
miskabætur handa stefnendum.
Segja stofnendur, að þeir telji
nauðsynlegt að tryggt veröi
fyllsta frelsi til umræðu um
málefni sem varða almanna-
heill.
Um þaö verður sennilega ekki
deilt, að umræður um erlendar
herstöðvar á tslandi varða al-
mannaheill. Það hljóta allir að
samþykkja, hvort sem þeir eru
með eða á móti þessum her-
stöðvum. Að þvi gefnu, hlýtur
það einnig að varða almanna-
heill, þegar fámennur hópur
mánna hefur undirskriftasöfnun
meðal almennings, þar sem
beðið er um að erlendar her-
stöðvar verði um kyrrt á íslandi
um komandi framtið, hvað sem
islenzk stjórnvöld segi. Þegar
menn fara út i slika undir-
skriftaherferð hljóta þeir að
gera sér grein fyrir þvi, aö þeir
eru að gefa tilefni til vægðar-
lausrar gagnrýni. Sérstaklega
með tilliti til þess, að slikur
verknaður er i hrópandi mót-
sögn við skoðanir stórs hluta
þjóöarinnar.
III nauðsyn
Umræður um þjóðmál hafa
yfirleitt ekki á sér sérstakan blæ
kurteisi, gætilegs orðavals eða
dulinna meininga. Slikt væri
enda fáránlegt. Og þegar um-
ræður eru komnar út i það,
hvort biðja eigi um að erlendar
herstöðvar verði á íslandi um
langa framtið, þá er sannarlega
við þvi að búast að menn taki
hressilega upp i sig, enda fylli-
lega ástæða til, að minu mati.
En þegar menn, sem neita aö
taka þátt i opinberum umræð-
um hvað eftir annað, um slikar
beiðnir sinar, höfða meiðyrða-
mál fyrir að vera kallaðir
mannvitsbrekkur eða vegna
annarra orða og setningarhluta,
þá er mælirinn að verða fullur.
Einkum þó þegar i ljós kemur
að meiðyrðalöggjöfin hér á Is-
landi er slik að unnt er að dæma
menn til fjársekta og jafnvel
fangelsis fyrir ummæli um
þessa menn og atferli þeirra.
Þá er sannarlega kominn timi
til að gera annað tveggja. Gera
meiðyrðalöggjöfina þannig úr
garði að unnt sé að ræða þjóð-
mál öðru visi en með loðin-
barðalegu orðaskrúði holta-
þokukjaftæðis sem engan botn
er hægt að fá i, — eða stofna
Málfrelsissjóð sem geri mönn-
um kleift að stunda óheftar um-
ræður um mál sem „hafa al-
menna samfélagslega eða
menningarlega skirskotun,”
eins og segir i ávarpi 78-menn-
inganna.
Það er sem sagt skitt, en engu
að siöur staðreynd, að stofnun
þessa sjóös er nauðsynleg.
Kurteisi?
Þvi hefur verið varpað fram,
að menn eigi að geta skrifað um
þjóðmál rétt eins og allt annað
af kurteisi og einnig að ef menn
geti ekki valið orð sin i fyllsta
samræmi viö almenna manna-
siði, þá séu þeir einfaldlega ekki
ritfærir og eigi að halda sér á
mottunni.
Kurteisi er vissulega dyggð,
mikil skelfing. Ekki siður er það
áreiöanlega indæll eiginleiki að
geta skrifað vammir og
skammir um náungann þannig,
að gert sé eftir ýtrustu manna-
siðum og útilokað áð höfða
meiðyrðamál á ritarann. En
mikil lifandis ósköp held ég að
slik ritverk væru hrútleiðinleg.
Og vonlaus til árangurs, ef rit-
arinn hefur ætlað sér að koma
skoðunum sinum á framfæri.
Þjóðmálaumræða á að vera
umbúðalaus og hressandi,
þannig að fólk taki eftir henni og
geti áttað sig á þvi hvað verið er
að tala um. Um dónaskap þarf
auðvitað ekki að vera að ræða,
enda hygg ég aö hann hafi ekki
komið við sögu i umræddum VL-
málum. Og vissulega held ég að
enginn geti haldið þvi fram i
blákaldri alvöru að menn eins
og Einar Bragi rithöfundur og
Árni Björnsson þjóðháttafræð-
ingur kunni ekki að skrifa. Þeir
hins vegar, eins og aðrir sak-
borningar VL-málaferlanna,
héldu þvi fram að svart væri
svart, en reyndu ekki að gera
mál sitt kurteisislegt með þvi að
segja aö það væri öndverðan við
hvitt.
Haukur Már
Málfrelsi landsmanna ógnað
Stofnaður mál
frelsissjóður
Nú er svo komiö fyrir
málfrelsi i landinu/ að
nauðsynlegt þykir að
stofna sérstakan mál-
frelsissjóð/ svo jafn réttur
landsmanna sé tryggður/
til þess að segja skoðun
sína í hinum ýmsu dægur-
málum/ sem upp kunna að
koma hverju sinni. Þykir
mörgum/ og það að vonum,
litið leggjast fyrir hina
stoltu lýðræðisþjóð.
I fréttatilkynningu um
stofnun sjóðsins/ segir
m.a.
Tilgangur sjóðsins er að
tryggja fyllsta frelsi til
umræðu um málefni/ sem
varðar almannaheill, og til
óheftrar listrænnar tján-
ingar.
