Alþýðublaðið - 20.10.1979, Page 2
Reykurinn af fyrstu kosninga-
bombum Alþýðubandalags og
Þjóövilja er nú sem óðast að
gufa upp og hverfa út i and-
rúmsloftiö.
■ Þeir segja að minnihluta-
stjórn Alþýðuflokksins sé meiri-
hlutastjórn, hvað sem tautar og
raular.
Meö þessu eru þeir að bera
forseta fslands á brýn
embættisafglöp. Forsetinn
komst að þeirri niðurstöðu, eftir
viðræöur viö leiötoga stjórn-
málaflokkanna, aö ekki væru
forsendur fyrir myndun meiri-
hlutastjórnar, án undangeng-
inna kosninga. Hann fól for-
manni Alþýöuflokksins, Bene-
dikt Gröndal, þess vegna aö
mynda minnihlutastjórn fram
að kosningum. Alþýðu-
flokkurinn myndaöi þessa
stjórn til aö fylgja fram kröfu
sinni um þingrof og kosningar.
Hann hefur staðið við hvort
tveggja. Samkvæmt þingræðis-
reglum, getur minnihlutastjórn
ekki stjórnað með bráðabirgða-
lögum, sem ekki er fyrirfram
vitað, að styðjist við meirihluta
Alþingis. Ef hér væri um meiri-
hlutastjórn aðræða, væri ekkert
sem hindraöi, að Alþýðuflokk-
urinn réðist i það með oddi og
egg, að koma fram stefnu sinni
meö bráðabirgöalögum. En ef
hann hegðaði sér þannig, eins og
meirihlutastjórn, myndi
væntanlega heldur betur hvlna I
táknunum AB — og
Framsóknarmanna.
■ Þeir segja að minnihluta-
stjórnin sé „viðreisn” aftur-
gengin. Þeim hefur ekki, þrátl
fyrir mikla leit, tekist að finna'
nein rök fyrir þessari full-
yrðingu, enda er hún úr lausu
lofti gripin. Alþýðuflokkurinn
hefur engan málefnasamning
gert við Sjálfstæöisflokkinn, svo
sem eölilegt er, þar sem ekki er
um meirihlutastjórn aö ræða.
Samkomulag þessara flokka er
einvöröungu um framkvæmda-
atriði kosninganna sjálfra.
Annað ekki. Spurningin um
stjórnarmyndun að kosningum
loknum, er þvi algerlega á valdi
kjósenda sjálfra, svo sem eöli-
legt er. Þaö fylgi, sem Alþýð-
flokkurinn fær fyrir jafnvægis-
stefnu sinni, mun þvi ráöa þvi,
hvort flokkurinn gengur til
stjórnarsamstarfs eftir
kosningar, og þá meö hverjum.
■ Þeir hafa lýst ábyrgð á
hendur Alþýðuflokknum fyrir
að „etja þjóðinniút I kosningar”
— eins og það er svo smekklega
orðað, — og kalla yfir þjóðina
stjórnleysi.
Svarið við þvi er, að með þvi
aö rifta stjórnarsamstarfinu,
sem var lamað af sundurlyndi,
var Alþýðuflokkurinn að binda
endi á óþolandi stjórnleysi. Þeir
sem fjargviðrast út af
kosningum I desember, gleyma
þvi, að með þvi aö draga kosn-
ingar fram á vor, sætu menn
uppi með minnihlutastjórn I
allan vetur. Enda þótt minni-
hlutastjórn Alþýðuflokksins sé
ágætlega skipuö, þá þykir okkur
nóg um slika traustsyfirlýsingu
Alþýðuflokkurinn kýs heldur, að
leggja málin I dóm kjósenda.
Þeir eiga að ráöa þvi, hvort
ástandiö kallar ekki, að þeirra
mati, á myndun sterkrar meiri-
hlutastjórnar.
Ummæli fyrrverandi mennta-
málaráöherra, um að „þjóðinni
sé att út i kosningar”, lýsa
hugarfari, sem jafnaðarmenn
kunna ekki aö meta. Það má vel
vera, og styðst við ærin rök, að
Alþýðubandalagiö sé skelfingu
lostiö viö að þurfa að ganga
undir dóm kjósenda, sem hafa
nú fengið næga reynslu af
stjórnarþátttöku Alþýðubanda-
lagsins. Þess vegna er ekki
sparað, að hafa uppi móðgandi
ummæli um kjósendur, og jafn-
vel hafa I hótunum viö þá.
