Alþýðublaðið - 20.01.1978, Qupperneq 4

Alþýðublaðið - 20.01.1978, Qupperneq 4
4 Föstudagur 20. janúar 1978 alþýóu* Utgefandi: Alþýðuflokkurinn. Rekstur: Reykjaprent h.f. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Arni Gunnarsson. Fréttastjóri: Éinar Sigurðs- son. Aðsetur ritstjórnar er i Siðumúla 11, simi 81866. Kvöldsimi fréttavaktar: 81976. Auglýsingadeild, Alþýðuhúsinu Hverfisgötu 10 — simi 14906. Áskriftar- og kvartanasimi: 14900. Prentun: Blaðaprent h.f. Askriftaverð 1500krónur á mánuði og 80 krónur i lausasölu. BRÚ YFIR ÖLFUSÁRÓSA Fyrir þingkosningarn- ar haustið 1959 var eitt aðalbaráttumál Unnars Stefánssonar, frambjóð- anda Alþýðuf lokksins í Suðurlandskjördæmi, að gerð yrði brú yfir Ölfusá við Öseyrarnes. And- stæðingum flokksins þótt þetta hin mesta fásinna og geðru lítið úr hug- myndum Unnars, og höfðu þær að gamanmáli. í málflutningi sínum lagði Unnar á það á- herzlu, að í framhaldi af hafnargerð í Þorlákshöfn myndi þessi brú þjóna Eyrarbakka og Sokkseyri vel, byggðarlögum, sem um langan aldur hafa verið afskipt um hvers- konar þjónustu. Ennfrem- ur myndi hún þjóna sveitunum í nágrenni þessara byggðarlaga og jafnvel Selfossi. Nú er þetta baráttumál Unnars Stefánssonar orð- ið eitt mikilvægasta framfaramál Suður- landskjördæmis og raddir úrtölumannanna þagnað- ar. — Magnús Magnúss., fyrrum bæjarstjóri í Vestmannaeyjum gerir þetta mál að umræðuefni í síðasta tölublaði Brautar innar, blaði Alþýðuf lokksmanna í Vestmannaeyjum. Hann segir þar, að síð- an Unnar Stefánsson barðist f yrir þessu merka máli, hafi miklum fjár- munum verið varið til hafnargerðar í Þor- lákshöfn og þar sé nú komin ágæt höfn. l fram- haldi af því, og til að geta búið íbúum sínum svipuð lífskjör og önnur byggðarlög við sjávarsíð- una, hafi Eyrarbakki, Stokkseyri og Selfoss bundizt samtökum um smíði og rekstur skuttog- ara. Magnús leggur á það áherzlu, að ef Þorláks- höf n eigi að koma þessum byggðarlögum að fullu gagni, og ef nýi skuttog- arinn og önnur fiskiskip frá þessum stöðum eigi áð skila þeim arði, sem vænzt er, sé nauðsynlegt að gera brú við Óseyrar- nes. Magnús segir, að auðvitað séu mörg að- kallandi verkefni óleyst I samgöngumálum lands- ins og svo muni verða um fyrirsjáanlega framtíð. En fá verkefni séu brýnni en þessi brúarsmíð og fá verkefni séu jafn þjóð- hagslega hagkvæm. Þótt aðeins sé litið á sparnað við flutning á fiski frá Þorlákshöfn til annarra byggðarlaga, miðað við það sem nú er, og flutning á útflutnings- vörum þaðan, kemur í Ijós, að sparnaðurinn slagar hátt upp i að standa undir fjármagns- kostnaði mannvirkisins og er þá allt annað hag- ræði af brúnni ótalið. Ekki má heldur gleyma því, að við óbreytt ástand þessara mála má alltaf búast við stórslysum á mönnum og miklu fjár- hagslegu tjóni, eins og at- burðir seinni ára sanna. Hiklaust má fullyrða, að fáar eru þær sam- göngubætur hér á landi, sem betur standa undir f jármagnskostnaði, hvernig sem á málið er litið. Samgönguráðherra hefur talið hagkvæmt að hefjast handa við brúar- gerðina, þegar lokið er brúargerð yfir Borgar- fjörð, en slíka bið þolir framkvæmdin ekki. Nú er tilvalið tækifæri fyrir ríkisvaldið að bæta að nokkru fyrir van- rækslusyndir liðinna ára- tuga gagnvart þessum byggðarlögum með því að hefja strax undirbúning að brúarsmíðinni. —ÁG ÚR YMSUM ATTUM Bjargi sér