Alþýðublaðið - 01.02.1978, Síða 7

Alþýðublaðið - 01.02.1978, Síða 7
fSfíf?*' ,Miðvikudagur 1. febrúar 1978 7 Kvenfélag Alþýduflokksins í Reykjavík 40 ára: 2. hluti Baráttan fyrir betra þjódfélagi Þættir úr merkri sögu eftir Helgu Möller Þá hefur veriö höfð sýni- kennsla i fjölbreyttri matar- gerð, i jóla- og borðskreyting- um, móttöku gesta og lífgun úr dauðadái.svo þið sjáið að fél- agskonur láta sér ekkert mann- legt óviðkomandi. Og ekki má gleyma að Björgvin Guðmunds- son var leiöbeinandi á nám- skeiði um fundarsköp og fram- sögn. Annar stór þáttur i starfi fél- agsins er fjáröflun. Argjald var lengi vel æöi lágt, fyrsta árið 5 kr. en seinna lækkað i kr. 3 þar eð 5 kr. þótti of hátt. 1943 var það sprengt upp i 10 kr. úr 4 kr., 1968er árgjaldið 50 kr. en 1977 er það oröið 1000 kr. 1 fjöldamörg ár var bazarinn öruggasta fjáröflunarleiðin. Fyrsti bazar- inn var haldinn árið 1939 og gaf af sér 406,10 kr.sem hefur verið dágöð upphæö i þá daga. 1 bazarnefndinni hafa alltaf starfað hörkuduglegar félags- konur og unnið mikið og fórnfúst starf við undirbúning. Lengi vel komu bazarnefndarkonur sam- an einu sinni i viku i nokkra mánuði — seinna hálfsmánað- arlega og unnu við alls konar handavinnu, auk allra hinna er framleiddu muni heima hjá sér og gáfu á bazarinn. An allra þessara félagskvenna væri fjár- hagur félagsins ekki sá sem hann er í dag og kæmi það óhjákvæmilega niður á félags- starfinu. En þótt aðaldrif- fjaðrir Bazarnefndarinnar hafi verið þær Bergþóra Guðmunds- dóttir, Kristin Guðmunds- dóttir og Rosemarie Christ- iansen fór nú samt svo að 1975 var bazarinn endanlega lagður niður. Eldri konum i félaginu finnst það e.t.v. hrörnunarmerki en nú eru breyttir timar og aukin útivinna kvenna og þar af leiðandi minni tlmi til hannyrða á sinn þátt i þvi. En aðrar leiðir hafa verið reyndar i fjáröflunarskyni. Þar má nefna hin sivinsælu bingó og jafnvel flóamarkað og innan- félagshappdrætti. Einnig höfum við reynt fyrir okkur með jóla- kerta- og kortasölu. En liUar tekjur eru furðu drjúgaref rétter á haldið ogmá raunar teljast furðulegt að eng- in kona skuli hafa tekið að sér að sjá um rikiskassann fræga, svo vanar sem þær eru að halda fast um létta sjóði. Kvenfélag Alþýðuflokksins hefur látið mikið af hendi rakna til ýmissa liknar- og menning- armála og i ýmsa minningar- sjóði þessi 40 ár. 1 erlendar safnanir hefur verið gefiö s.s. til Noregssöfnunar, til Barna- hjálpar Sameinuðu þjóöanna, i Ungverjalandssöfnunina og til nauðstaddra barna i Alsir. Á lOára afmæli sínu gaf kven- félagið Alþýðublaöinu sendi- ferðabil. Verð bilsins var kr. 12.273.91 ,,að viðbættu verði númersins” og þegar félagið varð 20 ára gaf það blaðinu vandað viðtæki. Einnig var til skammstima alltaf gefið i kosn- ingasjóði flokksins. A þessum timum óðaverðbólgunnar hefur verið hugsað til fjárfestingar. 