Alþýðublaðið - 20.10.1979, Qupperneq 3
Laugardagur 20. október 1979
3
alþýöu-
blaðið
Fra mk væmdast jóri:
Jóhannes Guðmundsson.
Stjórnmálaritstjóri <ábm)1
Jón Baldvin Hannibalsson
Blaðamenn: Garðar Sverris-
son og ólafur Bjarni Guðna-
son
Auglýsingar: Elin
Harðardóttir.
Dreifingarstjóri: Sigurður
Steinarsson
Gjaldkeri: Halldóra Jóns-
dóttir
Ritstjórn og auglýsingar eru
að Siðumúla 11, Reykjavik,
simi 81866.
1 nýlegum sjónvarpsþætti,
þar sem stjórnmálaritstjórar
flokksblaðanna skeggræddu
stjórnmálaviöhorfið, var stjórn-
málaritstjóri Þjóðviljans beðinn
að nefna þótt ekki væri nema
eitt dæmi um tillögu frá ráð-
herrum Alþýðubandalags i fyrr-
verandi stjórn, sem mætti túlka
sem úrræði gegn veröbólgu.
Stjórnmálaritstjóranum
vafðist mjög tunga um tönn.
Nefndi þó að Alþýðubandalagið
vildi auka framleiðni i Islensku
atvinnulifi meö þvi eins og hann
orðaði þaö ,,aö vaöa inn 1 fyrir-
tækin”.
Or þvi að það vefst fyrir
stjórnmálaritstjóra Þjóöviljans
er ekki nema von aö öðrum
gangi iila aö skilja, hvaö
Alþýðubandalagið var að villast
inni i rikisstjórn á annaö ár, úr
þvi aö þaö hefur ekkert til mál-
anna aö leggja um meginvið-
fangsefni rlkisstjórna I landinu.
Það er ekki nóg meö, að
Alþýðubandalagiö hafi sjálft
engar tillögur fram að færa
gegn veröbólgu. 1 fyrrverandi
rikisstjórn viröist bandalagið
hafa litiö á það sem sitt helsta
hlutverk, aö þæfast fyrir, þvæla
og útþynna tillögur samstarfs-
flokkanna i efnahagsmálum og
gera rikisstjórnina með þeim
hætti óstarfhæfa. Við þetta bæt-
ist siðan að öll tillögugerð
Alþýðubandalagsins sjálfs var
þvi marki brennd, að magna út-
gjaldaþensluna með skulda-
söfnun, lántökum og seðlaprent-
un og dæla þannig helium á
verðbólgubálið.
XXX
■ Að fenginni þessari reynslu
af stjórnarþátttöku Alþýðu-
bandalagsins, virðast augu al-
menning I landinu óðum vera að
opnast fyrir þeirri staðreynd að
meðan forystumenn Alþýðu-
bandalagsins eru enn á þessu
pólitiska gelgjuskeiöi sinu, þá er
flokkur þeirra óhæfur til stjórn-
ar þátttöku.
Alþýöubandalagið er I oröi
flokkur háleitra hugsjóna og
stilfærðra nafngifta. „Málsvari
Sósialisma, Verkalýðshreyfing-
ar og þjóðfrelsis.” I verki er
þetta hins vegar heldur illa upp-
lýstur hentistefnuflokkur.
Flokkurinn er stöðugt á höttum
eftir atkvæðum óa'nægjuafla.
Málflutningur flokksins ein-
kennist af skrumi og umræðu-
mátinn af gifuryröum. Afleið-
ingin er sú, eins og alltaf er aö
koma betur og betur á daginn,
að jafnvel I veigamestu málum
talar flokkurinn tungum tveim
og meinar sitt með hvorri.
Um þetta má nefna ótal dæmi.
I kjaramálum þykist flokkurinn
standa I striði fyrir varðveislu
kaupmáttar. I efnahagsmálum
kyndir hann elda verðbólgunnar
I rikisstjórn, meö þeim afleið-
ingum að kaupmáttur launa fer
rýrnandi. Þessi óðaveröbólga
Alþýðubandalagsins leikur ekki
aöeins launþega grátt. Hún still-
ir verkalýðshreyfingunni
frammi fyrir þeim vanda, að
verulegar kauphækkanir kaups
i krónutölu munu gufa upp jafn-
haröan i vaxandi verðbólgu sem
fram undan er.
