Alþýðublaðið - 05.04.1978, Blaðsíða 3
JBSr Miðvikudagur 5. apríl 1978
3
Dýraspitali Watsons
ad taka til starfa
Alþýðublaðið hafði
samband við Sigriði Ás-
geirsdóttur, formann
sjálfseignastofnunar
Dýraspitala Watsons, og
innti hana frétta af
gangi mála um tilvon-
andi starfsemi Dýra-
spitalans.
— Þaö gengur nú lltið með
spitalann sjálfan, og við biðum
eftir þvi að hér i læknisumdæm-
inu I kringum Reykjavik komi að-
stoðardýralæknir til Brynjólfs
Sandholts, en hann hefur gefið
okkur vonir um að hann muni
koma til samstarfs við okkur og
gerast læknir spitalans, þegar
hann er búinn að fá þennan að-
stoðarlækni. Og mér skilst, eftir
þeim upplýsingum sem ég fékk
hjá Landbúnaðarráöuneytinu, að
búið sé að ráða þennan aðstoðar-
dýralækni, og var hann væntan-
legur 1. april.
Við i stjórninni tókum við
spitalanum 20. mai s.l. og á með-
an þetta hefur veriö að gerjast
alltsaman, þá höfum viö reynt að
nýta húsnæðið. Við leigöum það
út fyrir dýrageymslu i sumar, og
settum á stofn hjálparstöð, sem
að hefur það markmið að veita
dýrum hjálp i viðlögum, þangað
til næst i dýralækni, og einnig höf-
um við tekið dýr i geymslu og
reynt að koma þeim dýrum til
skila, sem hafa villst frá eigend-
um sinum þ.e. týnst. Ef ekki tekst
að finna eigandann, þá er reynt
að finna annað heimili handa dýr-
unum. En þetta er bara bráða-
birgðarekstur. Við erum að nýta
húsnæðið á meðan ekki næst i
dýralækni.
Mest eru þetta kettir og hundar
sem við höfum afskipti af, en lika
fuglar. Selskapsfuglar eins og
páfagaukar og þ.h. Fugla höfum
við lika geymt fyrir fólk.
Það er ósköp litið sem við get-
um gert. Sigfrið Þórisdóttir,
dýrahjúkrunarkona veitir sem
stendur aðeins fyrstu hjálp og
visar fólki til héraðsdýralæknis-
ins.
Spitalinn á öll möguleg tæki,
sem voru gefin með spitalanum i
upphafi. Það er t.d. fullkomin
skurðstofa, með ljósum og fæð-
ingargræjum og s.frv. Eins
fylgdu röntgentæki, en við erum ►
ekki farin að nota þau, þvi að það
þarf að gera undir eftirliti læknis.
Aftur á móti hefirr Borgarspital-
inn verið afskaplega vinsamlegur
við okkur og gefið okkur vilyrði
um að vera okkur innan handar
með myndatökur, þegar þar að
kerpur. Landspitalinn hefur svo
verið með eftirlitið eftir tækinu.
Almennur áhugi mun tvimæla-
laust vera fyrir spitalanum og ég
held að það sé mikil þörf fyrir
spitalann. Vandamálið er ef til
vill að þetta var kallaö spitali i
upphafi. A enskunni er talað um
„klinik” og það er eiginlega
meira göngudeild, en þegar alltaf
er verið að tala um spitala, þá
finnst mér alltaf að það þurfi að
vera maður á hvitum slopp með
hnif i hendi aö skera og skera, og
þetta hefur staðið okkur svolitiö
fyrir þrifum. Þetta er öllu frekar
hjúkrunarstöð. I gjafabréfinu frá
Mark Watson er alltaf talað um
hjúkrunarkonu en ekki lækni.
Hér er ekki til nein fullkomin
sóttkvi, en þvi hlutverki getur
spitalinn gegnt, ef á þarf aö
halda.