1974 keypti félagið rikistryggð skuldabréf að upphæð kr. 100.000.00.12. aprfl 1977 voru þau að verðmæti kr. 670.365..00. Ein fjáröflunarleiö er enn ónefnd þótt ágóðinn hafi ekki runnið tfl kvenfélagsins. Það er 1. mai kaffið svonefnda. Kven- félagið hefur haft forgöngu um það ásamt hópi fólks úr flokks- fél. og konum úr kvenfélaginu. Lengi vel rann ágóðinn til kosn- ingasjóös fulltrúaráðsins en sið- ustu árin hefur ágóðinn runnið til Alþýðuflokksins, m.a. hefur verið keyptur Offset-fjölritari sem geymdur er á flokksskrif- stofunum i Reykjavik. Þá er komið að meginvið- fangsefni félagsins, fundarhaldi og samkomum. Ýmsar breyt- ingar i þjóöfélaginu hafa orðið til þess að erfiöara er að halda uppi góðu félagsstarfi nú. Kem- ur þarýmislegttil, margs konar tómstundastarf fyrir fullorðna á vegum borgarinnar og félaga- vinnu viö samtök neytenda i landinu”. Samkomur félagsins hafa verið eins og gengur og gerist i öðrum félögum. Árshátiöir og sumarfagnaöir voru árlegir við- burðir og var þá jafnan glatt á hjalla. Oft lásu félagskonur upp frumsamin ljóð og sögur. 1 gamalli fundargerð er minnst á „þjóðlegt en nokkuö fágætt skemmtiatriði”, en það var hagyrðingaþáttur i umsjá nokk- urra félagskvenna. En hin sið- ari ár hafa árshátiðir legið niðri en i' staöinn verið haldinn góu- fagnaður sem tekist hefur með afbrigðum vel. Til að sporna við óhollum áhrifum frá bióunum' voru haldnar barnaskemmtánir i nokkur ár, einnig gekkst félagið fýrir jólatrésskemmtunum fyrir börn í samvinnu við Alþýðu- flokksfélag Reykjavíkur. Þá má ekki láta hjá liöa að minnastá hinar vinsælu, árlegu skemmtanir i Iðnó fýrir aldrað fólk. Þær tókust jafnan afarvel en vegna minnkandi þátttöku eldra fólksins, m.a. vegna margháttaðrar starfsemi fyrir aldraða hin siðari ár var ákveð- ið að leggja þær niður árið 1969 og höfðu þær þá verið haldnar i 16 ár. Þær Pálina Þorfinnsdótt- ir, Oddfriður Jóhannsdóttir og Guðrún Siguröardóttir settu i upphafi ákveðið svipmót á þess- ar skemmtanir sem hélst öll ár- in. Ferðalög hafa verið farin svo til á hverju sumri. Hafa þau veriðsérlega ánægjuleg og þátt- taka jafnan góö. Feröalangar hafa fariö viða um landið og veðurguðirnir oftast veriö þeim hliðhollir. Þær félagskonur er veg hafa haft og vanda af þess- um ferðalögum eru Pálina Þorfinnsdóttir, Katrin Kjart- ansdóttir, Guðrún Steingrims- dóttir og siðast en ekki sizt Aldis Kristjánsdóttir og til aðstoðar haft Aslaugu Jóhannsdóttur. En félagskonur hafa ekki eingöngu gert viðreist um eigið land. 1948 fór Soffi'a Ingvarsdóttir til Kauþmannahafnar á mót nor- rænna jafnaðarkvenna. Guðný Helgadóttir sat landsþing norskra jafnaðarkvenna i Osló 1957. Þá var Soffiu Ingvars- dóttur boöið aö sækja kynning- armót vestur-þýskra jafnaöar- kvenna i Bonn 1960 og alþjóö- aþing jafnaöarkvenna i Amsterdam ’63. Sögðu þær jafnan frá feröum sinum á fél- agsfundum er heim var komið og varð gerður góöur rómur aö. Jólafundir félagsins hafa allt- af verið nokkuð frábrugönir öðrum fundum hjá okkur — og oftast bezt sóttir. Hafa þeir jafnan verið mjög hátiölegir og félagskonur sjálfar haft með höndum flutning dagskrár hverju sinni og lagt mikla vinnu