Alþýðublaðið - 03.02.1978, Blaðsíða 9

Alþýðublaðið - 03.02.1978, Blaðsíða 9
sssr Föstudagur 3. febrúar 1978 9 m*t& G jaf ir í olympíu sjóðinn Sovézkur almenningur tek ur þátt F undirbúningi OL-80 Meöal þeirra/ sem síðast veittu viðtöku gullminnis- merki, sem veitt er fyrir að leggja fram í sjálfboða- vinnu og án endurgjalds a.m.k. 225 stundir f bygg- ingarvinnu við olympíu- mannvirkin í Tallin, er Erik Palm. Afhendingar- athöfnin fór fram i skrif- stofu undirbúningsnefndar 01-80 í höfuðborg Eistlands, þar sem sigl- ingakeppnin á næstu olympíuleikum mun fara fram. Framlag Palms nam yfir 675 vinnustund- um. Ekki aðeins gullmerki heldur og silfurmerki (fyr- ir 75 stunda vinnu) og bronsmerki (25 stunda vinna) hafa verið veitt mörgum samborgurum Plams, i viðurkenningar- skyni fyrir framlag þeirra. Hugmyndin að halda olympiuleikana í Sovétríkjunum nýtur víð- tæks stuðnings allra stétta i landinu. Ibúar margra sovéskra borga og sveita- héraða — þ.e. ekki aðeins olympíuborganna Moskvu, Tallin, Kiev, Minsk og Leningrad — lýsa sig þess albúna að leggja fram sinn skerf til undirbúnings OL- 80. Æskulýðurinn skipuleggur byggingar flokka, sem halda til olympiuborganna (að sjálfsögðu aðallega til Moskvu þar sem mest byggingarvinnan fer fram), og fá heimild til starfa hjá sérstökum aðalstöðvum, sem settar hafa verið á fót til þess að hafa yfir- umsjón með forgangsverkefnum vegna olympiuleikanna. „Starfs- mannastjórinn”, A. Jefimov, seg- ir, að frá þvi i ágúst 1976 hafi yfir 12.000 ungir byggingamenn komið til Moskvu frá öllum sambands- lýðveldunum. Þeirerunúað reisa stærstu olympiumannvirkin, t.d. innanhúsleikvang, sem tekur 45 þúsund manns i sæti, i grennd við friöartorgið, miðstöð fyrir reiðmennskuiþróttir i Bitsevotr jágarðinum, og hjólreiðabraut af nýrri gerð i Krjlatskoje. Hinn mikli áhugi á þvi, aö olympiuleikarnir 1980 fái góðan framgang, birtist i ýmsum mynd- um. Hinn frægi söngvari Muslim Magomajev, þjóðlistamaður Sovétrikjanna, hefur gefið ágóð- ann af einum tónleika sinna — 8.942 rúblur — i olympiusjóðinn. Hann segir: „Þetta er fyrsta framlag mitt til undirbúnings Moskvuleikunum. Ég hef i hyggju að æfa nýja tónleikadagskrá og e.t.v. að semja söng um iþróttir og olympiukeppendur fyrir árið 1980”. Söngkonan Edith Pjetsja og ýmsir listamenn hafa fylgt fordæmi Magomajevs. Allt þetta fé er lagt inn á sérstakan reikn- ing, nr. 700616, i rikisbanka Sovétrikjanna. Reikningurinn var opnaður þegar í mars 1975 aö beiðni sovésks almennings, sem vildi leggja fram fé til styrktar olympiu- leikunum i Moskvu. Þessi framlög koma frá fólki á öllum aldri, i öllum starfsgreinum, og að sjálfsögðu eru upphæðirnar misháar. t bréfi frá Kurantovbörnunum i Sotsji segja Natasja, sem er i þriðja bekk, og Andrei, sem er i áttunda bekk, að þau sendi rikisbankanum 107 rúblur, sem þau hafi unnið sér inn á heilu ári fyrir að safna saman rusli og ónýtur pappir. Meðal annarra gefenda i olympiusjðð- inn eru Taisia Tsjursina frá