Alþýðublaðið - 05.04.1978, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 05.04.1978, Blaðsíða 5
5 Miðvikudagur 5. apríl 1978 ÍSKOÐUN Stjórn Kattavinafélags íslands skriffar: ] Hér á landi er starfandi Sam- band Dýraverndunarfélaga Islands. í lögum þess er tílgang- ur sambandsins tilgreindur sá m.a. að sameina öll félög, sem vinna að verndun dýra, svo og þá einstaklinga, sem búsettir eru þar, sem sérstakt dýravernd- unarfélag er ekki starfandi. Þá er það lika tilgangur sambands- ins að koma fram gagnvart opin- berum aðilum varðandi dýra- vernd og að hafa afskiptí af mál- um, sem varða dýr og velferð þeirra. I Sambandi Dýraverndunar- félaga Islands, skammstafað SDI, eru nú þessi félög: Dýra- verndunarfélag Reykjavíkur, Dýraverndunarfélag Hafnfirð- inga, Dýraverndunarfélag Akureyrar, Hundavinafélag Islands og Hundaræktarsamband Islands. Innan þessara félaga allra eru margir áhugamenn um dýravernd, en þó hefur fjöldi félagsbundinna dýraverndunar nauðsynleg gögn til kjörbréfa- nefndar. — Stjórn Kattavina- félags Islands.” Svo hófst aðalfundur SDl 1 Tjarnarbúð uppi þann 5. mars 1978. Eins og frá var skýrt i sim- skeytinu voru mættir utan við fundarsaiinn 17 aðalfulltrúar og 5 varafulltrúar frá Kattavinafélagi Islands, i þeirri von að strax i upphafi fundar yrði þeim boðið að koma inn i salin og fá inngöngu i SDt. Svo varð þó ekki. Aðalfundinn setti Jórunn Sör- ensen, formaður SDÍ og skipaði formaðurinn, Sigriði Asgeirsdótt- ur, héraðsdómslögmanni sem fundarstjóra. Ilögum SDlstendurhinsvegar i lO.gr.að kjósaskuli fundarstjöra og fundarritara. Með þessu voru þegar i upphafi brotin lög SDI af formanni þess. Þvinæst skipar fundarstjóri kjörbréfanefnd, sem öll var úr Dýraverndarfélagi Reykjavikur, og Ölaf Jónsson, lögfræðing, for- Dýravernd og sér- hæfing í kosningasvikum áhugamanna verið minni en ætla mætti, og þvi æskilegt frá sjónar- miði dýraverndar að auka aðild að SDI. Hér verður til fróðleiks rakin sérstæð saga, sem rétt þykir að skjalfesta, vegna þess m.a. að hún lýsir þvi nokkuð vel, hvernig hægt er að misnota fengið vald i þeim tílgangi að viðhalda þvi, jafnvel þótt þess gerist þá þörf að brjóta lög félagasamtaka og við- teknar lýðræðislegar reglur, sem allir munu telja sjálfsagðar og grundvöllur mannréttinda I lyð- frjálsu landi. Aðalfundur Sambands Dýra- verndunarfélaga íslands hafði verið boðaður 5. mars 1978. Rétt- um mánuðiáður, þ.e.a.s. 5. febrú- ar 1978, sótti Kattavinafélag tslands bréflega um upptöku i SDt. Var bréfið sent i ábyrgðar- pósti til stjórnar SDl, enda i lög- um Kattavinafélagsins m.a. ákvæði um, að félagið skuli stuðla að þvi að fækka villi-' köttum á mannúðlegan hátt til að hindra þjáningar þeirra i sulti og kulda. Þetta er sannanlega mannúðarmál og all- ur tilgangur Kattavinafélags Islands þvi dýraverndarmál. Þegar stjórn Kattavinafélagsins hafði ekki borist svar við beiðni um upptöku i SDl þremur vikum eftir að umsókn var send, sendi Kattavinafélagið itrekun um svar. Þá barstbréf frástjórnSDl, þar sem þess er óskað að lög Kattavinafélagsins og félagaskrá þess verði send til stjórnar SDÍ. Lögirí voru send strax með bréfi frá stjórn Kattavinafélagsins, en þar eð félagaskráin væri spjald- skrá og eingöngu til i einriti, væri ekki hægt að senda félagaskrá þá á stundinni. Hinsvegar,, bauðst stjórn Kattavinafélagsins til þess i bréfi þessu að taka með á aðal- fund SDI I þessa spjaldskrá, þannig að kjörbréfanefnd