Alþýðublaðið - 03.02.1978, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 03.02.1978, Blaðsíða 2
2 Föstudagur 3. febrúar 1978 Hugmyndasam- keppni um adal- skipulag Mosfells- hrepps í Kjósarsýslu Á undanförnum árum hefur þéttbýli í Mosfells- hreppi aukist mjög og fólksf jölgun orðið mikil. 1. des. 1976 mun íbúatalan hafa verið sem næst 2000 manns/ en var 1970 um 1000 og aukningin því verið ná- lega 100% á þessum 6 ár- um. Gert er ráð fyrir 10,9% meðaltalsfjölgun á ári frá 1976-1980. Byggðin hefur þróast að mestu sam- kvæmt bráðabirgðaskipu- lagi, en heildarskipulag ekki legið fyrir. Sveitar- stjórnin samþykkti á síð- astliðnu ári að gert skuli heildarskipulag af hreppn- um og eins konar landnýt- ingaráætlun, en Mosfells- hreppur er nú um 20 þús. hektarar að stærð. Sam- þýkkt var á s.l. ári að verk þetta skýldi boðið út i sam- keppni. I tillögum Skipulagsnefndar hreppsins er gert ráð fyrir að taka fyrir þann hluta, sem fyrir- sjáanlega byggist þéttri byggð á næstu árum, en það er svæðið i námunda við Vesturlandsveg, þar sem hann liggur um hrepp- inn. Ennfremur er gert ráð fyrir að gerðar verði tillögur um önnur byggileg svæði, sem væntanlega munu risa siðar og hvernig nýta skuli fellin og heiðina, þ.e. Mos- fellsheiði. Verðlaunaupphæð er 5 milljónir króna og 1. verðlaun verða minnst 2.5 milljónir. Auk þess hefur dómnefndin eina miiljónkróna til umráða til kaupa á tiliögum. Á s.l. hausti var kosin dómnefnd i samráði við Skipu- lagsstjórn rikisins og Arkitekta- félag íslands, sem unnið hefur að þvi að semja útboðslýsingu fyrir samkeppnina. Gert er ráð fyrir að þátttakendur skili tillögum eigi siðar en 17. mai 1978. 1 dómnefndinni eiga sæti af hálfu Skipulagsstjórnar rikisins Aðalsteinn Júliusson, Vita- og hafnarmálastjóri, formaður, af hálfu Arkitektafélags Islands Helgi Hjálmarsson og Gylfi Guðjónsson, arkitektar, en af hálfu Mosfellshrepps þeir Jón M. Guðmundsson, oddviti, og Magnús Sigsteinsson, formaður Skipulagsnefndar hreppsins, en varamenn þeirra eru Sæberg Þórðarson og Anna S. Gunnars- dóttir. Þá hafa starfað með nefndinni þeir Jón Baldvinsson, sveitarstjóri, Magnús Ólafsson, byggingafulltrúi, Róbert Péturs- son, arkitekt, og Zóphanias Páls- son, skipulagsstjóri, sem er ritari nefndarinnar. Trúnaðarmaður dómnefndar- innar er Ólafur Jensson, framkvæmdastjóri, Kjartansgötu 2, Rvk., og afhendir hann samkeppnisgögn gegn 10 þús. króna skilatryggingu. Þátttökurétt i keppninni hafa allir tslendingar og útlendingar, sem starfa hér á landi. (Fréttatilkynning) Frá námskeiði umsjónarmanna safnaöanna i desember si. Vottar Jehóva þinga Vottar Jehóva halda nú um helgina tveggja daga mót í samkomusal sínum aö Sogavegi 77, Reýkjavik. Mót sem þetta eru haldin tvisvar á ári, auk f jögurra daga móta sem haldin eru einu sinni á ári. Mót þessi eru liður i al- þjóölegri fræöslustarfsemi votta Jehóva, sem fram fer í 216 löndum og eyja- klösum. Einn liður ialþjóö- legu starfi votta Jehóva er námskeið fyrir umsjónar- menn safnaðanna, sem haldið var í Reykjavík um miðjan desember siðastlið- inn. Sátu það umsjónar- menn safnaðanna á Akur- eyri, í Keflavík og Reykja- vik og voru þeim gefnar þar leiðbeiningar um kennslu i söfnuðunum og leiðir til að veita meðlim- um þeirra persónulega að- stoð. Tilgangur mótsins nú um helg- ina mun vera að sýna fram á hag- nýtt gildi bibliunnar i hinu dag- lega lifi og verða i þvi skyni flutt fjölmörg erindi ásamt stuttum samræðu- og viðtalsþáttum. Að sögn Guðmundar H. Guðmunds- sonar fundarstjóra mótsins gera vottar Jehóva sér grein fyrir þeim margvislegu vandamálum sem ungt fólk á við að glima og reyndi söfnuðurinn þess vegna að hjálpa þvi að yfirstiga þau, svo og að hjálpa þvi að stefna markvisst að þvi að verða heiðarlegir og dugandi þjóðfélagsþegnar. Þann- ig verður heilu kvöldi á mótinu varið til að fjalla um málefni ungs