Alþýðublaðið - 17.11.1977, Blaðsíða 12
alþýöu'
bladió
Otgefandi Alþýöuflokkurinn FIAAAATUDAGUR
Ritstjórn Alþýðublaðsins er að Síðumúla 11, slmi 81866. Auglýsingadeild blaðsins er að -
Hverfisgötu 10, sfmi 14906 — Áskriftarsimi 14900. I/■ NOVEMBER 1977
________________________________________________________________________________________________________________________J
„Frjálst útvarp” til umræðu á þingi:
Hampar sjónvarpid ráð-
herrum óeðlilega mikið?
I gær mælti Guðmund-
ur H. Garðarsson fyrir
frumvarpi sínu um breyt-
ingu á útvarpslögum á
þingi/ en meginefni þess
er á þá leið að einkaleyfi
rikisútvarpsins á útvarpi
verði afnumið og að
„ men nta má la ráðher ra
verði heimilt að veita
sveitarfélögum, mennta-
stofnunum og einstak-
lingum leyfi til útvarps-
rekstrar", eins og segir í
frumvarpinu.
Flutningsmaður kvaðst i ræöu
sinni hafa oröið var viö mikinn
áhuga á þessu máli og m.a.
heföi sér verið afhentur undir-
skriftalisti meö 600 undirskrift-
um fólks sem styddi „frjálsa út-
varpið”.
Svava Jakobsdóttir lýsti sig
andviga frumvarpinu, en taldi
rétt aö athuga betur alla þá
möguleika sem rikisfjölmiðl-
arnir byöu upp á. Hún sagöi þaö
stórmál, aö jafnrétti sé tryggt i
fjölmiölum rikisins, en svo væri
ekki nú. Sagöi hún mýmörg
dæmi um aö t.d. I sjónvarpinu
væri öllu þvi er varðaöi rikis-
stjórnina hampaö mun meira en
málum stjórnarandstööunnar
og þvi rikti þarna ekki jafnrétti i
raun.
Svava sagöi þaö álit sitt, aö
ráðningartimi yfirmanna rikis-
fjölmiölanna ætti aö vera tak-
markaöur, til aö reyna aö fyrir-
byggja stöðnun. Þá benti hún á
að rikisútvarpiö þyrfti nauösyn-
lega að reisa útvarpsstöðvar i
hinum einstöku landshlutum til
að sinna þeim betur.
,, Rannsóknarefni
Útvarpsráðs"
Jóhann Hafsteinsagöi yfirlýs-
ingu Svövu Jakobsdóttur um
hlutleysisbrot sjónvarps furðu-
lega og hvetti til þess aö útvarps
ráö tæki að sér aö kanna máliö
og t.d. aö bera saman viö tima \
Viöreisnarstjórnarinnar og
„vinstri” stjórnarinnar. Hann
kvaöst oft hafa undrast þaö
hversu ráöherrum hafi veriö
gert hátt undir höfði i rikisfjöl-
miölum á tima stjórnar Ólafs
Jóhannessonar, og hafi þaö ver-
ið mun meira en nú.
Jóhann Hafstein kvaö þaö
skoöun sina, aö setja yröi
„frjálsu útvarpi” einhverjar
skoröur, þannig aö til dæmis
Samband isl. samvinnufélaga
gæti ekki tekið til viö að reka út-
varpsstöð og þannig teygt sig
inn á enn eitt svið þjóölifsins.
„Forréttindi Sambandsins taka
engu tali”, sagöi þingmaöur-
inn.
Magnús Torfi ólafsson sagöi
timabært aö athuga hvort rétt
sé aö rikisútvarpiö hafi einka-
leyfi á útvarpsrekstri, sem þaö
fékk viö stofnun þess. Hann
kvaöst hins vegar ekki viss um
að sú leiö sem Guöm. H.
Garðarsson bendir á I frum-
varpinu sé ákjósanleg. Þing-
maðurinn sagöi þaö almennt
viöurkennt aö hér og i nálægum
löndum hafi rikiseinkaleyfi á út-
varpi verið tekiö upp eftir Bret-
um, en einkaleyfi BBC hafi ver-
iö afnumiö fyrir nærri 20 árum
og þaö hafi vissulega dregið dilk
á eftir sér.
Hins vegar væri til önnur
fyrirmynd, þ.e. sú hollenzka.
Þar hafa allir sem uppfylla viss
skilyröi rétt til aö útbúa út-
varpsdagskrár og senda þær út
frá sendistöðvum rlkisútvarps-
ins. Mest væru þaö stjórnmála-
flokkar og trúarflokkar sem
notfæröu sér þennan möguleika.
Pílagrímaflug Flugleiða:
Farþegarnir
urðu nær
sextán þús.