gæti sannfært sig um félagatal. Þegarekkertsvar frá SDl hafði ennþá borist daginn fyrir aðalfund SDI, en stjórn Kattavinafélagsins hafði hug á, að félagið gæti orðið fullgildur aðili að SDI fyrir fund- inn, sendi stjórn Kattavinafélags- ins eftirfarandi simskeyti, laugardaginn 4. mars 1978 til Jór- unnar Sörensen: „Jórunn Sörensen, formaður Sambands Dýraverndunarfélaga tslands, Sunnuflöt 12, Garðabæ Kattavinafélag Islands Itrekar beiðni um inngöngu I Samb. Dýraverndunarfélaga Islands fyrir aðalfund 5.3. ’78 ella verði inngöngubeiðni lögð fyrir aðal- fund i upphafi hans, samanber Hundavinafélag Islands. Fulltrúar Kattavinafélagsins munu mæta við fundarstað með mann tíennar. I lögum SDI stendur að einnig skuli kjósa kjörbréfanefnd. Þar með hafði fundarstjóri framið annað laga- brotið þessa fundar. Þegar hér var komið sögu á fundinum, fékk kjörbréfanefnd m.a. kjörgögn og félagsaspjaldskrá Kattavina- félags íslands og hóf störf sin að athugun kjörgagna. Formaður lagði fram ársskýrslu SDl, og átti siðan að ræða hana. Formaður Hunda vinaf élagsins , Jakob Jónasson,læknir, fékkþá orðið cg las upp samrit af simskey tinu frá Kattavinafélagilslands, sem sent hafði verið formanni stjórnar SDl daginn áður, og vakti athygli á þar að utan fundarsalar biðu nú fulltrúar frá Kattavinafélagi Islands, hvort ekki væri rétt að bjóða þessu fólki i salinn. Orðrétt sagði formaður Hundavina- félagsins i lok ræðu sinnar: „Þar sem Kattavinafélagið hefur full- nægt öllum formsatriðum um inngöngu i SDl og fulltrúar þess eru mættir hér við fundarstað, 17 samkvæmt félagatölu, þá krefst ég þess að fundurinn samþykki hér og nú inngöngu Kattavina- félags Islands I Sambandið, og kjörbréf fulltrúanna verði tekin til greina. Ef stjórn SDI óskar að halda sér stranglega við lagabók- stafinn, þá krefst ég þess til vara, aðfundi verðifrestað um 5 minút- ur og stjórnin haldi stjórnarfund, þar sem samþykkt verði inn- ganga Kattavinafélagsins.” Ekki var þessu þó sinnt frekar af fundarstjóra, og fundi haldið áfram. Eftir rúma tvo klukku- tima var ákveðið fundarhlé. Allan þann tima lét fundarstjóri full- trúa Kattavinafélagsins biða utan fundarsaiar, og þótti mörgum fulltrúum á fundinum þetta ver mikið hneyksli og i engu sam- ræmi við tilgang SDt. Þar ættu allir dýravinir að vera velkomnir til stuðnings við málefni samtak- anna, dýravernd. Eftir kaffihléið leyfði fundar- stjóri loks, að fulltrúar Katta- vinafélagsins mættu koma inn i fundarsalinn. Þá höfðu kjörgögn verið athug- uð, og hafði komið i ljós, aö aðeins tvö félaganna höfðu lögleg skilriki, en það voru Dýravernd- unarfélag Akureyrar með 2 full- trúa og Kattavinafélag Islands með 17 fulltrúa, en stjórn SDÍ hafði þó ennþá ekki samþykkt að Kattavinafélagið fengi aðild að SDI. Vegna þess að kjörgögn lágu aðeins fyrir frá einu aðildarfélagi SDl, lagði kjörbrfefanefnd tíl að aðalfundi yrði frestað, og yrði framhaldið 19. mars. Fundarstjóri úrskurðaði þá, að fundi yrði slitið og frestað sam- kvæmt tillögu kjörbréfanefndar. Þessu var mótmælt af mörgum fulltrúanna á fundinum, sem báðu um orðið um fundarsköp, en þvi sinnti fundarstjóri i engu og sleit fundi. Menn ræddu þessi mál óform- lega að þessu loknu, m,a. var bent á, að aðalfund átti að halda fyrir lok októbermánaðar ár hvert samkvæmt lögum SDI., þannig að einnig i þvi efni hafði stjórn SDl brotið lög þess. Milli fyrri og siðari hluta aðal- fundar fékk svo stjórn Katta- vinafélagsins