fólks og til að hjálpa þvi að sjá hvernig Biblian getur mótað lif þess og framtið. Aðalræða mótsins verður flutt á sunnudag klukkan 14:00 og nefn- ist hún „Gangið veginn til lifs.” Runebergs- vaka í Nor- ræna húsinu Sunnudaginn 5 febrúar efnir Suomifélagið til ár- legrar Runebergsvöku í Norræna húsinu og hefst hún kl. 20.30. Þessi dagur er haldinn hátíðlegur meðal finna, vegna fæð- ingar þjóðskálds þeirra, Jo- hans Ludvigs Runebergs. Á liðnu ári voru 100 ár liðin frá dauða Runebergs, en hann fæddist árið 1804. Þess má geta að hið fagra Ijóð hans Vort land, vort land, hefur verið þjóðsöng- ur finna i 130 ár. Ðagskrá kvöldvökunnar er á þá leið, að i upphafi flytur formaður félagsins, Barbro Þórðarson, ávarp, en að þvi loknu flytur finnski bókaútgefandinn Rauno Velling hátiðarræðu, en hann er kominn hingað til lands i boði Norræna hússins. Þvi næst munu listamennirnir Sigfús Halldórs- son og Guðmundur Guðjónsson óperusöngvari skemmta, en að loknum leik og söng þeirra félaga kemur góðskáldið Jón úr Vör og frumflytur eigin ljóð og þýðingar sinar á kvæðum finnsku skáld- konunnar Edith Söndergren. Loks verður tizkusýning, þar sem finnskar -konur sýna fatnað frá heimalandi sinu. m.a. Mokka kápur. Áður en vakan hefst verður aðalfundur félagsins og hefst hann klukkan 20.00. Stjórn félags- ins Suomi félagsins skipa Barbro Þórðarson form, Hjálmar ólafs- son varaformaður, Sigurjón Guðjónsson ritari, Benedikt Bogason gjaldkeri, Christel Þorsteinsson, Sigurður Thorodd- sen og Valdimar Helgason. —GEK. Þriðja ársrit Útivistar komið ,,Utivist", ársrit félags- ins Utivistar, fyrir árið 1977, er komið út. i blaðinu, sem er áttatíu síður, auk kápusíðna, er allfjölbreytt efni, allt að sjálfsögöu tengt útilifi og ferðalögum. Sigurður Lindal ritar þar grein er nefnist „Útilifsréttur”, þá eru Brandsrima Jörundssonar, eftir Hallgrim Jónasson, „Að Hrauns- vatni”, eftir Sverri Pálsson, „1 löðri hvitra blóma...”, eftir Ólaf ■ B. Guðmundsson, „Látrabjarg', eftir Andrés Daviðsson og svo „Vorflóð i Héraðsvötnum, eftir Hallgrim Jónasson. Auk þess er svo pistill um félagsmál. Timarit þetta er selt félags- mönnum, þannig að það er inni- falið i ársgjaldi til félagsins, sem nemur tvö þúsund og fimm hundruð krónum. Þeir sem gerast félagsmenn eiga þess ennfremur kost að eignast tvö fyrri ársrit félagsins, en þetta er hið þriðja er kemur út á þess vegum. Kosta þau tvö saman tvö þúsund og fimm hundruð krónur. Ritið er ennfremur selt i bóka- verzlunum, en þar er verð þess hærra, þvi söluskattur og álagn- ing bætast á. Útivist hefur skrifstofu i Lækjargötu 6, Reykjavik. Rausnarlegar gjafir og áheit til Stokkseyrarkirkju Áheit til Stokkseyrarkirkju á ár- inu 1977: kr. Sesselja Hróbjartsd. Söndum 1000 Agúst Bjarnason, Sjónarhóli 5000 Jón Eðvaldsson, Ranakoti 1000 Frá gömlum Stokkseyringi 1500 B.G.B. 2000 G.H. 2000 S.I. 2000 Gjafir til kirkjunnar: Magnús Jiónsson, Deild 2000 S.S. 2100 Þorg. Bjarnas. Hæringsst. 25000 og Helgi Þórarinss. Rvik 25000 til minningar um: Bjarna Jónsson, föður Þorgeirs, Þórunni Bjarnadóttur, systur Þorgeirs og Þórarinn Bjarnason föður Helga bróður Þorgeirs. Þorbjörg Valdimarsd. 400 Marta Kjartansd. Setbergi 5000 Gunnar V. Jónss. Sólvöll- um ÍÓÓÓ Börn Bjarna Guðmundssonar og Jóhönnu Jónsdóttur frá Aldarminni 30000 Ásta Steinþórsd. Helgast. 30000 Sigurbjörg Helgad. Heiðarhv.2000 Hilmar Guðmundsson (um ömmuogafa) 5000 Til Stokkseyrarkirkju fráónefndum 20000 Til minningar um Helga Sigurðsson Bræðraborg frá systur hans og mági: Sigurbjörgu og Adam Hoffritz, Selfossi 5000 4000 Guðbjörg Jónsdóttir og Gunnar Sigtryggsson Sigriður Gislad. og Guðm. Valdimarss, Sætúni 2000 Seld minningarkort 62000 Samtals kr. 235000 Safnaðarstjórn vill færa öllum þeim, sem færðu kirkjunni gjafir eða áheit á liðna árinu, þakkir sinar.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.