Alþýðublaðið - 21.03.1978, Page 12
Útgefandi Alþýðuflokkurinn
Ritstjórn Alþýöublaðsnins er að Siðumúla 11, simi 81866. Auglýsingadeild blaðsins er að
Ilverfisgötu 10, simi 14906 — Askriftarsími 14900.
ÞRIÐJUDAGUR
21. MARZ 1978
Fjöldi erl. útvarpsstöðva inn á bylgju Ríkisútvarpsins í nóvember nk.
Styrkaukning á langbylgj-
unni kostar hundrud millj.
Framkvæmdin þó mjög brýn, segir Haraldur Sigurðsson verkfræðingur
Póstur og simi annast
ýmsa tæknilega þjónustu
fyrir Ríkisútvarpiö og
höfðum viö i gær tal af
Haraldi Sigurðssyni, verk-
fræöingi hjá Pósti og sima,
og spurðum hann um
ástand búnaðar til út-
varpsútsendinga og hvaða
umbætur stæðu fyrir dyr-
um, ekki sizt með tilliti til
möguleika á stereó-út-
varpi.
Haraldur gat fyrst um það, að
nú væri senn von á að settur yrði
upp nýr FM-sendir i Vatnsenda-
stöðinni og að kominn væri til
landsins FM-sendir, sem kæmi i
stað þess, sem á Skúlagötunni er
og yrðu þeir tvöfalt sterkari og
hagkvæmari, en þeir eldri, sem
eru frá þvi þegar FM-sendingar
hófust hér, laust eftir 1950. Þessa
senda sagði Haraldur vera búna
sætum fyrir tækjabúnað, svokall-
aða „sterógeneratora,” sem
gerðu kleift að senda út i
„stereó”, og kostaði sá auka-
búnaður ekki meira en 2000 dali
hvor, að ómeöreiknuðum tollum
og vinnukostnaði. Taldi Haraldur
að þá stæði helzt á útbúnaði i
stúdióum útvarpsins, svo hægt
væri að hef ja stereó-útvarpssend-
ingará amk. hluta dagskrárefnis.
Akvöröun um slikt yrði þó að
koma frá útvarpsráði og mennta-
málaráðuneyti. Taka veröur
fram að þessar sendingar gætu
aðeins náð til Faxaflóasvæðis.
Auka þarf styrk lang-
bylgjuútsendinga
Þá vék Haraldur að langbylgju-
útsendingum og sagði að nú yrði
senn mjög brýn þörf á að auka
styrkleika þeirra, þar sem I
nóvember n.k. gengi i gildi heim-
ild til margra útvarpsstöðva til
aukins sendikrafts, á sömu
bylgjulengd og Rikisútvarpið not-
ar. Þessi aukning gerði þaö að
„Þar tengjast sálfrædi-
legir þættir málunum”
— segir Gudmundur Jónsson
Vegna ummæla Harald-
ar Sigurðssonar, verk-
fræðings, um að stereó-út-
varp hlyti á næstunni að
eiga framtíð sina komna
undir skilyrðum til útsend-
inga i stúdíóum útvarpsins,
ræddum við i gær við þá
Hörð Vilhjálmson, fjár-
málastjóra Rikisútvarps-
ins og Guðmund Jónsson,
framkvæmdastjóra.
llörður Vilhjálmsson sagöi, að
samkvæmt skoðun sinni hlyti það
að vera nærtækara verkefni að
styrkja dreifikerfi útvarpsút-
sendinga, svo notendur i öðrum
landshlutum gætu haft fullt gagn
af útvarpi og sjónvarpi, en að
knýja á um stereóútvarp. Hann
minnti á að nú stæði fyrir dyrum
að efla örbylgjukerfið sem stór-
bæta mundi skilyrði fyrir sjón-
varp og útvarp, en kerfið nær nú
að Vaðlaheiði. Felst næsti áfangi i
að koma þvi austur á Gagnheiði
og taldi Hörður það brýnasta
verkefnið um þessar mundir.
Endurbætur á stúdíóum
ekki timabærar, fyrr en
nýja húsið rís.
kvæmdastjóri, sagði að hann teldi
rétt að biða með stereóútvarpið,
þar til nýja útvarpshúsið rís, en
framkvæmdir við þá byggingu
kynnu að hefjast einn daginn, ef
gefið verður grænt ljós, þvi teikn-
ingar eru svo gott sem tilbúnar..