XXX
Þessi óðaverðbólga, sem
Alþýöubandalagið stuðlaöi að i
rikisstjórn, kom hins vegar I
veg fyrir allt raunverulegt sam-
ráð við verkalýöshreyfinguna
um launastefnu sem Alþýöu-
bandalagið þóttist vera sérstak-
ur málsvari fyrir utan rikis-
stjórnar. Rikisstjórn sem ekki
nær árangri i glimunni viö verð-
bólguna hefur nefnilega ekkert
til að leggja á borö með sér i
samningum viö Verkalýðs-
hreyfinguna um frambúðar-
launastefnu.
Stundum má ætla af málflutn-
ingi Alþýöubandalagsmanna að
þeir trúi þvi sjálfir, að þeir búi
til lifskjör með vigorðavaðli sin-
um. Það er samt raunalegur
misskilningur. Verölagsþróunin
á islandi ræöst ekki hvað sist af
stefnu stjórnvalda I rikisfjár-
málum, peninga-
og lánamálum, skattamálum
og af framkvæmdum og fjár-
festingarstjórn i landinu. Ef
stefnan i þessum málum er I
grundvallaratriðum röng, og
kyndir undir veröbólgu, þá
stendur þaö lifskjarabótum
þjóðarinnar almennt fyrir þrif-
um.
Þetta er kjarni málsins. Þetta
kemur upp um stærstu þver-
sögnina i yfirboröskenndum
málflutningi Alþýðubanda-
lagsins. Sú staöreynd blasir
nefnilega við, bakviö róttæk
glamuryrði forystumannanna
og hræsnisfulla umhyggju
fyrir þeim, sem verst eru
settir i þjóðfélaginu, aö stefna
Alþýöubandalaginu, eins og
hún birtist i stjórnarsam-
starfinu, er stórkostlega
veröbólguhvetjandi. Sem slik
gengur hún þvert á hagsmuni
launþega Ilandinu og stendur
lifskjarabótum alls almenn-
ings fyrir þrifum.
XXX
En þversagnirnar I mál-
flutningi Alþýðubandalagsins
eru fleiri en einar og fleiri en
tvær. I vaxta- og lánamálum
gengur Lúðviskan hreint og
klárt erinda þrengstu sérhags-
muna atvinnurekenda, á kostn-
að almennra sparifjáreigenda,
þ.e. almennings I landinu.
Skæruliðastrið Alþýöubanda-
lagráðherranna I fyrrverandi
rikisstjórn gegn vaxta- og verð-
tryggingastefnunni, brýtur til
dæmis gersamlega i bága viö
brýnustu hagsmuni verkalýös-
hreyfingarinnar, sem er lifs-
nauðsyn að verja lifeyrissjóði
sina fyrir verðbólgunni. Hér er
um „stórkostlegt þjóðfélagslegt
réttlætismál aö raáia, sem varð-
ar lifeyri hinna öldruðu i þjóð-
félaginu.”
■ Við þetta bætist, aö verð-
tryggðir lifeyrissjóöir gætu I
framtiðinni orðið stoð og stytta
hins opinbera húsnæðislána-
kerfis. Félagsleg lausn hús-
næöisvandans er ófram-
kvæmanleg nema tryggöur sé
traustur fjarhagur lifeyrissjóð-
anna. Þannig gengur stefna
Alþýðubandalagsins i reynd
þvert á það róttæka glamur,
sem þeir æfinlega hafa á vörun-
um. Annað dæmi af svipuðum
toga: Vaxta- og ' verðtrygg-
ingastefna Alþýðuflokksins,
sem Alþýðubandalagið á ekki
nógu háðuleg orð til að lýsa, er
forsenda þess, að innlendur
sparnaður verði efldur. Það er
eina leiðin, til að losa þjóðina af
þeim þunga klafa erlendra
skulda sem Alþýöubandalagið
átti stóran þátt I að auka.
■ Stundum er helst að skilja á
málflutningi Alþýðubandalags-
ins, að allir aðrir en sjálfir þeir
sitji á svikráöum viö sjálfstæði
þjóðarinnar og þjóðfrelsi. Eins
og venjulega skortir ekki fögur
orð og hástemmdar yfirlýsing-
ar. Staöreyndin er hins vegar sú
aö efnahagslegu og pólitisku
sjálfsforræði Islensku þjóðar-
innar stafar ekki um þessar
mundir jafn mikill háski af
neinu eins og hinni fyrirhyggju-
lausu skuldastefnu Alþýöu-
bandalagsins.
