Alþýðublaðið - 05.04.1978, Blaðsíða 9

Alþýðublaðið - 05.04.1978, Blaðsíða 9
SSCr Miðvikudagur 5. aprll 1978 9 Rótleysi og lífsfirring Alvarlegt ihugunarefni Fáir dagar liða svo, að við fregnum ekki utan úr þeim stóra heimi, að framin séu alls- konar hryðjuverk, sem i fljótu bragði verður ekki séð að þjóni öðrum tilgangi en að fram- kvæma tiltekinn verknað. Raunar er oft svo, að sitthvað er haft að yfirvarpi, sem við nánari athugun verður ljóst, að færir sizt nær yfirlýstum til- gangi. Þessi alda allskonar glæpa- verka, sem nú riður yfir hinn hrjáða heim, er þvi alvarlegri sem hennar verður ekki hvað sizt vart i gömlum og grónum þjóðfélögum þar sem upplýsing er talin i góðu lagi, að ekki sé mikið sagt. Þvi miður eru glæpafélög, sem skirrarst ekki við að nota hverskonar andstyggð, til að koma ætlunum stnum i fram- kvæmd, hreint ekki ný af nál- inni. Kveikjan i starfsemi þeirra er alloftast fjársöfnun og þá á grundvelli auðsins tækifæri til valda og áhrifa i viðkomandi þjóðfélögum. Auðvitað reyna stjórnvöld og hafa löngum reynt, að koma i veg fyrir slika starfsemi með öllum tiltækum ráðum, þó árangur hafi löngum orðið mis- jafn. En dæmin virðast sanna, að gegn hinni nýju hryðjuverka- öldu, sem nú eruppi, standa þau mun berskjaldaðri en i barátt- unni við auðgunarglæpamenn. Okkur er tjáð, að allskonar hryðjuverk séu framin i tilefni af þvi, að menn þykist þurfa að mótmæla einu og öðru sem þeim geðfellur ekki, og þá þykist þetta ógæfusama fólk, sem að þvi stendur, þurfa að gera eitt- hvað, sem veki nægilega athygli, ef árangur eigi að nást! Þetta nota allskonar öfgaöfl, til þess að freista þess að riðla öllu siðferðilegu gildismati og koma á þann hátt f ram fyrirætl- unum, sem ekki þola dagsljósið. Og þá er oft höfðað til hinna yngri, sem — af eðlilegum ástæðum — láta oft leiðast af miður yfirveguðum tilgangi. Sjónvarpið birti nokkuö athyglisverðan þátt i fyrrakvöld um hryðjuverkastarfsemina i Vestur Þýzkalandi, athyglis- verðan fyrir það, að reynt var að gera sér nokkra grein fyrir, i fyrsta lagi hvaða þjóðfélags- hópar væru næmastir fyrir þátttöku i þessum ófarnaði, og i örðu lagi hvað hefði virzt vera drýgsti þátturinn i að teyma þetta fólk út á ógæfubrautina. Alit þeirra, sem að voru spurðir, virtist vera, að yfirleitt væri börnum og unglingum úr sæmilega stæðum og allvel upp- lýstum stéttum i þjóðfélaginu hættara við að laðast að þessari ósvinnu, heldur en öðrum. Viðtalið við föður eftirlýsts glæpamanns, var einkar at- hyglisvert. Vitanlega vildi hann ekki samþykkja, að i drengnum hefði verið sérstaklega „ills þegns efni”. Það mun heldur ekki vera trú neinna foreldra, sem bera eðli- legar artir til afkvæma sinna. Þvert á móti lýsti hann drengnum sem alúðlegum og hjálpsömum einstaklingi, sem gjarnan vildi láta gott af sér leiða i samskiptum við foreldra og systkini. Enda þótt við vildum draga frá eðlilegrar persónulegar skekkjur i viðhorfi föðurins, gat varla hjá þvi farið að við sann- færðumstum, að hér væri ekki á ferðinni unglingur með neinar sérstakar glæpahneigðir. En hvaðgetur þá valdið slikri sorg? Þá er komið að hinum siðari þætti — orsökunum til þess, að svo fór sem fór. Varla verður hjá þvi komizt að skynja að þar hafi einhverskonar lifsleiði átt drýgstan þáttinn i óförunum, hugmyndaheimur, sem meng- aður var örvæntingu vegna til- gangsleysis með lifinu. öllu sómasamlegu fólki, hvort sem þaðer hérlenteða erlent, er það i blóð borið, að vilja ekki vinna að eða una við algert til- gangsleysi. Þá vill oft svo fara, að gripið er tilþess óráðs, að gera fremur illt en ekki neitt. Við getum auðvitað sagt, að hér sé um að ræða einhvers- konar