Alþýðublaðið - 14.12.1979, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 14.12.1979, Blaðsíða 6
6 JÓLABLAÐ Einu sinni var lítil stúlka, sem hétShenya. Dag einn sendi móðir hannar hana til að kaupa bar- anka hringi. xl) Zhenya keypti sjö stykki, tvo með kúmeni handa pabba, tvo með valmúafræi handa mömmu, tvo sykraða handa sjálfri sér, og einn lítinn bleikan handa Pavlik litla bróðir. Shenya tók nú barankabandið og lagði af stað heim á leið, gláp- andi, gónandi og lesandi á öll skilti, sem hún sá á leiðinni. Ókunnur lítill hundur elti hana og át barankahringana hvern af öðrum. Fyrst át hann pabba hringi, þessa með kúmeninu, þá mömmu hringi með valmúa- fræinu, og síðan hennar tvo með sykrinum á. En þá fann Zhenya að barankabandið var farið að léttast, og leit við. En of seint — hundurinn var rétt að Ijúka við siðasta barankahringinn. Þann litla bleika—, hans Pavliks litla, og sleikti út um, já svo sannar- lega. ,,Viðbjóðslegi hundur", veinaði Zhenya, og hljóp á eftir honum. Hún hljópog hljóp, en náði hon- um ekki. Allt í einu var hún orðin villt. Hún leit i kring um sig og sá, að hún var kominn í ókunnugt hverfi. Þarna voru engin stór hús, aðeins lítil hús. Zhenya varð nú hrædd og fór að gráta. Allt í einu birtist lítil, gömul kona. Hún spurði: ,,Hvers vegna ertu að gráta litla stúlka?" Zhenya sagði litlu gömlu konunni allt, sem komið hafði fyrir. Gamla konan vorkenndi Zhenyu. Hún fór með hana inn i garð sinn og sagði: ,,Þetta gerir ekkert til góða min. Gráttu ekki, ég skal hjálpa þér. Ég á hvorki baranka hringi né peninga en það vex litið blóm í garði mínum, sem heitir sjö- krónublóm. Þetta litla blóm er töfrablóm, og getur gert allt sem þú óskar eftir. Ég veit, að þú ert góð lítil stúlka, þótt þú slórir dá- lítið, þegar þú ert að sendast. Ég ætla nú að gefa þér þetta sjö- krónu blóm, og mun það koma öllu í lag hjá þér. Er hún hafði þetta mælt, sleit hún upp mjög fagurt blóm, likt kamilliublómi og gaf Zhenyu. Á því voru sjö mjúk krónublöð, rautt, gult, blátt, grænt, appelsínugult, fjólublattog dökk- blátt. ,,Þetta litla blóm er töfrablóm" sagði gamla konan. ,,Það mun gjöra allt sem þú ósk- ar. Þú þarft einungis að slíta af því eitt krónublaðið, kasta því upp í loft og segja: Krónublað, ó krónublað, fljúgðu i hring um himingeim, norður, suður, austur, vestur, aftur fljúgðu til mín heim. Er þú snertir grundir hér gjörðu eins og ég segi þér. Síðan óskar þú þér einhvers og ósk þín verður tafarlaust upp- fyllt." Zhenya þakkaði gömlu konunni kurteislega fyrir og fór síðan út um garðshliðið. En þá mundi hún eftir að hún rataði ekki heim. Hún ætlaði að snúa við inn í garðinn til þess að spyrja gömlu konuna til vegar, en þegar hún leit við sá hún hvorki garðinn né gömlu konuna. Hvað átti hún nú að gera? Zhenya var gráti næst, og kom- in var hrukka á litla nef ið, eins og xl) Barangkar eru hringlaga kex. Venjulega seldir án umbúða, dregnir upp á snæri. alltaf, þegár eitthvað amaði að hanni. Þá mundi hún allt í einu eftir töf rablóminu. ,,Það er bezt að reyna sjö- krónublaða töflablómið og sjá hvað gerist", hugsaði hún. Hún sleit nú í flýti af blóminu gula krónublaðið, kastaði því upp i loft og sagði: Krónublað, ó krónublað, fljúgðu í hring um himingeim, norður, suður, austur, vestur. Aftur fljúgðu til mín heim. Er þú snertir grundu hér Gjörðu eins og ég segi þér. ,,Ég vildi að ég væri komin heim með barankahringina mína." Orðin voru tæplega komin yfir varir hennar, er hún var komin heim með kexbandið í hendinni. Um leið og hún rétti mömmu kexhringina sagði hún við sjálfa sig. Þetta er sannarlega dá- samlegt blóm. Ég verð að láta það í fallegasta blómavasann okkar. Zhenya var aðeins lítil telpa og varð því að klifra upp á stól til þess að ná í uppáhalds kristals- vasann hennar mömmu, sem var í efstu hillu skenkiborðsins. En til allrar óhamingju f laug í sama andartaki stór krákuhopur fyrir gluggann. Auðvitað þurfti Zhenya á samri stundu að vita nákvæmlega hve margar krákúrnar voru, þá, hvort þær voru sjö eða átta. Hún opnaði munninn, benti á þær með fingr- inum og byrjaði að telja. Vasinn féll á fólfið — og krass — hann brotnaði í sma mola. ,,Ertu að brjóta eitthvað, enn einu sinni klaufinn þinn", æpti mamma úr eldhúsinu. ,, Ekki þó uppáhalds vasann minn, eða hvað?" ,,Nei, nei, mamma, ég hef ekkert brotið, það