„Endurbætur á stúdióum, svo
stereóútsendingar veröi fram-
kvæmanlegar, kosta tugi millj-
óna”, sagði Guðmundur og þvi
væri óráð að koma sliku fyrir i
Skúlagötuhúsinu, þar sem út-
varpið starfar við óhagkvæm
skilyrði i bráðabirgðahúsnæði,
sem það leigir af öðrum rikis-
stofnunum.
Aldraður tækjakostur
Guðmundur sagði að mikið af
tækjum útvarpsins við Skúlagötu
hefði verið keypt árið 1959 og þá
verið ætlað að endast i 7-8 ár.
Þannig væru þau nú oröin 19 ára
og stafaði sú ending einkum af
frábærri hirðu og alúð útvarps-
manna og þolgæði við viðgerðir
og endurbætur. Ýmsu hefur þó að
sjálfsögðu verið bætt við af nýjum
tækjum, t.d. ætti útvarpiö áhöld
til stereóupptöku og tæki t.d. alla
tónlist upp i stereó.
Ennvék Guðmundur að lang-
bylgjumastri á Vatnsenda, sem
verkfræðingar hefðu talið sjálf-
sagt að rifa fyrir 7-8 árum og var
þá áætlað að mastrið kostaði uþb.
75 milljónir, hver sem upphæðin
kynni að reynast nú.
Stereóútvarp að hluta sál-
fræðilegt mál
Guðmundur taldi að stjórn-
málamenn hefðu alla tið verið út-
varpinu önugir við að fást og sinnt
málefnum þess með semingi, að
Vilhjálmi Hjálmarssyni undan-
skildum sem sýnt hefði þeim út-
varpsmönnum mikinn skilning og
hagsmunum útvarpsins. Skömmu
fyrir strið hefði t.d. fjármunum,
sem útvarpið átti yfir að ráða
verið þegjandi og hljóðalaust
veitt til annarra þarfa, svo sem
byggingarsamvinnufélags og til
Þjóöleikhússins. Að lokum minnti
hann á að ekki væri vist að fólk úti
um land liti það hýru auga, ef
Reykjavik og nágrenni fengi
stereóútvarp, þegar varla væri
hægt að hlusta þar á tónlist eða
jafnvel viðræðuþætti, án meiri og
minni bjögunar, við sum skilyrði.
„En hér kemur margt til”, sagði
Guðmundur, „og ekki gott að
segja hvað verður. Hér tengjast
meira að segja sálfræðilegir
þættir málunum.” AM.
Guömundur Jónsson, fram-
Fundur hjá ríkisstjóminni
Verðhækkanir
afgreiddar í dag
I dag má almenningur aö
öllum likindum vænta
nokkurra verðhækkana,
þar sem rikisstjórnin kem-
ur saman til fundar til að
afgreiða þær beiðnir, sem
liggja fyrir hjá henni.
Þessar beiðnir, sem eru fjórar
eða fimm talsins voru afgreiddar
frá verðlagsnefnd fyrir um að bil
hálfum mánuði. Hafa þær siðan
beðið samþykkis rikisstjórnar-
innar.
Að þvi er Alþýðublaðið hefur
fregnað, mun þarna a.m.k. um
að ræða 10% hækkun á smjörliki,
og Tropikana og 20% hækkun á
saltfiski.
Munu fáar veröhækkanabeiðn-
ir nú liggja fyrir hjá Verölags-
nefnd, en eftir páskana má þó
vænta einhverra frekari hækk-
ana.
Mánafossmálið enn í gangi:
Ný álitsgerð Siglinga-
málastofnunar um málid
Mánafossmálið ætlar þvi að
verða lifseigt i réttarkerfinu, en
það mun hafa verið tekið> upp aft-
ur og aftur, en fyrir nokkrum vik-
um var frá þvi skýrt i blöðum að
málinu væri lokið. Samkvæmt
nýjustu fregnum er málið hins
vegar enn i gangi, en Bragi
Steinarsson, vararikissaksókn-
ari, vildi ekkert segja um álits-
gerð Siglingamálastofnunar i
gær, kvaðst ekki vera búinn að
lesa hana nógu gaumgæfilega yf-
— Við fórum fram á þaö á sið-
asta ári að fá frekari gögn I mál-
inu, til þess að geta gert okkur
grein fyrir þvi ástandi sem skipiö
var I þegar Mánafoss-óhappið
varð, sagði Hjálmar E. Bárðar-
son, siglingamálastjóri, i gær, en
tilefnið var það að 6. marz s.l.
sendi Siglingamálastofnunin nýja
álitsgerð varðandi einstaka
þætti Mánafoss-máisins svo-
nefnda (sem Markús B. Þor-
geirsson, skipstjóri úr Hafnar-
firði, hefur gert þekkt) til em-
bættis saksóknara ríkisins.