Það eru sex aðilar sem eiga
spitalann: Reykjavikurborg,
Samtök sveitarfélaga i Reykja-
neskjördæmi, Hestamannafélag-
ið Fákur, Hundavinafélagið,
Dýraverndunarfélag Reykjavik-
ur, Samband dýraverndunarfé-
laga á Islandi. ö.B.
Leikarar i Saumastofunni
40 þúsund manns hafa séd
Skjaldhamra og Saumastofuna
Um 40 þúsund manns hafa nú
séð Saumastofu Kjartans Ragn-
arssonar og Skjaldharma Jónas-
ar Arnasonar. Skjaldhamrarhafa
verið sýndir 180 sinnum en
Saumastofan 191 sinni. Reiknað
er með að báðar þessar sýningar
hverfi af fjölum Iðnós i þessum
mánuði,en þetta er þriðja leikárið
sem Leikfélag Reykjavlkur hefur
haft þessi leikrit til sýningar.
Þessar tvær sýningar eru nú
orðnar meðal þeirra sýninga,
sem mesta aðsókn hafa hlotið I is-
lenzkri leikhússögu.
Auk 180 sýninga i Iðnó hafa
Skjaldhamrar einnig verið settir
á svið i Finnlandi, á írlandi og i
Texas i Bandarikjunum. Auk þess
er verið að undirbúa sýningu á
verkinu I Sviþjóð og Sjónleikara-
félagið i Færeyjum mun sýna
Saumastofuna á næstunni.
-ATA
Fjármálaráduneytid gerir athugasemd:
TTEmbaettisafglöpT ad
greida laun án tilskilins
radningarsamn ings.. J’
Vegna skrifa í Alþýðu-
blaðinu sl. föstudag, þar
sem sagt var frá ýmsum
blikum, sem á lofti eru um
að segja upp ýmsum
mönnum, sem til þessa
hafa verið á timabundnum
ráðningarsamningi hjá
Orkustofnun, hefur fjár-
málaráðuneyti sent frá sér
athugasemd, sem hér birt-
ist, en meira um þetta mál,
var reyndar skrifað í blað-
ið i gsr, samkvæmt viðtali
við einn þeirra manna,
sem þassar aðgerðir
snertu. Athugasemd ráðu-
neytisins er á þessa leið:
Föstudaginn 31. mars
birtist grein í Aiþý'ðublað-
inu undir fyrirsögninni:
„Orkustofnun tekin í
sparnaðarfláningu". Efni
greinarinnar fjallaði m.a.
um að átján starfsmönn-
um Orkustofnunar hafi
ekki borist laun. Ráðning
starfsmanna þessara hafi
verið tímabundin og hafi
fjármálaráðuneytið ætlað
sér að taka af skarið um
sparnaðarráðstafanir og
það án samráðs við Orku-
stofnun, hvar borið skyldi
niður í sparnaðarskyni.
Samkvæmt ákvæðum
laga nr. 97/1974 um eftirlit
með ráðningu starfs-
manna ber að ráða starfs-
menn til þjónustu hjá rík-
inu með skriflegum gern-
ingi. Þeir starfsmenn sem
hér um ræðir, höfðu skrif-
legan samning við Orku-
stofnun og rann samningur
sá út án uppsagnar 31.
janúar 1978. Eftir að
samningurinn var runninn
út voru engar forsendur
fyrir hendi til launa-
greiðslna og hefðu það tal-
ist embættisafglöp starfs-
manna launadeildar ráðu-
neytisins að greiða laun án
tilskilins ráðningarsamn-
ings. Fjármálaráðuneytið
hefur engin afskipti af
starfsmannahaldi Orku-
stofnunar svo lengi sem
lög um ráðningu starfs-
manna eru virt og Orku-
stofnun starfar innan
þeirra marka sem fjár-
veitingavaldið ákveður
stofnuninni á hverjum
tíma. Einhvern veginn
virðist svo að til lengdar
gangi ekki að kaupa verk
né vinna án þess að vera
borgunarmaður.