XXX
■ Enn eitt dæmi um, hversu
hugmyndafræði Alþýðubanda-
lagsins er vanhugsuð og yfir-
borðskennd, birtist okkur i vig-
orðaglamri flokksins um „þjóð-
lega atvinnustefnu”.
Sá af ráöherrum Alþýðubanda-
lagsins, sem Alþýðublaðiö gefur
hæsta einkunn fyrir raunsæi og
vönduð vinnubrögð, var tvi-
mælalaust Hjörleifur Guttorms-
son, iðnaðarráðherra. Undir
verkstjórn hans I Iðnaðarráöu-
neytinu var mikið starf unnið
við að móta islenska iðnaöar-
stefnu. Þetta er gott starf og
þarft. En til þess að menn geti
gert sér vonir um árangur i
framkvæmd veröum við þegar
að hafa tvennt i huga:
Vegna smæðar okkar heima-
markaðar verða nýjar iöngrein-
ar á tslandi fortakslaust að
byggja framtið sina og vaxta-
möguleika á útflutningsmörk-
uðum. Við eigum þess vegna að
hasla okkur völl I þeim grein-
um, þar sem við höfum hlut-
fallslega yfirburöi I samanburöi
viö útlendinga eins og viö höfum
þegar gert i fiskiönaöi. Þær
greinar, sem augljóslega kæmu
tii greina, væru skipasmiðar og
veiöarfæragerð, þar sem við
höfum stuöning af öflugum
heimamarkaði.
En um þetta er tómt mál aö
tala, nema þvi aöeins að þessum
framtiðariðngreinum okkar séu
tryggð starfs- og vaxtaskilyrði
til jafns við keppinauta erlendis.
Meðan að efnahagsstefna
Alþýðubandlagsins stuðlar að
þvi, að við búum við allt að
sexfalda verðbólgu á við við-
skiptalönd okkar, er það
tæknilega óhugsandi að
byggja upp samkeppnishæfan
útflutningsiðnað. Við þetta
bætist, að við yrðum að
tryggja útflutningsgreinum
okkar tollfrjálsan aðgang að
stórum mörkuðum. Meöan
grundvallarhugsunin I efna-
hagsmálastef nu Alþýðu-
bandalagsins er rómantfsk og
þjóðernissinnuð einangrunar-
stefna er Ilka borin von aö
efla islenskan útflutningsiðn-
að. Niðurstaðan er þvi sú að
þrátt fyrir allt oröakonfektiö
um „þjóðlega atvinnuvegi”
er stefna Alþýðubandalagsins
I reynd öndverð hagsmunum
iðnaðarins. Þjóð sem er I jafn
rikum mæli og við háð milli-
rlkjaviðskiptum, innflutningi
og innfluttri tækni, verður
þegar af þeirri ástæðu að
leggja áherslu á friversiunar-
pólitik, og móta utanrikis-
stefnu slna I samræmi við
það.
■ Þaö er svo I samræmi við
annað, að einangrunarstefna
Alþýöubandalagsins birtist okk-
ur mestan part I formi fjand-
skapar og úlfúöar i garð Vest-
rænna lýðræðisríkja. I reynd
rista hugsjónirnar þó ekki
dýpra hjá forystumönnum
Bandalagsins en svo að þrisvar
sinnum á fárra ára millibili
hafa þeir sætt sig við þátttöku I
rikisstjórnum sem hafa þá
grundvallarstefnu að halda
áfram aðild að Atlantshafs-
bandalaginu, og halda uppi
landvörnum. En um leið og
flokkurinn hverfur úr
rikisstjórn er gefin dagsskipan
um að dusta rykið af göngu-
skónum.