Fyrri hluta pílagríma-
flugs Flugleiða h.f. á þessu
ári er nú lokið og Ijóst er að
farþegafjöldi sá er fluttur
var til Jedda í Saudi-Ara-
bíu, varð allnokkru meiri
en upphaflega var samið
um, svo og að sætanýting í
þeim tveim DC-8 63 vélum,
sem notaðar voru til flutn-
inganna, var nákvæmlega
100%.
Upphaflega var samiö um aö
fluttir yröu tæplega þrettán þús-
und farþegar, annars vegar fimm
þúsund frá Kana I Nigeriu, i tutt-
ugu ferðum, hins vegar sjö þús-
und og átta hundruð i þrjátiu
feröum frá Oran i Alsir.
Raunin varð hini vegar sú, aö
frá Alsir voru fluttir nokkru færri
en áætlaö var, eöa sjö þúsund tvö
hundruð og áttatiu, i tuttugu og
átta feröum, eöa tvö hundruö og
sextiu i ferð.
Frá Nigeriu voru hins vegar
fluttir átta þúsund og fjögur
hundruð farþegar i þrjátiu og
fjórum ferðum, eða tvö hundruö
fjörutiu og niu i hverri ferð.
Vélin sem annaöist flutningana
frá Nigeriu tekur tvö hundruö
fjörutiu og niu I sæti, en sú er ann-
aöist flutningana frá Alsir, tvö
hundruð og sextiu, þar sem aftara
eldhúsiö var tekið úr henni og
settar sætaraðir i staðinn.
Samtals voru þvi fluttir fimm-
tán þúsund sex hundruö og áttatiu
farþegar, i sextiu og tveim ferö-
um.
Starfslið þaö er hefur dvalizt
erlendis vegna pilagrimaflugsins,
flugliö, afgreiöslumenn og flug-
virkjar, mun nú komið heim til aö
hvíla sig fyrir átökin viö aö flytja
pflagrimana til baka.
Þeir flutningar hefjast 25.
nóvember og standa til fimm-
tánda desember.
Að sögn kynningardeildar
Flugleiða gekk pilagrima flug
þetta i alla staöi eins vel og hugs-
ast gat.
—hv
Félagsmidstöð í Árbæjarhverfi:
Fyrsta skóflu-
stungan tekin
i gær tók borgarstjór-
inn í Reykjavík, Birgir Is-
leifur Gunnarsson, fyrstu
skóf lustunguna að
félagsmiðstöð í Árbæjar-
hverfi. Þessari nýju
byggingu er ætlaður stað-
ur við Rofabæ, næst fyrir
vestan Árbæjarskóla.
Áætlaður gólfflötur félags-
miöstöðvarinnar er 788 ferm,
auk 210 ferm óráðstafaös rýmis
i kjallara. Miðja hússins frá
austri til vesturs er umferðar-
leið, sem einkennist af ská-
brautum i staö venjulegra stiga.
Meö brautum þessum er tryggt,
að allir eigi greiða leiö um hús-
iö, hvort sem þeir eru i hjóla-
stólum, bæklaöir eöa heilbrigö-
ir. Jafnframt veröa flutningar á
tækjum og búnaöi auðveldari
en ella.
Hið opna miörými á einnig aö
stuöla að þvi, aö auövelt sé fyrir
gesti aö fylgjast meö þvi, sem
gerist i einstökum vistarverum.
Helztu húsnæöiseiningarnar
eru afmarkaðar á pöllum og
nýtast þvi hver fyrir sig, eða
sameiginlega. Lóö hússins nær
að leiksvæði skólans og tengist
útivistarsvæöi þvi er nær niður
aö Elliðaám og austur aö
iþróttavelli.
Hlutverk félagsmiöstöövar-
innar er aö vera samastaöur
fyrir félagslif i hverfinu. Félög
munu fá þar inni fyrir samkom-
ur fundi og fræðslustarf. Þá
munu borgarstofnanir fá tæki-
færi til að inna af hendi ýmsa
þjónustu viö Arbæjarbúa, og
Framhald á bls. 10
Hafrannsóknarstofnun:
„Búast má við afar rýrri vetrar-
Sudvestarilands”
vertíd
i forsiðufrétt i Alþýðu-
blaðinu í gær voru birtar
nokkrar tölur úr máli
Matthíasar Bjarnasonar,
sjávarútvegsráðherra,
þegar hann svaraði fyrir-
spurn frá Guðlaugi Gísla-
syni varðandi ástand
þorskstofnsins við Island.
Svar ráðherrans byggðist
á bréfi Jóns Jónssonar,
forstjóra Hafrannsókn-
unarstofnunarinnar, og
er i bréfi Jóns að finna
fleiri athyglisverðar upp-
lýsingar. Verður þvi svar
ráðherrans birt hér í heild
sinni, en þar svaraði hann
eftirfarandi spurningum
Guðlaugs Gíslasonar:
1. Hvaö ætla fiskifræðingar aö
þorskstofninn á Islandsmiöum
hafi verið stór að tölu og magni i
tonnum: a) 1973, b) 1974, c)1975,
og hvaö áætla þeir stærö þorsk-
stofnsins á Islandsmiöum 1978?