Sumir forsprakkar Alþýðu-
bandalagsins segja nú hver eftir
öörum: Ef kjósendur makka
ekki rétt, þá munum við (les:
Alþýðubandalagiö innan verka-
lýöshreyfingarinnar) efna til
styrjaldar á vinnumarkaðnum.
Svar kjósenda við þvi er aöeins
eitt. Flokkur manna, sem
gengur til kosninga meö móðg-
unum og hótunum i garö kjós-
enda, veröskuldar vel úti látna
ráöningu. Jafnaöarmenn
treysta kjósendum fyllilega til
þess.
g Alþýðubandalags- og
(ramsóknarmenn hafa það
hver eftir öðrum, að Alþýöu-
flokkurinn sé að koma landinu
undir „ihaldsstjórn”.
Það eru þeirra orð, en ekki
okkar. Enn verður aö benda
þeim á það, að meö ákvöröun
sinni um stjórnarslit, var
Alþýðuflokkurinn að forða
landinu frá stjórnleysi. Að öðru
leyti mun Alþýöuflokkurinn
ekki taka ákvörðun um það,
hverjir stjórna landinu eftir
kosningar. Þá ákvörðun munu
kjósendur taka, samkvæmt
lýðræðislegum leikreglum. Við
skiljum það hins vegar vel, að
Framsóknar- og Alþýöubanda-
lagsmenn séu fyrirfram sann-
færðir um það, aö kjósendur
muni ekki fela þeim að stjórna
landinu. Það styöst viö rök.
■ Leiðarahöfundur Tlmans
kallar minnihlutastjórn Alþýðu-
flokksins dúkkulfsustjórn.
Hann sækir likinguna til Lisu i
Undralandi. Lisa var nokkuð
klár stelpa: Hún sá brenglaða
tilveru i frumlegu ljósi.
Ef Undralandið er það ein-
staka efnahagsundur óðaverð-
bólgunnar, sem Alþýðubanda-
lagið átti mestan þátt i að
skapa, og Framsókn hafði geð i
sér að sætta sig við, þá getum
við vel fallist á likinguna. Lisa i
Undralandi á þá eftir að koma
ýmsum á óvart.
—JBH
Laugardagsleiðari:
LÍSA í UNDRALANDI
Bókagjöf
Kanadastjórnar
afhent
Landsbókasafni
A ellefu alda afmæli tslands-
byggöar sumarið 1974 tilkynnti
dr. Paul H.T. Thorlakson, fulltrúi
Kanadastjórnar, að hátiöargjöf
Kanadamanna yrði fjölbreytt
safn rita um Kanada og
kanadisku þjóðina og yrði gjöf-
inni beint til Landsbökasafns
tslands.
Gjöf þessi hefur borizt I nokkr-
um áföngum, og afhenti sendi-
herra Kanada, Arthur Grant
Campbell, i Landsbókasafni
mánudaginn 16. október siðustu
286 bindin. Verður hluti þeirra til
sýnis í aðallestrarsal safnsins
næstu daga.
Með bókagjöf þessari hefur
Landsbókasafn eignazt mjög gott
úrval rita frá siðari árum um
Kanada, bæði land og þjóð eða
öllu heldur þjóöir, þvi aö þjóðar-
brotin, sem þar mynda eina
öfluga þjóö, erumörg. Eru t.a.m.
i gjöfinni þó nokkur verk um sögu
einstakra þjóðarbrota, sem
fróöleg eru til samanburöar við
sögu Islenzka þjóðarbrotsins
vestra.
Flest eru ritin á ensku, en
allmörg þó á frönsku, og fjalla
þau þá einkum um Quebec-fylki.
Ýmsar myndabækur eru i gjöf-
inni, einnig sýnishorn barnabóka,
yfirli tsrit um kanadiskar
bókmenntir, bækur um sagn-
fræöi, stjórnmál og hagsögu, svo
að nokkuð sé nefnt.
Ur flokkstarfinu
Akureyringar
Bæjarmálef nafundur verður
mánudaginn 22. oktober kl. 8:30 i
Strandgötu 9.
Stjórnin.
Kópavogur
Áriðandi fundur verður haldinn
hjá Alþýðuflokksfélögunum i
Kópavogi, Hamraborg 1, sunnu-
daginn 21. október kl. 2.
Stjórnirnar.
