Alþýðublaðið - 13.04.1978, Síða 3
MaM* Fimmtudagur 13. apríl 1978
L.A. sýnir „Hunangsilm”
Föstudaginn 14. apríl
veröur 5. frumsýninq
þessa leikárs hjá Leikfé-
lagi Akureyrar. Sýnt verð-
ur leikritið Hunangsilmur
eftir Shelagh Delaney i
þýðingu Ásgeirs Hjartar-
sonar. Leikstjóri er Jill
Brooke Árnason, höfundur
og smiður leikmyndar
Hallmundur Kristinsson,
búninga gerir Freygerður
Magnúsdóttir, leikarar
sjálfir annast um leikmuni
og sviðsskiptingar.
Hlutverk eru 5, aðalhlutverkið,
ungu stúlkuna, Jo, leikur Kristin
A. ólafsdóttir, móðurina, Helen,
leikur Sigurveig Jónsdóttir, hlut-
verk kærasta móðurinnar er i
höndum bóris Steingrimssonar.
Geoffrey, ungan mann, leikur,
Aðalsteinn Bergdal. Leikritiö var '
fyrst sýnt i London i leiksmiðju
hins fræga leikstjóra Joan
Littlewood fyrir nákvæmlega 20
árum og hlaut skjótt heimsfrægð.
1967 var það svo flutt i Þjóðleik-
húsi, en viðstödd þá frumsýningu
var höfundurinn, Shelagh
Delaney, sem uppfrá þvi gerðist
mikill Islandsvinur.
1 uppfærslu leikstjórans, Jill
Brooke Arnason, er sýningin látin
gerast á 6. áratugnum, búningar
eru tiska þess tima og öll tónlist
sem leikin er á vinsældarlistan-
um 1950 til 1958. Verkið lýsir við-
horfum unglings fyrir 20 árum,
samskiptum ungrar stúlku við
fólk og umhverfi sitt.
L.A. hefur nú fengiö til afnota
hin prýðilegustu hljómburðar-
tæki, sem Akureyrar bær hefur
keypt fyrir Samkomuhúsið, en
fram að þessu hefur orðið að fá
slik tæki að láni hjá hinum og
þessum velviljuðum út um allan
bæ. Nú geta leikhúsgestir notið
tónlistar strax og þeir koma inn i
anddyrið, þvi leiksýningin hefst
eiginlega þar með vinsælustu tón-
list 6. áratugsins eins og fyrr er
sagt og sýningu jafnframt á kvik-
myndaauglýsingaspjöldum sama
tima.
Vestfirzkir línusjómenn
mótmæla ákvöróun
Verðlagsráós:
Steinbítsveió
um stefnt í
tvísýnu
— Við undirritaðir
sjómenn á Vestfjörðum
mótmælum harðlega
siðustu verðákvörðun
Verðlagsráðs sjávarút-
vegsins á steinbit. Þar
sem við teljum að
forsendur fyrir
verðákvörðun þessari
séu ekki réttar, skorum
við á rikisvald og verð-
lagsráð að hlutast til
um, að nýtingarkönnun
á steinbit i vinnslu fari
fram hér á Vestfjörðum,
á vegum Rannsóknar-
stofnunar fiskiðnaðarins
og Þjóðhagsstofnunar á
þessari vertið. — Þannig
hljóðar upphaf mót-
mælaorðsendingar sem
Vestfirskir sjómenn
hafa sent frá sér vegna
siðustu ákvörðunar
Verðlagsráðs sjávarút-
vegsins um steinbits-
verð.
Telja sjómennirnir að með
óbreyttri stefnu verðlagsráðs,
þar sem hlutfall steinbitsverðs
miðað við þorsk og ýsu fer versn-
andi ár frá ári, sé stefnt aö þvi að
sjómenn leggi niður steinbíts-
veiðar meö linu og snúi sér þess i
stað að neta- og botnvörpu-
veiðum, sem óhjákvæmilega leiði
til aukinnar sóknar i þorskinn.
1 tilkynningu frá Verðjöfnunar-
sjóði fiskiðnaðarins um verð-
grunn fyrir freðfisk á timabilinu
frá 1. jan.—31. mai 1978 kemur
m.a. eftirfarandi fram:
„Verð á þorski pakkaður i 10x5
er kr. 297,37 pr. lbs. ( = 655 kr. pr.
kg.) Verð á steinbit i samskonar
pakkningum er 327,36 kr. pr. lbs.
( =721 kr. pr. kg.).”
Til samanburðar benda
sjómennirnir á, að skiptaverð á
þorski fyrir sama tlmabil sé hæst
95 kr. pr kg. fyrir óslægöan fisk,
en sambærilegt verö fyrir steinbit
er 53 kr. pr. kg.
Með hliðsjón af ofangreindu
telja Vestfirsku llnusjómennirnir
ljóst, að hið lága verö á steinblt
stafi af lélegri nýtingu við vinnsl-
una. Jafnframt draga þeir I efa aö
nýtingarmismunur á þorski og
steinbit sé svo mikill aö hann rétt-
læti þennan verðmismun.
GEK.
%
Sandgerói:
Óhádir borgarar og Albvduflokkurinn
bjóða fram sameiginlegan lista
— í sveitarstjórnarkosningum
Flutt verður
verk eftir
íslending
— á tónlistar-
hátfð ISCIVI
í Helsinki
Á tónlistarhátið
ISCM (Inter na tiona 1
Society for Contemp-
orary Music), sem
haldinn verður i
Stokkhólmi og Hel-
sinki dagana 6.-14.
mai n.k., verður flutt
islenskt tónverk eftir
Elias Daviðsson. Verk
þetta hefur aldrei ver-
ið flutt hér heima en
oft erlendis. Það er
hópur sænskra lista-
manna frá tónlistar-
félaginu Fylkingen i
Stokkhólmi sem flytur
verkið i Helsinki þann
12. mai n.k.
