Alþýðublaðið - 23.12.1980, Blaðsíða 13

Alþýðublaðið - 23.12.1980, Blaðsíða 13
JÓLABLAÐ 13 manna. Stendur sá gleðifagn- aður yfir nokkrar nætur og daga og nefnist Pera-hera. Þeim at- höfnum er varla hægt að lýsa með orðum : Nær hundrað filar i skrautklæðum fylgja ungum oggömlum imarglitum búning- um. 1 hásætum sitja munkar prýddir gimsteinum, haf af log- andi blysum breiðir ævintýra- blæ yfir allt og alla. Söngvar heyrast, flautur og trommur æsa fylkingar hinna trúuðu til æ villtari dansa. Hvellir úr löng- um leðurpiskum hljóma i takt eins og byssuskot og eiga að hræða burt illa anda — margar athafnir minna á forna andatrú. —Skrautgöngur og ýmis hátiða- höld standa langt eftirmiðnætti, hugsa aðeins fáir um að halda heim til sin. Stórir hópar ráfa um, hlæjandi og kallandi — en friðsamir eru allir, þvi að notkun áfengis þekkist ekki. Hægt er að fá keypt brauð ný- bakað og ýmsa ávexti. Fátt kvenfólk er á ferli — helst þá mæður með ungbörnum sinum. — Þótt lögreglan reyni að skipu- leggja umferðina til og frá ha- tiðarsvæðinu, tekur það marga klukkutima og komast út úr þrönginni. Hér kemur að góðum notum að hafa bifreið leigða um hálfan sólarhring, annars er varla hægt fyrir útlending að rata. Hver er sjálfum sér ........ Hafi ferðamaður búið i Sri Lanka vikum saman og kynnst kunningjum sinum betur, fellur skuggi á hina rómuðu góð- mennsku Singhalesa. Vissulega er umgengni ánægjuleg eins og hjálpsemin. En sýnilegt verður smám saman að undir býr is- kalt mat á, hversu mikið megi hafa út úr hverjum útlendirigi. Einn irnfæddurhjálpar þegjandi öðrum að „plokka” erlenda gesti, og fara þeir i einskonar keppni um hver geti betur. Unglingar gera sér far um að fá utanáskriftir ferðamanna i heimalöndum þeirra, oftast * von að fá sendar gjafir, helst peningaseðla. Er hér meira um græðgi að ræða en fátækt. Og það sem Singhalesar óska eru oft ekki smámunir: dýrmæt armbandsúr, silkiskyrtur og út- varpstæki. Jafnvel vel stætt fólk, sem á fin einbýlishús og eirikabifreiðar, vila ekki fyrir sér að biðja túrista, sem aðeins skreppa til Indlands eða Thai- lands, um að ,,kaupa” fyrir sig dýrmæt klæði og útbúnað. Sé slikur túristi svo einfaldur að koma með umbeðna hluti, lærir hann fljótt, að úr lofaðri greiðslu verður ekki, og dugar ekki að „rukka” þá. útlending- ur eri'öllu falli álitinn svo rikur, að hann megi vel láta það af hendi rakna sem „vinargjöf”, sem hann var beðinn um að kaupa. óviðkunnanleg eru slik „viðskipti”, og ber að taka þeim sem merki þess, að útlendingur er i þann mund að glata virð- ingu sínni í grasgarðinum t fjalllendinu nálægt Pera- dinia gleður sigrænn, undur- fagur og vel hirtur grasgarður ferðamanninn. Likist hann helst konungagörðunum i Anurad- hapura norðanlands, en þar eru þöglar tjarnir fullar af fiskum og jafnvel krókódilum. Frægust i görðum Peradiniya eru gróður hús með ótrúlega fjölbreyttum snikjuplöntum, orkideum. Eru þærsvoeinstæðar og dýrmætar, að athugulir verða að gæta þeirra og sjá til þess, að enginn gestanna steli þeim eða hlutum þeirra. Það reyndist þá lika ókleift að fá keyptar orkideur nokkurs staöar, a.m.k. tókst mér það ekki. Aftur á móti tindi ég fræ trjáa og skrautrunna, til að gróðursetja þau heima hjá mér í Malmö. Ég gefst nú upp við þessa ferðaskýrslu — þvi vi'ðar sem ég fór i Sri Lanka, þeim mun ljós- ara varð mér, aö hér er aðeins hægt að tæpa á fáu. Hefi ég viljað vekja áhuga á framandi landi,sem með fjölbreytni sinni getur verkaö sem einskonar draumalyf. 1. desember 1980. Haraldur ómar Vilhelmsson. 1 FJOLBREYTTASTA ÚRVAL ÁLEGGSTEGUNDA Á LANDINU Bjorpylsa • Bjórskinka • Búlgörsk spæjjipylsa • Bringupylsa • Ilamborgarpylsa • Hangikjöt Kindakæfa • Lamhaspægipylsa • Lambasteik • Lifrakæfa • Lyonpylsa • Madagasgar salami • Malakoff Milanó salami • Mortadella • Paprikupylsa • Raftaskinka • Rúllupylsa • Servelatpylsa • Skinka Spægipylsa • Skinkupylsa • Svínafúllupylsa • Svínasteik • Tepylsa • Tungupylsa • 1'ungur • Veiðipylsa KJOTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.