Alþýðublaðið - 20.10.1979, Blaðsíða 8
í STYTTINCI
Fyrirlestur
Dr. Ommo Wilts, forstööumaö-
ur frisneskuoröabókar háskólans
í Kiel, flytur opinberan fyrirlest-
ur i boöi heimspekideildar Há-
skóla Islands mánudaginn 22.
október 1979 kl. 17.15 f stofu 201 I
Arnagaröi.
Fyrirlesturinn nefnist „Das
Nordfriesische — Probleme der
Erhaltung einer kleinen
Sprache” og veröur fluttur á
þýsku. Ollum er heimill aðgang-
ur.
Ráðstefna hins islenska
kennarafélags um
framhaldsskóla
Hið islenska kennarafélag
gengst fyrir ráöstefnu um fram-
haldsskólann dagana 20. og 21.
október næstkomandi að Hótel
Loftleiöum.
Ráöstefnan hefstklukkan 9.30 á
laugardagsmorgni og lýkur sið-
degis á sunnudegi. 1 upphafi ráð-
stefnunnar verða flutt 8 stutt
framsöguerindi. Að þeim loknum
veröur þátttakendum skipt I fjóra
umræöuhópa um þá efnisflokka
sem teknir eru fyrir.
Atta framsögumenn hafa tekiö
aðsér aöfjalla um málefni fram-
haldsskólans frá mismunandi
sjónarhornum. Þeir eru:
1. Tryggvi Gislason, skólastjóri:
Framhaldsskólinn í strjálbýl-
inu.
2. Geröur óskarsdóttir, skóla-
stjóri: Tengsl grunnskóla og
framhaldsskóla i strjálbýli.
3. Steinar Steinsson, skólastjóri:
Verkmenntun á framhalds-
skólastigi.
4. Jón Böövarsson, skóla-
meistari: Tengsl bóknáms og
verknáms á framhaldsskóla-
stigi.
5. Heimir Páisson, konrektor:
Afangakerfi — bekkjarkerfi.
6. Guöni Guömundsson, rektor:
Bekkjarkerfi — áfangakerfi.
7. Þorsteinn Vilhjálmsson,
dósent: Tengsl framhaldsskóla
og háskóla.
8. örnólfur Thorlacius, yfirkenn-
ari: Gildi stúdentsprófs sem
undurbónings aö háskólanámi.
Ráöstefnan er opin öllum félög-
um Hins Islenska kennarafélags.
Gjöf tð Ustasaftisins
Þorvaldur SkUlason Bstmálari
hefur fært Listasafni Islands
höföinglega gjöf. Er hér um aö
ræöa oliumálverkið ,,Upp-
stilling” eftir Snorra Arinbjarn-
ar, málaö á árunum 1942-’46.
Fundum þeirra Þorvaldar og
Snorra bar fyrst saman noröur á
Blönduósi um 1921.er Þorvaldúr
var nýbyr jaöur aö mála, og telur
hann kynni þeirra hafa oröiö sér
til mikillar uppörvunar.
Listasafniö kann Þorvaldi
bestu þakkir fyrir gjöfina, sem
þvi er afar kærkomin, ekki si'st
fyrir þaö hversu fá verk safniö á
eftir Snorra frá þessu timabili.
Rjúpan vernduð -
fyrir tófuna:
Átök á aðalfundi
Aðalfundur Hins Islenzka Tófu-
vinafélags var haldinn á tveggja
ára afmæli félagsins I október
1979.
A fundinum kom fram veruleg-
ur ágreiningur um ýmis málefni.
Hins vegar náöist full samstaöa
um aö efla starf félagsins. Aöal-
fundur félagsins samþykkti aö
lýsa fullum stuöningi við þá
ákvöröun bænda I uppsveitum
Borgarfjarðar og vlöar aö vernda
rjúpuna gegn skotgleöimönnum,
enda er þaö I fullu samræmi viö
margyfirlýsta stefnu félagsins aö
vernda beri rjúpuna og skapa
þannig tófunni tryggari lifsaf-
komu.
Fundurinn harmaði viöbragðs-
leysi Stéttarsambands bænda viö
bréfi stjórnar H.I.T., dags. 15.
mal 1979.