2. Hvaö stóran hluta aö tölu
til og magni áætla fiskifræöing-
ar hrygningarstofn þorskins,
sem til hrygningar kemur:
a) á svæöinu frá Stokksnesi
vestur um að Látrabjargi,
b) á öörum hafsvæöum viö land-
iö?
3. Hefur Hafrannsóknar-
stofnunin látiö gera athuganir á
hvaöa árangur friöun hrygn-
ingarsvæöisins á Selvogsbanka
og friðun svæöisins fyrir Norð-
austurlandi hefur boriö?
4. Ef athuganir hafa verið
geröar, hverjar eru niöurstööur
þeirra?
Svar Matthiasar Bjarnasonar
er á þessa leið:
„ Búast má við afar rýrri
vetrarvertíð"
„Herra forseti. út frá þessari
fyrirspurn háttvirts 3. þm.
Suöurlands þá hefur eftirfar-
andi svar borizt frá Hafrann-
sóknarstolnun til sjávarútvegs-
ráöuneytisins:
„Svar viö fyrirspurn Guö-
laugs Gislasonar til sjávarút-
vegsráöherra um þorskstofninn
sb. bréf ráðuneytisins frá 3. nóv.
sl.
1. Þegar rætt er um stærö
þorskstofnsins er fyrst og
fremst átt viö veiöanlega stofn-
inn, þaö er þorsk 3 ára og eldri,
stærö þorskstofnsins i fjölda og i
þyngd undanfarin ár er áætlaö
aö hafi veriö sem hér segir:
Arið 1973 fjöldi i millj. fiska
610 og i þyngd i þús. tonna 1306,
1974: 517, 1189: 1975: 509, 1135:
1976: 642, 1237. Stofnstæröar-
aukningin árið 1976 stafar ein-
göngu af þvi, aö þá bætist stóri
árgangurinnfrá ’73 inn i veiðan-
lega stofninn. I ársbyrjun 1977
er stærö stofnsins áætluð 531
millj. fiska og þyngdin 1195 þús.
tonn. Veiöin á yfirstandandi ári
byggist mjög á 1973 árganginum
og þar sem aflinn mun fara
langt fram úr till. Hafrann-
sóknarstofnunarinnar um æski-
legan hámarksafla er áætlaö aö
stærö þorskstofnsins I ársbyrjun
1978 veröi komin ofan i 429 millj.
fiska, sem eru I þyngd rúmlega
1 millj. lesta og er þaö minnsta
stofnstærö þorskstofnins sem
vitaö er um siöan rannsóknir
hófust.
2. Hrygningarstofn þorsksins
er nefndur sá hluti þorskstofns-
ins sem náð hefur 7 ára eöa
hærri aldri. Stærö hans á undan-
förnum árum i þús. tonna og
fjöldi millj. fiska hefur veriö
sem hér segir: Arið 1973: 332,
63: 1974: 226, 42: 1975: 222, 42:
1976: 180, 36. A s.l. vetrarvertiö
1977 var stærö hrygningar-
stofnsins áætluð 210 þús. lestir.
Búist er viö aö stærö hrygn-
ingarstofnsins i byrjun komandi
vertiðar verði 170 þús. lestir eöa
minna en nokkru sinni fyrr. Aö
baki þeirri hrygningu munu
standa 34 millj. þorska Meö
þeirri þekkingu sem viö búum
yfir i dag er engan veginn unnt
aö spá hversu mikið af væntan-
legri hrygningu fari fram á
hverju svæði. Hrygning er háð
ýmsum umhverfisþáttum eins
og t.d. hitastigi og eins og er er
ekki unnt að spá langt fram I
timann hvernig hitastigi I sjón-
um verði háttaö t.d. hvort hiti
við Norðurland á vori komanda
nái þeim mörkum sem gerir
hrygningu i einhverjum mæli
mögulega og veröur þvi ekkert
fullyrt i þeim efnum. Hitt er þó
ljóst, aö hvernig sem háttaö
veröur um hrygningu utan
hinna hefðbundnu hrygningar-
stööva Suövestanlands, þá má
búast við afar rýrri vetrarver-
tiö Suðvestanlands, þar sem
hrygningarstofninn er svo litill
sem raun ber vitni og reynsla
undanfarinna ára hefur staö-
fest.
3. A vegum Hafrannsóknar-
stofnunarinnar hefur verið
fylgst meö fiskgengd á friöaöa
svæöinu á Selvogsbanka undan-
farin ár. S.l. 2 ár hefur verið
gerö itarleg könnun á hrygningu
þorskfiska viö Suöurland og
Vesturland og á s.l. vertið var
athuganasvæöiö stækkaö og
gögnum safnað um hrygning-
una fyrir norðan. Þá hefur veriö
Framhald á bls. 10