Tasjkent, sem tók þátt i fyrstu þjóðarleikunum árið 1928, en er nú kunnur læknir i Uzbekistan, Pavel Petrof frá Sakjalin, áhuga- maður um lyftingar, og Nikolai Gvozdovski, starfsmaður við Gromadskaja-járnbrautarstöö- ina i Krasnojarskhéraði i Siberiu. Margar hópgjafir berast nú bankareikningi nr. 700616. T.d. 416 rúblur frá verkamönnum við Zjilstroi-byggingafyrirtækið i Moskvu, og 205 rúblur frá stúdentum við læknaháskólann i Jerevan. Stærri upphæðir berast einnig, t.d. nam framlag Siberiu iþrótta- klúbbsins i Novosibirsk 5000 rúbl- um. En það sem safnast i þennan sjóð hrekkur að sjálfsögðu aðeins fyrir litlum hluta af heildarkostn- aðinum við olympiuleikana. Aðalatriðið er að þessar gjafir sýna stuðning allrar sovésku þjóðarinnar við Moskvuleikana. Annað dæmi um þennan stuðn- ing er frumkvæði stúdentahóps við Plekjanof hagfræðistofnunina i Moskvu, sem stúdentar við margar menntastofnanir i sovésku höfuðborginni og öðrum olympiuborgum hafa tekið eftir. Plekjanovstúdentarnir eru ákveðnir i þvi að hafa 3000 manna sveit reiðubúna árið 1980 til þess að veita ýmsa þjónustu á olympiuleikunum, svo sem til starfa við verslanir og til þess að aðstoða við ýmsa aðra almenna þjónustu. Deildirstofnunarinnar i erlendum tungumálum og á svið’ opinberrar þjónustu hafa þegar skipulagt sameiginlega námskeið til þess að þjálfa stúdenta til þess- ara starfa. Nikolai Vasiljev, starfsmaður i máliðnaði, og félagar hans á rannsóknarstofu i Leningrad hafa með Moskvuleikana i huga smið- að módel af „rafeindanuddara”, tæki sem sent hefur verið undir- búningsnefnd OL-80. Nefndinni hefur smám saman borist ara- grúi af hugmyndum, tillögum og ábendingum i pósti og simskeyt- um frá öllum hlutum landsins. Margar þeirra eru þegnar með þökkum af þeim sem veita kom- andi olympiuleikum forstöðu. Af hinum fjölmörgu gjöfum i olympiusjóðinn má ráða að sovésk alþýða liti ekki aðeins á olympiuleikana 1980 sem hátiðis- daga, heldurog sem sameiginlegt málefni sitt. spékoppurínn / / , 229 l' 1 Þú getur nú sett hann i arininn áður en þú byrjar að rifast. Utvarp Föstudagur 3. febrúar 7.00 Morgunútvarp Veður- fregnir kl. 7.00, 8.15og 10.10. Morgunleikfimi kl. 7.15 og 9.05. Fréttirkl. 7.30, 8.15 (og forustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.50. Morgunstund barnanna kl. 9.15: Þorbjörn Sigurðsson les sögu af ódisseifi i endur- sögn Alan Bouchers, þýdda af Helga Hálfdanarsyni. Tilkynningar kl. 9.30. Þing- fréttirkl. 9.45. Létt lög milli atriða. Þaö er svo margtkl. 10.25: Einar Sturluson sér um þáttinn. Morguntónleik- arkl. 11.00: Shmuel Ashke- nasi og Sinfóniuhljómsveit Vínarborgar leika Fiðlu- konsert nr. 1 op. 6 eftir Paganini, Heribert Esser stj./ Sinfóniuhljómsveitin i Cleveland leikur „Dauöa og ummyndun”, sinfóniskt ljóð eftir Richard Strauss, Ge- orge Szell stj. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Veöurfregnir og fréttir. Tilkynningar. Við vinnuna: Tónleikar. 