Alþýðublaðið - 03.02.1978, Side 1
Gengisfelling um helgina?
—adgerdir í gjaldeyrismálum benda til þess að „ráðstafanir” af því
tagi taki gildi næstu daga
„Þaö er meö sam-
komulagi milli Seöla-
bankans og gjaldeyris-
bankanna, að í dag hefur
verið gripið til aðgerða til
að hægja á afgreiðslu er-
lends gjaldeyris. Þetta
sama hefur oft skeð áður,
undir svipuðum kringum-
stæðum, að hver og ein
gjaldeyrisumsókn er tek-
in til nánari athugunar,
áður en hún er afgreidd.
Ég býst við að þetta standi
fram að helgi.
Ég á ekki von á stórtiðindum i
fyrramálið, þótt aldrei sé hægt
að segja til um slikt fyrirfram.
Hins vegar er ekki hægt aö
segja nokkuð með vissu um
helgina og dagana eftir morg-
undaginn. Það er jú á allra vit-
orði að rikisstjórn og allir þeir
sem um efnahagsmál fjalla,
hafa fundað mikið og rætt hugs-
anlegar aðgerðir og einhvern-
tima verða þær hafnar, hvenær
sem það svo verður”, sagði
Davið Ölafsson, seðlabanka-
stjóri, i viðtali við Alþýðublaðið
i gær.
Davið vildi ekki tjá sig um
hvort gengislækkun væri nú yf-
irvofandi eða ekki. Það væri
ekki á hans færi.
Þessi „hægagangur” á gjald-
eyrisafgreiðslu, sem um var
samið milli Seðlabankans og
gjaldeyrisbankanna, var i gær
raunar alger lokun, i það
minnsta um tima. Alþýðublaðið
talaði i gær við viðskiptaaðila,
er reyndu að fá afgreiddan
gjaldeyri til útleysingar á vör-
um, þar á meðal einn, sem þeg-
ar hafði fengið gjaldeyrisum-
sókn sina samþykkta og frá-
gengna að öllu öðru leyti, en
fékk samt það svar að gjaldeyr-
isafgreiðslan i Landsbankanum
væri einfaldlega lokuð.
Undanfarið hefur sá orðróm-
ur orðið æ sterkari að yfirvof-
andi væri gengislækkun krón-
unnar, sem upphaf á ráðstöfun-
um i efnahagsmálum. Þessi
orðrómur hefur getið af sér
skriðu spákaupmennsku, i þvi
formi að fólk flýtir sér að leysa
út þann gjaldeyri sem það kann
að fá. til að fá hann á núgild-
andi verði. Þessar aðgerðir, að
hægja afgreiðslu gjaldeyris, eru
að hluta til ætlaðar til að stöðva
slika spámennsku og er þeim
gefið það yfirskyn frá hendi
stjórnvalda.
Hins vegar telja margir þeir,
sem vel eru kunnugir banka-
málum og efnahagsmálum, að
Frh. á 10. slðu
Greinargerð viðskiptarádherra
í Landsbankamálinu:
Starfshættir endurskoð-
unardeildar bankans
endurskoðaðir
— sjá baksíðu
Dönsku innstæðurnar:
Nýjar fréttir af
gjaldeyrismálinu
væntanlegar
— verða nöfnin loks birt
„Við erum með fréttatil-
kynningu í smiðum um
málið og er ekki enn vitað
hvort hún verður send út i
dag eða á morgun, eða eft-
ir helgina," sagði Björn
Tryggvason, aðstoðar-
bankastjóri við Seðlabank-
ann, þegar Alþýðublaðið
innti hann eftir hvernig
rannsókn á innstæðum i
dönskum bönkum gengi.
Spurningin var borin fram
vegna þeirra ummæla banka-
málaráðherra, Ólafs Jóhannes-
sonar, á Alþingi i gær, að til
greina kæmi að birta nöfn þeirra,
sem berir hefðu orðið að brotum á
gjaldeyrislögum, vegna þessara
mála.
Björn sagði að svör væru farin
aö berast við bréfum þeim, sem
gjaldeyriseftirlitiö sendi eigend-
um reikninganna i dönskum
bönkum og væri innstæðunum
skipt i þrjá flokka. t fyrsta
flokknum er fólk, sem rétt hefur á
að eiga fé sitt á þennan hátt á
hinum danska reikningi, vegna
þess að það hefur einhvern
erlendan bakhjarl, eru danskir
rikisborgarar o.s.frv. 1 annan
flokkinn er þeim skipað, sem gert
verður ýmist að selja gjaldeyr-
inn, eða leggja hann inn á hinn is-
Framhald á bls. 10
Kjaradeila blaðamanna:
Kosið um heimild til
verkfallsboðunar
I gær var haldinn fjöl-
mennur félagsfundur í
Blaðamannafélagi ís-
lands. Á fundinum voru
kröfur félagsins á hendur
blaðaútgefendum skýrðar
félagsmönnum.
Á fundinum var kosin
þriggja manna kjörstjórn
sem hefur nú ákveðið alls-
herjaratkvæðagreiðslu fé-
lagsmanna B! um heimild
stjórnar til verkfallsboð-
unar í yfirstandandi kjara-
baráttu.
Kosið verður í skrifstofu
félagsins að Skólavörðu-
stig 12, 4. hæð, í dag, föstu-
dag frá klukkan 9—24 og á
morgun laugardag, frá
klukkan 9—18.
Þessi gamla bryggja i Keflavik hefur vafalaust þjónað sinum tiigangi og
gott betur, en hún er sennilega ein fyrsta bryggjan sem byggð er á Suður-
nesjum og þeir eru vist ófáir bátarnii;sem hafa landað þarna afla sinum
og fært þjóðarbúskapnum verðmæti. (AB mynd KIE)
- ---------------