Alþýðublaðið - 17.03.1978, Side 9
sssr Föstudagur 17. marz 1978"
Til hvers hef ur verið barizt?
Tölurnar tala
Fúslega má viðurkenna, að
þaðer sjaldan skemmtilestur að
lesa talnaskýrslur. Að minnsta
kosti þarf nokkuð sérkennilega
skapgerð þar til. Þar með er
ekki sagt, að tölur séu ekki
nauðsynlegar, til þess að átta
sig á ýmsum staðreyndum, sem
varla verða skildar, nema
styðjast við tölur.
Hitt er svo annað mál, að
stundum eru þær notaðar i, eða
af talsverðu frjálsræði, og dæmi
hefur fólk áreiðanlega um, að
stjórnmálamenn vitni i sömu
talnafúlgurnar og komist að
gerólikum niðurstöðum!
Samt á þetta yfirleitt ekki við
um birtingu talna frá Hag-
stofunni, enda eru þær yfirleitt
settar fram sem blákaldar stað-
reyndir, að beztu manna yfir-
sýn, og ekki gerð tilraun til
neinnar sérlegrar útlistunar á,
hvaðþvi valdi að tölurnar leggj-
ast svona eða svona.
Þetta rifjast trúlega upp við
nýútkomnar skýrslur um til-
flutninga landsmanna á liðnu
ári, sem Hagstofan hefur nýlega
sent frá sér.
Þegar þessar tölur eru gaum-
gæfðar, sérstaklega með hlið-
sjón af hreyfingum islenzkra
rikisborgara til landsins og frá
þvi, kemur i ljós, að tæplega
1170 fleiri rikisborgarar flytjast
úr landi, heldur en hingað heim.
Þvi miður liggur ekki fyrir,
hvað þvi veldur, að landinn
hefur leitað héðan i svo miklu
stærri stil, heldur en þeir sem
heim hafa komið. Nokkrar
getur er þó hægt að þvi að leiða,
en viðurkenna skal fúslega, að
það eru aðeins tilgátur, þó rök
megi fyrir þeim færa.
Eflaust er hér um að ræða þó
nokkra, sem hverfa i bili af
landi brott, vegna þess að þeir
eru að afla sér framhalds-
menntunar, sem ekki er kostur
á hér. Við vonum auðvitað, að
dvöl þeirra ytra verði aðeins
skammvinn — einskonar
vikingaferð i nýjum stil, til þess
að afla sér aukins frama.
Það hlýtur samt að vekja tals-
verða athygli hve margir leggja
leið sina til Sviþjóðar, framar
þeim, sem leita til annarra
landa, svo sem Danmerkur til
dæmis. En Hafnarháskóli hefur
löngum haft meira aðdráttarafl
fyrir okkur en háskólar annarra
landa. Þess ber lika að gæta, að
borið saman við út- og heim-
flutning til og frá þessum tveim
grannlöndum er langtum hærri
hundraðshluti, sem kemur frá
Danmörku heim, miðað við út-
flutning þangað, heldur en frá
Sviþjóð. Hinar bláköldu tölur
eru: Til Sviþjóðar 921, þaðan
heim 271. Til Danmerkur 547,
þaðan heim 331.
Varla er hægt að draga af
þessu aðrar ályktanir en, að
obbinn af þeim, sem til Svi-
þjóðar fóru, hafi farið þangað
beininis i atvinnuleit.
Eftir þvi sem fregnir herma,
stendur dæmið þannig i Sviþjóð,
að þar virðist ekki beint ljúfur
markaður fyrir háskólaborgara
— að læknum máske undan-
í HREINSKILNI SAGT
teknum — ef margir þarlendir
háskólaborgarar verða að sætta
sig við afgreiðslumannsstöður
við benzindælur, að loknu námi.
Ekki hafa þó farið neinar
sögur af þvi, að Sviar meti
háskólanám litils'eða einskis.
Enef svo er ekki, mætti ætla, að
þröngt yrðifyrir dyrum fyrir út-
lendinga, að leita á hinn
almenna vinnumarkað.
