Alþýðublaðið - 23.12.1980, Blaðsíða 18

Alþýðublaðið - 23.12.1980, Blaðsíða 18
J6LABLAÐ 18 KAUPFÉLAG BORGFIRÐINGA BORGARNESI óskar öllu starfsfólki sinu og viðskiptavin- um gleðilegra jóla og þakkar viðskiptin á liðna árinu Helgi fer i göngur eftir Svend Otto S. Ný barnabók frá AB. Almenna bókafélagið hefur sent frá sér nýja barnabók eftir danska teiknarann og barnabóka- höfundinn vfökunna Svend Ottó S. Þessi gerist á tslandi og heitir Helgi fer i göngur. Bokin er kynnt þannig á kápu: „...Árið 1979 gaf AB Ut eftir hann (SvendOttoS)barnabókina Mads og Milalik, sögu frá Grænlandi, og hlaut hUn miklar vinsældir hinna ungu lesenda hér sem annars staöar. Siöasfliðið sumar dvaldist Svend Otto S. um tima á \ en«^6\an* \/\nn ,in9as 9 @ A98 1.058 28.868 ^q4.904 NýW- A 00 .ooo 50.000 20.000 10.ooo 5.0°0 1.000 500 biýW- 900-000 iCWelf u\e9u urn ***"<&& ° la í V^dUÍ vaun^e' , b\oa oer\\n9a Islandi (á Silfrastöðum i Skaga- firði), og birtist nU sú barnabók sem til varð i þeirri ferð. SvendOttoS. er mikill náttUru- ogdýraunnandieinsog vel kemur fram i bókinni um Helga, skag- firska strákinn, sem lendir i ævintýrum i göngunum...” Þvi má bæta við að þessi barna- bók um tsland hefur á þessu ári verið gefin Ut á mörgum tungum Evrópu og veröur hUn góð tslandskynning meðal ungra les- enda viðsvegar. Bókin er islenskuð af Sigrúnu Astriði Eiriksdóttur. Hún er sett i Prentsmiðjunni Odda og prentuð i Danmörku. Vilhjálmur Þ. Gislason hefur sent frá sér nýja bók, sem hann nefnir Jónas Hallgrimsson og Fjölnir, 330 blaðsiðna rit auk mynda. Útgefandi er Almenna bókafélagið. Bókin er kynnt þannig á bókarkápu: „Jónas Hallgrimsson og F jölnir eftir Vil- hjálm Þ. Gislason er itarlegasta ævisaga Jónasar Hallgrimssonar sem við hingað til höfum eignast. Sýnir skáldið i nýju og miklu skýrara ljósi en við höfum átt að venjast. Jónas Hallgrimsson, skáldið góða, sem kenndi tslendingum öðrum listamönnum fremur að sjá fegurð islenzkrar náttúru og njóta hennar og hlUði umfram aðra að jákvæðu viðhorfi þjóðar- innar gagnvart landinu og lifinu, átti við vanheilsu að striða sið- ustu æviár sin, déum aldur fram. Þetta er sU almenna mynd okkar af Jónasi Hallgrimssyni, i sennfögurog dapurleg.alltof ein- föld. Jónas Hallgrimsson er „hið drambsamasta dýr”, lét eldri skáldbróðir hans eftir sér hafa, — „fUllegur og mjög hæglátur”, sagði annar. Aðrir tala um hans björtu, hýru og skinandi fögru augu, og landar hans i Höfn stofnuðu bindinidisfélag, sjálf- sagt aðallega til að reyna að bjarga honum. Það var vist eng- um sama um Jónas Hallgrimsson sem honum kynntist. í þessari nýju bók um Jónas Hallgrimsson er hófsamlega og hispurslaust sögð saga hans — umfram allt sönn og itarleg. Þettaer saga af afburöagáfum og góðum verkum og af nokkrum veilum, sem oft er dregin fjöður yfir. „Saga Jónasar Hallgrims- sonar er um margt glæsileg saga, kannske hins mikilhæfasta mannsefnissins tima i h'fi lista og fræða, en lika saga um mann i brotumog vanhirðu”, eins og höf- undurinn, Vilhjálmur Þ. Gislason kemst að orði i inngangi bókar- innar”. Bókin er unnin i Prentverki Akraness. Hún er336bls. að stærð og auk þess er i bókinni fjöldi mynda. Ljósin í lagi - lundin góð Slík áhrif hafa rétt stillt Ijós í umferðinni.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.