Alþýðublaðið - 29.11.1977, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 29.11.1977, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 29. nóvember 1977 7 Vésteinn Lúðvíksson Stalín er ekkihér Leikrit Vésteins er nú sýnt á sviði Þjóðleikhússins og hefur hlotið ein- róma lof gagnrýnenda. Allir unnendúr íslenskra bókmennta fylgjast vel með sérhverju verki frá hendi Vésteins, sem tvímælalaust er ein af »vonar- stjörnunum« í hópi ungra höfunda. Gunnar Gunnarsson Jakob og ég Saga manns, sem snýr baki við tryggri tilveru og öruggri framabraut til þess að glotta framan í gamla vini — og verður á að spyrja sjálfan sig: Hvers konar fífl er ég? — »Bókin er bráð- skemmtileg aflestrar«, segir Flosi Ólafsson. Fylgist með þessum unga höfundi. Jón Espólín og Einar Bjarnason Saga frá Skagfirðingum Viðámikið heimildarrit i árbókar- formi um tíðindi, menn og aldarhátt í Skagafirði 1685 - 1847 og raunar miklu víðar á Norðurlandi. Ber öll sömu höfundareinkenni og Árbækur Espólíns. I. bindi spannar tímann 1685 - 1786 og II. bindi nær fram til ársins 1830. í ritverki þessu segir frá fjölmörgum mönnum, og sögulegum atburðum. ALDIRNAR ÖLDIN SAUTJÁNDA ÖLDIN SEM LEIÐ l-ll árin 1601-1700 árin 1801-1900 ÖLDIN ÁTJÁNDA l-ll ÖLDIN OKKAR l-lll árin 1701-1800 árin 1901-1960 Lifandi saga liðinna atburða í máli og myndum, tvímælalaust vinsælasta ritverk sem út hefur komið á íslensku, jafneftirsótt af konum sem körlum og ungum sem öldnum. Alls 8 bindi, sem spanna tímann frá aldamótum 1600 til ársins 1960. Eignist öll 8 bindin áður en það verður um seinan. Hannes Pétursson Kvæðasafn 1951 -1976 Ljóð Hannesar Péturssonar frá 25 ára skáldferli. Myndskreytingar eftir Jóhannes Geir listmálara. Öll ljóð eins okkar mesta skálds aðgengileg í veglegri og vandaðri heildarútgáfu, sem skipa mun öndvegi á sérhverju menningarheimili. unnl 'Jin<Esfófín cSmr<BjarMsm cjfá S^fir^mt KVÆÐA SAFN FORSETARÁNIÐ Alistair MacLean Forsetaránið Nýja bókin eftir hinn víðkunna met- söluhöfund, 18. bók höfundar, sem þýdd er á íslensku, og segir það sína sögu um vinsældir hans. — »Ugg- vænlega spennandi, ótrúlega hugvits- söm... besta bók MacLean um langt skeið« segir hið kunna blað Sunday Express. Hammond Innes Loftbrúin Nýjasta bókin á íslensku eftir þennan margrómaða metsöluhöfund, sem fer á kostum í þessari snjöllu, þrauthugs- uðu og æsispennandi sögu. Spennan hefst strax á fyrstu síðum bókarinnar og nær óvæntu og dramatisku há- marki í tengslum við loftbrúna til Berlinar. David Morrell Angist Fyrir ári kom út bókin í greipum dauðans eftir Morrell, sem seldist upp á örskömmum tíma. Sú bók var ærið spennandi og áhrifamikil, en ekki er þessi síðri, enda ber Morrell nú hæst þeirra höfunda, sem kvatt hafa sér hljóðs á þessu sviði síðustu árin. Hann er raunsær höfundur og í bókum hans er ekkert, sem ekki gæti hafa gerst. Mary Stewart Örlagaríkt sumar Rómantísk og spennandi saga eftir höfund bókarinnar f skjóli nætur. — »Mjög vel gerð saga, þar sem spennu og ást er haglega blandað,saman.« — The Observer. — »Afar spennandi saga, sem óumflýjanlega hlýtur að kosta andvökunótt.« The Guardian. iiiiiii jSIfflliÍl Bræóraborgarstíg 16, Sími 12923-19156 <

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.