Hér gæti þó vissulega skipt
öðru máli um sérhæft fólk, til
dæmis i iðnaði. En þvi miður
höfum við ekki fullar hendur af
sliku fólki, svo skýringin liggur
naumast þar. Hér hefur áður
verið á það bent, að nokkur
þáttur iútflutningi Islendinga til
annarra landa, gæti stafað af
einskonar ævintýraþrá. Samter
fremur trúlegt, að fjölskyldu-
fólk flytjist ekki úr landi þess-
vegna einvörðungu. Þá er
aðeins eftir, að fólkið, sem burt
fluttist, hafi talið hag sinum
betur borgið erlendis en heima!
Aðalskrautblómið i börmum
núverandi stjórnarmanna,
hefur verið, að hér hefði verið —
sem rétt er — næg atvinna á
„Geirseyrinni”.
Framsóknarmenn hafa einnig
viljað hafasina hlutdeild i þessu
og alloft borið saman ástandið
nú i þessum efnum og ástandið
1968-1969. Fer ekki milli mála,
að báðum stjórnarflokkum
þykir sinn fugl fagur nú!
Þess má lika minnast, að
Framsóknarmenn stóðu á fyrr-
nefndum kreppuárum bisperrt-
ir við hlið kommúnista i þvi að
hvetja fólk til að flytja úr landi,
jafnhliða þvi sem þessir tvi-
burabræður ósköpuðust yfir
landflóttanum!
Liklegt má telja, að þessi
taumlausi áróður hafi haft þó
nokkur áhrif, án þess að getið
verði tölulega i þær eyður. En
mundi það nú ekki koma eins og
„þjófur úr heiðskiru lofti”, að
ástandið virðist ekki vera
stórum betra um útflutning
fólks nú en þá var?
Ofan á allt þetta er bezt að
hafa hugfast, að atvinna á
Norðurlöndunum var þá næg.
Og dugandi menn, sem fóru
þangað i atvinnuleit, gátu gert
sérrökstuddar vonirum að hafa
erindi sem erfiði. Nú stendur
dæmið á allt annan veg. Danir
hafa búið við mikið og nokkuð
langvarandi atvinnuleysi,
langtum meira að hundraðs-
hluta — ef miðað er við opin-
berar skýrslur þaðan — en
nokkru sinni var hér landlægt á
þessum vandræðaárum. Þröng
á vinnumarkaði i Sviþjóð er
vissulega viðar en hjá háskóla-
borgurum. Það er einnig viður-
kennt, að skattar séu verulega
hærri i þvisa landi en jafnvel
hér, þó kunna komi eitthvað
réttlátlegar niður.
Eftir hverju er þá fólk að
sælast, þegar það flytur út i
stórum stil? Eða er það bein-
linis að flýja land án tilefnis?
Svar við siðari spurningunni
getur varla orðið jákvætt, en þá
er aðeins eftir, að fólkið sé að
flýja þá ferleguóstjórn, sem hér
hefur rikt.
Þetta er þá allur smellurinn,
allur árangurinn af þvi stanz-
lausa puði, sem núverandi rikis-
stjórntelur sig hafa framkvæmt
við að halda uppi fullri atvinnu!
Menn vita nefnilega, að rikis-
stjórnin hefur þvi aðeins getað
innt þetta af höndum, að sökkva
okkur upp fyrir axlir i fen er-
lendra skulda, sem nú nema um
700 þúsundum króna á hvert
einasta mannsbarn!
Liklega væri fjarlægast af
öllu, að halda að útflytjendum
sé sú ráðabreytni sársaukalaus
með öllu. En væri nokkur furða,
þótt menn fylltust örvæntingu
yfir að sjá, hvernig unnt er að
breyta góðæri i hallæri með
toppheimskulegum stjórnar-
háttum? Ekki að tala um, ef
framhald ætti á þvi að vera.
Odcjur A. Sigurjónsson
Kennslumála-
ráðherra Dana
í umferðarslysi
Svona leit blll ráftherrans út eftir hinn geysiharfta árekstur sem kostafti
18 ára stúlku lifið.
