Alþýðublaðið - 13.04.1978, Qupperneq 1

Alþýðublaðið - 13.04.1978, Qupperneq 1
1 SSSiSs FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 73. TBL. — 1978 — 59. ÁRG. Ritstjórn bladsins er til húsa í Sídumúla 11 — Sími (91)81866 — Kvöldsími frétta- vaktar (91) 81976 Afgreiöslubanni var hafnaö á Suöumesjum „ASÍ átti í heild ad vera með” „Bitnar harðast á láglaunafólki” — segir Karl Steinar Guönason, formaður Verkalýös- og sjómannafélags Keflavíkur Verkalýðsfélög á Suðurnesjum hafa nú ákveðið, að taka ekki þátt i afgreiðslubanni V er kama nnas amba nds íslands. Karl Steinar Guðnason, varafor- maður Verkamanna- sambandsins og for- maður Verkalýðs- og sjómannafélags Kefla- vikur, sagði i viðtali við blaðið i gær, að ástæðurnar fyrir þess- ari ákvörðun væru margvíslegar. 1 fyrsta lagi væri þaö einróma álit formanna verkalýösfélaga og alls þorra verkafólks á Suðurnesjum, að afgreiöslu- bann Verkamannasambandsins væri nánast tilgangslitil aðgerð, sem ekki myndi færa verkafólki þær umsömdu kjarabætur, sem rikisstjórnin hefði með valdboði svipt i burtu. 1 öðru lagi væri það sitt álit og annarra forystumanna verka- lýðsfélaga á Suðurnesjum, að Alþýðusamband lslands hefði i heild átt að taka þátt i varnar- striði verkalýðshreyfingarinn- ar, en ekki aðeins launalægsta fólkið. t þriðja lagi, sagöi Karl Stein- ar, að afgreiðslubannið væri af þeim toga spunniö, að likur bentu til að það myndi bitna harðast, m.a. með auknu at- vinnuleysi, á láglaunafólkinu, og að það myndi ekki hafa nein marktæk áhrif. I fjórða lagi væri þess að gæta, að rikisstjórnin væri nú rétt fyrir kosningar að knýja launafólk til aðgerða, sem hún myndisiðar nota i áróðri sinum gegn launþegahreyfingunni. Til að mæta þeim áróðri hefði að- eins algjör samstaða Alþýðu- sambandsins getað knúið rikis- stjórnina til samninga, sem auðvitað hefði verið æskileg- asta leiðin i þvi ógnarlega efna- hagsástandi, sem nú rikti. Karl Steinar sagði, að meðal annars af þessum ástæöum hefðu verkalýðsfélögin á Suðurnesjum ákveðið, að taka ekki þátt i afgreiðslubanni Verkamannasambandsins, en þau myndu i einu og öllu styðja þær aðgerðir, sem þau teldu liíc- legar til árangurs. I fimmta lagi sagði Karl, að nú væri svo skammt til kosn- inga, að launþegar á islandi ættu það svar bezt við árásum óvinveittrar rikisstjórnar, aö fella hana i kosningum og stuðla að myndun rikisstjórnar, þar sem fulltrúar launþega færu með völd. Vestfirdingar fylgi stefnu Verkamannasambandsins „Suöurnesin ekki þýöingar meiri en Melgraseyri og Hesteyri” — segir formaður Alþýöusam- bands Vestf jarða ,,Ég tel að það skipti framkvæmd þessa út- flutningsbanns afar litlu máli, hvort Suðurnesin verða með eða ekki, þetta er svo smátt i snið- um”, sagði Pétur Sigurðsson, formaður Alþýðusambands Vest- fjarða, i viðtali við Alþýðublaðið i gær. „Þetta er svipað og við hér vestra settum út- flutningsbann á Hest- eyri og Melgraseyri, — áhrifin yrðu engin”. Pétur Sigurðsson sagði að á sunnudag yrði fundur á bafirði, þar sem kæmu saman fulltrúar frá vestfirzkum verkalýðsfélög- um, þrir frá hverju félagi, alls 35-38 menn. A þeim fundi mundi það ráðast hver afstaöa vestfirð- inga yrði, en sjálfur sagði Pétur það sitt álit að vestfirðingum bæri að standa sem einn maður með yfirlýstri stefnu Verkamanna- sambandsins að útflutningsbann- inu. ,,A Suðurnesjum er 15-20 húsum ætlað að taka við álika afla og eitt hús tekur við hér og þeirra aö- staða er á margan hátt ööruvisi fyrir vikið. Þeir hafa til dæmis lent i því að bankarnir hafa skip- að þeim að selja skip sin, til þess að bjarga frystihúsunum og ég öfunda engan af að búa við slika fjármálastjórn”, sagði Pétur Sigurðsson. „Þeir eiga mörg mál óleyst við rikisvaldið og ekki sið- ur sín sjálfra á milli. Okkar stefna ætti svo að verða ljós á sunnudag, en hér eru óneitanlega uppi ýmsar aðrar hugmyndir en minar um málin, td. allsherjar- verkfall og fleira þvi um likt”. AM Ljósmyndari blaösins rakst á þessa ágetu vini i gærdag. Þeir áttu svo sannarlega erfitt meö aö halda sér i skefjum, svo mikil var kátínan og fjöriö. En hvaö leggur maður ekki á sig þegar blaða- Ijósmyndari er nálægur. Samt sem áöur er greinilegt aö Peking-hundurinn til vinstri getur ekki haldiöaftur af brosinu þó aöhinum skozka vini hans takist aö sýnast alvarlegur. AB-mynd ATA Útflutmngsbarmid æ víðtækara Reykjavík, Höfn og Akra- - útskipun frá bannsvæðum ekki leyfö um „fríhafnir” nes í nótt I kvöld er boðaður fund- ur hjá Verkamannasam- bandi Islands, þar sem „staðan" verður rædd, eins og hún nú er, sagði Þórir Daníelsson, fram- kvæmdastjóri sambands- ins i viðtali við blaðið i gær. I kvöld bætast Reykja- vík, Höfn í Hornafirði, Akranes og fleiri staðir í hóp þeirra, sem sett hafa á útf lutningsbann. Aðra nótt koma svo Akureyri, Þorlákshöfn, Hrísey, Dalvík, Ólafsfjörður og fleiri staðir inn í dæmið. Hlíf í Hafnarfirði hefur loks sinar aðgerðir þann 15., en alls hefur þetta bann nú verið boðað á 23 stöðum. Að Vestfjörðum og Suð- Frh. á 10. siðu

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.