þverbrest i uppeldinu. Það er gott, svo langt sem það nær, en nær þvi miður heldur skammt. Eitt er viðurkenningin, og annað er raunhæf gaumgæfni á hvernig úr skuli bæta. En ef við á annað borð föll- umst á, að lifið hafi raunveru- legan tilgang annan en þann, aö láta það liða um dal og hól, eru verkefnin vissulega næg. Nóg er til af allskonar mistökum og ranglæti i veröldinni, sem hver og einn gæti notað sem viðnám orku sinnar, til að bæta úr. En þá fara leiðirnar að skipta veru- legu máli. Þá kemur til greina gildismatið — matið á réttu og röngu — sem mannkynið hefur glimt viðalltsiðanEva tók eplið af skilningstrénu forðum! Sjálfsagt kemur það yfir flesta einhverntima á æfinni, að hugleiða meira og minna um til- gang þessa mannlifs og niður- stöður verða misjafnar, eins og gengur. En hvað sem þvi liður, mun það sannmæli, „að þegar lifsins löngun hverfur, lifið er eðli sinu fjær”. En sjáum við ekki daglega þess dæmi, að lifsfirringin sæki á i hugarheimi margra? Þá eru góð ráð dýr. Viðgetum enn þakkað himna- föðurnum fyrir, að hafa ekki fram að þessu þurft að glima viö, nema þá aðeins anga af þvi, sem hrjáir nú ýmsa aðra granna okkar — og þó... Stundum hlýtur það að hvarfla að okkur i þessu vel- ferðarþjóðfelagi, hvort við séum nægilega vökul i, að fá unga fólkinu þann ar { i hendur, sem entist þvi bezt, til að þoka málunum i rétta átt. Gefa lifi þeirra beinlinis tilgang og hamla þannig móti aðsteðjandi lifsfirringu. Viö þekkjum öll þá viöleitni, sem um sinn hefur verið einna mest áberandi, að gera eitthvaö fyrir ungdóminn! Þetta er auðvitað lofsverður vilji. En þá kemur að þvi, hvort ekki er fullmikið að þvi gert, að taka þessa hluti of alfarið úr höndum hinna yngri, sem njóta eiga. Er ekki þörf á að beina sér að þvi fremur að virkja orku, sem svellur þeim i barmi, heldur en fá þeim fyrirhafnarlitið allt upp i hendur? Nú þegar stöndum við örugg- lega á krossgötum þar sem veg- ir liggja til ýmissa átta. Eigum við ekki i öllum bænum að hætta við að óskapast yfir ýmisskonar misferli, sem hendir hina yngri og óþroskaðri? Það þýðir ekki, að gera eigi neinn sáttmála við hið ranga i fari þeirra. Það þýðir aðeins nauðsyn á að selja þeim i hendur kyndil, sem lýsir fram á veginn, til auðugra og fegurra mannlifs, ef við er- um manneskjur til þess. i HREINSKILNi SAGT ',Vi^Qddur A. Sigurjónsson Opid bréf Ari'TÍ*ðiisti Guðmundsson: Hvað óttast Þjóðviljinn? Hér á eftir fer stutt grein sem send var Þjóð- viljanum 11. mars af gefnu tilefni. Hún er merkt sem „opið bréf" — en venjulegir siðir fjöl- miðla eru meðal annarra þeir að birta slíkar grein- ar, a.m.k. úrdrætti, og svar. Þykir það rétt þó ekki sé nema til þess að standa við orð þau er blaðamenn eða aðrir setja á þrykk um menn og málefni. Ekki skal giskað á á- stæður Þjóðviljans til rit- skoðunarinnar, en lítil er reisnin og enn minni hug- dirfskan. Ég skora á Þjóðvilja- menn að svara pistlinum og gefa mér siðan eitt tækifæri til svars í blaði sínu svo þeir geti svo lok- ið umræðuhringnum. A.T.G. Þjóðviljanum til leiðbeining- ar. Opið bréf til Alfheiðar Inga- dóttur óg Einars Karls. 