Alþýðublaðið - 23.12.1980, Qupperneq 9

Alþýðublaðið - 23.12.1980, Qupperneq 9
JÓLABLAÐ 9 hann fjörugrasahálftunnuna selda á hálfan fjóröung smjörs. Kemur það verðlag heim við frá- sögn Skaftfellings, er vel þekkti til þess um aldamótin 1800. Hann segir að vættin af fjörugrösunum hafi kostab 10 fiska og þvi verib sem hálfvirði við söl. En fjöru- grasakvartilið vó fjóra fjórðunga eða hálfa vætt. — Búalög veita • enga vitneskju um verðlag á fjörugrösum, en það er vitni um, að á þeim tima, sem verðlags- ákvæði þeirra urðu til, hafi fjöru- grös ekki verið söluafurð. — Ógerlegt er að fullyrða nokkuö um, hvenær þau hafi fyrst orðið það. Af varðveittum heimildum virðist helzt mega ráða, að það hafi ekki gerzt fyrr en á 17. öld og tæpast svo nokkru næmi fyrr en á öndverðri 18. öld. Elzta lýsing á mataræði úr fjörugrösum er i riti Bjarna Páls- sonar en þar segir: „Fátæktfólk býr til úr þeim súpu eða graut. Þau eru soðin i vatni eða mjólk með mjölútákasti. Þessi réttur er likur réttum úr fjallagrösum að bragði og útliti.” — Frásögn Egg- erts og Bjarna er ögn ítarlegri: ,,Or fjörugrösum er-----gerð- ur þykkur limkenndur grautur, ýmist úr þeim nýjum eöa þurrk- uðum. Eru þau þá lögð i bleyti i ósalt vatn og siðan söxuð og soðin. Fátæklingar sjóða þau i vatni og sýru ásamt einhverri ögn af mjöli, ef til er, en hjá þeim, sem betureru megandi, eru þau soðin i mjólk og mjöl eða bygggrjón höfðmeðþeim,ogrjómihafður út á grautinn. Við höfum borðað þau þannig tilreidd og þótt þau góð.”. — Af annarri heimild má sjá, að fjörugrasagrauturinn var stund- um,látinn kólna i trogi, en við það hljdp hann i hellu, er skorin var í bita, sem voru látnir i súr. — Jón Guðmundsson Þjóððlfsritstjóri kynntist þvi, hvernig Skaftfell- ingar matbjuggu fjörugrösin, en hann segir, ab auk grautsins hafi verið búið til úr þeim svonefnt fjörugrasahlaup.Það var skorið i tigla, er voru látnir i súrmjólk, og siðan voru þessir grasatíglar etnir meðsúrmjólkinni. En bitar úr grasagrautnum, er áöur var minnzt á, voru látnir Ur súrnum i aðra grauta og borðaöir með þeim. — Einnig tiðkaðist að hella soðnu fjörugrasamauki ofan á skyrtunnur, þar sem það hljóp saman og varð að skildi svipað og ef floti hefði verið rennt yfir þær. Þessi fjörugrasaskjöldur hlifði skyrinu en hann var svo smám saman étinn með þvi. Þorsteinn Þorsteinsson jarð- yrkjumaður og bóndi i Úthlið i Biskupstungum var sem drengur á Hvoli i Mýrdal um aldamótin 1800. Hann greinir frá þvi, að fjörugrös hafi þá almennt verið keypt á Eyrarbakka og flutt aust- ur. Um matargerð Ur þeim segir Þorsteinn: „Þau voru afvötnuð i tvo daga, þvi næst þvegin i volgu vatni, skorin og soðin ýmist i mysuvatnsblandi eða drukk, og var sá gráutur festur meö litlu einu af mjöli. Aðrir suðu fjöru- gjösin niður i mauk og höföu mauk þetta i þunnum lögum inn- an um skyriðog var hvorttveggja borðaö saman með mjólk útá.” Ef fjörugrösin voru ekki látin saman við skyr eða súrmjólk á sumrum, söxuðu eða muldu Skaft fellingar þau, gagnpressuðu i iláti er siðan var tillukt, og geymdu þannig til vetrar. Af þessum fjörugrasaforða var svo tekið smám saman og hann matbúinn i graut eða hlaup á sömu lund og áður er getiö. Sú var reynslan, að fjörugrösin væru litt hæf i graut nema hann væri vel mjölborinn og i honum sýra eða mjólk. Bezt þóttu þau með skyri eða súrmjólk og helzt eftir að hafa legið i öðru hvoru og mengast af sýru, þvi að við það hvarf væmubragðið sem að öðr- um kosti var af þeim. Þess voru dæmi að fjörugrasahlaup væri sykrað, og hefur það sjálfsagt verið gert til þess