Ritt Bjerregaard, kennslu-
málaráðherra Danmerkur, slapp
ótrúlega vel úr afar alvarlegu
umferðarslysi á Fjóni i siðustu
viku. I slysinu lést 18 ára stúlka
sem var i bil sem ók á bil ráðherr-
ans, en bilstjóri ráðherrans slas-
aðist talsvert. Ritt Bjerregaard
hlaut heilahristing, skurði i and-
liti og var einnig rannsökuð á
sjúkrahúsi vegna mikils höggs á
hrygginn. í bilnum með stúlkunni
sem lét lifið i slysinu var einnig
vinkona hennar, en hún var i
öryggisbelti i farþegasæti og
slapp algerlega ómeidd.
I danska blaðinu Aktuelt er sagt
að árekstrurinn hafi orðið i blind-
beygju á vegi, en einnig hafi þar
verið um að kenna ógætilegum
akstri.
Stúlkan sem slapp ómeidd
sagði , að hún hefði allt i einu séð
bflljós stefna beint á bil þeirra og
hefði hrópað upp yfir sig, en i
sama bili hefði árekstrurinn orðið
að veruleika. Dorethe Block,
stúlkan sem lést, og Ritt
Bjerregaard köstuðust báðar út
úr bilunum og var stúlkan mjög
mikið slösuð þegar að var komið.
Hún var látin þegar komið var á
sjúkrahús.
Ilægt er að varna tannskemmd-
um, þá þegar barnift er i móftur-
kviði, sé rækt lögft við rétt hugar-
far. Ef börn eru aftur á móti ekki
send til tannlæknis fyrr en þau
eru á aldrinum 2-3 ára, reynist
það i mörgum tilfellum of seint.
Þá er einnig orðið erfitt aft láta af
þeim hvimleiftu matarvenjum,
sem verfta þess valdandi, aft tenn-
urnar skemmast.
Tannlæknar hafa að undan-
förnu hert mjög á áróðrinum fyrir
heilbrigðum tönnum. Hafa m.a.
verið haldin námskeið i
Danmörku, þar sem rætt hefur
verið um hvaða Ieiðir skuli farnar
til að ná til verðandi foreldra til
að fræða þau um æskilega tann-
hirðingu. Ekki þykir minna um
Setjið
ekki
Forcldrar hugsa ekki alitaf fyrir afleiðingunum, þegar barninu er gef-
inn sætur ávaxtasafi á peiann. Og þó þaft sé ósköp gaman aö gleftja
barnið sitt, meft þvi aft gefa þvi sætindi, er ekki eins gaman þegar þaft
fer aft þjást af tannpinu. En því miftur vill sú hlift málsins oft gleymast.
ávaxtasafa á pelann
vert, að benda verðandi foreldr-
um á, hversu skaðsamleg mikil
sykurnotkun ss. hunang á snuðið
og sætur ávaxtasafi á pelann, geti
reynst börnum þeirra er fram i
sækir.
Þessar aðferðir geta orðið þess
valdandi að barnatennurnar
hreinlega étist upp, auk þess sem
erfitt getur reynst að venja börn-
in af sætindunum, hafi þau einu
sinni komist á bragðið. Og það
eru ekki aðeins barnatennurnar
sem eru i hættu — fullorðinstenn- indaneysla vegur meira en tann-
urnar endast ekki lengi, ef sæt- hirðingin.
Ert þú fólagi í Rauöa krossinum r
Deildir fólagsins eru um land allt
RAUÐIKROSSfSLANDS
I'I.ISÚM lil'
ÍÍÍT'
\£y;
Grensásvegi 7
Simi 32655.
MOTOROLA
Alternatorar
bila og báta
6, 12, 24 og 32 volta.
Platinulausar transistor
kveikjur i flesta bila.
Hobart rafsuftuvélar.
Haukur og Ólafur h.'.
Armúla 32—Simi 3-77-00.
Auc^sencW!
AUGLvSiNGASlMI
BLADSINS ER
14906
Svefnbekkir á
verksmiðjuverði
SVEFNBEKKJA
Höfðatúni 2
Reykjavik.
Simi 15581
2-
50-50
Sendi-
bíla-
stödin h.f.