i undirbúning enda haft erindi sem erfiði. Arið 1943 er þess i fyrsta sinn getið að stjórn Kvenfélags Alþýðuflokksins i Hafnarfiröi hafi þegið boð félagsins um að sitja fund þess 5. april og er það upphaf góðra kynna sem haldist hafa sfðan, lágu að visu niðri um skeið, en upphófust aö nýju ’72 er um 20 konurúr kvenfélaginu i Hafnarfirði komu á félagsfund hjá okkur. Sú heimsókn var endurgoldin skömmu siðar og tókust báðir fundirnir mjög vel, efldu gagnkvæma kynningu og samvinnu. Ein sameiginleg leikhúsferð á vetri hefur siðan verið á starfsskrá félaganna. I nokkur ár var þaö einnig á starfsskrá félagsins aö fara kynnisferöir á vinnustaði til að fá hugmynd um það sem fram færi ásviöi iðnaðarins. Var far- ið i nokkrar verksmiðjur. Það tiðkaðist einnig um tima aö fara i heimsóknir á elliheimili og spjalla við gamla fólkið eða lesa fyrir það. Þótti félagskonum það bæði lærdómsrikt og ánægjulegt. fundiog meö öörum flokksfélög- um. Hafa fundirnir yfirleitt ver- ið haldnir i Ingólfscafé en ann- ars i Iðnó (uppi) eða fundarsal Alþýðubrauðgerðarinnar meö- an Oddfriðar Jóhannsdóttur naut við. Hafa forráðamenn Alþýðuhússinshf. verið félaginu afar vinsamlegir og lánaö sali og eldhús endurgjaldslaust. Avallt hefur verið leitast við að hafa fundina sem fjölbreytileg- asta og umfram allt vandaða. Af fundarefni ber fyrst að nefna flokksmál og stjórnmála- viöhorf hvers tima. Þingmenn flokksins, ráðherrar og aðrir forystumenn og konur hafa allt- af gefið sér tima til að koma á fundi félagsins til að kynna og ræða þau mál er efst eru á baugi. Hafa þau rætt m.a. um efnahagsmál og hið „dular- fulla” fyrirbæri visitöluna, atvinnumál, verkalýösmál, úr- slit alþingis-, bæjar- og borgar- stjórakosninga, húsnæðismál, almannatryggingalöggjöfina, sameiningarmál, verðlagsmál og drög að nýrri stefnuskrá, og ómagann, Alþýðublaðiö. Margar samþykktir hafa ver- ið gerðar og mikið sent af tillög- um og áskorunum til styrktar menningar- og framfaramálum ef aðlögum yrði, fengist leiörétt óviöunandi misrétti i skatta- málum sem ekki er hægt að þola lengur”. A fundi 3. feb. 1953 voru þess- ar samþykktir geröar: 1) Kven- félag Alþýðuflokksins i Reykja- vik skorar á bæjarstjórn Rvk i sambandi við fjárhagsáætlun næsta árs að hlutast til um að komið veröi upp hentugum leiguibúðum fyrir einstæðar mæður i ibúðarhúsasambygg- ingum, sem bæjarfulltrúar Alþýðuflokksins leggja til að verði byggðar. Jafnframt skal bent á nauðsyn þess að i námunda við slikar sambygg- ingar verði staösett dagheimili fyrir börn svo og vöggustofa”. 2) „Kvenfélag Alþýðuflokksins skorar á bæjarstjórn Rvk aö gera ráð fyrir á næstu fjárhags- áætlun sérstökum gjaldlið, sem ætlaður verði til undirbúnings og starfrækslu mæöraheimilis, þar sem einstæðar mæður og aðrar konur, er hafa slæmar heimilisástæður, geta dvaliö stuttan tíma fyrir og eftir barnsburð”. 