að bæta bragð- ið. Þótt sumir kæmust upp á lag Hér getur að Hta sjóarkræöu. Allur frágangur bókarinnar er til fyrirmyndar: hún er fagurlega myndskreytt. Kápa og saurblöö eru unnin af Guðmundi P. ólafssyni. meðaðmatbúa fjörugrösin þann- ig, að þau þóttu eftirsóknarvert búsilag, mun þó þessi sæþörungur vfirleitt ekki hafa verið nýttur til matar nema i mestu harðærum, og þá einkum af þeim, sem fátæktin hrjáði sárast. Þannig var það t.d. árið 1701. Haft er eftir Þorvarði Þórðarsyni, er var að alastuppá Miövöllum undir Jökli laust fyrir miöja siðustu öld, að þar heföi þá eitt sinn svo hart að sorfið með bjargræði, að sækja varð um tima grös i fjöru og gera graut úr þeim. Taldi Þorvarður það verstu fæðu, sem hann hefði nokkru sinni orðið að búa við, enda voru grösin óþurrkuð, að- eins afvötnuð og soðin i vatni ásamt mjölhári. Sumir ætluðu, að fjörugrösin gætu komið að liði sem lækninga- jurt, og sú var jafnvel skoðun lækna. — Fjörugrasagrautur var talinn auðmeltur og sagður styrkja meltingu harðrar fæðu. Þvi var trúað, að hann væri eink- um hollur þeim mönnum, sem holdsveiki byggi i, þvi að þeir hefðu flestir illan melting og treg- an vallgang. Sem lyf I þvi skyni og vallgang. Sem lyf i þvi skyni og jafnframt við veiki þeirri sem fyrrum var nefnd kveisa, en henni gat fylgt matleiöi, höfuð- verkur og uppsala, voru f jörugrös talin ágæt, ef þau voru litið af- vötnuð og haft var hunang til að sæta þau. Einnig var fólki, sem var of blóðrikt, ráðlagt að éta fjörugrasagraut eða drekka seyði af grösunum. Það var gert með þeim hætti, að tekinn var vænn hnefi af vel þurrkuðum og söxuð- um fjörugrösum, er höfðu verið afvötnuð litið, og eitt lóð af hunangi. A þetta var hellt einni mörk af sjóðandi vatni, hrært eib'tiðog látiðstanda i ilátinuunz seyðið vár orðið kalt. Stundum var þessi seyðisskammtur drukk- inn allur i einu, eða smám saman snemma morguns, einkum ef hann átti að lækna kveisu i ung- lingum. Sérstaklega var fólki, sem bjó við sjó og átti ekki kost á fjallagrösum, bent á að nýta fjörugrösin sem lækningajurt á fyrrgreindan hátt. Sigurður Kristófer Pétursson dvaldist i æsku á Brimilsvöllum en þar uxu fjörugrös eins og fyrr er að vikið. Um þau segir hann: „Fjörugrös heyrði ég sagt að væru afbragð til að stoppa maga- tæringu, en ekki vissi ég til, að þau væru notuð.” Umfram það, sem fyrr er getiö varöandi noktun fjörugrasa i Vestmannaeyjum, skal aftur vitnað til heimildarmanns, sem enn er á lifi, en hann segir: Meöal Ofanbyggjara i Vest- mannaeyjum voru fjörugrös tek- in að haustinu til nokkuð fram yf- ir siðustu aldamót og höfð til skepnufóðurs. Þau voru pokuð, flutt heim á hestum og þurrkuð á túni. Siðan voru þau látin i tunnur og fergð. A vetrum voru grösin gefin kiim með fóðurbæti, en áður var hellt á þau heitu vatni. Vest- mannaeyingar töldu fjörugrösin ágætt fóður. — Einnig tiðkaðist fram á þessa öld i Selvogi að rifa fjörugrös handa kálfum. A þau var hellt s.jóðandi vatni en siðan voru grösin söxuð og látin þannig saman við kálfsdrukkinn. — Ann- ars virðist litið hafa verið gert að þvi að safna fjörugrösum sem vetrarforða fyrir búpening. Af upplýsingum Jarðabókarinnar mætti þó t.d. ætla, að slikt hefði átt sér stað i Grindavikurhreppi. Aftur á móti átu hestar og fé fjörugrös á bitfjöru og þá helzt á vetrum. v ■ , " s' '' '' r'' ^ ... l@Si|g«PÍW JÓLIN eru tími hvíldar og friðar. í tilefni þeirra sendir Alþýðusamband íslands launafólki og samherjum þess óskir um gleðileg jól og farsæld á komandi ári. -

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.