Alþýðublaðið - 23.12.1980, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 23.12.1980, Blaðsíða 3
JÓLABLAÐ 3 alþýðu- IH FTPIPM Útgefandi: Alþvöuflokkurinn Framkvæmdastjori: . Jóhann- es Guömundsson. Stjórnmálaritstjóri (ábm): Jón Baldvin Hannibalsson. Blaðamenn: Helgi Mál* Arthúrsson, Ólafur Bjarni Guðnason, Þráinn ' Hall- grimsson. Auglýsinga- og söiustjóri: Höskuldur Dungal. Auglýsingar: Þóra Haf- steinsdóttir. Gjatdkeri: Halldóra Jónsdótt- ir. Dreifingarstjóri: Sigurður Steinarsson. Ritstjórn og auglýsingar eru að Siðumúla 11, Reykjavik, simi 181866. það verður mikið um hátiöahöld næstu daga. Fæð- ingarhátið frelsarans veröur haldin hátiðleg i 1980ugusta sinn Við kveðjum verðbólguáratug- inn — en áreiðanlega ekki fyrir fullt og allt. Þessi leiða fylgja misheppnaðra stjórnmála- manna mun vissulega visa þeim veginn áfram við upphaf nýs áratugar. Aöstandendur hinnar islenzku verðbólgu geta raunar haldið upp á fertugsafmæli hennar um þessar mundir. Og Útvarpið er hálfrar aldar og Landspitalinn sömuleiðis. Og forsætisráðherra vor heldur upp á sjötugsafmæli sitt tveimur dögum fátt i ára- mótin. Þá verður kátt i höllinni. Vinir hans og samherjar i bandalag- inu og Framsókn ætla að færa honum „efnahagsmálapakka” I afmælisgjöf. Umbúðunum verö- ur varpað á verðbólgubálið með gömlu seölunum. Það veröur skrautleg áramótabrenna. Þaö er skammt til aldamóta. Aðeins tveir áratugir. 1 heimi orkukreppu og offjölgunar hljóta Islendingar þrátt fyrir allt að teljast til hinna hólpnu. Landið á ærinn auð — m.a.s. auð, sem endurnýjar sig sjálf- krafa. En kunnum viö að not- færa okkur hann? Verður næsti áratugur lika áratugur „hinna glötuðu tækifæra'”? Ungur og óvenjuritfær hag- fræðiprófessor slær þvi föstu i nýju poppblaði að verðbólgu- fylgjan hafi skorðað sig f föstu fari, og að „landsstjórum muni ekki takast á tímabilinu fram til ársins 2000 að koma verðhækk- unum aftur niður f gamla 10—13% stigið”. Þeim mun á hinn bóginp.segir hann „ekki veita af allri sinni stjórnspeki til að missa ekki verðbólguna upp á enn hærra stig, til dæmis 80—100%. Hver treystir sér til aö veöja á þá stjórnspeki? Hvað hefur okkur lslending- um tekizt bezt, og hvað verst á liðnum áratug? Hvað varðar mestu að okkur takizt vel á næsta áratug? Alþýðublaðið leggur þessar spurningar fyrir stjórnmála- menn, vfsindamenn og lista- menn, meðal annarra i jóla- blaöi. Vfsindamönnunum ber i grundvallaratriðum saman, þrátt fyrir ólfkar áherzlur. Alda Möller, lifefnafræðingur, nefnir .endurheimt tslendinga á yfir- ráðum yfir fiskimiðunum mikil- vægasta ávinning okkar á liðn- um áratug. Bæði Alda Möller og Agúst Valfells, kjarneðlisfræö- íngur, nefna aukna nýtingu jarövarmans sem dæmi um jákvæöa þróun. „Aukin nýting orkulinda hefur liklega komiö i veg fyrir rýrnun lifkjarna þenn- an áratug” — segir Agúst Val- fells. En hvað hefur tekizt verst? Bæði Alda Möller og Agúst