Virðingarfyllst
Höskuldur Jónsson,
ráðuneytisstjóri
Pota Arnarflugs:
Viögerd tekur
4-6 vikur
Ekki er enn búið að
fullmeta tjónið sem
varð, er þotu Arnar-
flugs hlekktist á i lend-
ingu á Heathrow-flug-
velli fyrir skömmu. Enn
er verið að kanna málið
og mat mun sennilega
I iggja fyrir i lok vikunn-
ar.
Það liggur þó ljóst fyrir, að við-
gerð á vélinni mun taka 4-6 vikur
og ekki er reiknað með að hún
komizt aftur i gagnið fyrr en um
miðjan mai.
Arnarflug var búið að gera
samning við Air Malta um flug og
tók sá samningur gildi 1. april.
Félagið varð þvi að leigja vél
fyrir það flug. Siðan gerði Arnar-
flug samning við Flugleiðir og sjá
Flugleiðirum flug Arnarflugs hér
heima. Flugáætlun Arnarflugs
mun þvi ekki raskast neitt að
ráði.
-ATA
Um foreldra og þroska
heft börn
Nýlega kom út á islensku bók
Bretans Charles Hannam, For-
eldrar og þroskaheft börn. Bók
þessi fjallar um vandamál for-
eldra þeirra er eiga þroskaheft
börn. Efnið er sett fram á eink-
ar raunsæjan hátt, en jafnframt
um það fjallað af miklu sál-
fræðilegu innsæi og þekkingu.
Bókin gefur mjög lifandi mynd
afþeim margþættu erfiðleikum,
sem foreldrar þroskaheftra
barna eiga við að glima varð-
andi uppeldi þeirra. Höfundur
bókarinnar, Charles, er sjálfur
foreldri þroskahefts barns og
miðlar þvi m.a. af eigin reynslu.
Bókin er að meginhluta byggð
á samtölum við sjö fjölskyldur.
Tekin eru til meðferðar mis-
munandi viðfangsefni eins og
t.d.: Hvernig var foreldrum
skýrt frá vanþroska barnsins?
Hvaða áhrif hefur það á fjöl-
skylduna sem heild að ala upp
þroskaheft barn? Hvernig á að
meðhöndla barnið og móta upp-
eldisvenjur? Hvernig er sam-
bandi háttað við systkini?
Að áliti höfundar mun bókin
skrifuð i þeim tilgangi að auka
skilning fólks á málefnum
þroskahefta og þessvegna eigi
hún erindi til allra, sem láta sig
varða þessi mál.
Umsögn Ólafs ólafssonar
landlæknis, en hann ritar for-
mála að islensku útgáfunni er
m.a. svo hljóðandi: „Ég állt
þessabókgagnlega og fræðandi
fyrir flesta og ekki sist hel-
brigðisfólk og kennara sem ber
að sinna þessu vandamáli”.
Bókin sem er 125 bls. að stærð
og prýdd islenskum Ijósmynd-
um, tengdum efni bókarinnar,
er útgefin á vegum Iðunnar.
Þýðandi og höfundur ljósmynda
eru Margrét Margeirsdóttir og
Hafliði Hjartarsson.
Höfundur bókarinnar Foreldrar
og þroskaheft börn heldur þvl
m.a. fram aðforeldrar eigiað fá
upplýsingar um þroskahömlun
barnsins strax og vitneskja liggi
fyrir.
Kvenfélag Alþýðu-
flokksins í Hafnarfirði
Kvenfélag Alþýðuflokksins í Hafnarfirði
heldur aðalfund sinn 6. april næst komandi
i Alþýðuhúsinu klukkan 20:30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Hörður Zoponiasson kemur á fundinn og
ræðir drög að stefnumótun Alþýðuflokks-
ins i sveitarstjórnarmálum.
3. Kaffidrykkja.
Stjórnin.