bréf frá stjórn SDl, þar sem tilkynnt var, að stjórn SDI hefði fallist á, að Kattavina- félagið yðri aðili að SDÍ. Fram- haldsaðalfundur SDl hófst svo i Tjarnarbúð niðri, sunnudaginn 19. mars kl. 2 e.h. — Fundarstjóri var áfram Sigriður Asgeirsdóttir, héraðsdómslögmaður, sem Jór- unn Sörensen hafði skipað fundarstjóra aðalfundar andstætt lögum SDl, þar sem segir, að hann skuli kjósa á aðalfundi. Þá hafðihin skipaða kjörbréfanefnd, sem einnig átti að kjósa sam- kvæmt lögum SDI, þegar lokið störfum fyrir upphaf aðalfundar- ins, og tUkynnti formaður kjör- bréfanefndar, Ólafur Jónsson, lögfræðingur, um fjölda at- kvæðisbærra fulltrúa hvers félags. Vegna mjög aukins fjölda fulltrúa I salnum frá fyrri hluta aðalfundar, varð mönnum strax ljóst, að hér hefði eitthvað óvenjulegt skeð milli fyrri hluta aðalfundar og framhaldsaðal- fundar. Vitað var, að á fyrri hluta fundarins voru 2 fulltrúar með at- kvæði frá Dýraverndunarfélagi Akureyrar, og var þessi tala nefnd opinberlega á fyrri hluta fundarins, þvi aö það félag hafði þá lögskipuð kjörgögn. Nú voru fulltrúar þessa félags hinsvegar orðnir 6 talsins, hafði fjölgað um 4. Mest var þó aukningin á tölu at- kvæðisbærra fulltrúa frá Dýra- verndunarfélagi Reykjavikur. Eftir þvi sem næst varð komist á fyrri hluta aðalfundar, þá voru þeir þá 14, en á framhaldsaðal- fundi voru þeir orðnir 24 alls. Þess skal getið að kjörgögn voru ekki lögð fram á fyrri hluta aðal- fundarins fyrir Dýraverndunar- félag Reykjavikur, en talan 14 mun vera nærri sanni, ef saman eru taldir fulltrúar þeirra þá. Samkvæmt lögum SDÍ á hvert aðildarfélag rétt á 1 fulltrúa á aðalfund SDl fyrir hverja 10 með- limi upp að 100, en 1 fulltrúa fyrir hverja 25 félaga fram yfir 100. Samkvæmt þessu hefur þá Dýraverndunarfélag Reykjavik- ur haft um 200 félagsmenn fyrir fyrri hluta aðalfundar og þá átt rétt á 14 fulltrúum, en til að fá rétt á 24 fulltrúöSl þarf félagatalan að vera minnst 450. Þannig hefur þurft að fjölga i Dýraverndunar- félagi Reykjavikur um minnst 250 félagsmenn milli fyrri hluta og framhaldshluta aðalfundarins. Það mun vera fáheyrt fyrirbæri I islenzku félagslifi, og örugglega ekki lýðræðislegt, að hægt sé að fjölga félögum og þar með at- kvæðum ikjöri til stjórnar félags á meðan á aðalfundi stendur. Hér virðist þó tilgangurinn hafa helg- að meðalið hjá stjórn SDl, að hindra að hægt yrði að hrófla við áframhaldandi setu þeirra allra i stjórn SDt. A aðalfundinum var nokkuð rædd ársskýrsla SDl, sem form. SDl, Jórunn Sörensen, hafði lagt fram og hafði framsögu um aftur á framhaldsaðalfundinum. Þá var og rætt um ársreikninga SDÍ, enþessi mál verða ekki rædd hér að þessu sinni. Stjórn SDl lagði til, að skipuð yrði þriggja manna nefnd til að endurskoða lög SDÍ. Var þessari tillögu af aðalfundi breytt þann- ig, að hvert aðildarfélag SDI ætti einn fulltrúa i þessari laganefnd, sem skyldi skila tillögum fyrir næsta aðalfund. Næst skyldi hefja stjórnarkjör. Las fundarstjóri þá upp tillögu stjórnar SDt, að hún yrði öll endurkjörin og spurði, hvort nokkrar aðrar tillögur væru. For- maður Hundavinafélagsins, Jak- ob Jónasson, klæknir, fékk þá orðið og bar fram tillögu um menn i næstu stjórn SDl. Þegar hann vildi fá að kynna nánar þessa tillögu og þá menn, sem I framboði væru, stöðvaði fundar- stjóri hann og sagði, að nú væri aðeins stjórnarkjör á dagskrá, og aðeins mætti lesa upp nöfn manna, sem væru bornir fram. Þessu gerræði