Vísir - 06.01.1969, Qupperneq 1
„Það er faríð að hvítna /
kríngum okkur"
— segir hreppstjórinn / Grimsey
lslnn nálgast nú óðum. Víða er | istakmörk íslendinga norðan lands
hann kominn á móts viö landhelg — I morgun barst tilkynning
frá Stapafelli við Hornbjarg. Frá
skipinu sáust breiðir fsjakar um
9 mílur austur af Hombjargi.
— Þaö er farið að hvitna í
kringum okkur, sagði Magnús Sím
»->• 10. síða.
Hekla og Gefjun héldu áfram í morgun
eins og ekkert hefði í skorizt
□ Starfsfólk verksmiðj-
anna Gefjunar og Heklu
mætti til starfs í morg-
un, en báðar verksmiðj-
umar hófu þá eðlilega
starfsemi. — Tókst að
koma hitunarkerfi verk-
smiðjanna í lag í gær og
rafstraumur var kominn
á þann hluta verksmiðj-
anna í morgun.
„Annar ketillinn í kyndistöð-
inni slapp óskemmdur úr brun-
anum og vonir standa til þess,
að hinn sé ekki meira skemmd-
ur en svo, að gera megi við
hann,“ sagði Richard Þórólfsson,
verksmiöjustjóri í skógerð Ið-
unnar, í viðtali við Vísi í morg-
un.
„Það er mikið verkefni fram-
undan hjá okkur við að hreinsa
hér til og ekki alveg hættu-
laust, þvi að sumir veggjanna
rétt hanga uppi og hætt við
hruni úr þeim. — Skógerðin fór
einna verst út úr brunanum.
Við kölluðum út tiltölulega
fáa okkar starfsmanna — tíu til
fimmtán — til þess að hreinsa
til í morgun, en erum þó ekki
byrjaðir enn (kl. 10). 1 skógerð-
inni unnu um 80 alls og þar af
helmingurinn kvenfólk, sem
getur varla gengið að svona
störfum".
„Bjargaðist ekkert af vélun-
um?“
„Jú. Aðalvélasalur okkar
brann ekki nema að litlu leyti.
Meirihluti vélanna stendur þar
og eru lítið sem ekkert skemmd
ar, að því er manni virðist við
fyrstu sýn. Hinn vélasalurinn,
saumadeildin, fór alveg og
sömuleiðis brann allt hráefnið,
svo verksmiðjan verður óstarf-
hæf um lengri tíma. Hins vegar
sluppu skóbirgðirnar."
„En hvað um sútunina?“
.Leðurdeildin fór alveg en
hún sá skógerðinni fyrir meiri
hluta þess leðurs sem hún not-
aði. Gærusútunin slapp til þess
að gera nokkuð vel og líkur eru
til þess, að hluti sútunarinnar
komist mjög fljótt í gang aftur.
í sútuninni unnu milli 40 og
50 manns, og komast þá 20 I
starf, þegar sútunin byrjar aft-
ur. Hinir fá atvinnu við að
hreinsað til. — En þetta er
10. síða.
Kemur til kasta
yfírnefndar?
Ekki samkomulag um fiskverð
Stöðugar viðræður um fiskverð
hafa staðið síðan fyrir jól og sam-
komulag enn ekki náðst. Sam-
kvæmt upplýsingum Efnahags-
stofnunarinnar hefur lítið miðað
síðustu daga. Það er hlutverk
verðlagsráðs sjávarútvegsins að á-
kveða verðið. Náist ekki sam-
komulag í ráðinu, fer málið fyrir
yfirnefnd 5 manna, tveggja full-
trúa fiskkaupenda og fiskseljenda
hvors um sig og oddamanns, sem
er Jónas H. Haralz, forstöðumaður
Efnahagsstofnunarinnar.
Undanfarið hefur jafnan komið
til kasta yfirnefndar að ákveða
fiskverðið, þar sem samkomulag
hefur ekki náðst. Ákvörðunin er
tekin með hliðsjón af áætlaðri
rekstrarafkomu útvegsins, verði og
vinnslu og tekjuþörf sjómanna.
Vatn fraus í slöngum og gerði slökkviliðsmönnum erfiðara um vik.