1 Þjóðviljanum, fimmtudag- inn 9. mars s.l., er minnst nokkrum sinnum á Einingar- samtök kommúnista (marx- leninista). Segir þar i greinum fundi i til- efni alþjóðadags kvenna, 8. mars, að það sé yfirlýst stefna EIK (m-1) að kljúfa allar sam- fylkingar vinstri manna svo- nefndra. Greinarhöfúnd, Alfheiður Ingadóttir, nefnir fund 8. mars- hreyfingarinnar i Tjarnarbúö sér til halds og trausts og svo kosningar nema i Háskóla Is- lands. Ekki veit ég hvar EIK (m-1) hafa lýst yfir klofningsstefnu á hendur öllum samfylkingum. En ef til vill gæti A.I. aðstoðað við leit á sliku. Mjög margir vita eitt og annað um afstöðu sam- takanna til samfylkinga. Það er t.d. alkunna að EIK (m-1) eru algjörlega ósammála þvi að Samtök herstöðvaand- stæðinga taki ekki stefnuskrár- bundna afstöðu i oröi og æði gegn báðum risaveldunum, Bandarikjunum og Sovétrikjun- um. Þá afstöðu standa fél. EIK (m-I) i SHA við og berjast fyrir henni um leið og þeir taka þátt i baráttu og fundum SHA. Þá er það vitað að EIK (m-1) eru algjörlega ósammála starfsaðferðum Rauðsokka- hreyfingarinnar og meginhluta stefnu hennar eins og hún hefur birst i 4—5 ár. EIK (m-1) eiga ekki félaga nú innan Rsh að fenginni reynslu, en styðja heilshugar og taka þátt i smiði 8. mars-hreyfingarinnar. Loks er ljóst að EIK (m-1) eru ósammála forvigismönnum „vinstri” stúdenta um hags- munamál nema i H.t. i öllum helstu atriðum og að þau berjast fyrir annarri grundvallar- stefnu. Hvatning um að skila auöu i kosningum er liður i þeirri baráttu og alls engin klofningsstefna fyrir það. Af þessum dæmum sést að það er ágreiningur um stefnu og starf sem meðal annars af- markar EIK (m-1) frá ýmsum vinstri öflum svonefndum. Sé barátta alisendis ólikra stefna kölluð klofningur, mætti alveg eins saka Alþýðubandalagið um klofningsstarfsemi gagnvart EIK (m-1) og EIK (m-1) um klofningsstarf gagnvart Al- þýðufiokki og Alþýðuflokk um klofningsstarf gagnvart Al- þýðubandalaginu! Eg skora á A.I. að leggja fram haldreipi fyrir dylgjur sinar um „yfirlýsta klofningsstefnu EIK (m-1)”. Við Álfheiði vil ég að lok- um leiðrétta þá tölu sem hún býr til sem mælikvarða á fund- arsókn til 8. mars-hreyfingar- innar. Hún staldraði I 2—3 min. á fundinum, tók 1—2 ljósmynd- ir, en taldi ekki fundarmenn. Þeir 250 sem hún ,,sá” þar voru tæplega 350. Einar Karl Haraldsson bætir um betur i klofningstalinu og segir EIK (m-1) halda margar aðgeröir á „dögum vinstri manna”, 1. mai, 1. des., 8. mars o.s.frv. þykir Einari þetta dóna- skapur og feluleikur hinn mesti, þvi EIK (m-1 feli sig á bak við alls konar ne' ndir. Með þessu vill Einar fá les- endur Þjóðviljans til að gæta sin á kommúnistunum sem læðast i sauðargæru að þeim. Mjög margir, — og trúlega Einar sjálfur — vita vel að t.d. Bar- áttunefndin 1. des og 8. mars- hreyfingin eru samfylkingar einstaklinga. Tugir og hundruð- ir baráttusinna standa að að- gerðum hverju sinni, margir ut- an EIK (m-1) — meir að segja Alþýðubandalagsfólk. Það er betra að gæta að at- kvæðunum en reyna að ein- angra EIK (m-1) án þess að gera a.m.k. tilraun til þess að gagnrýna stefnu samtakanna og hnjóta ekki um augljósustu staðreyndir. Þjóðviljinn reyndi um sinn að þegja um kommúnistanna og EIK (m-1), siðan tók við smá- skothrið, þar sem reynt er að gera litið úr þeim, sneiða hjá stefnumörkun þeirra, vaxandi virkni og fylgi, en bera út hald- litlar gróusögur i staðinn — svo nú hlýtur blaðið að fara að helga kommúnistunum heilar greinar og siður. Treysti Alþýðubandalagið og Þjóðviljinn sér út i opnar um- ræður um stéttabaráttuna og sósialiska hreyfingu munu EIK (m-1) og Verkalýðsblaðið sjá um að flokkurinn og blaðið geti ekki skorast undan þeim. 12/3 Ari T. Guðmundsson. form. miðstjórnar EIK (m4) Vhi%U*% lil Grensásvegi 7 Simi 82655. /VfOTOROL A Alternatorar i bila og báta 6, 12, 24 og 32 volta. Platinulausar transistor kveikjur i flesta bila. Iiobart rafsuðuvélar. Haukur og ólafur h. . Armúla 32—Simi 3 /7-00. _______________________j Auc^sencW ! AUGLYSiNGASlMI BLADSINS ER 14906 * Svefnbekkir á verksmiðjuverði SVEFNBEKKJA Höfðatúni 2 — Simi 15581 Reykjavik. 2- 50-50 Sendi- bfla- stöðin h.f.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.