nótmælti formaður Hundavinafélagsins, þar eð hann taldi nauðsynlegt að skýra nánar bakgrunn þessarar tillögu. Fundarstjórisagði þá, aðþað yrði að biða þar til eftir stjórnarkjör- ið, undir liðnum önnur mál. Þótti mörgum fundarmönnum þaö harðir kostir að mega ekki kynna frambjóðendur fyrir kosningu i stjórn, en þeir mættu kynna sig eftir stjórnarkjör. Það þættu lik- lega einkennilegir framboðsfund- ir til Alþingiskosninga, ef þeir væruhaldnir að lokinni kosningu. Þannig fékk t.d. dr. Vilhjálm- ur G. Skúlason, prófessor, sem hafði gefið kost á sér sem for- mannsefni stjórnar SDI, ekki tækifæri tíl að koma fram og kynna sig fyrir stjórnarkosn- inguna. Fór þvi vegna þessarar ákvörð- unar fundarstjóra fram Uthlutun á þeim fjölda atkvæðaseðla, sem kjörbréfanefndin ákvað. En hún var skipuð á fyrra hluta aðal- fundarins og öll úr Dýraverndar- félagi Reykjavikur, en ekki lög- lega kosin eins og áður var frá skýrt. Enga skýringu fengu fundarmenn heldur frá formanni kjörbréfanefndar, Ólafi Jónssyni, lögfræðingi, hvernig á þvi gat staðið, að fulltrúum sumra að- ildarfélaganna hefði fjölgað svo mjög frá fyrri hluta til siðari hluta aðalfundarins. Eftir þessa fjölgunsamkvæmt mati þessarar kjörbréfanefndar var kjörseðla- fjöldinn þessi: Dýraverndunar- félag Reykjavikur 24 (áður um 14), Hundavinafélagið 24 (sama og áður), Kattavinafélagið 17 (sama og áður), Dýraverndunar- félag Hafnarfjarðar 11 (sama og áður) Dýraverndunarfélag Akur- eyrar 6 (áður 2) og Hundaræktar- sambandið 5 (áður likí. 2). Heildarfjölgun fulltrúa frá fyrri hluta aðalfundar til þess siðara er þannig um 17 fulltrúar, og þessi viðbótaratkvæði öll munu hafa komið til vegna aðgera fráfarandi stjórnar SDI til að tryggja endur- kjör hennar. — Enda fór svo, að stjórnin var öll endurkjörin, þannig að með þessum einræðis- legu bolabrögðum heppnaðist fráfarandi stjórn að tryggja sér setu til eins árs án nokkurra breytinga, Þótt Kattavinafélag Islands væri eitt af þremur stærstu aðildarfélögum SDl, þá gat fráfarandi (og endurkjörin) stjórn SDI ekki fallist á að það félag fengi einn einasta fuUtrúa i stjórn SDl. Stjórn SDl er þvi nú skipuð 3 fulltrúum úr Dýraverndunar- félagi Reykjavikur, 3 fulltrúum úr Hundavinafélaginu og 1 fuU- trúa úr Dýraverndunarfélagi Hafna rfjarðar. Eftír aUa þá tregðu, sem stjörn SDI sýndi við að samþykkja aðUd Kattavinafélags Islands strax i upphafi, siðan þessi ólýðræðis- legu brögð við fundarstjórn, kjör- bréfanefnd og fjölgun fulltrúa milU fyrri og siðari hluta aðal- fundar til að tryggja það, að Kattavinafélag Islands fengi eng- an mann i stjórn SDt, þótt ekki hafi tekist að hindra inngöngu þess i SDl, þá tók stjórn Katta- vinafélags íslands þá ákvörðum, að segja félagið strax úr Sam- bandi Dýraverndunarfélaga tslands. Það er sorgleg staðreynd, að stjórn Sambands Dýravernd- unarfélaga Islands hefur beitt þessum sérstæðu einræðislegu aðferðum til að sitja áfram. Um sjálfa kosninguna er enginn ágreiningur. Hún fór lýðræðis- lega fram, og talningu atkvæða önnuðust formenn allra aðildar- félaganna. Brögð þau, sem höfð voru i frammi, voru i fyrsta lagi þau, að fundarstjóri var skipaður enekki kosinn, eins og skal gert samkvæmt gildandi lögum SDt. Þá var i öðru lagi fundarstjórn einræðisleg og hlutdræg, mál- frelsi var ekki virt af fundar- stjóra, jafnvel þegar beðið var um orðið um fundarsköp. t þriðja Frh. á 10. sifiu

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.