Tilgangi sjóðsins og tilefni til
stofnunar hans er lýst i Avarpi,
sem undirritað er af stofnendum
sjóðsins, 78 að tölu. Sjóösstofnun
var formlega ákveðin á fundi
stofnenda sem haldinn var á Hót-
el Esju 8. nóvember. Þá var sam-
þykkt skipulagsskrá sjóðsins,
sem er sjálfseignarstofnun, og
honum kosin stjórn úr hópi stofn-
enda. 1 stjórninni eiga sæti:
Jóhann S. Hannesson mennta-
skólakennari, Jónas Jónsson frá
Ystafelli ritstjóri, Páll Skúlason
prófessor, Silja Aðalsteinsdóttir
cand. mag. og Thor Vilhjálmsson
rithöfundur.
Eins og fram kemur i ávarpi
stofnenda er hið beina tilefni
þess, að sjóðurinn er stofnaður
nú, dómar kveðnir upp i
Hæstarétti nýlega vegna um-
mæla sem fallið hafa i umræðu
um herstöðvamál. Fyrirsjáanlegt
ér að miskabætur og málskostn-
aður i þeim málum munu nema
milljónum og má af þvi sjá aö
efla þarf sjóöinn skjóttog mynd-
arlega. Stjórnin vill þó leggja
áherslu á að hlutverk sjóðsins er
engan veginn bundið þessum
málum heldur er honum ætlað að
starfa áfram meðan þörf krefur
og þangað til meiðyrðalöggjöfin
eða framkvæmd hennar hefur
breyst þannig að engin þörf sé
fyrir slikan sjóö. Grundvallarvið-
horf stofnenda er.að ekki sé siður
mikilvægt að tryggja fyllsta mál-
frelsi i stjórnmálaumræðum en
vernda æru þeirra manna, sem
taka þátt i opinberu lifi, og eink-
um sé það mikils virði að tryggja
að þátttaka i slikum umræðum sé
óháð efnahag manna. Þvi er
sjóðnum ætlað það hlutverk að
greiða fyrir sakborninga i slikum
málum málskostnað og miska-
bætur til stefnenda. Rétt er að
taka fram að úr honum verða
ekki greiddar sektir.
Stjórn Málfrelsissjóös hefur
þegar hafið undirbúning að al-
mennri fjársöfnun. Girónúmer
sjóðsins er 31800-0, en heimilis-
fang hans að Laugavegi 31, simi
29490.
Ávarp
málfrelsissjóðs
vegna
stofnunar
Allt frá timum frönsku
stjórnarbyltingarinnar hefur
skoðana- og tjáningarfrelsi verið
einn af hornsteinum þess lýöræð-
is, sem þjóðir um norðanverða
Evrópu og Ameriku hafa hyllt og
leitast viö aöfesta i sessi. Réttar-
þróuni þessum efnum hefur mjög
gengiðiþá áttaðrýmka málfrelsi
i stjórnmálaumræðum.
Samkvæmt stjórnarskrá Is-
lands eiga þessi réttindi að vera
tryggð íslendingum, en með
framkvæmd gildandi lagaákvæöa
um meiðyrði er hætta á að þess-
um réttindum verði i raun settar
óæskilegar og ónauðsynlegar
skorður.
Tilefni þessa ávarps eru dómar
þeir sem nýlega hafa verið
kveðnir upp i Hæstarétti vegna
ummæla sem fallið hafa i um-
ræðu um hersetuna, eitt heitasta
deilumálþjóðarinnarsiðustuþrjá
áratugi. Með þeim hefur mörgum
einstaklingum verið gert að
greiöa háar fjárhæöir i máls-
kostnaö og miskabætur handa
stefnendum.
Undirritaöir telja nauösynlegt,
aö tryggt verði fyllsta frelsi tií
umræðu um málefni, sem varða
almannaheill, og til óheftrar list-
rænnar tjáningar. Meðan þetta
frelsi er ekkiótvirætttryggt, telj-
um við höfuðnauösyn að slá
skjaldborg um málfrelsið og höf-
um í þvi skyni ákveðið aö beita
okkur fyrir stofnun Málfrelsis-
sjóðs. Málfrelsissjóði veröur ætl-
að það hlutverk að standa straum
af kostnaði og miskabótum vegna
meiöyröamála, þegar stjórn
sjóðsins telur að með þeim séu
óeðlilega heftar umræður um
mál, sem hafa almenna sam-
félagslega eða menningarlega
skfrskotun.
Skorum við á Islendinga aö
styrkja sjóðinn með fjárframlög-
um.
Aöalheiður Bjarnfreösdóttir,
formaöur Sóknar.
Agúst Þorvaldsson,
fv. alþingismaöur,
Arnessýslu
Andrés Kristjánsson,
fv. fræöslustjóri,
Kópavog
Andri Isaksson,
prófessor.
Ami Björnsson,
læknir
Atli Heimir Sveinsson
formaður
Tónskáldafélags íslands,
Björn Bjarnason,
rektor M.S.
Björn Jónsson,
forseti
Alþýðusambands Islands,
Brynja Benediktsdóttir,
leikhússtjóri,Akureyri
Böðvar Guömundsson,
menntaskólakennari,
Akureyri,
Davið Daviösson,
prófessor,
Séra Einar Sigurbjörnsson,
dr. theol,
Reynivöllum, Kjós
Eysteinn Tryggvason,
dósent,
Guömundur Arnlaugsson,
rektor, M.H.
Guðmundur J. Guðmundsson,
formaður
Verkamannasambands tslands,
Guðmundur Pétursson
læknir,
Guðmundur Steinsson,
rithöfundur,
Guðmundur Sveinsson,
skólameistari,
Guöný Guðmundsdóttir,
konsertmeistari,
Guörún Helgadóttir,
deildarstjóri,
Guðrún Jónsdóttir,
arkitekt,
Halldór Pálsson,
búnaöarmálastjóri,
Hannes Kr. Daviðsson,
arkitekt,