Tónlistarhátlð þessi er ein
fremsta sinnar tegundar i
heiminum og þykir mikil,
viðurkenning að fá verk flutt
þar. Þetta er I fyrsta skipti
sem verk eftir Elias er flutt á
þessum vettvangi, en áöur
hafa verið flutt á þessari hátið
verk eftir Jón Leifs, Karl 0.
Runólfsson, Fjölni Stefánsson,
Leif Þórarinsson, Þorkel Sig-
urbjörnsson og Atla Heimi
Sveinsson.
Tónskáldafélag Islands stóð
fyrir ISCM-hátiö hér I Reykja-
vlk árið 1973.
Fyrir skömmu var
birtur framboðslisti
óháðra borgara og
Alþýðuflokksins i
iSandgerði. Var
hann birtur að undan-
genginni skoðanakönn-
un sem fram fór 4. og 5.
febrúar. í skoðanakönn-
i gær boðaði Slysa-
varnafélag Islands til
blaðamannafundar i til-
efni þess/ að nú hefur verið
hleyptaf stokkunum happ-
drætti félagsins. Vinningar
eru Chevrolet Malibu
bifreið og ennfremur 9
Binafone sjónvarpsspil.
Dregið verður þann 17. júni
og eru vinningar skatt-
frjálsir, að upphæð
4.382.730.oo kr.
Gunnar Friðriksson, forseti
Slysavarnafélagsins skýrði frá
hvernig staðið væri að fjáröflun
félagsins, en þar er um sjálfboða-
liðsstarf að ræða, sem færir á
hverju ári marga tugi milljóna i
aðra hönd til starfsins. Skýli og
uninni voru gild atkvæði
280. í sveitarstjórnar-
kosningunum árið 1974
buðu þessir aðilar einnig
fram sameiginlega og
eiga nú 2 hrepps-
nefndarf ulltrúa i
hreppsnefndinni, af 5
mögulegum. Listann til
stöðvar félagsins eru 98 talsins og
nefndi Kristján sem dæmi um
áhuga manna, sem að þessari
uppbyggingu vinna, aö nú væri að
risa i Hafnarfirði skýli, sem kost-
aði 20-25 millj. króna og heföu fé-
lagsmenn sjálfir staðið aö fram-
kvæmdinni að öllu leyti og lagt
fram óhemju sjálfboðastarf.
Þá skýrði framkvæmdastjóri
happdrættisins frá framkvæmd
þess, en i þessu happdrætti eru
ekki sendir út giróseðlar, heldur
einvörðungu selt úr hendi til
hendi. Björgunardeildir og
kvennadeildir vinna viðast mikið
starf við söluna og áætlað er að
seldir verði miðar á bilasýning-
unni, sem nú stendur fyrir dyr-
um, en þar verður bæði selt úr
sérstökum bás og úr happdrættis-
bilnum. Deildir félagsins fá sjálf-
ar 25.000.oo krónur af sölu til eigin
nota.
hreppsnefndar, skipa
eftirtaldir:
1. Jón Norðfjörö, slökkviliðs-
maður, Vallargötu 29.
2. Kristinn Lárusson, verka-
maður, Suðurgötu 30.
3. Friðrik Björnsson. rafvirkja-
meistari, Tjarnargötu 8.
4. Jórunn • Guðmundsdóttir,
húsmöðir,'Hliðargötu 31.
5. Sigurrós Sigurðardóttir,
verkakona, Uppsalavegi 7.
28t30.april næstkomandi verður
haldið 50 ára afmælisþing Slysa-
varnafélagsins og er gert ráö
Laugardaginn 15. april verður
179. sýning á leikriti Jónasar
Arnasonar, Skjaldhömrum, i Iönó
og hefur þá ekkert islenskt verk
verið sýnt jafnoft i Reykjavik,
samfleytt. Skjaldhamrar voru
auk þess sýndir fjórum sinnum i
leikför til Færeyja.
Þar með er hnekkt meti sem
sett var 1972 með Kristnihaldi
undir Jökli eftir Halldór Laxness,
en það var sýnt 178 sinnum sam-
6. Sigurður Guöjónsson,
byggingameistari, Stafnesv.
2.
7. Egill Ölafsson, slökkviliðs-
maður, Bjarmalandi 9.
8. Guðni Sigurðsson, lögreglu-
þjónn, Hliðargötu 29.
9. ElfasGuðmundsson, verka-
maöur, Holtsgötu 2.
10. Bergur Sigurðsson, vélstjóri,
Stafnesvegi 2.
Til sýslunefndar eru I framboði
sem aöalmaður Bergur Sigurðs-
son verkstjóri, Stafnesvegi 2, og
sem varamaður Sumarliöi Lárus-
son, verkstjóri, Túngötu.
fyrir að þangað komi 130-140 full-
trúar.
fleytt i Iðnó. Það verk sem næst
kemur að sýningafjölda á fjölum
Iðnós er Hart i bak eftir Jökul
Jakobsson, sýnt 160 sinnum þar,
en auk þess 45 sinnum i leikferð-
um úti um land. Saumastofan eft-
ir Kjartan Ragnarsson hefur ver-
ið sýnd 135 sinnum i Iðnó og auk
þess 57 sinnum utan Reykjavlkur.
— Sýningum á þessum vinsælu
verkum, Saumastofu og Skjald-
hömrum, er nú að ljúka.
EI.
Happdrætti Slysavarnarfélags Islands:
Glæsilegir vinningar í bodi
AM
Sýningarmet á
Skjaldhömrum