Aðalfundurinn ályktar aö
vegna þessa.svoog vegna hinnar
pólitisku óvissu i þjóöfélaginu, sé
stjórninni nauösynlegt aö boöa til
blaöamannafundar innan tíöar.
Þormóður skrifar...
í léctum Cón ú lauganaegl
Enn tvöfaldir
— tveir góðir
Tveir ungir og efnilegir fram-
sóknarmenn hafa á undanförn-
um vikum og mánuöum mjög
látiö aö sér kveöa á siöum Tlm-
ans. Sérstaklega er þessum
ungu mönnum illa viö Alþýöu-
flokkinn og vanda honum ekki
kveöjurnar Fátt nýtt eöa mark-
vert er I þeim málflutningi enda
hefur þaö ekki vakiö sérstaka
athygli heldur oröbragö þeirra
félaga. Er tjáningarform þeirra
lystileg blanda af fúkyröum,
útúrsnúningum og nlör og
hvergi nálgast þeir hásæti sann-
leikans sem Pétur heitinn
Jakobsson fasteignasali sagöi I
lofkvæöi til Jónasar frá Hriflu
aöhann (Jónas) sæti „Sannleik-
ans hástól nærri”. Nei sá stóll er
vlðsfjarri þeim kumpánum.
Hér er átt viö þá Pál bónda á
Höliustööum og Hauk Ingi-
bergsson skólastjóra samvinnu-
skólans.
Páll á Höllustöðum er kynbor-
inn Húnvetningur af ætt Björns
Eysteinssonar og Guölaugs-
staöamanna. Eru þessir frænd-
ur alþekktir fyrir hrossalegar
umgengnis og málvenjur, og
eru margar sögur af þvi sagöar
i Húnaþingi.
Þetta er þó manntaksfólk
yfirleitt og þessvegna er þvi
fyrirgefiö þó þaö kunni ekki al-
mennar kurteisisvenjur eöa aö
umgangast yfirleitt annaö fólk.
Stóryröi Páls á Höllustööum ber
þvi ekki að taka alvarlega.
Hann heldur aö þau beri vott um
mikla karlmennsku og sýni aö
hann sé enginn „smákalli”,
þetta er svipaö og þegar
„tóffarnir” þamba brennivin af
stút til þess aö sýnast menn
fyrir sinn hatt. 1 samræmi viö
þetta er nú hefur veriö sagt, ber
aö skoöa ráöleggingu Páls
bónda til Benedikts Gröndal aö
hann gefi samráöherrum sinum
og þingliöi Alþýöuflokksins á
kjaftinn, til þess aö halda uppi
húsaga.
Haukur Ingibergsson er eins
og áöur segir skólastjóri Sam-
vinnuskólans og gæti maöur þá
ætlaö aö þar færi prúömenni til
orös og æöis eins og venjulegt er
um góöa skólamenn og uppal-
endur. En hér er nú annaö upp á
teningnum. Haukur þessi hefur
um alllangt skeiö stundaö þá
iöju I fjölmiölum aö hefja
Framsóknarfolkkinn til skýj-
anna en ata andstæöinga hans
Haukur Ingibergsson
auri og svlviröingum. Einkum
og sérllagi er honum illa viö Al-
þýöuflokkinn sú er einnig raunin
um ýmsa aöra ofsatrúarmenn,
t.d. komma.
Nýlega segir Haukur þessi I
blaöagrein aö sú rlkisstjórn er
Alþýöuflokkurinn muni styöja
eftir kosningar veröi rlkisstjórn
hnefaréttarins, þar sem „sá
sterkasti fær aö drepa hinn
veikbyggða, ef honum sýnist
svo” og nú æsist leikurinn
„...Þetta veröur kreppustefnu-
stjórn, sem ekki mun hafa hags-
muni launþega, ellilífeyrisþega
og annarra þeirra hópa sem
minna mega sln I huga. Hún
mun ekki hafa samstarf viö
aöila atvinnullfsins heldur
veröa einróma á bandi atvinnu-
rekenda og gróöaaflanna I land-
inu.” Hvaö skyldi nú Erlendur I
StS, forstjóri stærsta atvinnu-
rekandans I landinu segja um
þessi fræöi skólastjórans, en
þaö er ekki allt búiö, enn segir
Haukur um væntanlega ríkis-
stjórn „Hún mun stuöla aö mis-
rétti og völdum þeirra sem eiga
fé” og enn segir uppfræöarinn:
„en þetta vill Alþýöuflokkurinn
I dag”.... Svo mörg voru þau
orð og raunar fleiri. Hvaö segja
menn nú I alvöru um svona mál-
flutning? Slíkt glórulaust myrk-
ur um miöjan dag I andlegum
efnum er sem betur fer sjald-
gæft hér á landi þó aö örli stund-
um á þvl á siöum Þjóöviljans.
