Alþýðublaðið - 23.12.1980, Side 5

Alþýðublaðið - 23.12.1980, Side 5
JÓLABLAÐ 5 fyrirmynd, án þess aö forsend- urnar sem þaer byggjast á væru fyrir hendi, hvort sem þar er um aö kenna skilnings- eöa peninga- skorti, nema hvorttveggja sé. Og svo er þaö framhaldsskólafrum- varpiö, sem enn er aö velkjast óafgreitt. Menn greinir á um hvort Kröfluævintyrið teljist frekar mistök eða óheppni, en af þvi getum við samt dregið þann lær- dóm, aö þvi fé og þeim tfma, sem variö er til undirbímingsrann- sókna að stórframkvæmdum er vel variö. Aö takist aö efla atvinnulifið og skapa þvi heilbrigðan grund- völl. Sérstaka áherslu ber aö leggja á nýtingu innlendrar orku og hráefnis. Þetta er sú undir- staða sem allur annar velfam- aður byggist á. Miklu varöar aö við nýtum okkar tækniframfarir, svo sem örtölvubyltinguna sem boðuð hefur verið, á þann hátt að það komi öllum almenningi til góða i styttum vinnutima og betri launum. Þá er það takmark sem okkur ber að ná sem fyrst, að mögulegt verði að framfleyta sér á dag- vinnulaunum og meira svigrúm verði gefið fyrir hlutastörf. Þetta er eitt mikilvægasta réttindamál foreldra og bama. Það vinnuálag sem hér hefur tiökast, er óhag- kvæmt bæði fyrir einstaklingana, atvinnufyrirtækin og þjóðfélagið i heild. Skólakerfið þarf að laga sig að breyttum aðstæðum : Auka tengsl sin við atvinnulifið, taka upp meiri kennslu i tölvufræðum, auka möguleika á endurmenntun og fullorðinsfræðslu og siðast en ekki sist að búa fólk undir fleiri tómstundir og lægri eftirlauna- aldur. Það er sorglegt að verða vitni að þeim tómleika sem hel- tekurlif margs gamals fólks, sem aldrei hefur litið upp úr stritinu, þegar þaðerhætt að vinna og veit ekki hvernig það á að fá timann til að liða. Þar eru karlmenn oftast mun verr settir en konur. Þá tel ég höfuðnauðsyn að við- halda og efla allt það, sem stuðlar að frelsi og sjálfstæði okkar sem þjóðar. Við eigum ekki að láta nota okkur i vigbúnaðarbrölti stórveldanna. Við eigum að afmá þann smánarblett að vera her- setin þjóð. Okkar lóð er að visu smátt, en það væri þó best komið á vogarskál þeirra samtaka, sem vinna að eflingu friðar i heim- inum. Menn kunna að segja, að við verðum að hafa varnir. En þær vamir sem hér eru duga okkur Islendingum harla skammt og verka frekar sem segull ef til átaka kæmi. Hvort eitthvað af þessum eða öðrum markmiðum nást á kom- andi tiu árum, er ekki gott að spá um. En eiU er vist að ef þjóðin stendur saman og ef stjórnmála- menn, hvort sem eru i stjórn eða utan, láta þjóðarhag sitja i fyrir- rúmi fyrir valdastreði og vin- sældapólitik, þá mun okkur miða fram á veg til betra lifs. Hjálmar Ragnarsson, tónskáld Ég tel, að á tslandi hafi aldrei verið meiri gróska i listsköpun og listtúlkun en á liðnum áratug. Al- menn þátttaka i þeirri starfsemi hefur verið mjög mikil þrátt fyrir þá innfluttu imbakassamenningu, sem flætt hefur takmarkalaust yfir landið. Þessi gróska ber vott um, að enn býr lifsneisti með þessari þjóð. tslenzk stjórnmál hafa á liðnum áratug einkennst af ábyrgðarleysi og lýðskrumi. Er þess vegna ekki að furða þótt okkur hafi mistekist að byggja upptraustatvinnulif og jafna kjör landsmanna. Þröng skammtimasjónarmið hafa ráðið úrslitum i umhverfis- verndarmálum, og höfum við verið iðin við að safna skuldum i þeim efnum, skuldum sem kom- andi kynslóðir verða siðan að borga. Vonir um að takast mætti að koma hinu bandariska hernáms- liði úr landi brustu hver af ann- arri. Tók þó út yfir allan þjófa- bálk, þegar stór hluti þjóðarinnar lét teyma sig út i að grátbæna stóra bróður um að sitja sem fast- ast. Dýðra getur liklega engin þjóð sokkið. A næsta áratug varðar það Islendinga miklu að standa vörð um sjálfstæði þjóðarinnar. t. vopnaskaki stórveldanna er öryggi Islendinga bezt tryggt með hlutleysi, og þarf þess vegna að visa á bug öllum erlendum hernaðaritökum. Ariðandi er, að stjórn og rekstur atvinnufyrir- tækjanna hverfi ekki úr okkar höndum og að auðvirðileg gróða- sjónarmið ráði á engan hátt ferð- inni i fræðslu- og menningar- málum. öllu máli skiptir, að við lærum að búa i lifheimi okkar án þess að ræna hann og eitra. Fyrr en við lærum það tekst okkur ekki að skila afkomendum okkar betri jörð en þeirri sem við tókum við. Gleðileg jól! Farsælt komandi ár. Þökkum viðskiptin á liðna árinu. Iscargo h/f Gleðileg jól! Farsælt komandi ár. Þökkum viðskiptin á liðna árinu. Jens Guðjónsson Skartgripaverslun Laugavegi 60 Gleðileg jól Farsælt komandi ár Þökkum viðskiptin á iiðna árinu BiLABORG H.F. SMIÐSHÖFÐA 23 , LEIKLIR. PU FOXGANGANDI JOLASVEIN UM ÞESSIJÓL? Farið þið í heimboð á annan? Geysist með gjafirnar um allan bæ? Og greinar á leiði í leiðinni? Allt þetta getum við auðveldað. Við bjóðum þér framhjóladrifinn bíl til einkaafnota á sérstökum iólaafslætti. •2-21190 LOFTLEIBIR BILALEIGA

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.