—JSS
Hefjast stereóútvarpssendingar úr gamla Skúlagötuhúsinu, eða
verður farið að ráði Guömundar Jónssonar og dokað við, þar til nýja
útvarpshúsið ris?
verkum að vegna truflana af
völdum þessara stöðva þyrfti og
aðauka sendistyrk Rikisútvarps-
ins. Heimild er til 500 kw. sendi-
krafts fyrir Rikisútvarpið, en
styrkleikinn nú er aðeins 100 kw.
Hins vegar mundi þessi aukning
kosta hundruð milljóna og væri
þar með talin bygging sendi-
stöðvar i staö gömlu Vatnsenda-
stöðvarinnar. Taldi Haraldur vist
að sú stöð yrði reist austanfjalls
og þá byggð ný möstur, tvö eða
eitt, og yrði slikt að fara eftir
hvað hagstæðast yrði talið og svo
að vonum fjárhagsgetu.
Vatnsendastöðin of nærri
byggð
Haraldur sagði að meginástæða
þess að flytja þyrfti Vatnsenda-
stöðina væri sú, að óhagræði væri
að fyrir útvarpsnotendur að vera
svo nærri sjálfum sendinum og að
auki mundi staðsetning sendisins
austan fjalls, leiða til betri skil-
yrða til útvarpssendinga út um
land. AM
„Rétt að vera
vongóður”
— segir Vilhjálmur Hjálmarsson
„Engar ákvarðanir hafa
verið teknar enn," sagði
Vilhjálmur Hjálmarsson,
menntamálaráðherra,
þegar blaðið spurði hann
um „stereóútvarpið" í
gær.
„Þar sem ég hef orðið var við
mjög mikinn þrýsting á þessi
mál, er ekki að vita nema
skemmra sé undan að til skarar
verði látið skriða en nokkurn
grunar,” sagði Vilhjálmur. Að
visu taldi hann fjarri lagi að
nefna dag og stund enn sem kom-
ið er, en ekki ættu þeir sem til
slikra útvarpssendinga mæna að
þurfa að gefa upp vonina.
Ráðherra sagði og að sér skild-
ist að steróútvarp væri ekki mikið
spursmál, hvað fjármunum vlð-
véki og minntist á i þvi sambandi
að hagur útvarpsmála hefði mjög
rétzt við undanfarið, vegna hækk-
aðra afnotagjalda ofl. sem gert
hefði kleift að farga gömlum úti-
standandi skuldum við banka,
vegna byggingamála ofl.
Þá sagði hann að talsvert fé hefði
verið fest i endurbótum á FM-
kerfinu og þar fundizt góð not fyr-
ir hinar margumtöluðu tolltekjur
af litsjónvarpstækjum.
AM
Hrafn verður
dramatúrgur
Dramatúrgsrimmunni i Út-
varpsráði lauk s.l. föstudag með
þvi að Hrafn Gunnlaugsson fékk
meömæli meirihluta ráðsins til að
fá ráðningu sem dramatúrgur,
eða leiklistarráðunautur, við
Sjónvarpið. Hér er um að ræöa
hálft starf og segir sagan að stað-
an hafi verið búin til handa Hrafni
og þar hafi Ellert Schram, fulltrúi
Sjálfstæðisflokksins, og Mathie-
sen, fjármálaráðherra, átt.
drýgstan hlut að máli. Naut
Hrafn og stuðnings Jóns Þór-
arinssonar og Péturs Guðfinns-
sonar hjá Sjónvarpinu.
Um stööuna sóttu, auk Hrafns,
þeir Eyvindur Erlendsson, Agúst
Guðmundsson, Þorsteinn Jónsson
og Þráinn Bertelsson. Mun Þór-
arinn Þórarinsson, form. Út-
varpsráös, hafa stungið upp i
Agústi i stöðuna, en Sigurður A.
Magnússon stungið upp á Þor-
steini. Lyktir urðu þær að Sigurð-
ur studdi Agúst, sem hlaut 3 at-
kvæði, en Hrafn fékk 4.
—ARH