14.30 Miðdegissagan: „Maður uppi á þaki” eftír Maj Sjö- wall og Per Wahlöö Ólafur Jónsson les þýðingu sina (4). 15.00 Miðdegistónleikar Studio-hljómsveitin i Berlin leikur „Aladdin”, forleik op. 44 eftir Kurt Atterberg, Stig Rybrant stjórnar. Willy Hartmann og Konunglegi danski óperukórinn syngja tónlist úr leikritinu „Einu sinni var” eftir Lange-Mull- er. Konunglega hljómsveit- in I Kaupmannahöfn leikur með; Johan Hye-Knudsen stjórnar. Konunglega fíl- harmoníusveitin i Lundún- um leiki.r oolka og fúgu úr óperunni „Schwanda” eftir Weinberger, Rudolf Kempe stjórnar. 15.45 Lesin dagskrá næstu viku 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregnir). 16.20 Popp. 17.30 tltvarpssaga barnanna: „Upp á lff og dauða” eftir Ragnar Þorsteinsson Björg Arnadóttir les (6). 17.50 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veöurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 Viöfangsefni þjóöfélags- fræða Dr. Þórólfur Þór- lindsson lektor flytur erindi um framlag félagsfræðinn- ar. 20.00 Nýárstónleikar danska útvarpsins Flytjendur: Sinfóniuhljómsveit útvarps- ins, Rony Rogoff, Charles Senderovitz, Gunnar Tag- moseogArneKarecki fiðlu- leikarar, og Jörgen Ernst Hansen orgelleikari. a. Konsert I h-moll fyrir f jórar fiðlur og strengjahljóðfæri eftir Antonio Vivaldi. b. Þrir sálmaforleikir eftir Dietrich Buxtehude. c. Konsert i a-moll fyrir fiðlu og strengjahljóöfæri eftir Jo- hann Sebastian Bach. d. Prelúdia og fúga i e-moll eftir Nicolaus Bruhns. e. Konsert i d-moll fyrir tvær fiðlur og strengjahljóöfæri eftir Bach. 21.00 Gestagluggi Hulda Val- týsdóttir stjó'rnar þættinum. 21.55 Kvöldsagan: „Sagan af Dibs litla” eftír Virginiu M. AlexineÞórir S. Guöbergs- son les þýðingu sina (8). 22.20 Lestur Passiusálma Guöni Þór Ölafsson nemi I guðfræðideild les (10). 22.30 Veðurfregnir. Fréttir. 22.50 Afangar Umsjónar- menn: Ásmundur Jónsson og Guðni Rúnar Agnarsson. 23.40 Fréttir. Dagskrárlok. Sjónvarp Föstudagur 3. febrúar 20.00 Fréttír og veður 20.30 Auglýsingar og dagskrá 20.35 Eldvarnir á vinnustað 1 þessari fræðslumynd er sýnt, hvernig ber aö varast og hvað að gera, ef eldur kviknar. Þulur Magnús Bjarnfreðsson. 20.50 Kastljós (L) Þáttur um ii;nlend í.nálefni. Umsjónar- maður Ómar Ragnarsson. 21.50 Niðursetningurinn Kvik- mynd frá árinu 1951 eftir I.oft Guðmundsson ljós- myndara. Leikstjóri er Brynjctfur Jóhannesson, og leikur hann jafnframt aðal- hlutverk ásamt Bryndisi Pétursdótiur og Jóni Aðils. Myndin er þjóölifslýsing frá fyrri timum. Ung stúlka kemur á sveitabæ. Meðal heimilismanna er niður- setningur, sem sætir illri meðferð, einkum er sonur bónda honum vondur. Á undan N iðursetningnum verður sýnd stutt, leikin aukamynd, sem nefnist Sjón er sögu rikari. Aðalhlutverk leika Alfreð Andrésson og Haraldur A. Sigurðsson. 23.00 Dagskrárlok. Ætlarðu enn að þræta fyrir að þú biistrar i svefni? Siggi, viltu halda tólinu uppi svo ég geti heyrt reikni- og ritvélaniðinn á skrifstofunni.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.