■ Alþýðubandalagið minnir
okkur þessa dagana þvi einna
helst á ráðvilltan ungling á
gelgjuskeiði, sem kann varla aö
bera fæturna hvurn fram fyrir
annan, og er þvi næsta reikult I
sinu pólitiska göngulagi. Hug-
myndafræðileg vanmetakennd
þess og ótti við kosningar birtist
nú fyrst og fremst i hótunum I
garð kjósenda: Flokksbroddar
Alþýðubandalagsins hafa nú i
hótunum við kjósendur með þvi
að segja, að ef kjósendur makki
ekki rétt, þá muni Alþýðu-
bandalagiö (sem heldur að það
sé eitt og hið sama og verka-
lýöshreyfingin) efna til styrj-
aldar a vinnumarkaðnum
Abyrgir forystumenn Verka-
lýðshreyfingarinnar þyrftu sem
allra fyrst að kenna þessum
pólitisku táningum ögn betri
mannasiði og umgengni viö
kjósendur. Vonir manna um það
að Alþýöubandalagiö reynist
einhverntlma sibar samstarfs-
hæft I rikisstjórn, hljóta að
byggjast á þvi að það taki
smám saman út aukinn þroska
með nýjun forystumönnum.
-JBH
Sunnudagsleiðari:
„REIKIILT ER RÓTLAUST ÞANGIÐ...”
Flóttafólk/Frelsi:
1. des.
kosningar í
Háskólanum
Eftirtalin framboð hafa borist
kjörstjórn vegna kosninga til
hátiðarnefndar 1. des. I Háskóla
Islands, en kosningarnar fara
fram i Hátiöarsal Háskólans
næstkomandi mánudag 22.
október kl. 20.00—24.00.
Frá Vöku, félagi lýðræðissinn-
aðra stúdenta, sem að þessu sinni
erundir yfirskriftinni: Flóttafólk,
Frá Félagi vinstri manna sem
býður fram undir yfirskriftinni:
Frelsi.
Framboðslisti Vöku er skipaður
eftirfarandi aöilum: Auðun S.
Sigurðsson, ArniC. Th. Arnarson,
Einar Orn Thorlacius, Erna
Hauksdóttir, Friöbjörn Sigurðs-
son, Ingibjörg Hjaltadóttir,
Sigurbjörn Magnússon.
Framboðslisti Félags vinstri
manna er skipaöur eftirfarandi
aðilum: Asgeir Bragason, Björn
Guðbrandur Jónsson, Eirikur
Guðjónsson, Elsa Þorkelsdóttir,
Jóhanna V. Þórhallsdóttir, óskar
Sigurðsson,ÆvarH. Kolbeinsson.
Auglýsing '
um prófkjör Alþýðuflokksins
í Vesturlandskjördæmi
Alþýðuflokkurinn efnir til prófkjörs í Vesturlands-
kjördæmi um val frambjóðenda á lista flokksins við
næstu Alþingiskosningar og mun próf kjörið fara f ram
27. og 28. október n.k.
Kjósa ber í prófkjörinu um 3 efstu sætin ó væntanleg-
um framboðslista Alþýðuflokksins.
Kjörgengi til prófkjörs hafa allir þeir, sem kjörgengi
hafa til Alþingis og hafa meðmæli minnst 25 flokks-
bundinna Alþýðuf lokksmanna í kjördæminu 18 ára og
eldri.
Framboðsf restur er til 21. okt. og skal skila f ramboð-
um til formanns Kjördæmisráðs Sveins Guðmunds-
sonar, Jaðarsbraut 3, Akranesi fyrir kl. 24. þann sama
dag.
Stjórn kjördæmisráðs Alþýðuf lokksins
Vesturlandskjördæmi
Auglýsing
um prófkjör Alþýðuflokksins
í Vestfjarðarkjördæmi
Alþýðuf lokkurinn efnir til próf kjörs í Vestf jarðakjör-
dæmi um val frambjóðenda á lista f lokksins við næstu
Alþingiskosningar og mun prófkjörið fara fram 27. og
28. október n.k.
Kjósa ber í prófkjörinu um 2 efstu sætin á væntan-
legum framboðslista Alþýðuflokksins.
Kjörgengi til prófkjörs hafa allir þeir sem kjörgengi
hafa til Alþingis og hafa meðmæli minnst 25 flokks-
bundinna Alþýðuf lokksmanna í kjördæminu 18 ára og
eldri.
Framboðsf restur er-til 21. október og skal skila fram-
boðum til formanns kjördæmisráðs, Ágústs H.
Péturssonar, Urðargötu 17, Patreksfirði fyrir kl. 24
þann sama dag.
Stjórn kjördæmisráðs Alþýðuflokksins
Vestf jarðakjördæmi.