Alþýðublaðið - 16.02.1978, Blaðsíða 9

Alþýðublaðið - 16.02.1978, Blaðsíða 9
9 sssr Fimmtudagur 16. febrúar 1978 Rpogress — 1: Flutningaskip í geimnum í fyrsta sinn í sögu geim- ferða hefur flutninga- geimfarið Progress — 1 verið tengt á sjálfvirkan hátt við geimstöðina Saljút — 6. Einn af hönnuðum geimfarsins/ dr. Konstant- in Feoktistof/ sem einnig er geimfari/ segir hér á eftir frá helstu einkennum þess. Segja má að vinnan við hönnun flutningaskipa hafi byrjað um sama leyti og farið var að hanna geim- stöðvar. Þá þegar gerðum við okkur grein fyrir að ef geimstöðin átti að geta starfað i langan tíma yrð- um við að hugsa fyrir ferð- um mannaðra og ómannaðra geimfara þangað og tengingum þeirra við geimstöðina. Tilgangur f lutningaskip- anna er fyrst og. f remst sá, að birgja stöðina upp af ef num sem ekki má geyma þar lengi. Sem dæmi um slík efni má nefna Ijós- myndafilmu. Hún skemm- I ist við geymslu. Sama er I að segja um ýms lífræn efni. Einnig er mögulegt að við rannsóknarstörf í geimstöðinni komi upp skemmtileg hugmund sem unnt væri að framkvæma ef einhver ákveðinn hlutur væri fyrir hendi. Svo getur alltaf veriðað eitthvað bili. í stöðinni eru yfir þúsund tæki af ýmsum gerðum og sum þeirra eru alltaf í full- um gangi og geta bilað, sem þýðir að annað verður að koma í staðinn. En þetta er aðeins hluti af því sem Progress flytur. Sum efnanna um borð í Saljút — 6 eru þannig að þau eyðast, eins og t.d. eldsneyti. Það er notað til þess að framkvæma ýms- ar breytingar á braut og stefnu stöðvarinnar. Þá er einnig nauðsynlegt að endurnýja gasbirgðirnar sem notaðar eru við loft- ræstingu stöðvarinnar. Ýmislegt fleira mætti nefna sem þarfnast endur- nýjunar og loks eru hlutir sem snerta daglegt líf mannanna um borð, eins og t.d. vatn i steypuklefann og sængurföt. Daglegt meðaltal af notkun slíkra efna sem þarfnast endurnýjunar er u.þ.b. 30 kg á mann. Á löngu flugi kemst þetta magn auðveldlega upp i nokkur tonn, og það eykst i hlutfalli við stækkun áhafnarinnar. Progress-l er hannað á grundvelli Sojús-stöðvar- innar, en þar eð fjárhags- hliðin var mjög mikilvæg í sambandi við hönnun þessa reyndum við að gera það eins létt og rúmgott og frekast var unnt. Um hönnunina almennt er það að segja, að stjórnklefinn er nær óbreyttur en tækja- klefinn hefur verið stækk- aður. Sérstakir geymar fyrir fljótandi vöru hafa verið settir upp og enn- fremur klefar fyrir þurra vöru. Flutningaklefinn er einangraður vegna þess að eftir tengingu munu geim- fararnir fara inn í hann til þess að sækja vörurnar og flytja þær yfir í stöðina. Spurning: Voru gerðar tilraunir með geimskipið? Svar: Þar eð rafkerfi og hönnun geimskipsins hafa breyst að verulegu leyti var skipið prófað af gaum- gæfni. Við höfum einnig tekið tillit til skipulagning- ar við röðun á vörunum i flutningaklefann vegna þess að það tekur tiltölu- lega langan tima að flytja vörurnar úr flutningaskip- inu yfir i geimstöðina, og þessvegna höf um við kapp- kostað að koma öllu fyrir á sem haganlegastan hátt. S P: Hversvegna fór tenging fram eftir tvo daga en ekki eftir einn dag Sv: Þegar um mannað flug er að ræða er hægt að hraða þessu meira með þvi að gefa skipanir frá eftir- litsstöðinni og nota stjórn- tækin sem eru um borð. En í ómönnuðu flugi kemur það ekki til greina, og það hefur þótt gefast best að „flýta sér hægt". Sp: Hvert er hlutverk geimfaranna í tenging- unni? Sv: Þeir gegndu hlut- verki „varakerfis". Þegar skipið nálgast stöðina fá þeir upplýsingar um hrað- ann og stefnuna og þeir fylgjast með ferðum skipsins. Ef um frávik er að ræða frá áætlun geta geimfararnir t.d. tekið tæki úr sambandi þannig að tengingunni er frestað. Auk þess geta þeir sett geimstöðina á ferð og f lúið undan geimskipinu sem nálgast. En i þetta sinn reyndust slikar ráðstafan- ir ónauðsynlegar. Tenging- in gekk vel. eins og venjulega? APN spékonpurinn Útvarp Fornar dyggdir eftir Guðmund G. Hagalín í kvöld kl. 20.00 verður flutt leikritið „Fornar •dyggðir" eftir Guðmund Hagalín, gert eftir sam- nefndri smásögu höfundarins. Leikstjóri er Stein- dór Hjörleifsson, en með stærstu hlutverk fara Val- ur Gíslason, Guðmundur Pálsson og Herdís Þor- valdsdóttir. I leikritinu segir frá verkalýðsbaráttu á árunum kringum 1930. Steinn Styrbjörn fyrrum kaupmaður og útgerðarmaður er fulltrúi gamla tímans. Steinn