Alþýðublaðið - 20.01.1978, Síða 9

Alþýðublaðið - 20.01.1978, Síða 9
SSSÍ5" Föstudagur 20. janúar 1978 9 Útvarp 7.00 Morguniítvarp Morgunleikfimi kl. 7.15 og 9.05. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og forustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.50. Morgunstund barnanna kl. 9.15: Guörlöur GuBbjörns- dóttir lýkur lestri sögunnar Gosa eftir Carlo Collodi I þýBingu Gísla Asmundsson- ar (7). Tilkynningar kl. 9.30. Létt lög milli atriBa. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 VeBurfregnir og fréttir. Tilkynningar. ViB vinnuna: Tónleikar. 14.30 MiBdegissagan: ,,Á skönsunum” eftir Pál Hall- björnsson Höfundur les (17) . 15.00 MiBdegistónleikar 15.45 Lesin dagskrá næstu viku. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 VeBurfregnir). 16.20 Popp. 17.30 Ctvarpssaga barnanna: „Hottabych” eftir Lazar Lagin.Oddný Thorsteinsson lýkur lestri þýBingar sinnar (18) . 17.50 TónleikarTilkynning- 18.45 VeBurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 ViBfangsefni þjóBfélags- fræöaDr. Svanur Kristjáns- son lektor flytur erindi um rannsóknir á Islenzkum st jórnmálaflokkum. 20.00 Beethoventónleikar finnska útvarpsins I september s.l. a. „Promet- heus”, forleikur op. 43. b. Pianókonsert nr. 5 I Es-dilr op. 73. Emil Gilels leikur meB Fílharmoniusveitinni I Helsinki: Paavo Berglund stjórnar. 20.50 Gestagiuggi Hulda Val- týsdóttir stjórnar þætti um listir og menningarmál. 21.40 Kórsöngur.Hollenski llt- varpskórinn syngur lög eftir Brahms, Hauptmann, Gade o.fl. Stjórnendur: Anton Krelage og Franz Muller. 22.05 Kvöldsagan: „Sagan af Dibs litla” eftir Virginfu M. Alexine Þórir S. Guöbergs- son les þýöingu slna (2). 22.30 Veöurfregnir. Fréttir. 22.50 Afangar Umsjónar- menn: Ásmundur Jónsson og Guöni Agnarsson. 23.40 Fréttir. Dagskrárlok. Sjónvarp ar. 20.00 Fréttir og veður 20.25 Auglýsingar og dagskrá 20.30 Vorflugan og silungurinn Bresk fræöslumyna um llfriki árinnar. Myndin er aö nokkru leyti tekin neöan vatnsborös og lýsir lifnaöarháttum silungs- ins, og fleiri dýr koma viö sögu. Þýöandi og þulur GuÐbjörn Björgólfsson. 20.55 Kastljós (L) Þáttur um innlend málefni. Umsjónar maöur Helgi E. Helgason. 21.55 Háski á hádegi (High Noon) Einn frægasti „vestri allra tima, gerður áriö 1952. Leik- stjóri Fred Zinnemann. Aöal- hlutverk Gary Cooper og Grace Kelly. Myndin gerist I smábæn- um Hedleyville áriö 1870. Lög- reglustjórinn er nýkvæntur og ætlar aö halda á brott ásamt brúöi sinni. Þá berast honum þau boö, aö misindismaöurinn Frank Miller, sem þykist eiga lögreglustjóra grátt aö gjalda, sé laus úr fangelsi og væntan- legur til bæjarins meö hádegis- lestinni. Þýðandi Jón Thor Haraldsson. 23.15 Dagskrárlok. Lýöurinn, sem Elvis Presley umgekkst? eyðilagði hann — Hann var konungur yfir öll- um heiminum, án þess að hann skildi það nokkurn tima. Hann var bara seldur og enn er hann tíl sölu. — Þannig litur skáldkonan Ruth Batchelor ævi rokkkonungsins Elvis Presley I hnotskurn. Af- leiðinguna segir hún vera þá, að nú standi kvikmyndafélögin I bið- röð hjá Tom Parker umboðs- manni Presleys, til að freista þess, að kaupa einkaréttinn til að gera kvikmynd um feril söngvar- ans. — Svo koma nýir T-bolir, og ný plaköt, skrifar skáldkonan. Salan heldur áfram. — Þoldi ekki konur. Á sama tima kemur sannleik- urinn um Elvis Presley hægt og sígandi fram I dagsljósið. Ef ein- hver þekkti konunginn þá I raun og veru. Ruth Batchelor samdi fyrsta lagið sitt 1962. Það heitir „King of the Whole Wide World”. Henni tókst að fá Elvis til að syngja þaö — en til þess að svo yrði, varð hún að selja kvikmyndaréttinn að þvi — fyrir einn dollar. Og hún varð einnig að láta af hendi einn þriðja af því sem hún fékk I aðra hönd. Þetta vissi EIvis ekki. Þetta var skipulagt bak við tjöldin, af þeim, sem stjórnuðu lifi Presleys. — Ég heimsótti Elvis nokkrum sinnum á heimili sitt, skrifar skáldkonan enn fremur. Mér var alltaf sýnd virðing, af þvi að hús- .ráðandi leit á mig sem rithöfund en ekki sem konu. Hann þoldi nefnilega ekki konur. — Táningarnir fengu aldrei neitt. 