Val- fells, nefna til efnahagsóstjórn, og landbúnaðarpólitik sérstak- lega. „Betur tókst okkur að hemja glóandi hraunið i Vest- mannaeyjum en óöaverðbólg- una”, segir Alda Möller. Landið er ofbeitt, ofbeitin stuðlar að offramleiöslu land- búnaðarvara, sem siðan er seld út með tapi, á lægra verði en landsmenn þurfa aö borga fyrir sömu vöru, og þeir eru skatt- lagðir til að greiða niöur verðiö. Þetta hlýtur að vera dragbitur á lifskjör fólks i þéttbýlinu.” — Þetta segir Agust Valfells. n vað varðar mestu að betur takizt til á næsta áratug? Aö móta stefnu i landbúnaöarmál- um og gróðurvernd. Aö ofgera ekki fiskistofnunum, og að leyfi- legur afrakstur þeirra veröi fenginn meö sem minnstum til- kostnaði. Aðhagnýta óvirkjaöar orkulindir og breyta þeim i út- flutningsverömæti. Að tryggja jöfnuð i lifeyrisréttindum aldraöra. Að draga úr vinnu- þrælkun, stytta vinnutimann. Koma upp lágmarksalmanna- vörnum til verndar lifi lands- manna og eignum, ef til ófriöar dregur. Allt eru þetta atriöi, sem nefnd eru til sögunnar. Það er athyglisvert, að enginn áræðir að gera kröfu um jafnvægi i þjóðarbúskapnum, sem er þó forsenda þess að flest hitt, sem upp er talið, geti tekizt. Er þaö til of mikils mælzt? Eöa eru menn búnir að gefa stjórnmál og stjórnmálamenn upp á bát- inn sem „vonlaust tilfelli”? Hvað sem þvi liöur, er von- andi aö við höfum eitthvaö lært af glötuðum tækifærum liðins áratugar. Aö svo mæltu óskar Alþýöublaðið lesendum sinum og viðskiptavinum sem og lands mönnum öllum Gleðilegra jóla TÍMI GLATAÐRA TÆKIFÆRA? HEIMSHAGKERFIÐ I KREPPU - UM VANDAMAL SMAÞJðÐANNA Erik Lundberg, viðkunn- ur sænskur hagfræðingur flutti erindi, sem hér er birt í útdrætti, á aðalfundi norræna iðnþróunarsjóðs- ins. Sjóðurinn var stofnað- ur árið 1970 í tengslum við inngöngu Islands i EFTA. Á aðalfundinum i Reykja- vík var því minnzt 10 ára afmælis sjóðsins. Erik Lundberg er mörg- um íslendingum að góðu kunnur. Hann kom fyrst hingað til lands sem efna- hagsráðgjafi fyrstu íslenzku „vinstri-stjórnar- innar" 1934—37 og at- vinnumálanefndar hennar, „Rauðku". EFTIR ERIK LUNDBERG Heimshagkerfið Eftirfarandi grein er útdrátt- ur I íslenskri þýðingu á erindi er flutt var i tilefni 10 ára afmælis Iönþróunarsjóös 30 maf 1980. Heimskreppan — vanda- mál smáþjóðanna Frá miðjum áttunda áratugn- um hefur almenn hagþróun i heiminum oröið fyrir alvarleg- um truflunum, orðiö hefur vart nýrra viðhorfa og framtiðar- horfur hafa einkennst af aukinni óvissu og svartsýni. Þessi nýju viðhorf og truflanir má einu nafni nefna kreppuástand, sem þó hefur lagst misþungt á ein- stök lönd og landsvæði. Segja má að kreppa riki á eft- irfarandi sviðum: 1) Alvarlegri samdráttarskeiö en áður eru dæmi um: 1974—75 og væntanlega einnig 1980-81. 2) Langvarandi „hagvaxtar- kreppa”. Hagvöxtur innan OECD virðist hafa farið minnkandi frá þvl að vera u.