Alþýðublaðið - 23.12.1980, Qupperneq 19
JÓLABLAÐ
Einstaklingsframtakið
17
kúgi konur, en vart er
ástæöurnnar að leita i valda-
fýsn, eða kúgunareðli karl-
mannsins, Vissulega er áhuga-
leysi almennra verkamanna
mikið þegar samtök þeirra eru
annars vegar, en þaö þýðir ekki
að almennt verkafólk hafi ekki
áhuga á sinum málum. Það gæti
hins vegar þýtt að eitthvað stór-
kostlega mikið væri að, hvað
varðar skipulag og starfshætti
verkalýðshreyfingarinnar. Þvi
er þetta nefnt hér að bókin
Galeiðan skirskotar beint til
þessa.
Þær andstæður sem liggja til
grundvallar i bókinni eru ekki
andstæðurnar milli verka-
kvenna. Þannig setur höfundur-
inn það heldur ekki upp. Hann
setur upp andstæðurnar verka-
menn — atvinnurekendur. Þaö
er þessi andstæða sem knýr sög-
una áfram, ákvaröar söguþráð-
inn. Það er þetta sem skýrir at-
vikið þegar Lárus Björnsson,
verkstjórinn yfirborgaði,
skvettir úr viskiglasinu framani
iðjuhöldinn Má Blöndal eftir
að hafa heyrt þann siðarnefnda
halda enn eina smjörlikisræðu
sina um vinnufrið, lausaskuldir
og langtímalán. Lárus Björns-
son gerir ekki neitt privatupp-
gjör. Eftir skiptbrot i hjóna-
bandi, skipbrot gagnvart rétt-
visinni og skipbrot gagnvart
þeim kröfum, sem smáborgar-
inn, kaupmaðurinn,faðir hans,
hlýtur að hafa sett á hann viður-
kennir hann i bókarlok, aö hann
er og verður verkamaður Hann
vaknar af draumi og tekur af-
stöðu með verkakonunum. Kúg-
un verkakvennanna kennir hon-
um að lita sambandið milli
verkstjórnar og eignarhalds
verksmiðjunnar i réttu ljósi.
Þannig gerir Lárus sér það ljóst
undir lokin, að verkstjórastaða
hjá Má Blöndal, er ekki það
sama og að reka verzlun föður
sins á horninu. Verkstjórastað-
an gerir hann ekki umsvifalaust
að smáborgara. Hann fær þegar
allt kemur til alls, litlu ráðiö um
framvindu mála í Umbúða-
smiðjunni hans Más, andstætt
þvi sem hann hugsanlega gæti
sem smákaupmaður.
Það er áöur sagt, að verka-
konurnar leggja ekki niður
vinnu vegna launa sinna, enda
slikt flokkað undir samnings-
brot samninga sem þær hafa
engan þátt átt i að gera, en þeg-
ar ein verkakonan slasast vegna
hirðuleysis eiganda verksmiðj-
unnar og brota á löggjöf um
öryggismál á vinnustað þá þyk-
ir þeim nóg boðið.
Sú afgreiðsla sem þær fá á
skrifstofu verkalýðsfélagsins og
sú staðreynd, að öryggiseftirlit
rikisins hefur ekki komið i veg
fyrir að notaðar séu vélar i svo
bágu ásigkomulagi sýnir, að
mótherjar verkamanna eru
ekki einungis atvinnurekendur
heldur og rikisvald og siðast en
ekki sizt verkalýðsforystan
sjálf. Og er það einkum þessi
punktur sem er hvað athyglis-
verðastur i framsetningu höf-
undar að mati undirritaðs.
Þetta er ekki einkaskoðun höf-
undar. Þessi skoðun kom sterk-
lega fram á nýafstöðnu 34. þingi
ASI og þetta hefur margsinnis
komið fram hjá pólitiskum aðil-
um sem standa vinstra megin i
islenzkri pólitik, en það er nýtt
a.m.k. á seinni timum að rithöf-
undar skuli leggja málin upp á
þennan hátt.
1 bókum Peter Hallberg um
nóbelskáldið Halldór Laxness
segir að höfundurinn sá hafi sett
saman formála að þýzku útgáfu
Heimsljóss og dagsettur sé árið
1955. Halldór útskýrir aö sú
saga ,,sé i vissu tilliti spegil-
mynd af Hitlerstimanum...að
mörgu leyti þúsundárariki
nazista i smækkaðri mynd,
þriðja rikið séð i öfugum sjón-
auka, eða, vilja menn orða það
svo, þriöja rikið leyst upp i
frumþætti.”
I framhaldi af þessu er varla
á neinn hallað þótt þvi sé haldið
fram, að ölafur Haukur
Simonarson hafi með Galeið-
unni brugðið upp svipmyndum
af lifi islenzkra verkamanna,
sérstaklega verkakvenna, tæpri
hálfri öld siöar, i skugga al-
ræðisvalds þeirrar stéttar, sem
situr inni með völdin, hvort
heldur er i samtökum verka-
fólks, samtökum iðnrekenda
eða I rikisstjórn. Eftir þetta þarf
ekki að bæta þvl við að bókin er
flennigóð, eða, eins og danskur-
inn segir: „Et godt stykke
arbejde”. Höfundur á þakkir
skyldar. Myndskreytingar
Sigrid Valtingojer eru með þvi
bezta, sem sést hefur i bókar-
skreytilist.
Helgi Már Arthursson
-Verslunarmannafélags Reykjavíkur----
Jólatrésskemmtun
Jólatréskemmtun verður haldin að Hótel
Sögu Súlnasal, laugardaginn 3. janúar
1981, og hefst kl. 15.00 siðdegis. Aðgöngu-
miðar verða seldir á skrifstofu Verslunar-
mannafélags Reykjavikur Hagamel 4.
Miðaverð:
Börn G.Kr. 3.000 N.Kr. 30:00
Fullorðnir G.Kr. 1:000 N.Kr. 10.00
Tekið verður á móti pöntunum i simum
26344 og 26850.
Verslunarmannafélag Reykjavikur.
19
r .iÖVj®
,\ &
°pa Wa^e'"
su
W** ° V
tt \
• •• n QO“
ro\°^ y
»•' <-\ o9
b^°
Opal kjf. Skipkolti 29.
Gleðileg jól Gleðileg jól Gleðileg jól
Farsælt komandi ár Farsælt komandi ár. Farsælt komandi ár.
Þökkum viðskiptin á liðna árinu. Þökkum viðskiptin á liðna árinu. Þökkum viðskiptin á liðna árinu.
Bókaútgáfa Menningarsjóðs og
Arnarf lug Efnalaugin úðafoss Þjóövinafélagsins
Skeggjagötu 1. Sími 29511. Vitastig 13. Sími 12301. Skálholtsstíg 7. Sími 13652.