1 húsinu hjá Elvis voru alltaf milli 30 og 40 táningar. Þeim var aldrei boðið upp á neitt, ekki einu sinni kók eða franskar kartöflur. Vln var aldrei borið fram, og sagði einn vinur Presleys, að það væri vegna þess að móðir hans hefði dáið af völdum ofdrykkju. Fylgdarlið Presleys samanstóð yfirleitt af 7-8 druslulegum og óaðlaðandi mönnum, sem eigin- lega voru fremur þrælar kon- ungsins en þjónar. Þeir sáu um aö útvega honum hjásvæfur, héldu óvelkomnu fólki frá honum, hlógu að bröndurunum hans og settu benzln á bilana hans. Og Ryth heldur áfram: „Kvöld eitt snæddi ég kvöldverð I risa- stórri borðstofu Presleys, sem m.a. var prýdd með marmara- gólfi. A borðinu stóð mjólkur- kanna. A matseðlinum voru dósa- baunir, og kjúklingur, sem feitin lak af. Sjálfur snæddi Elvis beik- on og tómat-samlokur. „Komdu með upp...” Elivis var einmana, trúður á toppi fjallsins. Sum kvöld gat hann átt það til að benda á eina af táningastúlkunum, sem biðu og segja: „Þú, komdu með upp”. Þær sem eftir stóðu, litu hver á aðra með augnaráði sem hefði getað þýtt: ,,Ef til vill eitthvert annað kvöld”. Svo fóru þær sina leið, og minntu einna helst á yfir- gefin börn. Fór yfir um Kvöld eitt var Elvis i slæmu skapi, af þvi að þekktri söngkonu hafði nýlega verið hent út. Elvis hélt, að hún hefði komið i þeim er- indagjörðum, að fá að sofa hjá honum. Þegar i ljós kom, að hún vildi bara selja lögin sin sleppti hann sér og reif handfylli sina af hári af henni. Slðustu árin sem Elvis lifði, réð umboösmaöurinn hans, Tom Parker ekkert við hann. Hann reyndi að efna til uppþota hvar sem hann kom. Hann varð sifellt háðari eiturlyfjum og þjáðist af ofsóknarbrjálæði. Flestir vina hans höfðu snúið við honum bak- inu vegna siendurtekinna reiöi- og móðgunarkasta hans. — Hann var á stjörnuhimnun- um helming lifs sins, skrifaði Ruth Batchelor, en hann kunni aldrei að notfæra sér tækifærin. Þetta var ein sorgarsaga og það er ekki siður sorglegt að hinn raunverulegi Elvis, sá mikli per- sónuleiki, þrátt fyrir alla sina galla, skuli nú þegar orðinn gleymskunni að bráð. Eftir stend- ur aðeins goðsögnin, sem „fylgdarmennirnir” svokölluðu og aðrir „vinir” hamast við að sjóða saman.” Ruth Batchelor samdi bæöi lög og IjóO fyrir Elvis, og varö vör viO ýmislegt i þeim viöskiptum, sem hann hafDi alls enga hug- mynd um. Elvis Presley var mikill söngvari og haföi mikinn persónuleika til aö bera, en sjálfum kom honum þaö aldrei til hugar. SJ0NVARP Háski á hádegi í kvöld kl. 21.55 verður sýndur einn fræqasti vestri allra tima/ High Noon (Háski á hádegi) sem gerður var árið 1952. Með aðalhlutverk fara Gary Cooper og Grace Kelly. Leikstjór er Fred Zinnemann. Myndin gerist i smábænum Hedleyv lle árið 1870. Lögreglustjórinn er nýkvæntur og ætlur að halda á brott ásamt brúði sinni. Þá berast honum þau boð/ aö misindismaðurinn Frank Miller, sem þykist eiga lögreglustjóra grátt að gjalda, sé laus úr fangelsi og væntanlegur til bæjarins með hádegislestinni. Þýðandi Jón Thor Haraldsson. Skák dagsins Hvítur leikur og vinnur Karpov-Zsoldos, Ungverjaland 1973. 1. Rxe5!, Dxe2 2. Hf7 + , kh6 3. Hh8 + , Kg5 4. Hg8+„ Iíh4 5. Rg6+, Kg5 6. Re7 + , Kh4 7. Rf5 mát! Duglegur riddari þetta! Umsjðn Baldur Fjölnisson

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.