1960 var samþykkt einróma: „Fundur haldinn i Kvenfélagi Alþýðuflokksins i Reykjavik 1. nóv. 1960 lýsir ánægju sinni yfir um aösamþykkja frumvarpið”. Heilbrigöismál hafa oft verið til umræðu og þekktir læknar mætt á fundum félagsins, Halldór Hansen yngri flutti er- indi um geðheilsu og geðvernd barna svo dæmi sé nefnt. Uppeldis- og skólamál hafa einnig oft verið til umræðu og margar áskoranir um leikskóla, dagheimili og leikvelli verið sendar. Ýmsir skólamenn hafa komið og flutt erindi um skóla- og fræðslumál, t.d. flutti Jónas Pálsson erindi um sálfræðideild skóla og Brandur Jónsson erindi um Heyrnleysingjaskólann. Þá hafa Neytendasamtökin verið kynnt i félaginu. Mjólkur- sölumál verið rædd og önnur hagsmunamál neytenda. Á fundi i júni 1951 var samþykkt: „Fundur Kvenfélags Alþýðu- flokksins haldinn 5. júni 1951 mótmælir harðlega nýafstað- inni ólöglegri hækkun á útsölu- verði mjólkur og tekur undir þá kröfu fulltrúa neytenda i verð- lagsnefnd að hver litri mjólkur verði aftur lækkaður um 13 aura. Fundurinn telur þaö óhæfu að framleiðsluráð land- búnaðarins gangi inn á þá braut að stórhækka verð á slikri nauö- synjavöru almennings án sam- samtaka, aukin vinna kvenna1 utan heimila og svo hinn titt- nefndi sökudólgur lélegrar þátt- töku i félagsstarfi — sjón- varpið — með sina astona og hudsona. 1 fundargerð frá 29. jan. 1971 má sjá að hald- inn hafði verið sérstakur fundur i kvenfélaginu um fund- arsókn og starf félagsins. Eftirfarandi var þá skráö: „Kreppa virðist einkenna allt félagslif og okkar félag fer ekki varhlutaaf þvi. Fundarsókn svo léleg að jafnvel jólafundir með skemmtiatriöum og kaffi og gómsætum kökum megnuöu ekki að fá konurnar til aö fjölmenna”. Stjórn félagsins hefur ávallt lagt rika áherzlu á að finna nýj- ar leiðir til aö örva þátttöku kvenna í félagsstarfinu, s.s. með kosningu nefnda til að sjá um einstaka fundi. Frá upphafi hefur þeirri meg- instefnu verið fylgt að halda reglulega fundi einu sinni i mánuði bæði sérstaka félags- bæöi til Alþingis, borgarráös o.fl. aöila. Á fundi I félaginu i nóv. 1951 voru t.d. eftirfarandi tillögur samþykktar: „Fundur Kvenfél- ags Alþýðuflokksins i Rey kjavik haldinn 6. nóv. 1951 skorar á Alþingi það, sem nú situr, aö samþykkja frumvarp til laga sem Gylfi Þ. Gislason alþingis- maður flytur, um breytingar á lögum nr. 6 9. jan. 1935 um tekjuskatt og eignaskatt, varð- andi sérsköttun hjóna. Núver- andi ákvæði i skattalögunum um samsköttun hjóna veldur óeðlilega miklum skattþunga á fjölskyldufólki i samanburði við einhleypa og er þvi um mikib hagsmunamál alls þorra heim- ila að ræða, jafnframt sem i nú- gildandi skattalögum felst augljóst ranglæti i garð giftra kvenna. Fundurinn álitur nauö- synlegt að endurskoöa skatta- löggjöfina i heild, en jafnvel, þó það yrði gert svo fljótt sem auð- ið er, telur fundurinn að með frumvarpi Gylfa Þ. Gislasonar, frumvarpi um launajöfnuð kvenna og karla fluttu af þing- mönnunum Jóni Þorsteinssyni, Eggert G. Þorsteinssyni og Friðjóni Skarphéðinssyni. Jafn- framt skorar fundurinn á Alþingi það er nú situr að störf-

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.