Alþýðublaðið - 17.03.1978, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 17.03.1978, Blaðsíða 6
6 Föstudagur 17. marz 1978 aasr Eru sömu laun karla og kvenna fyrir sömu vinnu enn ekki veruleiki? Jafnréttisrád höfdar mál f.h. Sóknarkvenna gegn Fjármálaráduneytinu Er Fjármálaráðuneytið lögbrjótur? í tilefni staðhæfingar nokkurrar af hálfu eins forystumanns Rauð- sokkahreyfingarinnar varðandi misréttisað- stöðu starfskvenna Kleppsspitalans gagn- vart starfskörlum sömu stofnunar, i Alþýðu- blaðinu 10. mars s.l., hafði Aðalheiður Bjarn- freðsdóttir formaður starfsstúlknafélagsins Sóknar samband við blaðið. Aðalheiður vildi koma nokkurri leiðrétt- ingu á framfæri við um- mæli forystumanns Rauðsokka. Hér er um að ræða mál sem nú er fyrir dómstólum þ.e. Jafn- réttisráð höfðar mál á hendur Fjármálaráðu- neytinu f.h. Starfs- stúlknafélagsins Sóknar. Þar sem sóknarkonur þær er vinna hjá Rikisspitöl- unum telja sig misrétti beittar hvað launa- greiðslur varðar. Fái þær sem sagt greidd mun lægri laun fyrir sömu störf og karlar er vinna við hlið þeirra. Karlarnir munu vera félagar i Starfsmanna- félagi rikisstofnana er aðild á að BSRB. JAFNRETTISRÁÐ KEMUR TIL SKJALANNA Upphafs atburðar- rásar þeirrar er leitt hefur til yfirstandandi málaferla er að leita til ársins 1976. En þá um haustið, er Jafnréttisráð kom til, kærði Sókn með hag umbjóðenda sinna, sóknarkvenna starfandi hjá ríkisspitölum, fyrir augum, misréttisaðstöðu þeirra gagnvart körlum þeim er starfa við sömu stofnun og vinna sömu störf, fyrir ráðinu. Hér mun aðallega vera um að ræða sóknarkonur starfandi á Klepps- spitalanum eða 65 að tölu og við Kópavogs- hælið, en þar starfa 90 þeirra. Munu konur þessar fást við hjúkrun og gæslustörf. Þá er Jafnréttisráð hafði fengið kæruna til meðferðar hóf það þegar að leita upplýsinga og gagna varðandi málið. Leitað var m.a. álits forstöðumanna viðkomandi stofnana og þeir inntir eftir h vort um væri að ræða samskonar störf unnin fyrir mis- jöfn laun annarsvegar af Sóknar- konum og hinsvegar af BSEB-félögum. Svör forstöðu- manna stofnana voru mjög já- kvæð i garð sóknarkvenna að sögn Aöalheiðar, og töldu þeir konurnar vinna sömu störf og karlmennirnir. Brýtur Fjármála- ráðuneytið landslög? Nú visaði Jafnréttisráð málinu aftur til Sóknar sem vopnað gögnum þess hélt á fund Fjár- málaráðuneytisins. En allt kom greina. Var m.a. vísað til þess að fyrir ekki, ráðuneytið neitaði aö taka kröfur Sóknarkvenna til þær væru ekki i sama stéttar- félagi og karlkyns starfefélagar þeirra. Karlar munu hafa átt og eiga einskonar fráteknar stöður á umræddum stofnunum þar sem þeir vinna við hlið Sóknarkvenna og allir hafa þeir orðið sjálfkrafa félagar i SFR og þá BSRB að sögn Aðalheiðar Bjarnfreðsdóttur. Að áliti hennar er hér um að ræða lagabrot af hálfu stjórn- valda þ.e. á lögum er varða almenn mannréttindi og jafnrétti. Nú þegar ljóst má vera af þeim gögnum er safnað hefur verið i máli þessu aö um misrétti er að ræða miili kynja, og þvi fleiri aðilar en launþegar er brjóta i berhögg við rikjandi landslög. I sólstöðusamningunum svo- nefndu s.l. sumar var krafan um leiðréttingu á launamisrétti þvi er Sóknarkonur hafa verið beittar ein af sérkröfum launþega. Að samningum loknum haföi staöa kvennanna gagnvart körlunum batnað til muna og var þá sára- lítill munur á launum þeirra. En þetta breyttist siðan aftur til hins verra gagnvart sóknarkonum þá er BSRB samdi s.l. haust við rikisvaldið, og er nú launamis- munurinn allt að 21.000 krónur á mánúði. Málið fyrir dómstóla Sókn hafði þegar, að samn- ingum loknum, visað málinu til Jafnréttisráðs að nýju þar sem fulltrúar Fjármálaráðuneytisins voru enn sama sinnis meðan á samningaumræðunum stóð og áður. Jafnréttisráð hóf siðan að fjalla um málið að nýju eftir sumrfri s.l. sumar og var m.a. leitað til Jónatans Þórmunds- sonar lagaprófessors, og málið lagt i hendur honum. í byrjun desember s.l. hófust siðan málaferli þar sem Jafn- réttisráð f.h. Sóknarkvenna höfð- aði mál á hendur Fjármálaráðu- neytinu. Standa þau málaferK nú yfir, sækjandi f.h. Jafnréttisráðs er Jón Steinar Gunnlaugsson. Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir, en hún á einnig sæti i Jafnréttisráði, áleit mál þetta sem nú er höfðað gegn Fjármálaráðuneytinu auðunnið mál og hefðu reyndar fleiri tjáð sig sama sinnis eins og t.d. Björn Jónsson forseti ASl. Aðalheiður kvaðst viða hafa hreyft við máli þessu á fundum sem og við önnur tækifæri, en ekki hefði þvi samt verið veitt nægilega mikil athygli til þessa, þvi miður. Væri sem menn teldu þetta sjálfsagða jafnréttismál sem og önnur réttindamál kvenna ekki þarfnast þeirrar athygli er raun væri á. Væntanlega veröur hægt að greina betur frá máli þessu i framtiðinni og skyldum málum, ef upp koma. En reikna má þó með að umrædd málaferli muni taka þann tima sem vandi er til slikra hluta hér á landi. J.A.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.