er bara ímyndun þín", kallaði Zhenya á móti og flýtti sér að slíta af blóminu rauða krónublaðið. Hún kastaði því upp í loft og hvíslaði: Krónublað, ó krónublað, fljúgðu i hring um himingeim, norður, suður, austur, vestur, aftur fljúgðu til mín heim. Er þú snertir grundu hér, gjörðu eins og ég segi þér. Gerðu uppáhalds blómavasann hennar mömmu heilan aftur. Undir eins og hún hafði sagt síð- asta orðið söfnuðust vasabrotin sjálfkrafa saman. Og hugsa sér, vasinn varð heill aftur, eins og hann hefði aldrei brotnað. Mamma kom hlaupandi úr eld- hæusinu. En uppáhaldsblóma- vasinn stóð á sínum stað í hill- unni. Samt sem áður stuggaði hún við Zhenyu og sagði henni að fara út á leikvöll. Zhenyafórnú út á leikvöll. Þar voru margir litlir strákar að leik að norðurheimsskauts rannsókn- um. Þeir mældu f jalir og studdu við spýtnarusl, er þeir höfðu rek- in niður í sandinn. „Má ég vera með", kallaði Zhenya. „Leika við okkur? Sérðu ekki, að þetta er Norðurpóllinn. Við förum ekki með stelpur á Norðurpólinn". „Hverskonar Norðurpóll haldið þið að þetta sé. Ja hérna, þetta er bara spýtnarusl", sagði hún. „Þetta er ekki spýtnárusl, þetta eru hafísjakar. Farðu burtu og vertu ekki að rífast. Sérðu ekki, að jakarnir eru að þrýstast sam- an núna?" „Jæja, svo þið viljið ekki leyfa mér að leika við ykk- ur?" „Nei, við viljum það ekki. Farðu burtu", sögðu þeir. „Jæja mér er alveg sama, þó þið viljið ekki leyfa mér að leika við ykkur. Ég get komizt til Norðurpólsins á einni mínútu, án ykkar hjálpar. Og það verður raunverulegur Norðurpóll, en ekki ykkar ímyndaði Norðurpóll. Þið og ykkar heimskulega spýtnarusl", sagði hún svo. Zhenya laumaðist afsíðis. í skugga við hliðgrindina tók hún upp sjökrónublaða töfrablómið, sleit af því bláa krónublaðið, kastaði þvi upp i loft og sagði: Krónublað, ó krónublað, fljúgðu i hring um himingeim, norður, suður, austur, vestur, aftur fljúgðu til mín heim. Er þú snertir grundu hér gjörðu eins og ég segi þér. „Farðu með mig á Norðurpól- inn undireins. Er nún hafði mælt þessi orð skall á hvirfilvindur. Sól hvarf af himni, það varð dimmt, sem á nóttu. Jörðin sner- ist undir fótum hennar eins og skopparakringla. Og þarna stóð Zenya á tindi Noðurpólsins í sum- arkápu og hálfsokkum i hundrað gráðu forsti, og glápti á sjálfa sig. „Ó, mamma, mamma, mér er kalt" veinaði Zhenya snokt- andi. Tár hennar frusu í ís- ströngla og héngu niður úr litla nef inu eins og úr skolpleiðsluröri. I sama mund komu sjö geysi- stórir ísbirnir hver öðrum hræði- legri fram undan ísjaka og þrömmuðu beina leið til Zhenyu. Sá fyrsti fór á stökk. Annar öskr- aði. Sá þriðji sagði, „hún er ætluð mér". Sá f jórði sagði „ég stanga hana". Sá fimmti sagði „ég ét hana lifandi". Sá sjötti sagði, „ég skal stöðva þessa galdra henn- ar". Sá síðasti stökk sem vitlaus væri. Viti sínu f jær sleit Zhenya með köldum fingrum græna krónu- blaðið af blóminu og kallaði af öllum kröftum: Krónublað, ó krónublað fljúgðu í hring um himingeim, norður, suður, austur, vestur, aftur fljúgðu til mfn heim. Er þú snertir grundu hér gjörðu eins og ég segi þér. Farðu með mig heim á leikvöll á augabragði, sagði Zhenya. Á samri stundu var hún komin heim á leikvöll og strákarnir störðu hlægjandi á hana. „Jæja, hvar er þá Norðurpóll- inn þinn?" söqðu þeir. „Ég var einmitt að koma það- an", svaraði hún. „VÍð sáum þig ekki, þú verður að sanna það." „Sjáið þið bara, það eru enn þá ísströnglar á andlitinu á mér." „Þú með þína ísströngla. Hvernig væri að snýta sér." Zhenya móðgaðist af orðum strákanna. Hún ákvað að skipta sér ekki meira af þeim, en fór til annars leikvallar þarna skammt frá, til þess að leika sér þar við stelpur. Er hún kom til leikvall- arins voru stelpurnar að leika sér aðalls konar leikföngum. Nokkr- ar stelpur léku sér í krakka- pramma, aðrar voru í boltaleik, enn aðrar í skipaleik. Ein telpn- anna hjólaði á þríhjóli, en önnur lék sér að stórri talandi brúðu, sem var með stráhatt og í skó- hlífum. Zhenya varð græn af öf- und, og sagði við sjálfa sig. „Ágætt", ég skal sýna þeim, hver á leikföng. Síðan tók hún upp sjökrónu- blaða töfrablómið sitt, sleit af því appélsinugula krónublaðið, kastaði því upp í loft og sagði: Valentin Katayev. T öf rablómið Rússnesk saga handa börnum: Guðrún Guðjónsdóttir þýddi

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.