Vísir - 28.02.1969, Qupperneq 3
VlSIR . Föstudagur 28. febrúar 1969.
3
Liðin í spurningakeppni skólanna sökkva sér í verkefnin (og grúfa sig vel yfir þau, svo þeir á næsta boröi geti ekki kíkt), en kennararnir, sem fylgja
hverju liöi, bíöa í bakgrunninum spenntir eftir úrslitunum.
Þau spreyta sig á umferðarreglunum
MYNDSJ
TJvaö ungur nemur, sér gamall
temur —. segir gamla mál-
tækið og með það í huga spáir
frammistaöa bamanna, sem þátt
tóku í öðrum hluta spurninga-
keppni skólanna, góðu um um-
ferðarmenningu íslendinga kom
andi árin.
Þessi þáttur keppninnar fór
fram í Melaskólanum í vikunni
og tóku þátt í henni lið úr 13
barnaskólum, en þessi lið (skip-
uð 5 bömum, auk 3 til vara)
voru valin eftir aðalkeppnina,
sem haldin var innan allra skól
anna í byrjun desember.
Aðeins eitt stig skildi á milli
tveggja efstu liðanna, sem hlutu
réttinn til þátttöku í úrslita-
keppninni, og þess þriðja. Hin
fylgdu öll fast á eftir. Svo hörð
og tvísýn var keppnin og svo
jöfn voru liðin í kunnáttu sinni.
Þetta er í 4. sinnið, sem spurn
ingakeppni skólanna fer fram,
en hún er haldin árlega að til-
hlutan lögreglu og umferðar-
nefndar Reykjavikur, og taka
þátt í henni börn í 12 ára bekkj
um bamaskólanna. Að þessu
sinni verða það Laugalækjar-
skóli og Æfingaskóli Kennara-
skóla íslands, sem keppa munu
til úrslita í barnatíma Ríkisút-
varpsins seinni hluta marzmán-
aðar.
mmK
Prófnefndin, sem yfirfór úrlausnirnar, og tímavörður: Sverrir Guðmundsson, aðst.yfirlögreglu
þjónn (f. v.), Bogi Bjarnason og Pétur Sveinbjarnarson.
Liðm tvö, sem keppa til úrshta, hljóta að launum fyrir góða
frammistöðu viðurkenningarskjal undirritað af Iögreglustjóra,
en það liðið, sem sigrar i úrslitunum, hreppir þennan farand-
bikar, auk annarra smærri bikara.
Ásmundur Matthíasson, varðstjóri, sem í mörg ár hefur starf- Jafnvel þaulvana bílstjóra hefði einhvers staðar rekið í vörðurnar, hefðu þeir þurft að leysa
að af hálfu lögreglunnar að umferðarfræðslu í skólum, les upp úr þeim níðþungu spurningum, sem fyrir bömin eru Iagðar. Upphafsmenn keppninnar segja
spurningarnar, en til taks eru nokkrir varamenn úr skólalið- mestu erfiðleikana vera þá, að finna nægilega erfið verkefni, því þekking barnanna er svo
unum, reiðubúnir að skjótast með biöð á milli borðanna. víðtæk og nákvæm.