Utför Trygve Lie
fór fram í morgun
Ráðizt að handaríska
sendiráðinu í Osló um
sama leyti og Hump-
hrey kom til borgar-
innar.
• Otför Trygve Lie fyrrum
iramkvæmdastjóra Sameinuðu
þjóöanna var gerð árdegis í
dag að viðstöddu miklu fjöl-
menni. Ólafur konungur, Har-
aldur ríkisarfi og Sonja krón-
prinsessa, ráðherrar og aðrir
helztu menn Noregs voru við
kirkjuathöfnina með fjölskyldu
Trygve Lie.
Fyrir hönd Bandaríkjanna var
viðstaddur Humphrey varafor-
seti. Honum var vel tekið við
komuna til Fomebuflugvallar i
gær, en um sama Ieyti réðst
hópur ungmenna með grjótkasti
að bandaríska sendiráðinu og
voru brotnar í því 16 rúður. Sjö
ungmenni voru handtekin.
Ralph Bunche aöstoðarfram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóð-
anna kom fram fyrir hönd
U Thants.
Síðar í dag fer Humphrey til
Kristiansand og heimsækir ætt-
ingja og vini.
8 vindstig gera 5 gráðu
frost naprara en 30 í logni
Krap og ís á 5-6
km svæði í Laxá
Mörgum mun hafa fundist anda
I köldu um helgina en þá fór saman
| frost og næðingur. Blaöiö hafði
i samband við Knút Knudsen veður-
j fræðing, sem skýrði frá því, aö
j miklu meiri kæling á andrúms-
í loftinu yrðl i roki.
i Knútur sagðist ekki geta nefnt
Aðrennsli vatns hefur aukizt
að rafstöðinni í Laxá, en um
helgina hækkaði vfirborð árinn-
ar um 1 — 1V3 m á 5-6 kíló-
metra svæði upp með ánni og
safnaðist þar saman krap og ís.
Var útlit fyrir aö taka yrði upp
rafmagnsskömmtun á orkusvæöi
Laxárvirkjunar en á því er m.a.
Akureyri.
Þegar blaðið talaöi viö rafveitu
stjórann á Akureyri, Knút Oitér-
stedt í morgun kvaðst hann vona
að þaö þyrfi ekki aö gripa til raf
magnss' ömmtunar fyrir hádegi.
þar sem ástandiö hefði svolítið
batnaö.
Rekstrarstuðningur:
Von u oðgerðum
Seðlabankans
• Davíð Ólafsson, bankastjóri i
Seölabankanum, sagöi i viðtali
við blaðið í morgun að á næst-
unni væri von á aðgerðum til þess
að bæta úr rekstrarfjárskorti at-
vinnuveganna. Væri máliö í athug-
un í heild sinni.
O Atvinnurekendur á ýmsum
sviðum hafa mjög kvartað um
skort á fjármagni tii rekstrar síns,
til dæmis iönrekendui eftir geng
islækkunina.
neinar tölur í þessu sambandi, en
sagði þaö sannað, að kæling ykist
meö vindhraöa.
Sem dæmi nefndi hann, aö ef
maður færj út í 30 stiga frost
allsnakinn og aftur út 5 stig stiga
frost og væri aö auki 8 vindstig
þá fyndi hann mun meira fyrir
frosti í síðara tilfellinu og munaði
þar mjög miklu.
Færð mjög
tekin að þyngjast
ffl Færð um landið þyngdist
mjöp eftir áramótin vegna
snjóa og er nú ófært um Norð-
uusturland, Austfirði og Vest-
firði víðast hvar.
Frá Reykjavík er fært um Snæ-
fellsnes og vestur í Dali en í Gils
firði er ófært. Holtavörðuheiðin er
fær stórum bílum og leiðin allt
til Akureyrar og Húsavíkur. Tölu
verður snjóþæfingur er á vegum
í Eyjafirði og ófært er til Ólafs-
fjaröar. Vegurinn til Sifílufjarðar
var mokaður á laugardag og fært
um hann í gær.
Á Suöurlandi er færð um aiía
vegi en í gær var mjög slæmt veð
ur á Mýrdalssandi og varla fært
vegna sandbyls.