riu hver sem betur getur Þegar framsóknarmenn héldu seinast prófkjör hér i Reykjavík til undirbúnings þingkosningum vann Einar Ágútsson efsta sætið. Af ein- hverri riddaramennsku lét Ein- ar Þórarni Þórarinssyni sæti sitt eftir og komst sjálfur inn á þing sem annar maður. Nú er hins vegar hart i ári hjá framsóknarmaddömunni bless- aðri. Hvilubrögðin með ihaldinu hafa gert hana heldur óásjálega útlits og illt umtal rætinna tungna hefur varpað rýrð á mannorð hennar. Það er þvi hver sjálfum sér næstur. Ridd- aramennskan fyrir bi og Einar vill sjálfur i fyrsta sætið i þetta sinn. En i fyrsta sætinu getur ekki verið nema einn maður. Það verður þvi gaman að fylgjast með atganginum i prófkjörinu nú um helgina. Ungur rnaðurá uppleið Einn af kandidötum Fram- sóknarflokksins til borgar- stjórnar Reykjavikur heitir Ei- rikur Tómasson (Árnasonar al- þingismanns og forstjóra Framkvæmdastofnunar rikis- ins) vikapiltur Olafs Jóhannes- sonar. Eirikur þessi er lögfræð- ingur að mennt og hefur prikað upp metorðastigann eftir hefð- bundnum leiðum: fyrst framað- ur i félagslifi i menntaskóla og siðar i Háskólanum. t kompanii ungra framsóknarmanna hefur hann skilað drjúgu verki, verið i varastjórn SUF, veitt forstöðu Félagsmálaskóla Framsóknar- flokksins, sem er utan við skóla- kerfi Vilhjálms og er nú skrifari hjá SUF. Þá hefur Eirikur starfað við Timann, fyrst sem almennur blaðamaður, en siðar sat hann löngum i blaðamanna- stúkunni i fundarsölum borgar- stjórnar Reykjavikur, skráði þimgfréttir Timann og lét sig dfeyma. Nú hefur Eirikur ákveðið að láta til skarar skriða ög láta drauminn verða að veru- leika. Hann er nú i framboði til tiorgarstjórnar og ætlar að stinga sætinu undan Alfreð. En hvað ætlar hann Eirikur að gera, ef/þegar hann verður kominn á þægilegan stað i valdapiramida Reykjavikur- borgar? Jú, svör við þvi er að finna i litlum bæklingi i sjúkra- samlagsskirteinisbroti, sem hann lét dreifa um Reykjavik á dögunum. A bls. 3 i stuðnings- skirteini Eiriks stendur skrifað: „Lesandi góður! Ég vil nota þessar örfáu linur til að kynna þér þau markmið sem ég hyggst beita mér fyrir náði ég kjöri i borgarstjórn Reykjavikur. Markmið þessi eru: Á" Að útrýmt vcrði húsnæðis- skorti þeim sem nú ríkir hér i Reykjavik. Styðjum EIRÍK I BORGARSTJÖRN Á- Að unnið verði skipulega að uppbyggingu atvinnufyrirtækja i borginni, einkum iðnfyrir- tækja. ^ Að séð verði fyrir dagvistun- arþörf i borginni. "Á Að umferð um borgina verði gerð greiðari og dregiö úr um- ferðarþunga, sérstaklega í gamla miðbænum. "Á Að aukinn verði stúðningur við frjáls félagasamtök og stuðlað að þvi að ný féiij'g taki til starfa. Á- Að hagsmunir neytenda ■ verði látnir sitja i fyrirrúmi þegar tcknar eru ákvarðanir sem þá varða. Á- Að borgin verði gerð líflegri og skemmtilegri." Þvi miður gafst Eiriki ekki ráðrúm til að tiunda hvernig hann ætlaði að ná þessum markmiðum, sem verða að telj- ast i háleitara lagi. En ansi hefði verið gaman að heyra um hvernig hann ætlar að gera borgina „liflegri og skemmti- legri” og enn frekar hvernig hann ætlar að greiða úr umferð- arflækjum i miðbænum. Má eiga von á þvi að hann bregði sér út i umferðarbendur á föstu- dagseftirmiðdögum með hvita hanska og kylfu og leiðbeini ökuþórum borgarinnar i eigin persónu!? —ARH

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.