Alþýðublaðið - 13.04.1978, Qupperneq 5

Alþýðublaðið - 13.04.1978, Qupperneq 5
ssssr Fimmtudagur 13. apríl 1978 ^ 5 „Stéttin er nákvæmlega 140 metrar.” „Skrúfan” á salt- skipinu 1911 Spjallad vid Odd Jónsson, 89 ára verkamann „Verkfall, —i þá daga köliuOum viö þaö skráfu”. „Við komum hér fyr- ir einum sjö árum, kon- an og ég, hún i körfu, já, var orðinn svomikill sjúklingur og ég að heita orðinn blindur. Svo dó hún nú fyrir fimm árum og þá höfð- um við nöldrað saman i fimmtiu og fjögur ár. Nei, við gátum ekki verið saman hérna á heimilinu. Það var ekki hægt.” Eitthvað á þessa leið sagðist Oddi Jónssyni frá, þegar við fundum hann að máli i fyrradag á Hrafnistu, en hann hafði reyndar hringt til okkar á Al- þýðublaðinu, vegna þess að hann þurfti að fræðast um dálit- ið mál, sem snerti ellilifeyrinn og vegna þess að hann hefði ver- ið i linu Alþýðuflokksins fram að viðreisnarstjórninni, en við- reisnarsamstarfið sagðist hann aldrei hafa fyrirgefið flokki sln- um og vildi ekki segja okkur hvort eða hvern hann kysi nú. En þó hafði hann nú tal af blað- inu og loks hélt hann að við blaðamennirnir vissum meira, en á daginn kom að viö vissum, um ellilifeyrinn, en við lofuðum að athuga málið eftir beztu getu, og fyrst við vorum komnir settumst við niður og ræddum við Odd nokkra stund. Þegar Kringlumýrin var kartöflugarður Annars þótti Oddi Jónssyni að þetta væru mestu börn sem komin voru að finna hann, hann sagðist heyra það á röddinni, en sjálfur er hann lika orðinn 89 ára gamall. Honum þótti þaö bersýnilega alveg hlægilegt að hitta svona menn, sem ekki mundu þegar Kringlumýrin var öll einn kartöflugarður, alveg suður að Lækjarhvammi. 1 þeim görðum átti Oddur áður margt dags verkiö, en hann fór um garðana með plóg og hesta og plægöi fyrir garðeigendur ár- um saman. Hver garðeigenda borgaði svo fyrir plæginguna og það var misjafnt hve mikið menn guldu fyrir, sumir borg- uðu helmingi meira en upp var sett. Oddur kvaðst oft hafa hitt slika menn fyrir á lifsleiðinni, þótt ekki hefði það nú nægt til þess, að hann safnaði auði, — nei, það hefði henn aldrei gert. Oddur átti marga hesta þá og við þetta var hann um þrjátiu ára bil. Hitaveitan 1909 \ Oddur var tvitugur, þegar hann starfaði há Stefáni B. Jónssyni á Reykjum að upp- setningu fyrstu hitaveitu á Is- landi, hann keyrði rörin fyrir Stefán, alls 1200 metra, frá hvernum að bæjarhúsunum. Stefán vará undan sinni samtið á margan hátt og loks var hver- inn á Reykjum einstakur að þvi leyti, að hann lá nógu hátt til þess að vatninu yrði veitt frá honum. Nú eru sextiu og niu ár liðin frá þvi þessi framkvæmd var gerð og blaðamanni dettur I hug að þá var Björn Jónsson ný- lega kominn i embætti á eftir Hannesi Hafstein en Scott og Shackleton að búast I heim- skautaferðir suður i Englandi. ,,Nei, — maöur hefur ekki safn- aö auöi”. Eini bolsevikinn á Kjalarnesi Oddur er fæddur i Króki á Kjalarnesi og I þá daga urðu menn skjótt að taka til hendinni og Oddur gerðist snemma verkalýðssinnaður og fullyrti að á Kjalarnesi heföi hann verið eini bolsevikinn. Þessi barátta hefði átt mjög á hallann að sækja i þann tið, en þá vantaöi heldurekki mannvalið i forystu- sveitina og blind augun ljóma, þegar hann minnist Ólafs Friö- rikssonar. „Það er samstaðan sem gildir,” sagði Oddur Jóns- son, „mér finnst svo ægilegt, hvernig þessir vinstri menn hamast við að traðka skóinn hver niður af öðrum nú,” Oddur réðst snemma á tog- ara, sá fyrsti var Fortuna frá Fleetwood. Þetta var enskur togari og þar komst Oddur i kynni við Breta. Þarna voru að sjálfsögðu engin vökulög, en það var bót f máli að Bretar voru ekki jafn harðir að standa og Is- lendingarnir. „Þeir duttu á undan,” segir Oddur, „byrjuðu að detta, i siíellu, svona einn af öðrum.” Mannskapurinn var misjafn og Oddur man eftir stórum drjóla, sem verið haföi I Búastriðinu og var honum leið- inlegur, en