sonur hans hefur tekið við fyrirtækinu af honum, og þegar kemur til verkfalls á staðnum, reynir fyrst verulega á afstöðu þeirra beggja. Ljóst er, að höf- undur er með ákveðinn atburð eða atburði í huga, þegar hann skrifar verk sitt, enda af mörgu að taka. Guðmundur Gislason Hagalín er fæddur árið 1898 í Lokinhömrum í Arnarfirði. Hann stundaði nám í Núpsskóla og viðar, fór siðan í Menntaskólann i Reykjavík, en lauk ekki námi. Sjómaður í nokkur ár, fékkst síðan við blaðamennsku .og sitthvað fleira til 1929, en gerðist þá bókavörður á isafirði og var það til 1945. Stundaði jafnframt kennslu. Starf- aði mikið að félagsmálum og stjórnmálum, einkum á Isafirði. Varð bókafulltrúi ríkisins 1955, og gegndi því starfi i rúman ára+ug. Guðmundur hefur skrif- að 30-40 bækur, auk þess þýtt mikið og skrifað greinar í blöð og tímarit. Af þekktum bókum hans má nefna „Kristrúnu í Hamravik" 1933, „Virka daga" 1936 og 1938, „Sögu Eldeyjar-Hjalta" 1939 og „ Blítt lætur veröldin" 1943, auk sjálfsævisögu i nokkrum bindum. Utvarp Fimmtudagur 16. febrúai 1978 7.00 Morgunútvarp Veður- fregnir kl. 7.00, 8.00 og 10.10. Morgunleikfimi kl. 7,15 og 9,05. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og forystugr. dagbl.). 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.55. Morgunstund barnanna kl. 9.15: Guðrún Guðlaugsdótt- ir les „Sögunaaf þverlynda Kalla” eftir Ingrid Sjö- strand (9). Tilkynningar kl. 9.30. Þingfréttir' kl. 9.45. Létt lög m illi atriða. Til um- hugsunar kl. 10.25: Þáttur um áféngismál i umsjá Karls Helgasonar. Kórsöng- ur kl. 10.40: Kór Söngskól- ans i Reykjavik syngur: Garðar Cortes stj. Morgun- tónleikar kl. 11.00: Yara Bernette leikur á pianó Preludiur op. 23 eftir Sergei Rakhmaninoff/ Evelyn Lear syngur söngva eftir Hugo Wolf við ljóð eftir Eduard Mörike: Erik Werba leikur með á pianó 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Veðurfregnir og fréttir. Tilkynningar. A frivaktinni Sigrún Siguröardóttir kynn- ir óskalög sjómanna. 14.30 Um skóla mál Lýðræði i skólum og tengsl skólans v iö atvinnulifið. Umsjón: Karl Jeppesen. 15.00 Miðdegistónleikar Leo Berlin og Filharmóniska kam mersveitin i Stokk- hólmi leika Fiðlukonsert i d-moll eftir Jóhan Helmich Roman. Konunglega fil- harmoniusveitin i Lundún- um leikur „Scherazade”, si'nfóniska svitu op. 35 eftir Nikolaj Rimsky-Korsakoff. Sir Thomas Beecham stj. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregnir). 16.20 Tónleikar. 17.30 Lagið mitt Helga Þ. Stephensen kynnir óskalög barna innan tólf ára aldurs. 18.10 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veöurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar 19.40 íslenskir einsöngvarar og kórar syngja. 20.00 Leikrit: „Fornar dyggð- ir" eftir Guðmund G. Haga lin. gert eftir samnefndi smásögu. Leikstjóri Stein- dór Hjörleifsson, Persónur og leikendur: Steinn Styrrbjörn, fyrrum kaup- maður og útg. maður — Val- ur Gislaton, Steinn Steins- son, kaupm. og útg. maður. — Guömundur Pálsson, Frú Þorgerður, kona hans — Herdis Þorvaldsdóttir, Ossurina Reginbaldsdóttir — Margrét Helga Jóhanns- dóttir, Jens Pálsson, óðals- bóndi — Þorsteinn ö Stephensen, Jói skósmið ur — Árni Tryggvason, Selja-Gvendur, verkamaður — Valdemar Helgason, Frissa, ung verkakona — Þóra Friðriksdóttir. Aðrir leikendur: Helga Stephen- sen, Eyvindur Erlendsson. Guðmundur Klemenzson, Margrét ólafsdóttir, Gisli Alfreðsson, Klemenz Jóns- son, Jón Hjartarson og Benedikt Arnason. 21.30 Lagaflokkur eftir Atla Heimi Sveinsson úr leikrit- inu „Dansleik eftir Odd BjörnssonGarðar Cortes og Guðmundur Jónsson syngja, Jósep Magnússon leikur á blokkflautu, Kristján Stephensen á enskt horn, Eyþór Þorláksson á gitar, Brian Carlile á viólu da braccia, Pétur Þorvalds- son á selló og Reynir Sveinsson á slagverk. Höf- undur leikur á sembal og stjórnar. 21.50 Kjartan Flögstad og skáldsaga hans „Dalen Portland” Njörður P. Njarðvik lektor flytur er- indi. 22.10 Tónlist eftir Gabriel Fauré Grant Jóhannessen leikur á pianó Importu nr. 5 i' fis-moll ogNæturljóö nr. 6 i Des-dúr. 22.20 Lestur Passíusálma Hanna Maria Pétursdóttir nemi i guðfræðideild les 21. sálm. 22.30 Veöurfregnir og fréttir. 22.35 Fréttir. 22.50 Manntafl Páll Heiðar Jónsson á Reykjavikurmóti i skák. 22.35 Fréttir. Dagskrárlok.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.