Alþýðuflokksfélögin
á Akureyri
halda almennan félagsfund i dag
laugardag 20. október kl. 14 aö
Strandgötu 9. Bragi Sigurjónsson
landbúnaðarráðherra og Arni
Gunnarsson mæta á fundinum.
Stjórn fúlltrúaráös
Auglýsing
um prófkjör Alþýðuflokksins
í Reykjavík
Alþýðuflokkurinn efnir til prófkjörs í Reykjavíkur-
kjördæmi um val frambjóðanda á lista flokksins við
næstu Alþingiskosningar og mun prófkjörið fara fram
27. og 28. október n.k.
Kjósa ber í prófkjörinu um 5 efstu sætin á væntanleg-
um framboðslista Alþýðuflokksins.
Kjörgengi til prófkjörs hafa allir þeir, sem kjörgengi
hafa til Alþingis og hafa meðmæli minnst 50 flokks-
bundinna Alþýðuf lokksmanna í kjördæminu 18 ára og
eldri.
Framboðsf restur er til 21. okt. og skal skila framboð-
um til formanns kjördæmisráðs Sigurðar E. Guð-
mundssonar Kóngsbakka 2, Reykjavík fyrir kl. 24
þann sama dag.
Stjórn kjördæmisráðs Alþýðuf lokksins
Reykjavík
Auglýsing
um prófkjör Alþýðuflokksins í
Norðurlandskjördæmi vestra
Alþýðuflokkurinn efnir til prófkjörs í Norðurlands-
kjördæmi vestra um val frambjóðenda á lista flokks-
ins við næstu Alþingiskosningar og mun prófkjörið
fara fram 27. og 28. október n.k.
Kjósa ber í prófkjörinu um 2 efstu sætin á væntanleg-
um framboðslista Alþýðuflokksins.
Kjörgengitil prófkjörs hafa allir þeir, sem kjörgengi
hafa til Alþingis og hafa meðmæli minnst 25 flokks-
bundinna Alþýðuflokksmanna í kjördæminu 18 ára og
eldri.
Framboðsfrestur er til 21. okt. og skal skila framboð-
um til formanns kjördæmisráðs, Antons Jóhannsson-
ar, Hverfisgötu 9, Siglufirði, fyrir kl. 24. þann sama
dag.
Stjórn kjördæmisráðs Alþýðuf lokksins
Norðurlandskjördæmis vestra.
Auglýsing
um prófkjör Alþýðuflokksins
í Norðurlandskjördæmi eystra
Alþýðuflokkurinn efnir til prófkjörs í Norðurlands-
kjördæmi eystra um val á frambjóðenda á lista
flokksins við næstu Alþingiskosningar og mun próf-
kjörið fara fram 27. og 28. október n.k.
Kjósa ber í prófkjörinu um 3 efstu sætin á væntanleg-
um framboðslista Alþýðuflokksins.
Kjörgengi til prófkjörs hafa allir þeir, semkjörgengi
'hafa til Alþingis og hafa meðmæli minnst 25 flokks-
bundinna Alþýðuf lokksmanna í kjördæm inu 18 ára og
eldri.
Framboðsf restur er til 21. okt. og skal skila framboð
um til formanns kjördæmisráðs Snælaugs Stefánsson
ar, Víðilundi 8 C, Akureyri,fyrir kl. 24. þann sama
dag.
Stjórn kjördæmisráðs Alþýðu f lokksins
Norðurlandsk jördæmis eystrs
Auglýsing
um prófkjör Alþýðuflokksins
í Suðurlandskjördæmi
Alþýðuf lokkurinn efnir til prófkjörs í Suðurlandskjör
dæmi um val frambjóðenda á lista f iokksins við næsti
Alþingiskosningar og mun próf kjörið fara f ram 27. oc
28. október n.k.
Kjósa ber í prófkjörinu um 2 efstu sætin á væntanleg
um framboðslista Alþýðuflokksins.
Kjörgengi til prófkjörs hafa allir þeir, sem kjörgengi
hafa til Alþingis og hafa meðmæli minnst 25 flokks
bundinna Alþýðuf lokksmanna í kjördæminu 18 ára oc
eldri.
Framboðsfrestur er til 21. okt. og skal skila framboð
um til formanns kjördæmisráðs, Einars Elíassonar
Engjavegi 24, Selfossi, f yrir kl. 24 þann sama dag.
Stjórn kjördæmisráðs Alþýðuf lokksins
Suðurlandskjördæm