þ.b. 5% á ári „gullaldarár- in” 1950—70 og niður i um 2—3% frá miöjum þessum áratug. Talaö er um að þróunarmögu- leikar séu háðir „olíuþaki”. 3) Veröbólguvandinn hefur næstum allsstaðar verið höfuðviðfangsefnið. Kreppu- ástandið einkennist af stöðn- unarverðbólgu (stagflation) þ.e. litlum hagvexti (stöðnun) miklu atvinnuleysi og verð- bólgu. 4) Það rikir einskonar kreppu- ástand I hagstjórn margra iönrikja. Stjórn efnahags- mála hefur einkennst af mjög aðhaldsömu veröbólgulet jandi aðgerðum meö háum vöxtum þrátt fyrir mikið atvinnuleysi og lélega nýtingu fram- leiðsluþátta. 5) Jafnvel í hagstjórnarfræðum ríkir kreppuástand. Kenning- ar Keynes með jákvæða af- stöðu til þenslu i rikisfjármál- um eiga minnkandi fylgi að fagna. Kenningar monetarista sem byggja á mikilvægi stjórnunar pen- ingamála hafa heldur ekki reynst nógu vel undir stjórn frú Thatcher i Englandi. Þess i stað er leitaö nýrra hag- stjórnarkenninga þar sem áhrif væntingar, áhættu og allra tengunda eigna ekki ein- ungis peningar og skuldabréf, skipta máli. 6) Ljóst er einnig að kreppan á rætur sinar að rekja til þess hvernig efnahagslif hinna ýmsu landa er uppbyggt (strukturkris), þar sem ónot- uð afkastageta og fjármögn- unarvandama’l margra at- vinnugreina haldast i hendur við veröbólgu og atvinnuleysi. Mikilvægustu breytingar i efnahagsuppbyggingu iðn- ríkjanna er útþensla opinbera geirans. Vaxandi rikisútgjöld háir skattar og oft mikill halli á fjárlögum hafa margsinnis valdið kreppu i rikisfjármál- um. 7) Minni aukning heimsverslun- ar frá 8—9% árlegri magn- aukningu og niður i 3—5% hefur gert utanrikisverslun ýmissa landa erfitt fyrir. Verndaraögerðir eiga sivaxandi fylgi aö fagna )protektionismen). Vannýtt afkastageta á ýmsum sviðum atvinnulifs hefur leitt til opin- berrar ihlutunar og aðgerða i formi framleiðslustyrkja sem spillt hafa skilyrðum friversl- unar og sérstaklega hafa hagsmunir útflutningsversl- unar smáþjóða orðið fyrir baröinu á þessu Þessi þróun hefur einnig kom- iö illa við ýmis þróunarlönd, sem byggja efnahagsþróun sina i ríkum mæli á eflingu út- flutnings. Aðlögun iðnaöar- uppbyggingar margra rikja vegna sibreytilegrar alþjóð- legrar verkaskiptingar er of hægfara og sársaukafull vegna ósveigjanleika og auk- innar tilhneigingar til verndaraðgerða. 8) Kreppa er rikjandi eða þvi sem næst á alþjóðlegum fjár- magnsmörkuðum og einnig i greiðslujafnaöar- og gjald- eyrismálum. Greiðsluafgang- ur OPEC-landa sem nemur hundruðum milljarða dollara virðist ætla að festast I sessi. Óhagstæöur vöruskiptajöfn- uður hrjáir flestar þjóöir utan OPECrikjanna. Fljótandi gengiskerfi hefur á vissum timum ekki gefist nógu vel, sérstaklega með tilliti til óstööugleika Bandarikjadoll- arans. Alþjóðlegir fjármagnsmark- aðir störfuðu eins og ætlast var til á árunum 1974—79. En hin geigvænlega skuldasöfn- un á alþjóðavettvangi getur ekki gengiö takmarkalaust. Fjöldi rikja — og á þetta sér- staklega við um mörg þróunarlönd — verða að draga úr skuldaaukningu sinni. Hætta er á kreppu á al- þjóðaf jármagnsmörkuðum. Þarft væri að ræða sjónarmið og tillögur Brandt-nefndar- innar. 