En Haukur þessi á vafalaust
landsmet i sóöaskap á ritvelli og
bullukolluhátt I hugsun. Þaö er
sagt aö hann vilji komast á þing
fyrir Vesturland og koma I staö
Halldórs brúarsmiös. Þetta er
Páll Petursson
sjálfsagt einn þáttur i þeirri
hernaöaráætlun.
Heilaþvottur i
Kaupfélaginu
En Haukur þessi er ekki allur
þar sem hann er séður. Hann
lumar nefnilega á nýju leyni-
vopni til þess aö efla samvinnu-
stefnuna. Hann vill gera kaup-
félögin aö uppeldisstofnun, dag-
vistarheimilum eöa leikskólum.
1 fréttatilkynningu frá nemend-
um hans, sem héldu landsþing
fyrir skömmu segir m.a. svo
...„Landsþingið taldi æskilegt
aö samvinnuhreyfingin reyndi
aö laöa til sin börnin, bæöi meö
samvinnufræöslu á réttum stöö-
um og aö búa þeim þau skilyröi I
starfi, menntun og leik, aö þau
þurfi ekki aö tileinka sér
skoöanir, sem leiöi til ádeilna á
samvinnustefnuna I fram-
kvæmd.”
Þar hafa menn þaö. Þaö er
ekki nóg aö svívirða andstæö-
inga Framsóknarflokksins, þaö
á aö heilaþvo börnin svo aö þau
veröi ekki á móti stjórn SIS og
kaupfélaganna þegar þau
stækka, og gildir þá einu hvern-
ig framkvæmd þessara herra.
er. Þetta er stórkostleg hug-
mynd, verst aö hún hefur skotiö
upp kollinum áöur, bæöi hjá
Hitler og Stalin. Það væri ann-
ars gaman aö sjá Val Arnþórs-
son stjórna barnaheimili og
leikskóla I KEA og Hjalta Páls-
son heilaþvo smábörn I Holta-
göröum. Mikiöeiga þessir menn
skólastjóra Samvinnuskólans
aö þakka. Sá ætti skiliö aö fá
launahækkun.
Ofvitinn frumsýndur um helgina:
Ætla ekki í framboð
segir Kjartan Ragnarsson
Leikfélag Reykjavikur er aö
faraaö frumsýna leikgerö Kjart-
ans Ragnarssonar á Ofvitanum
eftir Þórberg Þóröarson. Undir-
ritaöur hringdi í Kjartan og
spuröi hann, hvers vegna hann
heföi gert þetta.
— Kjartan sagöi, aö hann heföi
gert þetta af sömu ástæöu og Þór-
bergur skrifaði bókina. Þegar
Þórbergur skrifaöi bókina var
uggur I mönnum út af fram-
tlðinni, sem heföi lýst sér sem
einskonar fortiðar þrá. Þetta
mætti sjá nú allt I kring um
okkur, t.d. i tiskunni, bíó, og
annarsstaöar. Þessi stemmning
heföi ráöiö þvi aö hann réöst i
þetta verk.
Þá var Kjartan spuröur
hvernig honum litist á uppfærsl-
una, hvort hann héldi aö hún
myndi gera lukku. Kjartan þver-
tók fyrir aö gefa nokkra yfir-
lýsingu um þaö, jafnvel þó bent
væri á, aö hann sem rútineraöur
Jón HJartarson og Emil Gunnaraion I hlutverkum ilnum.
leikhúsmaöur, hlyti aö geta gert
sér einhverja grein fyrir því.
