Alþýðublaðið - 01.02.1978, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 1. febrúar 1978
3
I heimsókn hjá blindum körfugerðarmanni í Hamrahiíðinni:
„Vil að fólk geri miklar
kröfur til framleidslu
Jakobi illa að anna eftirspurn. 1
gær voru til dæmis aðeins fá
sýnishorn til af framleiðslunni
hans og tveimur dögum fyrir jól
burfti hann að loka verzlun sinni
vegna þess að hvert einasta
stykki, sem hann hafði á boð-
stólum, seldist upp!
— Eg vil ekki að fólk geri aðr-
ar kröfur til þess sem ég geri,
bara af þvi að ég er blindur,
sagði Jakob. Ég vil að fram-
leiðsla min sé metin á sama
grundvelli og öll önnur fram-
leiðsla af þessari gerð, hvort
sem hún er komin frá blindum
eða sjáandi. Þetta segi ég við-
skiptavinum minum oft og bið
þá um að leggja fram gagnrýni
á körfurnar. Ekkert hjálpar
mér eins við að gera góða vöru
og félagaleg gagnrýni. Nú og ef
fólki likar ekki það sem hér
er, þá bendi ég þvi bara á
aðra staði i bænum. En oft er
það nú svo að sama fólkið kem-
ur hér aftur og fer til baka með
körfurfrá mér! Ég segi hiklaust
að ef fólk rekst á vonda fram-
leiðslu eftir blinda, þá á það
ekki að lita við henni. Við viljum
sitja við sama borð og aðrir!
Þá kom það fram i samtalinu
við Jakob, að hann hefur komið
vinnustofu sinni á fót af -sjálfs-
dáðum og greiðir alla skatta og
skyldur eins og hver fullsjáandi
maður. — Maður er þá tekinn
eins og venjulegt fólk á með-
an”! sagði hann og hló við.
—AHH
Mvndir: ATA
minnar”
I Alþýðublaðinu s.l.
föstudag var greint frá
heimsókn á vinnustofu
Blinra f élagsins við
Ingólfsstræti i Reykjavík
og kynnt starfsemi sú
sem þar fer fram, Á ein-
um stað í frásögninni
kemur það fram, að gerð
tágakarfa sé mikið ná-
kvæmisverk — sem og er
hverju orði sannara — en
hins vegar að þessi vina
sé „ekki á færi blindra".
Þar sem frásögn sú sem
til er vitnað er ekki verk
undirritaðs, skal ósagt
látið hvernig á fyrr-
greindri fullyrðingu
stendur, en hins vegar er
óhætt að slá því föstu að
hún er alröng og ómerk.
Um það sannfærðust
undirritaðir blaðamenn í
heimsókn hjá Jakobi E.
Kristjánssyni, eina iðn-
aðarmanninum á Islandi
sem hefur löggilt réttindi
í þeirri iðngrein að flétta
körfur úr tágum.
Jakob hefur vinnustofu að
Hamrahlið 17 i Reykjavik og er
algerlega blindur. Þrátt fyrir
fötlun sfna stenst framleiðsla
hans fyllilega samanburð við
aðra framleiðslu af þessu tagi,
innlenda sem erlenda og segir
það sina sögu, að oft gengur
Innflutningur dýrra kádiljáka:
Ekki neitt
,abstrakt’ dýrir
— segir framkvæmdastjóri
véladeildar SÍS
Er haft var samband við
Jón T. Jóhannsson fram-
kvæmdastjóra véladeildar
SIS og hann inntur eftir því
hvort rétt væri að verið
væri að flytja inn bíla
nokkra af Cadilacgerð í
sérstökum gæða-og verð-
flokki, vildi hann sem
minnst um það segja. Að
vfsu kvað hann einhvers-
staðar á leiðinni einhverja
bíla af Cadilac-gerð sem
ekki væru enn komnir til
afgreiðslu.
Ekki vildi Jón geta upp neitt
fast verð á bifreiðum þessum,
enda breyttist gengi dollars dag
frá degi, en sagði þá þó ekki vera
neitt dýrari en aðra bila i sama
gæðaflokki er fluttir væru inn til
landsins, sem sagt ekki neitt ,,ab-
strakt” dýra. Nefndi hann i þvi
sambandi Range Rower.
Jón sagði þá amerisku bila er
fluttir væru hingað til landsins yf-
irleitt vera ódýrari tegundir mið-
að við aðrar þarlendar, standard
Cadilac þyrfti t.d. ekki að vera
neitt dýrari en dýr Buic.
I tengslum við þá gjaldeyris-
örðugleika er íslendingar hafa
löngum átt við að glima og ekki
hvað sizt nú, hefur þeirri spurn-
ingu oft verið varpað fram, hvort
ekki væri þörf á þvi að tak-
marka innflutning ýmissa dýrra
munaðarvara. Þeim gjaldeyri
sem úthlutað er virðist og æði
misskipt. Á sama tima og auð-
stéttlandsins gefst kostur á kaup-
um bifreiða fyrir allt að einum
tug milljóna króna er námsmönn-
um erlendis ekki talin þörf á
gjaldeyri til framfærslu barna
sinna.
Manns
saknað
Benedikts Viggóssonar, vist-
manns á Kleppsspitala, hefur
verið saknað frá þvi á sunnudag.
Benedikt sem er 32 ára gamall fór
af spitalanum um kl. hálf fimm á
sunnudag og hefur ekkert til hans
spurzt siðan. Hann er um 170 cm á
hæð, með mislitt dökkskolleitt
hár, yfirvaraskegg og hökuskegg.
Benedikt var klæddur dökkbrúnni
úlpu með loðkraga og i brúnum
skóm. Venjulega notar hann gler-
augu, en var ekki með þau er
hann hvarf.
Þeir sem einhverjar upplýs-
ingar gætu gefið um ferðir Bene-
dikts Viggóssonar eru beðnir að
snúa sér til lögreglunnar i
Reykjavik.
Nýjung:
Nónkex með
súkkulaði.
Nónkex er heilhveitikex
hollt og gott,
enda Frónkex
KEXVE RKSMIÐJAN FRÓN