9) Siðan er nokkuð til sem kalla mætti hagskerfiskreppu (systemskris). Eins og á ár- unum kringum 1930 sem fólu i sér einskonar auðvalds- kreppu stöndum við nú frammi fyrir hagkerfis- kreppu i tvennum skilningi. Hugsanlega gæti kreppa hins blandaða hagkerfis og markaöskerfis birst i þvi að i mörgum iðnrikjum hefur trú manna á gildi markaðarins dvinað i ýmsum veigamiklum atriðum. Þetta sést hvað greinilegast á lágu kauphall- ar gengi, lækkandi ágóða- stigi, og lágu hlutfalli arð- bærrar fjárfestingar, opin- berri ihlutun á öllum sviðum, óróa, óvissu og svartsýni á framtiðina. Onnur tegund hagkerfis- kreppu varðar efnahags- skipulag heimsins (inter- nationella varldsordning). Litill árangur af 20 ára efna- hagsuppbyggingu þróunar- landanna, hefur valdið mikl- um vonbrigðum. Rætt er um hvort tveggja i senn, umbæt- ur og róttækar breytingar Vandamál þriðja heimsins verða enn alvarlegri vegna áðurnefnds kreppuástands meðal iönrikja (OECD). Það er engin hætta á að ástand það sem ráðandi var I kreppunni miklu endurtaki sig. Þó má finna nokkur sam- eiginleg'. einkenni þessara tveggja timabila. En þvi mið- ur eru vandamálin miklu margslungnari i dag. Vonandi gera rikisstjórnir, atvinnulif, stéttarfélög, o.s.frv. sér betur en þá grein fyrir eðli vanda- málanna og þeirri áhættu sem i þeim býr. En atferli og ákvarðanir stjórnmálamanna og rikisstjórna eru ekki alltaf byggðar á skynseminni einni saman. Deilur og stjórnmála- legar skammtimaákvarðanir ráða þvi miður oftar ferðinni i flestum rikjum en sameigin- legir langtimahagsmunir þeirra. Hvernig eiga smáþjóöir að geta spjarað sig i heimi litils hagvaxtar örrar verðbólgu og greiðslujafnaðarvandamála, verndaraðgerða og almennrar óvissu um framtiðina? Það er merkilegt hversu þróun efnahagsmála hefur verið breytileg eftir löndum frá kreppunni 1973—74. Hversvegna hefur t.d. Austurriki og Noregi vegnað svo miklu betur en Dan- mörku og Sviþjóö? Hægt er aö velta vöngum yfir svo gifurleg- um andstæðum sem Islandi og Sviss. Kemur þar til bæði mis- munandi heppni og hæfni, i al- mennri hagstjórn, i gengis- málum, i samvinnu atvinnulifs og rikisstjórna. Styrkleiki verð- bólguhneigðar gæti verið afger- andi skýringarþáttur. Min skoðun er sú að hægt sé að ná mun betri árangri i litlu hagkerfi (bæði að þvi er varðar stööugleika, verðbólgu og hag- vöxt) en þeim sem nú mun vera spáð almennt. Tökum Austur- riki og Sviþjóð sem öfgadæmi. Austurriki sem dæmi um litiö land og velheppnaða stjórn efnahagsmála. Viö getum lært af reynslu þessara tveggja landa og annarra hvernig smá- þjóðir geta spjaraö sig áfalla- laust i illum heimi. (§leíitleg }ól BRUNABÓTAFÉLAG ÍSLANDS {

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.