Aö lokum var hann spuröur
hvarhannætlaöi fram I prófkjöri,
og hann svaraöi „Hvergi.” Hann
er llklega eini maöurinn sem
nefndur er I blööum um þessar
mundir, sem ætlar ekki á þing.
Ó.B.G.
r Leiðrétting og
afsökunarbeiðni
A baksiöu Alþýöublaösins
s.l. fimmtudag gat aö llta
herfileg mistök. Mynd af Jóni
Helgasyni, formanni Verka-
lýösfélagsins Einingar á
Akureyri, sem fylgja átti bak-
siöuviötali viö hann, birtist á
allt öörum staö, óskildum.
Þettaeru mistök, sem skrifast
veröa á kostnaö prentsmiöj-
unnar. Viö biöjum Jón Helga-
son afsökunar á þessum mis-
tökum.
t fyrirsögn meö kjara-
ályktunum Verkamannasam-
bandsins, varö brenglun, sem
geröi fyrirsögnina óskiljan-
lega. Þar stóö, aö veröbólgan
veröi notuö til launajöfnunar i
komandi samningum. Þaö
mun seint takast. Hér átti aö
standa: „VERÐBÓTAKERF-
IÐ veröi notaö til launa-
jöfnunar.” Lesendur eru
beðnir velviröingar á þessum
mistökum. — ritstj.
alþýðu-
blaðið
Laugardagur 20. október
í hrein-
skilni sagt
Afsökun og
útskýringar
Ég verö aö hefja þennan
pistil á þvi aö biöja aödá-
endur mlna afsökunar á
fjarveru minni slöustu
daga, en þessi fjarvera var
auövitaö af ÓVIÐRAÐAN-
LEGUM ORSOKUM.
(Hvaö annaö) Því miður
get ég ekki skýrt þetta
miklu nánar, ég er nefni-
lega bundinn þagnarheiti,
en engu aö slöur ætla ég aö
segja ykkur undan og ofan
af þessum minum siðustu
ævintýrum.
Ég vaknaöi viö þaö eina
nótt fyrir ekki alllöngu
siöan aö siminn hringdi, og
þegar ég lyfti tólinu fann ég
hitann leggja upp hand-
legginn á mér. Mér fannst
þetta undarlegt, þangaö til
ég heyröi hver talaöi. Þaö
var ónefndur amerikani,
sem talaði með sterkum
suöurrfkja hreim. Hvaö
okkur fór á milli kemur
engum viö, en skömmu
siðar var ég staddur I ann-
arri heimsálfu, og lagöi á
ráöin um, hvernig mætti
helst bjarga SALT
samningunum. Þetta var
löng törn og erfiö, en ég
uppskar rikuleg laun erfið-
is míns þegar ég sá börnaö
leik, og vissi aö þau gætu
haldiö þvi áfram óhrædd,
þvf heimsfriönum var
borgiö. Hver bjargráöin
voru get ég ekki sagt ykkur
nú, en ég býst við aö fá
friöarverðlaun Nóbels eftir
nokkra áratugi. Ég geri
mér grein fyrir hvilik von-
brigöi þetta eru fyrir ykkur
kæru aödáendur, en i þessu
tilfelli verö ég aö tileinka
mér orö skáldsins.
„Komst du in des
Königs Haus
Geh blind hinein und
stumm heraus.”
En það var I ööru partýi,
auövitaö.
Litil athugasemd, aö
lokum. Þegar fréttist aö
ritstjóri Alþýöublaösins
ætlaöi I framboö fyrir
Alþýöuflokkinn, þá datt
mér I hug, skyldi þessi
kosningabarátta veröa
Balaclava flokksins.
Orövar
Þjóöviljinn i gær boðar
flokksmönnum Alþýöu-
bandalagsins stórkostlegt
fagnaöarerindi. Hér er um
aö ræöa nýmæli I flokks-
starfinu sem getur haft
ófyrirsjáanlegar afleiö-
ingar I för meö sér. Þaö
hljóöar svo:
„Meginhugsunin i þeim
forvalsreglum sem
ákveönar hafa verið er aö
flokksmönnum gefist færi á
aö hafa áhrif á skipan
fram;boöslista.”
Þjóöviljaleiöari
19.10.1979.