um það vill hann ekki nánar tala. Seinna réðst hann á „Great Admiral” með Þórarni Olgeirssyni, og það þótti mikið happ. Að komast á togara var lika eitt og út af fyrir sig mikið happ i þann tið. Á saltskipinu 1 janúar árið 1911 fóru 20 menn með Hólum austur undir Vestmannaeyjar að skipa upp salti. Þessi flokkur var þá settur um borð I norskt saltskip, sem hafði innan borðs saltfarm frá Milljónafélaginu og I saltlest- inni höfðust þeir við um hálfs- mánaðar skeið. Kosturinn var rúgbrauð og magarin og ekki annan beina höfðu þeir á skipinu en heitt vatn, sem „kokkdjöfull, danskur,” rétti þeim i katli út- um kýrauga á eldhúsinu. Vinn- an fór þannig fram að þeir mok- uðu saltinu i dunka, sem svo var látið i poka og hift um borð i uppskipunarbát, þvi bryggja fannst þá engin i Eyjum. Kaupið við þessa vinnu var 25 aurar á timann, — Oddur hafði fimm aurum meira, þvi hann tók aö sér aö sópa upp salti af ,,0'afur Friöriksson var nú maöur, sem reiöa mátti sig á’’ lestargólfinu, þegar ekki var verið að vinna. Kaup var aðeins greitt, meðan skipað var upp, en það var ekki alltaf, þvi stundum var vont i sjóinn. „Skrúfan” „Við höfðum heyrt að sums staðar væri greitt hærra kaup, þegar unnið var á sunnudög- um,” segir Oddur. „Auðvitað ekki á tslandi, en i öðrum lönd- um. Þess vegna tókum við okk- ur til einn sunnudagsmorgun og gengum upp úr lestinni, allir tuttugu. Einn hafði orð fyrir okkur og sagði að við mundum ekki vinna, nema við fengjum greitt helmingi hærra kaup á sunnudögum og um helgar. Það kom mikið fát á menn við þetta en það hjálpaði til að skipstjór- inn var orðinn órólegur, var vist orðinn á eftir áætlun, og þeir fóru i land að ráðgast um hvað gera skyldi. Við höfðum okkar mál fram og ég veit ekki betur en þetta sé fyrsta verkfallið hér, en i þá daga hét það skrúfa. Þegar þeir voru að borga mér kaupið mitt, eftir að til Reykja- vikur kom, sagði gjaldkerinn aö réttast væri að svipta mig þess- um fimm aurum fyrir uppsópið, „fyrst karlarnir fengust ekki til að vinna.” Hjá Reykjavikur- borg í 28 ár Um 28 ára skeið var Oddur I vinnu hjá Reykjavikurborg og verður hann ekki vændur um að hafa setið með hendur i skauti um dagana. Hann er þó hinn hressasti og lætur ekki hjá liöa að sanna okkur gestum sínum að hann slær hælunum auðveld- lega upp undir rass sér ennþá og það þótt hann i fyrra hafi fallið á stéttinni fyrir utan heimilið og lærbrotnað. Oddur hefur verið sjónlaus i I4áren segist hafa dálitla glætu af sjón, hann sér hvar glugginn er og þegar kveikt er á kvöldum og hann tekur eftir, þegar ljós- myndarinn er að „blikka eitt- hvað.” Hann segist hafa haft fyrir reglu að ganga hálfan til heiian kilómetra á dag á stéttinnj og brautin sem hann gengur er 140 metrar, hann veit það, þvi hann var orðinn leikinn i að skrefa kartöflugarðanna i Kringlu- mýrinni með nokkuð mikilli ná- kvæmni hér áður. En Oddur er ekki sáttur við aö vera þarna á sjúkradeild Hrafnistu. Hann segist hafa orð góðra manna fyrir þvi að kroppurinn sé enn eins og á unglingi og menn hafi margir spurt hvað svo hress maður væri að vilja á sjúkra- deild. En hann er ekki heiminum gleymdur, hann á fjögur börn, sem koma aö heimsækja hann og hann á auðvitað barnabörn og barnabarnabörn, er sem sagt orðinn iangalangafi. Hann fylg- ist vel með og segist ekki mega missa af nokkru töluðu máli, sem sér gefist kostur á. Hann hefur lika framhaldssögur á spólum hjá sér og það styttir oft stundirnar. Blaöamennirnir tygja sig til ferðar og Oddur minnir okkur enn á að athuga þetta með elli- lifeyrinn, en hann fær ekki betur séð en hann hafi verið hlunnfar- in um þá peninga i þrjú ár og eins og nærri má geta er ekki létt að standa i slikri málarann- sókn fyrir 89 ára gamlan mann og blindan að auki. Það ætti hver að geta skiliö, sem sér sig sjálfan i þeim sporum.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.